Morgunblaðið - 21.02.1980, Side 44

Morgunblaðið - 21.02.1980, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. FEBRUAR 1980 VlEP MORödK/- KAFFINli 3^ Hvað missum við marna kaffitíma. ef þeir ákveða 4ra daga vinnuviku? I I l.íi^ Væri ekki reynandi að láta klukkuna hringja 5 mín. fyrr? Rautt ljós — og þú átt að nema staðar. BRIDGE COSPER Virtu þeir ekki leikreglurnar? Umsjón: Páll Bergsson Gegn þrem gröndum spilar vestur út spaðafjarkanum í spil- inu að neðan. Dálítið óvenjuleg þraut. Þar sem líta má á öll spilin er ekki mjög erfitt að fá 10 slagi. Erfiðara er að fá 11 slagi og hvernig er það hægt? Norður S. 96 H. 932 T. ÁK8 L. D6542 Austur S. KDG7532 H. 876 T. - L. K108 Suður S. Á108 H. ÁKG4 T. DG6 L. ÁG9 Fyrsta slaginn tökum við með ásnum en eftir það má austur eðlilega ekki fá slag. Hægt hefði verið að nýta lauflitinn hefðu þrjár innkomur á blindan verið fyrir hendi. En þær eru ekki. Og þó. Hjartanían er hálfgert lykil- spil. Eftir fyrsta slaginn spilum við hjartagosa. Vestur verður að taka slaginn því annars verða 11 slagir öruggir með tveim svíningum í laufinu. Ekki getur vestur þá spilað hjartanu, nían yrði þá innkoman mikilvæga. Lauf kemur ekki til mála og hann verður því að spila tígultíu, sem við tökum í blindum en látum gosann af hend- inni. Segja má, að þar með sé búið fyrsta vers. Næst svínum við laufi eins djúpt og hægt verður. Síðan hjartaás og spilum hjartafjarka. Aftur er vestur í klemmunni. Tilneyddur fær hann á tíuna og ekki er betra fyrir hann að spila laufi nú en áður. Hann verður því að spila tíglinum aftur og þar með höfum við fullkomið tak á honum. Ef hann spilar níunni tökum við í blindum og látum drottninguna heima. Getum síðan svínað lauf- inu aftur, tekið á ásinn og tígul- áttan verður innkoman til að taka tvo síðustu slagina á lauf í blind- um. Og ekki verður betra fyrirl vestur að spila lágum tígli fremur en níunni. Þá fær áttan slaginn og eftirleikurinn verður enn auðveld- Vestur S. 4 H. D105 T. 10975432 L. 73 Þegar hann er búinn að leggja drekann að velli, máttu fara að skræla kartöflurnar! „Kæri Velvakandi. Það sem setur mestan svip á umræður manna á milli í dag er tvímælalaust nýja stjórnin og tilkoma hennar. Víst er um það að hún kom ýmsum á óvart og allir ekki á eitt sáttir. Út af fyrir sig er ekkert við því að segja ef umræður eru málefnalegar og ofsinn ekki látinn fara með mann í gönur. Hinn almenni kjósandi hefir brugðist vel við og virt það að stjórnarkreppa, sem var búin að leika margt grátt, er nú leyst. Það er rætt um þaísjálfstæðismenn sem að stjórninni standa og þeim gefið að sök að virða ekki leikregl- ur. Og eins er Gunnar Thoroddsen ásakaður mjög um að hafa brotið lög flokksins. Ég minnist þess fyrir mörgum árum að Halldór Laxness skrifaði um Stefán frá Hvítadal og komst að þeirri niðurstöðu að Stefán hafi ekki verið stéttvís. Guðmundur Finnbogason próf. svaraði þessu nokkrum orðum og sagði að þótt kannski mætti finna rök fyrir því að Stefán hafi ekki verið stéttvís, þá hafi hann verið þjóðvís. Taldi hann þann kost vænlegri en binda sig við eina stétt. Skyldi ekki sama vera hægt að segja um Gunnar Thoroddsen þeg- ar þokum hefir verið svipt burt að hann hafi ef til vill ekki í þrengsta skilningi verið flokksvís í þessu tilfelli, þá hafi hann verið þjóðvís og það gerir gæfumuninn? Engin regla er án undantekningar og þannig geta einnig flokksböndin verið að á þeim þurfi að slaka þegar land og þjóð á í hlut. Það þurfi að opna gluggann. Og óneit- anlega hefði það verið drengilegra og mannlegra að flokkurinn hefði fylgt samhuga þessari leið undir forystu Gunnars þegar öðrum leiðum var lokað. I það minnsta eru margir al- mennir kjósendur Sjálfstæðis- flokksins, sem hefðu sætt sig betur við það, en að hóta strax harðri andstöðu og gera stjórninni Maigret og vínkaupmaðurinn Eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir sneri á íslensku 51 að líta undan. en það þurfti nú ekkert að segja mér meira ... Maigret sat þöguii. Hann fékk sér í pípu og kveikti i í makindum. Loks sagði hann: — Viljið þér ieyfa mér að bera upp spurningu um atriði sem kemur mér ekkert við? Hún leit kvíðin á hann. — Fyrst þér þckktuð hann nú svona — og sáuð t gegnum hann — hvers vegna hélduð þér áfram að stússa með honum? Hún lét sér hvergi bregða. — Hann eða einhvern annan ... ég varð nú að hafa einhvern ... Svo bætti hún við og var nú alvarlegri. — Hann var eins og annar maður þegar hann var með mér. Hann þurfti ekki að vera með stæla eða spila einhvern stórkall. Hann leyfði sér að sýna hversu viðkvæmur hann var innst inni... „Kannski er það vegna þess að þú skiptir mig engu — þú ert bara smástelpa og þú reynir ekki að mergsjúga mig ...“ Hann var mjög hræddur við að deyja. Það var eins og hann hefði grun um að eitthvað mundi ske. „Vísast reyna einhvern tima einhverjir af þessum hjálfum að hefna sín.“ „Ilvers vegna gerið þér allt til þess að fá fólk til að hata yður?“ spurði ég. „Vegna þess að ég get ekki fengið fóik til að elska mig. I>á cr bærilegra að það hati mig en ckkert.“ Hún hélt áfram og talaði nú rólegar: — Svoleiðis var nú það ... Eg hef engar spurnir haft af Pigou. Ég veit ekki hvað um hann varð. Mér datt ekki einu sinni í hug að segja yður frá honum, vegna þess mér fannst þetta vera liðin tíð. En svo J bióinu i gær fór ég allt í einu að hugsa um þetta ... Skömmu síðar gekk Maigret niður stigann og barði að dyr- um á skrifstofu bókhaldarans. Lapointe sat þar og talaði við litlausan ungan mann í dökk- um. kauðskum fötum. — Þetta er Jacques Riolle, húsbóndi góður. — Við höfum hitzt. — Það er líka rétt. Ég mundi ekki eftir því. Riolle var svo feiminn að hann vissi ekki hvernig hann átti að hegða sér. Skrifstofan hans var drungalegri flestum vistarverum í húsinu og af einhverjum ástæðum var vín- lyktin sterkust hér. Geysilega stór peningaskápur stóð við einn vegginn og húsgögnin sem virtust eldforn voru subbuleg og illa farin. Riolle leit á hann og Maigret hafði á tiifinningunni að þetta væri í raun og veru annar Pigou. — Ertu húinn Lapointe? — Ég var bara að bíða eftir yður. Þeir köstuðu kveðju á unga manninn og hröðuðu sér niður. Þcgar þeir voru seztir inn í bilinn sagði Lapointe og and- varpaði: — Ég var farinn að halda að þér ætluðuð aldrei að koma. Timinn er lengi að Hða þegar maður er hjá svona grútleiðin- iegum manni — sem hcfur heldur ekkert markvert til mál- anna að icggja. ... en hann sagði mér nú af sjálfum sér þótt það gengi erfiðlega í fyrstu að toga það upp úr honum. — Ilann er ekki lærður bók- ari, en er á kvöldskóla og reiknar mcð að taka próf í kúnstinni cftir tvö ár. Ilann er trúlofaður ungri stúlku sem er ættuð frá Nevers eins og hann. Þau geta ekki gift sig fyrr cn hann fær launahækkun, þvi að þau geta ekki lifað af þeim launum sem hann hefur nú ... — Býr hún enn i Nevers? — Já, hjá foreldrum sínum. Hún vinnur þar í verzlun og hann heimsækir hana einu sinni í mánuði. Lapointe hafði tekið stefnuna á Quai des Orfevres. Maigret veitti því athygli og sagði:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.