Morgunblaðið - 26.04.1980, Page 48
PIERPODT
QUARTZ — úr
Þessi heimsþekktu úr
fást hjá flestum úr-
smiðum.
Rotterdam:
Gasolía hækkar um
20% á tveimur vikum
OLÍUVERÐ hefur haldið áfram að
hækka á Rotterdammarkaðnum
að undanförnu <>g hefur Kasolíu-
verðið t.d. hækkað um tæp 20% á
2—3 vikum.
Skráð verð á gasolíu var 330,50
dollarar hvert tonn s.l. föstudag en
var 276 dollarar á fyrstu dögum
mánaðarins. Er hækkunin 19,7%.
Skráð verð á bensíni var 372,50
dollarar hvert tonn s.l. föstudag en
var 341 dollar á fyrstu dögum
aprílmánaðar. Hækkunin er 9,2%.
Minni hækkun hefur orðið á svart-
olíu, en hún er nú skráð á 159
dollara hvert tonn.
Jökultindur SI 200 fórst á miðvikudag:
Skipverjarnir
þrír taldir af
ÞRÍR skipverjar vélbáts-
ins Jökultinds, sem fórst
sl. miðvikudagskvöld
norðvestur af Vestmanna-
eyjum, eru nú taldir af.
Hefur fundizt lík eins
þeirra, skipstjórans, en
leit verður haldið áfram í
dag úr lofti og fjörur
gengnar.
Eigandi og skipstjóri Jökultinds
var Guðmundur Einar Guðjónsson
kafari og sjókortagerðarmaður.
Hann var 49 ára að aldri og lætur
eftir sig konu og 3 börn. Með
honum á bátnum var sonur hans
Magnús Rafn, tvítugur að aldri,
báðir til heimilis að Bogahlíð 18 í
Reykjavík. Þriðji skipverjinn er
Kári Valur Pálmason, tvítugur
gullsmíðanemi, til heimilis að
Brekkugerði 12 í Reykjavík.
Skömmu eftir hádegið í gær
fann flugvél Landhelgisgæzlunnar
Guðmundur Einar Guðjónsson
lík skipstjórans rekið á Steina-
fjöru undan bænum Berjanesi í
Austur-Eyjafjallahreppi.
Sjá nánar á bls. 3.
Kári Valur Pálmason
/
Frá sáttafundinum á sumardaginn fyrsta. Sjómenn til vinstri á myndinni, en útvegsmcnn til hægri. Við
borðsendann situr Guðmundur Vignir Jósepsson. - Ljósm.: ÚHar.
F.vrsti ísfirzki togar-
inn á sjó í gærkveldi
Þorskveiðibann hans rann út á miðnætti,
hinna rennur út sólarhring siðar
SAMKOMULAG Alþýðusambands Vestfjarða og Útvegsmannafélags
Vestfjarða, sem tókst á sumardaginn fyrsta eftir 32ja tíma
samningalotu, gildir til 1. maí 1981. Var samkomulagið samþykkt i
Sjómannafélagi ísfirðinga í gærdag með 38 atkvæðum gegn 11. en
tveir seðlar voru auðir. Aður höfðu útvegsmenn fullgilt samninginn.
Fyrsti isfirzki skuttogarinn, sem siglir, fór á sjó í gærkveldi, en á
miðnætti í nótt rann út þorskveiðibann togarans. Hinir ísfirzku
togararnir munu sigla síðdegis í dag. en á miðnætti næstkomandi
rennur þorskveiðibann þeirra út. Verkfallið á skuttogurunum hefur
staðið frá 20. marz, en á línubátum frá 30. marz.
Magnús Rafn Guðmundsson
Pétur Sigurðsson, forseti Al-
þýðusambands Vestfjarða, kvað
samkomulagið tvíþætt. í fyrsta
lagi væri um að ræða atriði, sem
sneru að opinberum aðilum og
afgreidd væru með yfirlýsingum
og loforðum sjávarútvegsráð-
herra. Þar á meðal er skiptapró-
sentan og framlag í olíusjóð af
óskiptu 2,5% og sjómenn fengu
gefið í skyn að ráðherra væri
velviljaður og þessi prósenta fari í
skipti við næstu fiskverðsákvörð-
un. Þá eru skrifleg loforð ráðherra
um að flýta fyrir þessum tveimur
félagsmálapakkafrumvörpum,
sem eru frá árinu 1978, „loforð
tveggja fyrrverandi vinstri
stjórna og ætlar þriðja vinstri
stjórnin nú að efna þau“, eins og
Pétur komst að orði. Þá kvað hann
vera sameiginlega yfirlýsingu um
tilmæli til aflatryggingasjóðs um
auknar greiðslur vegna fæðis-
kostnaðar. Fylgir því líka loforð
ráðherra, að ýta því máli fram
fyrir 1. júní.
I samkomulaginu er sameigin-
leg yfirlýsing aðila um að afgreiða
frívaktarvinnuna, sem ekki var
beint fjárhagslegs eðlis sem krafa,
og verður hún skoðuð sameigin-
lega í eitt ár niður í kjölinn. Kvað
Pétur um vera að ræða viðamikla
könnun, sem gerð yrði.
I öðru lagi eru kjaraatriði um
breytingar á samningnum og er
það ekki mikið að vöxtum að sögn
Péturs Sigurðssonar. Hafnarfrí á
togurunum breytast töluvert, sjó-
menn fá 6 klukkustunda lengingu
á hverju fríi 4 til 5 fyrstu mánuði
ársins og síðan kemur einnig
lenging á fríi um 6 klukkustundir
um áramót. Hafði verið uppi deila
um það, hvort þar væri um að
ræða 3ja daga frí eða 6 daga frí og
er hún nú útkljáð. Verða frídag-
arnir nú 5. Þá er samið um að 12
menn verði á línubátum og 6 menn
í landi. Gefur það línumönnum
meiri tekjumöguleika, en veldur
meiri vinnu, sérstaklega hjá ein-
um mannanna. Sá fær sá ‘A hlut
meira.'Þetta fyrirkomulag má þó
ekki nota í desember og janúar-
mánuðum. Þá var samið um 5%
hækkun á ákvæðisbeitingu. Nú
verða og útgerðarmenn að til-
kynna með 30 klukkustunda fyrir-
vara, ef bræla fer upp í hafnarfrí.
Þá voru smærri tilfæringar í
samningunum.
45% hækkun á
flugvélabensíni
HAFIN er sala á flugvéla-
bensíni á ný, en sem kunn-
ugt er hefur verið skortur
á því undanfarnar vikur.
Umtalsverð hækkun hefur
orðið á flugvélabensíninu
frá síðasta farmi. Kostar
lítrinn nú 271 krónu en
kostaði áður 186 krónur.
Er hækkunin 45,7%.
Að sögn Ólafs Johnson
viðskiptafræðings hjá
Skeljungi hf. er hækkunin
aðallega til komin vega
erlendra verðhækkana og
gengissigs, en síðasti farm-
ur var keyptur í ágúst í
fyrra. Hins vegar verður
hlutur olíufélagsins
óbreyttur í krónutölu. Nýju
birgðirnar munu endast í
5—6 mánuði.
54 milljónir í
söluskatt vegna
borhola í Kröflu
ÁÆTLAÐ er að hefja boranir
fyrir Kröfluvirkjun 15. næsta
mánaðar og er ákveðið að bora
2 holur á svæðinu, en til um-
ræðu hefur verið að þrjár holur
verði boraðar þar í úr. Nú er
verið að ráða áhöfn á borinn
Jötun, sem geymdur hefur verið
í Mývatnssveit siðan í júlí í
fyrra. Siðan þá hafa ekki verið
verkefni fyrir þennan stóra
bor.
Samkvæmt upplýsingum
Þorgils Jónassonar, sem er sett-
ur forstöðumaður Jarðborana
ríkisins í fjarveru ísleifs Jóns-
sonar, er reiknað með að það
taki 45 daga að bora hvora holu.
Jötunn kostar 3—4 milljónir
króna á sólarhring frá Jarðbor-
unum, en inni í þeirri upphæð
eru um 600 þúsund krónur í
söluskatt á hvern dag. Samtals
fara því um 27 milljónir króna af
kostnaði við hverja holu í sölu-
skatt til ríkisins. Kostnaður við
boranirnar er þó meiri heldur en
3—4 milljónir á dag, því að
verkkaupi, sem er Rarik og
Kröfluvirkjun, sér sjálfur um
mikinn kostnað við framkvæmd-
irnar.
Á næstunni verður borinn
Narfi fluttur frá Ytri-Tjörnum í
Eyjafirði í Mývatnssveit, þar
sem hann á að hreinsa tvær
holur á Kröflusvæðinu og eina
holu í Bjarnarflagi. Borinn Dofri
hefur lokið borun í Blesugróf
fyrir Hitaveitu Reykjavíkur og
fer næst í verkefni í Svartsengi
fyrir Hitaveitu Suðurnesja. Bor-
inn Glaumur vinnur nú við
borun í Urriðavatni fyrir Hita-
veitu Egilsstaða og Fellahrepps.
Að sögn Þorgils Jónassonar er
um meiri verkefni að ræða nú
hjá Jarðborununum ríkisins
heldur en tvö síðastliðin ár og
auk framangreindra verkefna
nefndi hann boranir í tengslum
við hugsanlegar virkjunar-
framkvæmdir.