Morgunblaðið - 03.06.1980, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.06.1980, Blaðsíða 24
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1980 „Ekkert aðgera annað enfara úrlandi' ÍRAN, sem svo mikið hefur verið í fréttum siðustu miss- eri, tekur ekki illa á móti ferðamönnum, þótt flestir út- lendingar hafi nú yfirgefið landið. Er því eftir aðkomu- mönnum tekið ef þeir eru á ferli í bænum og einstaka innfæddur vill fá uppgefið hvaðan ferðamaðurinn er og reynir að mæla við hann á enska tungu. Blaðamaður Mbl. var á ferð í íran í síðustu viku og kom við í Teheran rétt eins og kría á steini og verður hér reynt að geta örlítið um það sem bar fyrir augu í þessari stuttu viðkomu. Eitt það fyrsta sem fram kemur í samtölum við fólk á förnum vegi, í verzlunum eða annars staðar þar sem ferðamaður kemur, er að menn eru áttavilltir varðandi stjórnarfarið í landinu. Náms- menn eða öfgamenn halda tugum Bandaríkjamanna í gíslingu og gefa út yfirlýsingar sem virðast teknar eins og tilskipanir og fólk segir að Khomeini bíði ætíð eftir að heyra hvað þeir hafi að segja áður en hann lætur orð falla um hin ýmsu málefni. En fleiri eru þeir sem hafa völdin og er talað um að 4 aðilar ráði landinu eða vilji ráða því og að allir hafi þeir ólíkar skoðanir, sem erfitt verði að samræma. Menn eru orðnir þreyttir á ástandinu og ungt fólk talar um að það vilji aftur fyrra stjórnarfar jafnvel aðra byltingu. Aðrir tala um að fara. —Ég er írani, þetta er mitt land og hér vil ég auðvitað vera, en hér er allt á niðurleið og erfitt er að komast úr landinu, en sé ekki að hægt sé að gera annað en fara, sagði 21 árs gamall póstaf- greiðslumaður, sem rætt var við. —Allir, sem einhverja menntun hafa að ráði eru löngu farnir úr landi og hér er fullt af ungu fólki, sem er þreytt á stjórnarfarinu og vill annað hvort búa við fyrra ástand eða fara burtu. En til þess að komast burtu þurfum við að fara í sendiráð viðkomandi lands, standa þar í biðröð kannski yfir nótt til að komast einhvern tíma að, og reyna þar að fá landvistar- leyfi. Það fá menn hins vegar ekki nema að hafa tryggt sér búsetu, atvinnu og hafa farseðil heim aftur. Athafnalíf í molum Greinilegt er að allt athafnalíf er í molum. Olíuframleiðslan er nú kringum 1,2 milljón tunnur á dag en var i 6 milljónum tunna á dag fyrir byltingu. Af þessum 1,2 milljón tunnum nota íranir um 800 þúsund, en afganginn flytja þeir út og má því sjá að lítið bera þeir úr býtum miðað við fyrri útflutning. Víða í Teheran eru hálfbyggð hús, heilu Breiðholts- hverfin, og við fyrstu sýn er eins og allir iðnaðarmenn séu bara í kaffi eða mat. En þegar nánar er aðgætt koma í ljós ryðtaumar af steypustyrktarjárninu niður eftir húsveggjunum og greinilegt að enginn hefur snert á verki svo mánuðum skiptir. Um það bil 5 milljónir manna eru nú atvinnu- lausar og talið að atvinnuleysi eigi eftir að vaxa enn. —Fólk hefur heldur ekkert við að vera hér, upplýsti póstaf- greiðslumaðurinn. —Við sem höf- um vinnu, sinnum okkar starfi, förum heim og þar er lítið að gera annað en horfa á leiðinlegt sjón- varp eða lesa. Hér eru engar skemmtanir, ekki vínveitingar, ekki bíó, ekkert. Fólk getur komið saman á veitingastöðum, það leit- ar í matstaði á hótelum og drekk- ur þar kaffi eða eitthvað álíka og hlustar á tónlist. Þegar við höfum búið við annað þykir þetta heldur þunnt. Þessi lýsing virðist nokkuð dæmigerð fyrir viðhorf margra og kvað viðmælandinn þetta vera útbreidda skoðun. Sagði hann að margir hefðu ekki annað að gera en taka þátt í einhverjum mót- mælagöngum og það væri auðvit- að ljóst að klerkaveldið gæti fengið ýmsu framgengt í skjóli fáfræði og sinnuleysis fólks, sem ekki hefði áhuga á að setja sig almennilega inn í málin og fylgj- ast með. Vínbannið er algjört og á flugvellinum sást hvar innihald viskíflösku einhvers, sem ætlaði með hana inn í landið, var látið renna i öskutunnu og ekki við það komandi að ósnert flaskan færi lengra. Veðurfarið í Teheran var heldur heitt fyrir íslendinginn eða kring- um 30 stig, en þó sögðu þeir að heitasti árstíminn væri enn ekki kominn. Fer þá hitinn jafnvel yfir 40 stig og hlýtur þá að verða óbærilegur, en fer svo niður fyrir Byggingakrani stendur hér við hálfbyggt hús, sam akki hefur varið snart é síðustu missarin. Khomaini lifi, en Carter er óskað dauða é áfetrun viö bandaríska sandtréöiö (Taharan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.