Morgunblaðið - 01.04.1980, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
77. tbl. 67. árg. ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Til sátta horfir
í stálverkf allinu
Lundúnum, 31. marz. AP.
TIL samkomulags horfði í
stálverkfallinu í Bretlandi
í dag eftir að sáttanefnd
hafði mælt með, að verk-
fallsmönnum verði boðin
15,5% kauphækkun. Bill
Sirs, einn helsti leiðtogi
Krabbi í
lifur
keisarans
Kairó, 31. marz. AP.
REZA Pahlevi, fyrrum írans-
keisari, þjáist af krabbameini i
lifur, að því er einn af læknum
Maadi sjúkrahússins í Kairó
skýrði frá í dag. Læknar fjar-
lægðu miltað úr keisaranum í
siðustu viku.
Læknirinn, Faud Nuur, sagði
að ekki þyrfti endilega að fjar-
lægja lifrina líka. Lyfjum yrði
beitt gegn krabbameininu í lifr-
inni. Hann var spurður hvort
keisarinn gæti lifað eðlilegu lífi,
þó að krabbameinið hefði
breiðst út til lifrarinnar, og
svaraði hann því játandi. En
aðrar læknaheimiiidir sögðu, að
þegar krabbamein væri komið á
það stig, sem nú virðist hjá
keisaranum, þá væri sjúkdóm-
urinn oftast banvænn.
verkfallsmanna, sagðist
mundu mæla með, að stál-
verkamenn tækju þessu
tilboði.
Talsmenn British Steel sögðu
að fyrirtækið myndi sætta sig
við tilboð sáttanefndar, „þó
þetta boð sé hærra en við höfum
boðið, teljum við að fyrirtækið
standi undir þessu,“ sagði tals-
maður British Steel.
British Steel hafði boðið
14,4% launahækkun en verka-
lýðsfélögin hafa krafist 19,7%
launahækkunar. Verkfall stál-
verkamanna hjá ríkisfyrirtæk;
inu hefur nú staðið í 13 vikur. í
tillögu sáttanefndar er gert ráð
fyrir sérstakri bónusgreiðslu ef
ákveðinni framleiðni verði náð.
Símamynd AP.
Maður með byssu í hendi, hleypur á brott frá logandi bil í E1 Salvador. Sjá frétt á bls. 47.
Yf ir 5 þúsund f allnir í
bardögum í Laghman
Nýju Dehlí. 31. marz. AP.
YFIR 5 þúsund manns hafa
fallið í hörðum bardögum í
Laghmanhéraði í austurhluta
Afganistans síðari hluta
marz, að því er heimildir, sem
Stoðin, sem gaf sig í togi á leið til Stafangurs.
Simamynd AI’.
hafa reynst áreiðanlegar,
hermdu í Nýju Dehlí í dag.
Sovétmenn hafa beitt stór-
skotaliði, orrustuþotum og
þyrlum á varnarlausa borg-
ara og lagt mörg þorp í rúst.
Fjöldi manns hefur flúið til
fjalla. en að sögn er fjöldi
kvenna, barna og aldraðra
meðal hinna föllnu. Heimildir
segja að Sovétmenn beiti nap-
almsprengjum.
Mannfall hefur verið mikið
meðal skæruliða. Bardagar
blossuðu upp af mikilli heift upp
úr miðjum marz eftir að skæru-
liðar réðust inn í Metrelam,
höfuðborg fylkisins og kveiktu í
opinberum byggingum, auk þess
að fella fjölmarga opinbera
starfsmenn.
Afganskir stjórnarhermenn
hafa hins vegar goldið mikið
afhroð í bardögum við skæruliða.
Þá hefur það lamað stjórnarher-
inn mjög, að hundruð hermanna
hafa hlaupist undan merkjum,
vegna þess hve Sovétmenn hafa
Rannsókn á stoðinni
er hafin í Stafangri
Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Mbl.
Ósló, 31. marz.
RANNSÓKN á stoðinni, sem gaf
sig á norska íbúðarpallinum Alex-
ander Kieiland, hófst i dag eftir að
dráttarbátur kom með stoðina í
togi til Stavangurs. Búist er við, að
langur tími liði áður en niðurstöð-
ur liggja fyrir. Þjóðarsorg ríkti í
dag í Noregi og hvarvetna blöktu
fánar við hálfa stöng. Ljóst er að
123 manns fórust i slysinu en 89
manns komust lifs af.
Kafarar köfuðu í dag niður með
Alexander Kieland, þar sem hann
flaut á hvolfi í Norðursjó. Búist er
við, að í pallinum séu mörg lík.
Erfitt verður að koma pallinum til
lands, þar sem óttast er að olíu-
leiðslur á botni Norðursjávar kunni
að verða fyrir hnjaski.
Engar skýringar hafa opinberlega
komið fram á orsökum slyssins í
Norðursjó. Ýmsar kenningar hafa
verið uppi. Meðal annars, að gaskút-
ur, sem var skammt frá stoðinni
sem gaf sig, hafi sprungið. Þá er
hald margra, að málmþreyta hafi
verið komin í stoðina. Fréttir
hermdu í dag, að norska ríkisstjórn-
in hefði ákveðið, að fresta borunum
við Norður-Noreg, þar til rannsókn-
ir lægju fyrir. Tilraunaboranir áttu
að hefjast í maí. Þessi frétt var
borin til baka. Ljóst er þó, að slysið
á eftir að hafa afdrifaríkar afleið-
ingar fyrir norskan olíuiðnað. Kröf-
ur hafa komið fram um hert örygg-
iseftirlit, svo og strangari kröfur til
mannvirkja. Sérfræðingar fullyrtu
að olíuborpallar á Norðursjó væru
öruggir. Þær fullyrðingar stóðust
ekki — slysið sem átti ekki að geta
átt sér stað gerðist engu að síður.
gengið grimmilega fram í bar-
dögum og ekkert skeytt um
óbreytta borgara.
Babrak Karmal sagði í dag í
viðtali við v-þýzka blaðið Spiegel,
að Sovétmenn hefðu ekki beitt
eiturgasi í landinu. Hann sagði
að afganskir stjórnarhermenn
berðust við skæruliða en ekki
sovéskir hermenn. Fréttastofan
sovéska, TASS sagði í dag, að það
hefðu verið skæruliðar sem
myrtu sendiherra Bandaríkjanna
í Kabúl fyrir ári síðan. Skærulið-
ar hafi ætlað að fá sendiherrann
til að viðurkenna stuðning
Bandaríkjamanna við Amin-
stjórnina illræmdu. Afgönsk
stjórnvöld kölluðu Amin „njósn-
ara heimsveldissinna". Amin
komst til valda í byltingu með
stuðningi Sovétmanna.
Taka stjórnvöld í
íran við gíslunum?
Teheran, Washington, 31. marz. AP
BANI-SADR, forseti írans
hélt í dag fund með náms-
mönnum í bandaríska sendi-
ráðinu í Teheran. Búist er
við, að írönsk stjórnvöld
muni tilkynna á morgun,
þriðjudag, að fangarnir í
sendiráðinu verði fengnir í
hendur stjórnvöldum lands-
ins.
Hins vegar réðst ayatolah
Khomeini harkalega á Bandaríkin
í ræðu í dag og þykir margt benda
til þess, að hörð valdabarátta eigi
sér nú stað í íran og að
erkiklerkurinn sé helsta hindrun-
in í vegi fyrir, að stjórnvöld taki
gíslana í sína vörzlu. Jimmy Cart-
er, forseti Bandaríkjanna hætti í
dag skyndilega við að halda ræðu
á fundi. Þess í stað hélt hann fund
með helstu öryggisráðgjöfum
sínum en þessi fundur forsetans
með öryggisráðgjöfum sínum átti
sér stað skömmu áður en fréttir
bárust um hugsanlega yfirtöku
stjórnvalda á gíslunum.
Embættismenn í Washington
leiddu getum að því í dag, að
írönsk stjórnvöld hefðu verið að
reyna að binda endi á deiluna um
gíslana, með því að segja frá
skilaboðum bandarískra stjórn-
valda. Með þessu hafi stjórnvöld
viljað skapa óvissu og um leið
reynt að fá gíslana í sínar hendur.
Sjá frétt um íran bls. 47.
Bardagar
blossa enn
upp í Chad
N’Djamana. 31. marz. AP.
BARDAGAR blossuðu upp aftur í
dag eftir að leiðtogar hinna
stríðandi afla í Chad höfðu sam-
þykkt vopnahlé í gær, sunnudag.
Vopnahléið var hið þriðja. Vonir
um, að takist að koma á sáttum í
landinu þykja nú litlar og svo
virtist, sem Goukouni Queddi for-
seti ætiaði að berjast til þrautar.
Yfir 70 þúsund flóttamenn eru
sagðir komnir til nágránnaríkisins
Kamerún.
Egyptar, Súdanir og Nígeríumenn
hafa boðist til að reyna að koma á
sáttum meða hinna stríðandi fylk-
inga í landinu. Þrjár fylkingar,
þeirra á meðal Queddi og kristnir
menn, hafa myndað bandalag gegn
herjum Hissene Habre, varnarmál-
aráðherra landsins.