Morgunblaðið - 18.05.1980, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MAÍ1980
Utgerðarmenn
Til sölu eru reknetaveiöarfæri, Hornafjaröarfrystari
og kraftblökk.
Uppl. í síma 92-8206 Grindavík.
Fyrirtæki til sölu
Hlutafélag, sem rekur heildverzlun og iönaö,
er til söiu.
Þeir sem kynnu aö hafa áhuga á þessu sendi
upplýsingar til blaðsins fyrir 25. þ.m., auö-
kennt: „Heildverzlun — iðnaöur — 6463“.
Fyllstu þagmælsku heitið.
Frá Sálarrannsóknafélagi íslands
Bresku miölarnir Coral Polge og Robin Stevens sýna
ósjálfráöa teiknun og skyggnilýsingu í félasheimili
Seltjarnarness í dag, sunnudaginn 18. maí kl. 20.30.
Aögöngumiðar viö innganginn.
Stjórnin
Ur furu og eik
Baöskápar, fataskápar. Til sölu og sýnis. Á góðu
veröi.
Sófaborö kr. 80.000.-.
Smíöum eftir máli í eldhús o.fl.
Tréiðjan
Tangarhöföa 2. S: 33490.
Opið í dag frá kl. 13-17
og alla virka daga.
Fyrirliggjandi
OFNÞURRKAÐUR
HARÐVIÐUR
TEAK 21/zx5“ — ARAPUTANGA 2 og 2V2“ — RAMIN
1V4x6“ — AFORMOSIA 21/2“ — OREGON PINE 2 og
21/2x5“ — PITCH PINE 2 og 21/2“
Rásaður krossviöur (Douglas Fir og Singtex) 9,5 og
12,5 mm, 122x244 og 122x274 cm.
PÁLL ÞORGEIRSSON & CO.
Ármúla 27 — Símar 86100 og 34000.
Stúdentamyndatökur
Barnamyndatökur
Brúðarmyndatökur
Fermingarmyndatökur
Passamyndir í öll
skírteini.
Allar myndatökur í lit.
V______________________4
Ljósmyndastofan Laugavegi 13 sími 17707
Ég fékk ágætt bréf frá Magnfríði
Sigurbjarnardóttur, sem komin er á
áttræðisaldur og ættuð af Snæfellsnesi.
Henni segist m.a. svo frá: „Þegar ég var 5
eða 6 ára fékk móðursystir mín jólakort,
sem ég var afar hrifin af. Á því var vísa,
sem ég hef aldrei séð síðan. Kortið var
með „Gleðileg jól“ og vísan var þannig:
Nú er ylrík indæl sól
engin til að skína.
í staö þess góð og guöhelg jól
gleöji sálu þína.
„Þessi vísa hefur alltaf verið mér mjög
kær,“ skrifar Magnfríður. Ég er henni
þakklátur fyrir bréfið og væri gamaii, ef
einhver kannaðist við vísuna, vissi eitt-
hvað frekar um þetta jólakort eða
höfundinn.
Stefán Eiríksson, umboðsmaður Morg-
unblaðsins á Akureyri, sem lést í vetur,
var ágætur hagyrðingur og vísnamaður,
eins og áður hefur komið fram í þessum
þætti. Hér er mannlýsing eftir hann:
Engri krónu sóar sá,
sá þó marga slíka.
Kosti fáa á og á
enga sína líka.
Ekki veit ég, hverjum hann sendi þessa
afmæliskveðju:
Á þína vegi lífs um lönd
Ijósiö ávallt skíni.
Traust þig styöji hulin hönd,
heims þó lániö dvíni.
Kveðja til Jóhanns Magnússonar frá
Mælifellsá á sumardaginn fyrsta 1976:
Liöinn vetur þakka ég þér
þess ég hlít aö minnast.
Þaö er margt sem þakka ber
þér var gott aö kynnast.
í mínum huga mynd þín glögg
mætir oft og tíðum,
Kominn ert meö reisn og rögg
réttur úr öllum stríöum.
Vinátta þín veröur mér
vissulega dýrust,
hana vil ég þakka þér,
þar er myndin skýrust.
Fús ég minnist fyrri daga
fínleg voru handtök þín
er vísur mínar varst að laga
viömótshlýjan af því skín.
Eflaust betri ýmsir væru
og til manns þeir kæmust fyr
ef slíkum höndum fleiri færu
um fátæklegar tilraunir.
Vel ég minnist Lóu líka
Ijúfri á þinni ævibraut
enginn finnur aöra slíka
óska sinna förunaut.
Ég er á hlaupum eins og hinir
ykkur kveöja aö sinni verö.
Gleðilegt sumar góöu vinir
ég geng svo viö í næstu ferö.
Stefán Eiríksson.
Jóhann þakkaði fyrir sig með þess-
ari vísu:
Þökk fyrir Ijóöin þú minn góöi vinur,
lipra óðinn ávallt þinn,
ég vil bjóöa velkominn.
Nú fer Alþingi senn að Ijúka. Halldóra
B. Björnsson skáldkona vann þar í mörg
ár og eins og geta má nærri urðu henni
mörg tilefni til þess að kasta stöku, svo
létt sem henni lá vísuorðið á vörum.
Þetta var kveðið á þinginu 1946—47, og
var tilefnið 180. mál, þingskjal 445:
Þaö má sjá af þingskjölum,
(en þau eru stundum margumdeild)
aö flutt hefur veriö frumvarp um
fávitahæli í efri deild.
Líka er hægt aö lesa þar
löngu vituö sannindi
aö tillögunni tekiö var
meö takmörkuðum skilningi.
Er rætt var um sölu kristfjárjarða í
Austur-Húnavatnssýslu sagði Halldóra:
í Húnaþingi viöreisnin góöbændur
gisti,
þá græddu þeir sumir, hjá öörum
taprekstur var.
Nú kaupa þeir efnaðir allar jaröir af
kristi.
Þeir ætla ekki aö láta hann veröa
sveitfastan þar.
Ég hef fengið mjög góðar undirtektir
vegna „glerhússins", sem kynnt var í
síðasta blaði. Ekki hefur mér þó borizt
botn við fyrrihlutann:
Páll og Þóra Melsteö
voru meira en vel séö.
Rétt er það, að hann er dálítið
nýstárlegur og þeim mun skemmtilegra
ætti þess vegna að vera að spreyta sig á
honum. En víst þakka ég vel öll þau bréf,
sem mér hafa borizt og vænti, að ekki
verði þar lát á.
Ekki verður meira kveðið að sinni.
Halldór Blöndal.
Limran:
„Ég legg,“ mælti Gróa á Leiti,
„mitt lostfagra höfuö í bleyti.
Þótt ég anni ekki kvööum
frá útvarpi og blööum,
þá ann ég meö fyrirheiti."
K.K.