Morgunblaðið - 03.06.1980, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1980
7
Hvers vegna
flýr fólk
alltaf frá
kommúnista-
löndunum?
Átökin í Víetnam hafa
mikiö veriö rædd hér
sem annars staöar. Hér
hefur lítill en hávaöasam-
ur hópur haldið mjög
fram hlut Hanoi-stjórnar-
innar, hinna nýju herra
Suöur-Víetnam. Svo
ókafa stuöningsmenn
eiga N-Víetnamar hér á
íslandi, aö þessir stuðn-
ingsmenn þeirra taka
jafnvel upp hanzkann
fyrir innrés þeirra í Kam-
bodíu. Fyrir þennan hóp,
sem og aöra, er lær-
dómsríkt aó kynnast
sjónarmiöum ungrar
stúlku frá Víetnam, sem
er ein í hópi flóttafólksins
frá Víetnam, sem hingað
er komiö. í athyglisveröu
viðtali viö Tímann á
sunnudag segir hún m.a.
— Gerir þú samlíkingu
milli bátafólksins frá
Víetnam, sem þú tilheyrir
og bátafólksins, sem nú
flýr frá Kúbu?
— Eftir frelsun Saig-
on-borgar varó skólafólk
aö taka þátt í endalaus-
um fundahöldum um
stjórnarfarió og þá vald-
hafa, sem kvöddu. Þetta
var bara þáttur í áróörin-
um. Ég man að á einum
þessara funda leyfðum
viö okkur að spyrja
spurningar, sem brann á
vörum.: Hvers vegna er
þaó alltaf fólk úr komm-
únístaríkjum, sem tekur
sig upp þúsundum sam-
an og flýr til kapítalískra
rfkja? Hvers vegna er
aldrei sambærilegur
fólksflóttí inn í kommún-
istalöndin, ef þau eru jafn
dýrleg og Marx og Engels
hafa lýst á pappírunum?
— Og hvert var svarið?
— Þeir foróuöust aó
svara og fóru aö tala um
annað.
Forréttinda-
hópurinn
Hún segir einnig í
þessu viöali:
— Er yfirstétt í Víet-
nam nú?
— Þaó er ekki yfirstétt
í venjulegum skilningi
þess orðs, en forréttinda-
hóp mynda þeir, sem
inngöngu hafa fengió í
„Flokkinn". Kommúnist-
arnir prédikuðu, aö þjóö-
félag þeirra væri stétt-
laust, en viö komumst aó
því, aö það er enn meiri
stéttaskipting í landinu
en áöur. Munurinn millí
flokksfélaga og svo hinna
er gríðarlega mikill.
Þeirra eru forréttindin,
hærri laun og eigin mark-
aðir þar sem allt er miklu
ódýrara en á mörkuöum
fyrir almenning. Inn-
göngu í Flokkinn fá ekki
aörir en þeir, sem eru úr
verkamannastétt og hafa
a.m.k. í þrjá ættliði barist
fyrir Flokkinn.
— Mörgum er sem
sagt hafnað?
—Nei, kommúnista-
flokkurinn hafnar engum,
en þeir sem uppfylla ekki
öll skilyrði eru einfald-
lega lægra settir. Þeir
geta skrifað sig inn í alls
konar félög á vegum
Flokksins en verða ekki
teknir inn í hann.
Hvers vegna?
í rauninni er ekki hægt
að lýsa kjörum fólks í
ríkjum sósíalismans bet-
ur en með orðum stúlk-
unnar frá Víetnam: hvers
vegna er það alltaf fólk úr
kommúnistaríkjunum,
sem tekur sig upp þús-
undum saman og flýr til
kapítalískra ríkja? Það er
ekki bara fólkið í Víet-
nam, sem hefur orðið
fyrir þessari reynslu. Nú
berast daglega fréttir um
flóttafólkið frá Kúbu, sem
vill ekki lengur búa í
sæluríki Kastrós. Áður
var straumur flóttafólks
frá A-Berlín til V-Berlínar.
Það er ekki jafn auðvelt
nú og það var aö komast
á milli borgarhlutanna.
En þrátt fyrir Berlínar-
múrinn og hvers kyns
óhugnanlegar aðgerðir til
þess að koma í veg fyrir
fólksflóttann tekur fólk
enn þá áhættu, sem því
fylgir að reyna að komast
frá A-Þýzkalandi til
V-Þýzkalands. Sósíalistar
hafa aldrei átt neitt svar
við þeirri spurningu sem
stúlkan frá Víetnam bar
fram og munu aldrei eiga
nein svör við henni.
Þeirra eina leið er sú, að
koma í veg fyrir slíkar
spurningar með því að
beita skoðanakúgun og
hvers kyns þvingunum.
Kommóður
Fjölbreytt úrval af kommóöum í mörgum
stæröum og 3 litum. Einnig bókahillur og
skrifborð.
VANTARÞIGVINNUQ
VANTAR ÞIG FÓLK g
Þl' AIGLVSIR l'M ALLT
LAND ÞKGAR Þl Al'G-
1.YSIR I MORGUNBLAÐINl
PERMA - DRI
utanhússlímmálning —14 ára ending og reynsla.
Málning hinna vandlátu
Sig. Pálsson, byggm., Kambsv. 32, S-34472.
Lærið vélritun
Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 5. júní.
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin
heimavinna. Innritun og upplýsingar í síma
41311 eftir kl. 13.
Vélritunarskólinn
Suöurlandsbraut 20
Dregiö var í happdrætti Féks. Upp komu þessi númer:
1. vinningur 3875, hesturinn, 393 utanlandsferð, 214 beizli.
Vinningarnir eru afhentir á skrifstofunni.
Tekið veröur í hagbeit í Geldinganesi fimmtudaginn 5. júní
kl. 8—9.
Aðalskrifstofa Brautarholti 2, (áöur Hús-
gagnaverslun Reykjavíkur).
Símar: 39830,39831 og 22900.
Nýjungar í
CPM áætlanagerð
Stjórnunarfélag íslands efnir til námskeið um CPM-áætlanagerö í
Kristalssal Hótels Loftleiöa fimmtudaginn 5. júni n.k. frá kl. 09—17.
Leiöbeinandi á námskeiöinu veröur Dwight A. Zink, einn kunnasti
sérfræðingur um CPM-áætlanagerö í Bandaríkjunum. Mr. Zink
leiðbeindi á fyrstu CPM námskeiöum Stjórnunarfélagsins á árunum
1966 og 1967.
Á námskeiðinu veröur kynnt hvernig CPM tæknin er notuð viö gerö
framkvæmdaáætlana, áætlana um efnisnotkun og mannaflaþörf,
kostnaöaráætlana og kostnaöareftirlit. Sýnt veröur hvernig nota
má tölvu viö CPM áætlanagerö.
Námskeiöiö á erindi til allra þeirra, sem hafa undirstöðuþekkingu á
CPM áætlanagerö.
Skráning þátttakenda og nánari upplýsingar hjá Stjórnunarfélagi
íslands, Síöumúla 23, sími 82930.
A STJÓRNUNARFÉLAG
ÍSIANDS Síöumúla 23
Sími 82930