Morgunblaðið - 03.06.1980, Blaðsíða 28
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1980
DAGLEGT LlF
10 reglur um
sauna-bað
Kannski á hver ojí einn sínar eijíin rejflur um hvernix hann ha^ar
sér þegar hann fer i saunabað en þær 10 reglur sem hér eru xefnar eru
hajfnýtar o« jfetur hver sem vill tileinkað sér þær að meira eða minna
leyti eftir því hvað hentar honum best. En á eina regiu Keta þó allir
fallist en hún er sú að það er hrein nauðsyn að hafa góðan tíma fyrir
sér þegar i sauna-bað er farið. Ekkert tfetur eins dretfið úr ánætfjunni
af sauna-baði ok vissan um tímaskort ok flýtir.
Lúxus
smá-
kökur
Frískt
loftí
gróður-
húsinu
10
reglur
um
sauna-
bað
í klefanum á að vera það
hitastig og sá loftraki sem við-
komandi hentar best. Hálfri til
einni klukkustund fyrir baðið ber
að kveikja á ofninum og stilla
hitann á þann hita sem óskað er
eftir. Ef hitinn í byrjun baðsins er
ca. 70° og loftrakinn 20% á
líkaminn að byrja að svitna,
fljótlega.
Fyrir baðið er ráðlegt að þvo
sér rækilega með sápu og skola
aftur rækilega af likamanum und-
ir sturtu.
Siðan er haldið í sauna-klef-
ann, sest eða lagst á bekk og
hitinn umlykur líkamann. Ef hit-
inn reynist viðkomandi óþægilega
mikill er ráð að sitja fyrst á
neðsta bekknum í klefanum þar
sem hitastigið er lægst. Þegar
farið er að venjast hitastiginu inni
eftir nokkra stund og húðin er
tekin að svitna er hægt að flytja
sig á efri bekkina.
Þegar viðkomandi hefur
fengið nóg af hitanum í bili, fer
hann út úr klefanum og kælir
likamann undir kaldri sturtu eða
eins og sumir Finnar gera á
veturna veltir sér upp úr snjó-
skafli. (Um það er deilt hversu
heilsusamleg sú aðferð Finna er).
Þá er alltaf hægt að fara aftur í
klefann og endurtaka vistina þar
tvisvar til þrisvar eftir því sem
hentar hverjum og einum.
Ef handfylli af vatni er kastað
á heita steinana i ofni klefans
eykst loftrakinn, hitinn virðist
meiri og svitabaðið enn meira. En
gætið að, — ekki of mikið vatn á
steinana. Klefinn á ekki að líkjast
gufubaðsklefa. Vatnsgufan getur
logbrennt menn við það hitastig
sem venjulega er í sauna.
Frá Finnum er sá háttur líka
kominn að berja húðina utan með
birkihríslum af ungum trjám.
Markmiðið með því er að auka
blóðrásina í húðinni og þannig
auka svitastreymið úr henni og
þar með þann úrgang sem ætlunin
er að losna við.
Að sauna-haði loknu er ráð að
fara í sturtubað eða t.d. synda spöl
ef sundlaug er í næsta nágrenni.
Eftir sturtubaðið er gott að láta
Iíkamann þorna eins og mögulegt
er án þess að þurrka sér með
handklæði, — það kælir hann.
Að siðustu er afslöppunar-
stund, áður en farið er í fötin
aftur, — sviti eftir á getur annars
bleytt fötin.
Frískt loft í
gróðurhúsinu
HITASTIGIÐ í gróðurhús-
um getur verið breytilegt og
oft of hátt ef ekki er gaett að
því. Um miðjan sólríkan
sumardag getur hitastigið
orðið svo hátt i húsinu að
það getur skaðað þær jurtir
sem verið er að rækta, nema
opnað sé í tæka tíð fyrir
frískt loft. Þegar eigend-
urnir eru heima er ekki um
neitt vandamál að ræða
þessu að lútandi. Gluggarn-
ir eru opnaðir á morgnana
og þeim aftur lokað undir
kvöld þegar sólskin er úti.
En ákvörðun á hitastiginu
getur verið vandamál þegar
eigendurnir ætla að bregða
sér t.d. í nokkurra daga frí
að heiman. Hvað er þá til
ráða yfir hásumarið?
Sjálfvirkir gluggaopnar-
Hreingerning
á sauna
Eftir hvert bað og notkun á
sauna-klefanum er ráð að þurrka
bekkina, ristar og þann hluta af
veggjum sem setið hefur verið við
með rökum klút. Ef loftræstingin
er nægiiega góð þornar saunan við
hitann frá ofninum. Dyrnar og
glugga (ef þeir eru fyrir hendi) er
ráð að opna upp á gátt til að auka
loftræstinguna.
Af og til verður að hreinsa
klefann vel. Bekki og ristar á að
skola og þurrka með tusku og
ryksuga gólf og veggi og þurrka
yfir með rökum klút. Þá þykir
sumum það ráð að þvo gólf og
veggi upp úr blöndu af t.d. 50 g
natriumperborati í 5 lítrum af
heitu vatni. Bekkina má svo „sótt-
hreinsa" með því að láta sól skína
á þá úti i garði i einn dag eða svo.
ar eru taldir næsta nauðsyn-
legir á gróðurhús. Fleiri en
ein gerð slíkra glugga er á
markaðnum, en tvær gerðir
fást i verzluninni Handíð
við Laugaveg og kosta kr.
16.500 og 18.500. Útbún-
aðurinn er einfaldur, en vax
er m.a. notað og veldur því
að glugginn opnast við það
hitastig sem óskað er eftir.
önnur lausn er sú að
opna alla glugga og dyr
gróðurhússins og skilja
þannig við það á meðan á
ferðalaginu stendur. En
veðráttan er hverful á
íslandi, jafnvel i júli og
ágúst, og því er það spurn-
ing hvort þessi aðferð hent-
ar vel við aðstæður hér á
landi. Hún byggist á þvi að
hættan á lágum hita yfir
hásumarið er minni en hætt-
an á því að hann verði of
hár. Þó getur þessi aðferð
komið til greina þegar ekki
er verið að rækta sérstak-
lega viðkvæmar jurtir sem
dafna ekki nema við hátt
hitastig. En það verður að
gera ráð fyrir því að á
næturnar sé hitastigið í
gróðurhúsinu ekki nema ör-
fáum gráðum hærra en úti
undir beru lofti.
Leiðrétting. í Daglegu
lífi síðast varð ruglingur
milli setninga þannig að
rangt verð var gefið upp um
gróðurhús sem tengja má
við húsvegg t.d. á svölum.
Rétt verð mun vera 378
þúsund krónur í Handíð við
Laugaveg, en sú upphæð
sem getið var átti við vermi-
reiti þá í sömu verzlun.