Morgunblaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. APRIL 1980
31
Haraldur Kristjánsson
skipstjóri — 75 ára
Sjötíu og fimm ára er í dag, afi
minn, Haraldur Kristjánsson
skipstjóri. Hann er fæddur að
Miklaholtsseli í Miklaholtshrepp,
þann 1. apríl 1905, sonur hjónanna
Elínar Jónsdóttur og Kristjáns
Þórðarsonar, Þórðarsonar alþing-
ismanns frá Rauðkollsstöðum í
Eyjahreppi. Elín var alin upp hjá
ættmennum Kristjáns.
Afi er einn af átján börnum
þeirra hjóna, en aðeins tólf þeirra
komust til fullorðinsára. Kristján
faðir hans var búfræðingur að
mennt og bjó að Miklaholtsseli
þar til árið 1915. Þá fluttist
fjölskyldan búferlum að Fossárdal
í Fróðárhrepp. Afi var þó eftir í
Miklaholtsseli um nokkurra mán-
aða skeið, ásamt systur sinni
Ásdísi, til að sjá um búið þar til
hinn nýji ábúandi kæmi.
Þrettán ára gamall fór afi að
stunda sjómennsku með föður
sínum og reru þeir á opnum báti.
Fermingarárið réð afi sig í
fiskvinnu til ísafjarðar og komst
fljótlega sem matsveinn á skútu.
Hann var í því starfi í tvö sumur,
en vann sem vetrarmaður á
bernskustöðvum sínum.
Um sextán ára aldur lá leiðin til
Vestmannaeyja. Okkur borgar-
börnunum þykir merkilegt að
heyra frá förinni til Eyja, er hann
gekk við annan mann allt frá
Olafsvík til Borgarness, með
vertíðargallann á bakinu. Á leið-
inn slógust svo fleiri í hópinn. Það
er víst óhætt að segja að elsta
kynslóðin má muna tímana
tvenna. En hvað um það, til
Vestmannaeyja fór hann og var á
vetrarvertíð í fjögur ár ýmist sem
háseti eða vélstjóri, en var á síld á
Siglufirði á sumrin. Afi tók skip-
sljóra- og vélstjórapróf í Eyjum
samtímis árið 1925.
Þá lá leiðin til Sandgerðis þar
sem afi var vélstjóri á Svan II um
þriggja ára skeið. Árið 1931 lét
hann byggja 22 tonna bát í félagi
við Gísla Eggertsson og Huxley
Ólafsson. Þann bát, Eggert, átti
þeir í þrjú ár og gerðu út frá
Sandgerði.
Árið 1933 giftist afi Ragnheiði
Sigríði Erlendsdóttur, glæsilegri
og góðri konu frá Hlíðarenda í
Fljótshlíð. Ragnheiður var ekkja
og átti tvo syni frá fyrra hjóna-
bandi, Gunnar Hámund og Valdi-
mar Ragnar, sem afi gekk í
föðurstð. Valdimar lést árið 1975.
Afi og amma eignuðust fjögur
börn: Marinellu Ragnheiði, Kristj-
án Erlend, Guðmund og Þórð.
Barnabörnin eru nú orðin 19
talsins og barnabarnabörnin 16.
Afi byggði stórt og glæsilegt
hús fyrir ofan byggðina í Sand-
gerði, sem þau nefndu Uppsali.
Hann byggði þar einnig þurrfisk-
reit, þar sem hann verkaði sinn
hluta aflans, ásamt röskri fjöl-
skyldu sinni. Það er álit manna að
þetta hafi verið einstakt mann-
virki miðað við þess tíma aðstæð-
ur og unnið af miklum dugnaði og
hugvitssemi.
Á þessum tíma var afi lengst af
vélstjóri á Muninn sem gerður var
út frá Sandgerði. Árið 1942 gerðist
hann skipstjóri á Kára Sölmund-
arsyni og síðar á Freyju, þá á
Víkingi og fleiri bátum.
Afi var óvenju harðfenginn og
fengsæll sjósóknari og sótti í
hvaða veðrum sem var, svo að
mörgum þótti nóg um. En alltaf
skilaði hann skipi og mannskap
ósködduðum heim, þótt hann reri
oft einskipa í aftaka veðrum. Það
sem eflaust hefur ráðið miklu um
velgengni afa er það að hann er
með afbrigðum veðurglöggur og
þekkir gerla háttalag fisksins,
fiskimið og sjólag. Það væri nóg
efni í heila bók sögur af sjósókn
afa og harðfengi, en þessar sögur
hef ég flestar heyrt frá öðrum en
afa, því að hann er hógvær maður
og er ekki gefið um að segja frá
sjálfum sér.
Sjálfur þakkar afi gæfu sína og
velgengni á sjómannsferli sínum
því, að hann hafði Guð ætíð með í
verkum og treysti honum. „Það
var Guð og lukkan sem réði
þessu,“ segir afi.
Amma stóð sig með skörungs-
skap í hinu erfiða hlutverki sjó-
mannskonunnar, og sá um börn og
bú með miklum dugnaði. Bernsku-
ár systkinanna í Sandgerði eru
bundin góðum minningum, sem
blandnar eru trega og ótta við
ofurefli hafsins og náttúruafl-
anna. En gæfan fylgdi þeim ætíð.
Árið 1947 fluttust þau alfarin til
Reykjavíkur, og bjuggu á Hverfis-
götu 108, þar til þau byggðu í
Grænuhlið 22 ásamt dóttur sinni
og tengdasyni. Amma lést árið
1977. Blessuð sé minning hennar.
Eftir að þau fluttu til Reykja-
víkur var afi skipstjóri á Kristínu
og ’fleiri bátum í eigu Einars
Sigurðssonar útgerðarmanns.
Árið 1963 keypti afi mótorbát-
inn Sjóla, ásamt tengdasyni sínum
Jóni Guðmundssyni. Tveimur ár-
um síðar komu þeir á fót saltfisk-
og skreiðarverkun í Reykjavík.
Árið 1971 keyptu þeir frystihús í
Hafnarfirði, Sjólastöðina, sem
þeir starfrækja enn í dag. Afi var
skipstjóri á Sjóla allt til ársins
1975, eða til 70 ára aldurs. Þá
hafði hann stundað sjómennsku í
56 ár, og þar af verið skipstjóri í
33 ár.
Hafið átti hug hans, enda hefur
mest af orku hans farið í að
berjást við það ógnarafl. En hugur
hans og hjarta rúmar einnig hið
veika og vanmáttuga. Yngsta
kynslóðin hefur alltaf haft mikil
ítök í afa. Mörg okkar barnabarn-
anna eigum okkar fyrstu bernsku-
minningar tengdar „spássitúrum"
með afa niður á tjörn með brauð-
bita í poka handa litlu fuglunum.
Og svo má ekki gieyma öllum þeim
fróðleik og þeirri reynslu sem
amma og afi miðluðu okkur af, úr
sinni bernsku og fortíð sem eru
okkur svo dýrmæt og gagnleg. Ég
hef oft leitt hugann að því hve
lánsöm við höfum verið að hafa
fengið tækifæri til þess að alast
upp í svo nánu sambandi við
ömmu og afa, sem hafa reynst
okkur svo vel og eiga svo margt
gott skilið af okkur.
Ég óska elsku afa mínum inni-
lega til hamingju með afmælið í
dag og Guðs blessunar.
Dótturdóttir
Leiðrétting
I frétt Morgunblaðsins
sl. laugardag um tónleika
Kirkjukórs Akraness í
Kristskirkju í kvöld,
þriðjudagskvöld, féll niður
í upptalningu aðalverkið í
flutningi kórsins, þ.e. Re-
quiem eftir Gabriel Faure.
Blaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
1974 — Upplýsingar frá Marin-
er 10 gefa til kynna að enginn
fylgihnöttur snúist um Merkúr.
1970 — Tillaga Frakka um
ráðstefnu um hlutleysi Indókína.
1968 — Stórsókn hafin til bjarg-
ar bandarískum landgönguliðum
úr umsátri í Khe Sanh, Suður-
Víetnam.
1966 — Ríkisstjórn Harold
Wilsons endurkjörin í kosning-
um í Bretlandi.
1964 — Francois Duvalier skip-
ar sig forseta til lífstíðar á
Haiti.
1%0 — Suður-Afríkustjórn
bannar samtök blökkumanna
(Afríska þjóðarráðið og Al-
afríska þjóðarráðið).
1948 — Rússar hefja truflanir á
samgöngum milli Berlínar og
Vestur-Þýskalands.
1945 — Orrustan um Okinawa
hefst.
1939 — Franco hershöfðingi
tilkynnir að borgarastríðinu á
Spáni sé lokið og Bandaríkin
viðurkenna stjórn hans.
1937 — Stjórnarskrá Indiands
tekur gildi.
1933 — Gyðingaofsóknir hefjast
í Þýzkalandi.
1918 — Brezki flugherinn (RAF)
stofnaður.
1867 — Stjórn Austur-Indíufé-
lagsins lýkur í Malaya sem
verður brezk krúnunýlenda.
1852 — Síðara Burma-stríðið
hefst.
1666 — Frakkar taka St. Kitts,
Vestur-Indíum, af Englending-
um.
1572 — Frelsisstríð Hoilendinga
hefst.
Afmæli — Otto von Bismarck
fursti, þýzkur stjórnmálaleiðtogi
(1815-1898) - William Harvey,
enskur eðlisfræðingur (1548—
1657) — Edmond Rostand,
franskur rithöfundur (1868—
1919) — Sergei Rachmaninoff,
rússneskt tónskáld (1873—1943)
— Lafði Clementine Churchill,
kona Sir Winston ChurchiII
(1885-1977) - ' Debbie Reyn-
olds, bandarísk leikkona (1932
- )•
Andlát — 1548 Sigsmund I
konungur af Póllandi.
Innlent — 1855 íslendingar fá
verzlunarfrelsi — 1772 Lyfsali á
íslandi — 1871 Stöðulögin taka
gildi — 1873 Hilmar Finsen
tekur við embætti fyrsta lands-
höfðingja — 1871 Landssjóður
stofnaður — 1872 d. Skúli Thor-
arensen — 1823 f. Vilhjálmur
Finsen — 1936 Lög um alþýðu-
tryggingar taka gildi — 1947
Askan frá Heklu nálgast Skot-
land — 1899 f. Ásgeir Bjarn-
þórsson.
Orð dagsins. Hverja mínútu sem
menn eru reiðir tapa þeir sextíu
sekúndum af hamingju — Ralph
Waldo Emerson, bandarískur
rithöfundur (1803—1882).
Veður
Akureyri 2 alskýjað
Amsterdam 13 heiðríkt
Aþena 18 heiðríkt
Barcelona 15 þokumóöa
Berlín 10 heiörikt
BrUssel 13 skýjað
Chicago 6 skýjað
Denpasar 32 skýjað
Dublin 8 heiöríkt
Feneyjar 15 skýjaö
Frankfurt 12 rigning
Genf 12 skýjað
Helsinki 5 skýjað
Hong Kong 25 skýjað
Jerúsalem 22 heiðríkt
Jóhannesarborg 23 heiðríkt
Kaupmannahöfn 7 rigning
Las Palmas 20 heiðríkt
Lissabon 20 heiðríkt
London 12 rigning
Los Angeles 24 rigning
Madríd 23 heiðríkt
Malaga 23 heiðríkt
Mallorca 18 heiöríkt
Moskva 5 heiðríkt
Nýja Delhi 30 heiðríkt
New York 14 rigning
Ósló 2 skýjaö
París 12 rigning
Reykjavík 4 skýjað
Rio de Janeiro 37 skýjað
Rómaborg 17 bjart
San Francisco 19 heiöríkt
Stokkhólmur 4 skýjað
Sydney 23 heiðríkt
Tel Aviv 24 bjart
Tókýó 18 skýjað
Vancouver 11 rigning
Vínarborg 12 skýjaö
mest se!da
tímaritiö
Nýtt tölublaö komiö út. — Glæsilegt og vandað. — Fróðlegt
Kaupum Líf — Lesum Líf — Geymum Líf.
Áskriftarsímar 82300 og 82302.
skemmtilegt.
FRJALST FRAMTAK HF.
*ZrZ;*ío ” > -
iski
Koncf
inSkars
-'ntnaJEjkA