Morgunblaðið - 18.05.1980, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MAÍ1980
47
begar Geir Hallgrimsson fór í íyrstu opinbera heimsókn íslenzks forsætisráðherra til Sovétríkjanna 1978 var Ishkov aðalfylgdarmaður
hans á ferðalagi víða um Sovétríkin. Ilann tók einnig þátt í viðræðum forsætisráðherranna og á þessari mynd er hann fjórði frá vinstri við
borðið og situr við hlið Kosygin forsætisráðherra sem nú er sagður einn standa gegn því að Ishkov verði opinberlega ákærður vegna
kavíarsmyglsins.
Sovétríkin:
Kavíarsmygl
kom Ishkov
úr ráðherra-
embættinu
„í gróðafíkn þeir flykkjast að
kaviarnum eins og flugur að
sykurmolum." segir Pravda.
handteknir vegna máls þessa í
Moskvu og miklu fleiri að því er
talið er vítt og breitt um Sovét-
ríkin.
Það sem kom upp um kavíar-
hringinn voru mistök, þar sem
„síldardósir" voru sendar í verzl-
anir. Hinn almenni Rússi þagði,
þegar hann uppgötvaði lúxus-
kavíar í stað reyktu síldarinnar,
borðaði bara sinn kavíar óg
þóttist heppinn. En þar kom að
síldardós með kavíar hafnaði á
matborði lögreglumanns, sem
fór að rannsaka málið. Þar með
sprakk blaðran.
Kavíarinn hefur sem fyrr seg-
ir freistað margra Rússa. Fyrir
þremur árum var sextán hátt-
settum opinberum starfs-
mönnum vikið úr störfum, þegar
upp komst um leynilega kavíar-
verksmiðju og dæmin eru fleiri.
1978 var framleidd í Sovétríkj-
unum gamanmynd um svarta-
markaðsbrask með kavíar: „Ég
skal gera dulítið fyrir þig, ef þú
gerir dulítið fyrir mig“. Mynd
þessi varð geysivinsæl og var
henni hampað opinberlega. En
um síðasta kavíarhringinn hefur
verið mjög hljótt eins og sést á
því, að fyrstu fréttir eru nú að
berast til Vesturlanda ári eftir
að Alexander Ishkov var vikið úr
stöðu sjávarútvegsráðherra
vegna málsins.
„ÞESSAR fréttir um Ishkov koma mér ákaflega á
óvart, bæði vegna hans valdamiklu stöðu sem æðsti
maður sovézkra sjávarútvegsmála í ein 40 ár og svo
vegna hins persónulega, en í okkar kynnum reyndist
hann sérstaklega vingjarnlegur og hlýr maður,“
sagði Matthías Bjarnason fyrrum sjávarútvegsráð-
herra, er Mbl. spurði hann um kynni hans af
Alexander Ishkov fyrrum sjávarútvegsráðherra, sem
í fyrra var vikið úr starfi vegna stórfellds kavíar-
smygls til Vesturlanda. „Reyndar skil ég nú,“ sagði
Matthías, „svolítið skrýtin viðbrögð annars aðstoðar-
sjávarútvegsráðherra Sovétríkjanna, sem hér var á
ferð fyrir skömmu, er ég bað hann að skila
sérstaklega góðri kveðju frá mér til Ishkovs.“
Alexander Ishkov kom hingað
til lands þrisvar sinnum, síðast
1977 til að undirrita tvíhliða
fiskverndunarsamning milli ís-
lands og Sovétríkjanna. Árið
eftir fór Matthías Bjarnason í
opinbera heimsókn til Sovétríkj-
anna í boði Ishkovs. „Ég man að
Ishkov hafði þá á orði, að það
færi nú að koma að því að hann
hætti, aldursins vegna," sagði
Matthías í samtali við Mbl.
„Maðurinn sjálfur kom mér
ákaflega vel fyrir sjónir. Hann
var ákveðinn samningamaður og
reyndi að ná sem mestu fram
fyrir sín mál og sína þjóð. En
þegar staðið var upp frá samn-
ingaborðinu var hann ekkert
nema vingjarnleikinn og alúðin.“
Það segir sig sjálft að maður
með slíkan ferli að baki skilur
eitthvað eftir sig og eitt helzta
afrek Ishkovs sem sjávarútvegs-
ráðherra var hversu afskaplega
vel hann skipulagði fiskveiði-
flota Sovétmanna og veiðar hans
á úthöfunum."
Ishkov átti mikil samskipti við
Norðurlönd í ráðherraembætt-
inu, við Island, Noreg og Færeyj-
ar. Matthías Bjarnason sagði í
samtalinu við Mbl., að það sem
hann hefði heyrt hjá Norðmönn-
um og Færeyingum af þeirra
kynnum við Ishkov færi alveg
saman við hans eigin reynslu af
manninum.
Snemma á síðasta ári var
skýrt frá því í stuttri frétt á
baksíðu Pravda, að Alexander
Ishkov hefði látið af starfi sjáv-
arútvegsraðherra eftir 39 ára
opinbera þjónustu. Blaðið gat
þess einnig að Kosygin, forsætis-
ráðherra, ætti í sérstökum við-
ræðum við starfsmenn sjávar-
útvegsráðuneytisins. Það var svo
ekki fyrr en fyrir skömmu að
fréttir bárust til Vesturlanda
um það, sem raunverulega hafði
gerzt.
Alexander Ishkov ásamt Matthiasi Bjarnasyni sjávarútvegsráð-
herra og Einari Ágústssyni utanríkisráðherra við undirritun
tvíhliða fiskverndarsamnings 25. apríl 1977.
Kavíarsmygl þetta er talið
vera eitthvert stærsta auðgunar-
mál síðari tíma í Sovétríkjunum
og hefur þó kavíarinn leitt
margan Sovétmanninn í freistni
fyrr. Átta yfirmönnum sjávar-
útvegsráðuneytisins auk Ishkovs
hefur verið vikið frá störfum
vegna málsins og talið er að
aðeins persónulegur kunnings-
skapur Ishkovs og Kosygins
standi í milli ráðherrans fyrr-
verandi og opinberrar ákæru á
hendur honum.
Eftir því sem vestrænir
fréttaritarar í Moskvu hafa
komizt næst, er hvorki ljóst
nákvæmlega hversu mikið af
kavíar er um að ræða né heldur
hvaða fjárhæðir, en þeir, sem
rannsaka málið, eru sagðir öld-
ungis hlessa á umfangi málsins.
Kavíar í tonnatali var fluttur
frá ríkisverksmiðjum í sérstakar
umbúðaverksmiðjur, þar sem
kavíarinn var settur í dósir
merktar reyktri síld. Síðan voru
„síldardósirnar" seldar til fyrir-
tækja á Vesturlöndum, Sviss og
V-Þýzkalands að því er talið er,
en „kavíargróðinn" var lagður
inn á bankareikninga í Sviss. En
kavíarhringurinn stóð ekki að-
eins í útflutningi, heldur átti
hann líka viðskipti við ýmsa
aðila innan Sovétríkjanna,
þ.á m. veitingahúsaeigendur. Á
þriðja hundrað manns hafa verið
Larsen
vann í 6.
umferð
Buxojno. Júgóslavíu. 17. maí. AP.
CRSLIT i sjöttu umferð Stór-
meistaramótsins í Bugojno urðu
þau að Bent Larsen vann Kaval-
ek, jafntefli varð hjá Gligoric og
Ivkov, skák Kuraica og Timmans
fór í bið, Anderson og Tal gerðu
jafntefli og einnig þeir LjubojeV-
ic og Hort, og Karpov og Polu-
gaevski.
Staðan er þá sú að Larsen er
efstur með 4,5 v., Polugaevski er
með 3,5 v., Timman hefur 3 v. og
biðskák, Tal og Ljubojevic eru með
3 v., Anderson, Karpov og Ivkov
með 2,5 v. og biðskák, Gligoric og
Kavalek með 2,5 v., Hort 2 v. og
biðskák og Kuraica með 1,5 v. og 1
biðskák.
Almennur
fræðslufundur
um endurhæfingu
hjartasjúkra
HJARTA- og æðaverndarfélag
Reykjavíkur heldur fjórða
fraéðslufund sinn á Hótel Borg
fimmtudaginn 22. maí 1980 kí.
17.00. Viðfangsefni þessa fundar
verður endurhæfing hjarta-
sjúkra. Erindi um efnið flytja
þeir Magnús Einarsson endur-
hæfingarlæknir og Eyjólfur K.
Sigurjónsson endurskoðandi.
Þá verða pallborðsumræður um
viðfangsefnið. Stjórnandi um-
ræðna verður dr. Árni Kristinsson
læknir en aðrir þátttakendur
Magnús Einarsson læknir, Eyjólf-
ur Sigurjónsson endurskoðandi og
Snorri Páll Snorrason yfirlæknir.
Fundarmönnum verður gefinn
kostur á að leggja spurningar
fyrir þátttakendur við pallborðið
og taka þátt í umræðum.
Aðalfundur félagsins verður
haldinn áður en fræðsludagskráin
hefst en öllum er heimill aðgangur
á meðan húsrúm leyfir.
Fyrirlestur
í Lögbergi á
miðvikudag um
lífefnafræði
PRÓFESSOR Laurens van Deen-
en frá Ríkisháskólanum í Ut-
recht í Hollandi er staddur hér-
lendis í boði Lifefnaíræðifélags
íslands, Sambands evrópskra
lífefnafræðifélaga og Springer-
Verlag. Heldur hann á miðviku-
dag, 21. maí kl. 17:15 FEBS-
Ferdinand Springer fyrirlestur-
inn í Lögbergi.
Fyrirlestur þessi er haldinn
árlega i tveimur eða fleiri aðild-
arlöndum sambandsins og verður
nú haldinn í Tyrklandi, Búlgaríu
og Júgóslavíu auk Islands, en
hann er nú haldinn hér í fyrsta
sinn. Rannsóknarverkefni Laur-
ens van Deenen er efnasamsetning
og starfsemi frumuhimna og
skipulag fituefna og próteina í
frumuhimnunni. Hefur hann ritað
fjölda greina um sérsvið sitt og
tekið þátt í alþjóðasamstarfi
lífefnafræðinga.