Morgunblaðið - 03.06.1980, Blaðsíða 46
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1980
„Islenska liðið var
stemmningslaust'
sagði Lárus Loftsson
Guðni Kjartansson landsliðs-
þjálfari:
— Það má veraUð ég hafi ekki
skipt Sævari Jónssyni útaf fyrr í
leiknum og gert breytingar á
varnarleiknum, vegna reynslu-
leysis. Hann átti að taka Leighton
James úr umferð en það dæmi
gekk ekki upp. Þá vantaði varnar-
mönnum okkar að valda leikmenn
Wales betur en gert var í leiknum.
Mér fannst lið Wales leika vel,
og vera sterkir. Við verðum að
gefa landsliðinu meiri tíma ef
betri árangur á að nást.
Lárus Loftsson unglinga-
landsliðsþjálfari:
— Mér fannst íslenska liðið
vera algjörlega stemmningslaust.
Og þetta voru langt frá því að vera
góð úrslit.
Lið Wales var ekkert
sérstakt. íslenska liðið lék alltof
aftarlega, og tengiliðirnir voru
aldrei í takt við leikinn.
- þr.
• Arnór Guðjohnsen á fullri ferð, hefur hér sii
(nr. 6) af sér. Janus Guðlaugsson fylgir vel á
Wales skora
• Nokkrir hressilegir
Wales-búar fylgdu liðinu
til íslands og hér má sjá
fremsta nokkra þeirra. Er
ekki ofsögum sagt að þeir
hafi þekkst úr mílu fjar-
lægð.
gegn lekri ví
enn einn skellurim
Terry Yorath
ÁHORFENDUR á Laugardalsvellinum, rúmlega 10.000
manns, voru farnir að streyma heim á leið löngu áður en
að blásið var til leiksloka í leik íslands og Wales i
undankeppni HM í knattspyrnu. Og það var engin
furða, staðan var orðin 4—0, landinn hafði verið grátt
leikinn, einkum í síðari hálfleiknum (við þekkjum það
orðið). Þetta var allt saman hálfnöturlegt, sannleikur-
inn var nefnilega sá, að í fyrri hálfleik lék íslenska liðið
oft mjög góða knattspyrnu, baráttan neistaði af
leikmönnum liðsins og sumir sýndu snilldartakta, eins
og t.d. Pétur, Arnór og Kalli Þórðar. Wales-búar
virkuðu þunglamalegir og í einu orði sagt slakir. En þá
kom reiðarslagið. Komið var fram yfir venjulegan
leiktíma, þegar vörn íslenska liðsins sofnaði á verðinum
og Ian Walsh tókst að skora frekar ódýrt mark.
íslendingar náðu sér aldrei á strik eftir það, voru að
vísu frískir fyrstu mínútur síðari hálfleiksins, en síðan
ekki söguna meir. Wales-búar bættu þremur mörkum
við í síðari hálfleik og nötruðu þá undirstöður íslenska
liðsins.
Enga trefla
Betri byrjun
íslands
að fá hjá FEF
KNATTSPYRNUUNNENDUR,
sem hafa la«t leið sina á kapp-
leiki undanfarið hafa saknað
þess að ekki hefur bólað þar á
sölufólki frá Félagi einstæðra
foreldra með trefla félaganna til
sölu, en þessir treflar hafa sett
hressilegan svip á leiki liðinna
sumra. Þegar leitað var eftir
skýringu á þessu hjá tals-
mönnum FEF kom i Ijós að
garnvandræði eru ástæðan: ekki
fást réttir litir né rétt garnteg-
und sem stendur og því ekki unnt
að setja framleiðsluna í gang. En
vonazt er til að úr þessu rætist
a.m.k. fyrir næstu mánaðamót.
Eftir að Gordon Davis hafði
skallað að marki íslands á fyrstu
mínútunum, snerist dæmið ger-
samlega við. Wales-búar voru yf-
irleitt heldur meira með knöttinn,
en gerðu ekkert af viti við hann.
Þeir Pétur Pétursson og Arnór
Guðjohnsen brytjuðu vörn Wales
nokkrum sinnum niður í stykki,
Karl fylgdi þeim vel eftir, lék
einnig mjög vel, en allt kom fyrir
ekki. Munaði þó stundum afar
mjóu. Tvívegis sendi Pétur frá-
bærar sendingar fyrir velska
markið, en enginn samherji fylgdi
nógu vel í báðum tilvikum byggðu
þeir Arnór og Karl sóknirnar upp
með Pétri. Pétur kom raunar
Áttum möguleika á að
skora fleiri mörk
Terry Yorath fyrirliði Wales:
— Wales er í erfiðum riðli í
HM-keppninni og því var þessi
stóri sigur hér í kvöld okkur
kærkominn. Við áttum mögu-
leika á að skora fleiri mörk en
fjögur verða að teljast gott vega-
nesti i næstu leiki. íslenska liðið
lék allvel í fyrri hálfleiknum. Við
vorum hræddir um að þeim tæk-
ist að skora fyrsta markið. Það
hefði gefið þeim byr undir báða
vængi og þá er erfitt að ná sigri.
Áhugamenn eflast við að vera
yfir, en um leið og mörkin fóru
að koma minnkaði þróttur
islenska liðsins og eftirleikur
okkar varð léttari. Mér fannst
framlínumenn íslenska liðsins
vera bestu menn þess. En þeir
fengu litla aðstoð. Þá fannst mér
markvörðurinn koma vel frá
leiknum, sérstaklega í fyrri hálf-
leiknum. Ég meiddist illa i ökkla
og leik varla næstu vikur.
- þr.
Völsungar með
fullt hús stiga
VÖLSUNGARNIR frá Húsavík "............
geta verið ánægðir með byrjun ÁriTlðnn:
sína á íslandsmótinu i knatt-
spyrnu. Þeir unnu sig upp í 2. Völsungur
deild á siðasta keppnistímabili og
hafa nú unnið tvo fyrstu leiki
sína á mótinu. Fyrst á heimavelli
gegn Austra og síðan Ármann á
li igardaginn. Það var Völsung
ur sem skoraði eina mark leiks
ins og vann mjög sanngjarnan
sigur.
Ármenningar sóttu heldur
meira framan af leiknum, en færi
komu ekki á færibandi. Upp úr
miðjum hálfleiknum hófu Völs-
ungarnir síðan að láta meira til
sín taka og hápunkti náði það á 32.
mínútu, er liðið skoraði eina mark
leiksins. Magnús Hreiðarsson
komst þá einn inn fyrir vörn
Ármanns, lék á markvörðinn og
renndi knettinum í átt að mark-
inu. Á síðustu stundu renndi einn
varamanna Ármanns sér fyrir
knöttinn, sópaði honum út af, en
gerði það með hendinni. Úr víta-
spyrnunni skoraði Magnús síðan
af miklu öryggi.
í síðari hálfleik voru Ármenn-
ingar meira með knöttinn, en
fengu engin færi sem talandi er
um. Margar skyndisóknir Völs-
unga sköpuðu hins vegar stór-
hættu og voru Ármenningar
heppnir að sleppa með aðeins eins
marks tap á bakinu.
— gg
*