Morgunblaðið - 03.06.1980, Blaðsíða 44
^•-/^Síminn á afgreiðslunm er
83033
JH*r0imbInl>ib
lOrijnmMaiijíiifo
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
|M«r0unbInbib
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1980
Sjóða niður
norska rækju
og selja síðan
til Þýzkalands
TIL AÐ mæta hrácfnisþiírf Laxinet-
isiðjunnar í Garði hyggst Örn
Eriendsson flytja inn rækju frá
Norður-Norejri. sem siðan verður
soðin niður í Garðinum <>k loks
flutt á markað í V-Þýzkaiandi. örn
sanði i gær, að til að byrja með
fengi hann 5 tonna prufusendingu
frá Noregi. <>K ef vel gengi með
vinnslu þess maxns, satfðist hann
reikna með að um frekari samn-
in«a við Norðmenn Kæti orðið að
ræða.
Örn sagði, að fyrirtækið þyrfti um
150 tonn af rækju yfir sumarið eða
fram að þeim tíma að rækjuveiðar á
fjörðum byrja að nýju í haust til að
Keta haldið uppi fullum afköstum.
Hér innanlands sagðist Örn ekki
reikna með að geta fengið nema um
50 tonn af rækju þennan tíma eða
þriðjung þess magns, sem verk-
smiðjan gæti unnið úr.
t-
v*
VATNARALL
Vatnarallarar voru á ferðinni á Laxá í Aðaldal um helgina. Hér sjást Kristján Einarsson
ljósmýndari og Stefán Kjartansson í einni flúðinni. Sjá bls. 1G og 17
1700 laxar
á 4 dögum
STANGAVEIÐI hófst í Norðurá í
Borgarfirði á sunnudaginn og voru
þá dregnir 10 laxar á land. Þegar
Mbl. hafði samband við veiðihúsið
um miðjan dag 1 gær. voru laxarnir
orðnir 15.
Teljarinn í Laxfossi var settur í
gang fyrir fjórum dögum og í
gærmorgun voru 1400 laxar komnir
upp fyrir Laxfoss. Það er með
ólíkindum á þessum árstíma. Þeir
laxar sem veiðst hafa eru ekki allir
lúsugir, margir fiskanna virðast
hafa verið nokkurn tíma í ánni, enda
sást lax fyrst í ánni um miðjan maí.
í gærmorgun var mikil laxaganga
á ferð í ánni niðri við Munaðarnes og
var þá að sjá stórkostlega fiskferð
upp ána. Laxinn, sem veiðst hefur,
hefur verið 8—12 punda fiskur. Þeir
hafa flestir verið dregnir á Eyrinni
og Stokkhylsbroti og ýmist á flugu
eða maðk. Laxinn tekur afar grannt
og veiðimenn hafa misst marga.
Banaslys í
Laugardal
BANASLYS varð aðfaranótt
sunnudags í Laugardal í Árnes-
sýslu. Sá, sem beið hana, hét
Þorsteinn Garðar Þorleifsson til
heimilis að Álfhólsvegi 84 i Kópa-
vogi, fæddur 11. descmber 1954.
Aðdragandi slyssins var með
þeim hætti að Þorsteinn dvaldi
ásamt tveimur piltum og stúlku í
sumarbústað í nágrenni bæjarins
Miðdals. Urðu þau vör við að
hrafnshreiður var í hlíðinni þar í
nágrenni og ætluðu piltarnir að
síga í klettana til að ná í hrafns-
unga. Þorsteinn batt um sig kaðal
Þorsteinn Garðar Þorleifsson.
og ætlaði að síga niður að hreiðr-
inu en þá vildi það slys til að
kaðallinn herti að hálsi Þorsteins
svo hann hlaut bana af.
Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra:
Mikilvægt að Danir
virða okkar miðlínu
„VIÐ erum vissulega mjög
ánægðir með það, að Danir skuli
virða miðlínuna milli íslands og
Grænlands, eins og við höfum
dregið hana, þar til um annað
kann að verða samið." sagði
ölafur Jóhannesson, utanríkis-
ráðherra, i samtali við Mbl. i gær.
„Það þýðir að þeir virða okkar
grunnlinupunkta. þar á meðal
Kolbeinsey og það er mjög mik-
ilvægt að okkar dómi.“ Mbl.
spurði Ölaf, hvort þetta þýddi að
Danir viðurkenndu i raun Kol-
beinsey sem grunnlinupunkt.
„Þeir hafa út af fyrir sig ekki
fallið frá sinum fyrirvara um
Kolbeinsey. þannig að ég held að
það sé ekki rétt að leggia i þetta
annan skilning,“ sagði ólafur.
í frétt frá utanríkisráðuneytinu
í gær segir, að í viðræðum við
Dani fyrir útfærsluna við Græn-
land hafi af íslands hálfu verið
„Allt svart þegar ég
sökk í síðasta sinn“
74 ára gamall maður bjargaði 9 ára ósyndum dreng í Sundlaug Vestmannaeyja
JÓIIANNES Gíslason. sjötiu og
fjógurra ára gamall maóur i
Vestmannaeyjum bjargaði sl.
föstudag 9 ára gömlum dreng,
Þorbirni Gislasyni úr Vogum
frá drukknun í Sundlaug Vest-
mannaeyja.
Jóhannes var á sundi í lauginni
laust eftir kl. 18. Veitti hann
athygli dreng sem virtist óörugg-
ur á sundinu, en virtist kafa í
djúpu lauginni. Þegar Jóhannes
kom til baka á sundinu sá hann
drengnum skjóta upp og virtist
hann reyna að kalla áður en hann
sökk aftur. Þegar þetta skeði
hafði sundlaugarvörðurinn
brugðið sér inn í sjúkrakiefann.
Jóhannes kafaði þá niður til
drengsins þar sem hann lá ósjálf-
bjarga á sundlaugarbotninum og
náði drengurinn þá taki á hand-
legg Jóhannesar og síðan svo
þéttu haustaki að Jóhannesi lá
við köfnun en hann náði að
spyrna sér frá botni með dreng-
inn og koma honum að sundlaug-
arbarminum. í því komu starfs-
menn sundlaugarinnar og tóku
við drengnum. Gerðu þeir lífgun-
artilraunir á honum, því hann
hafði drukkið mikið vatn og var
sjór bæði í lungum og maga.
Starfsmönnum sundlaugarinn-
ar bar saman um að Jóhannes
hefði með snarræði bjargað lífi
drengsins sem var gestkomandi í
Jóhannes Gislason.
Ljöemyndfr Mbl. SigurKeir.
Þorbjörn Gislason.
Eyjum, en starfsmenn laugarinn-
ar hafa boðist til þess að kenna
honum sund þegar hann útskrif-
ast af sjúkrahúsinu.
Það má segja að Jóhannes hafi
hér goldið björgun sem hann varð
aðnjótandi fyrir tæplega 60 ár-
um. Þá féll hann út af hafnar-
garðinum í Eyjum, en menn á
áraskipi úti á Víkinni sáu að
eitthvað var að, réru lífróður og
náðu að kraka hann upp frá
botninum með ár.
Þegar Mbi. spurði Tobba, en
það vildi hann láta kalla sig,
hvort hann hefði gert sér grein
fyrir hvað var að gerast, svaraði
hann: „Ég sá allt svart þegar ég
sökk í siðasta sinn, en mig rámar
í það þegar ég náði taki á
Jóhannesi."
Þorbjörn í sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja með sælgætisdós
sem Vignir Guðnason forstöðu-
maður Sundlaugarinnar færði
drengnum þegar hann bauð
honum sundkennslu i næstu
viku.
lögð höfuðáherzla á að tryggja
það, að allir grunnlínupunktar
Islands í átt til Grænlands yrðu
virtir, „þannig að ekki kæmi til
árekstra meðan leitað yrði heild-
arlausnar á fiskveiðimálum, fisk-
verndarmálum og nánari afmörk-
un lögsögunnar". Niðurstöður af
þessum þætti viðræðnanna liggi
nú fyrir í því að Danir muni virða
miðlínuna milli íslands og Græn-
lands, sem að framan segir.
Næsti viðræðufundur íslend-
inga og Dana fer fram í Reykjavík
19.-20. júní n.k. og verður þá
fjallað um sameiginleg fiskvernd-
armálefni og skipzt á upplýsingum
um veiðar á hafsvæðunum við
Grænland, ísland og Færeyjar.
Mbl. spurði Ólaf Jóhannesson um
fiskveiðimálin. „Þau fara af Dana
hálfu í hendurnar á Efnahags-
bandalaginu, en ég veit ekki hve-
nær,“ sagði hann.
Formenn viðræðunefndanna í
Reykjavík verða þeir sömu og á
fundinum í Kaupmannahöfn;
Hannes Hafstein, skrifstofustjóri
utanríkisráðuneytisins, og Sköld
Mellbin, forstöðumaður réttar-
deildar danska utanríkisráðuneyt-
isins.
Rannsókn-
inni lokið
RANNSÓKNARLÖGREGLA ríkis-
ins hefur nú lokið við að fram-
kvæma þá rannsókn. sem rfkissak-
sóknari hafði óskað eftir að fram
færi á myndsegulbandstækjum og
notkun þeirra i nokkrum fjöibýlis-
húsum i Reykjavík.
Að sögn Arnars Guðmundssonar,
deildarstjóra hjá Rannsóknarlög-
reglunni, tók rannsókn þeirra til
húsanna Krummahóla nr. 2, 4 og 6
og voru íbúar þessara húsa meðal
annars yfirheyrðir. Ekki var farið
fram á af hálfu rannsóknarlögregl-
unnar að hald yrði lagt á myndseg-
ulbandstækin eða annað þeim
tengt. Gögn um rannsókn þessa
hafa nú verið send ríkissaksóknara
til umsagnar.