Morgunblaðið - 21.02.1980, Page 41

Morgunblaðið - 21.02.1980, Page 41
fclk í fréttum MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1980 41 + FYRIR nokkru voru verðlaun veitt úr, Friðarverðlaunasjóði Martin Luther King. — Fór afhendingin fram í borginni Atlanta. — Verðlaunin voru nú í fyrsta skipti veitt konu. — Hún hafði fyrir 25 árum verið farþegi í strætisvagni í borginni Montgomery í Alabama. — Hún hafði þá neitað að standa upp og rýma sætið. — Þessi kona er til hægri á myndinni, Rosa Parks að nafni. — Það er ekkja Martin Luthers (til vinstri), sem kyssir þessa gömlu gráhærðu blökkukonu á kinnina. Saksóknarinn og þing- forsetinn ræða málið + HER var fyrir skömmu sagt frá því í máli og myndum að fjármálahneyksli eitt í Bandaríkjunum næði til þjóðþingsmanna í Washington og voru þar einkum fjórir þingmenn taldir eiga hlut að máli. Það er bandaríska alríkis lögreglan FBI,< sem ljóstrað hefur upp um þetta mál. — Og þessi mynd var tekin fyrir skömmu á alvarlegum fundi um mál þetta. — Á myndinni eru til vinstri og fjær saksóknarinn Benjamin Civiletti og nær Thomas O’Neil þjóðþings- forseti. 79 ára og vantar nemendur + ÞETTA er einn mesti fiðlari heimsins, — ef ekki sá mesti segja sumir. Jascha Heifetz. — Hann varð 79 ára núna í byrjun febrúar. — Hann er hættur að halda friðluleika og voru síðustu tónieikar hans árið 1972. — Árið 1975 varð Ileifetz að gang- ast undir skurðaðgerð á axlar- liði. — En allt um það, hann er enn sístarfandi. — Á heimili sínu í Los Angeles raeddi hann fyrir skömmu við nokkra blaða- menn. Hann sagði þeim þá að hann hefði fyrir mörgum árum farið að gefa sig að kennslu i fiðluleik. — Og nú er hann kennari við háskólann í S-Kali- forniu — þó kennsla hans fari nær öll fram á heimili hans. — Hann kvaðst hafa yfir cinu að kvarta, sig skorti nemendur, — efnilega nemendur. bað væri rétt að láta það berast út á meðal almennings. Hann hefur nú búið í stórborginni í yfir 30 ár og sagðist ekki sjá eftir þeim árum sem hann hcfði átt þar heima. Nú hefði hann áhyggjur af stöðugt vaxandi reykmengun í borginni. — Það fellur víst undir stjórnmál og pólitik kem- ur mér ekki við. — Tónlistin er mín megin, held ég sjálfur, að minnsta kosti! Sýninga- höllinni viö Bíldshöföa KARNABÆR: Vörur frá öllum deildum og efni frá saumastofu. Einnig úrvals hljomtæki frá SHARP og PIONEER. STEINAR HF. íslenskar og erlendar hljómplötur mikiö úrval verö frá kr. 500 fyrir LP plötu. BLOMAVAL Græna torgiö fullt af grænmeti og ávöxtum. SOL / TROPICANA kynna ailar geröir af hinum bragögóða Tropicana djús. ISLENZK MATVÆLI Síldarréttir og annað góögæti til sölu og kynnt. GLIT HF. íslenska keramikiö frá Glit í öllu sínu veldi til sölu og sýnis. I. Pálmason Reykskynjarar og slökkvitæki. SKOVERZLUN ÞORÐAR PÉTURSSONAR Skór á alla fjölskyiduna á ótrúlega góöu verði. TOMSTUNDAHUSIÐ býöur leikföng fyrir börn á öllum aldri. GULLKISTAN Gull og silfur skrautmunir — glæsilegar gjafavör- ur. MELISSA kvenfatnaöur. CÞorgeir Ástvaldsson stjórnar uppboöum sem fram fara kl. 3—4.30 og 5.30. Þar geta allir gert góö kaup. ^ Nýjar vörur teknar fram í dag og nú er afslátturinn oröinn allt aö 70—80% af búöarveröi. Barnagæzla og veitingar á staönum, komið - meö alla fjölskylduna. Aöeins 1 dagur eftir. Opið í dag kl. 1—6.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.