Morgunblaðið - 03.06.1980, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.06.1980, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1980 47 (AP-símamynd) Indira Gandhi tók sér hlé frá hátiðarhöldum vegna kosningasigursins á sunnudag til að fara með sonarson sinn, Varun Gandhi, til hins niræða Ghaffar Khan, svo öldungurinn gæti blessað barnið. Ezer Weizman: Flugræningjar kjörnir Nýju Delhi. 2. júni. - AP. Á MIÐVIKUDAG og laugardag i fyrri viku var kosið til fylkis- þinga í niu fylkjum Indlands. og hlaut Kongressflokkur Indiru Gandhi meirihluta í átta þeirra. Meðal þingmanna, sem náðu kosningu, voru tveir menn á þrítugsaldri, sem nú bíða dóms vegna ákæru um flugrán í desem- ber 1978. Eru þeir ákærðir fyrir að hafa rænt þotu frá indverska flugfélaginu með 132 farþega og áhöfn. Kröfðust þeir þess að Indira Gandhi, sem þá hafði verið dæmd til viku fangelsisvistar fyrir að sýna þingi landsins vanvirðingu. á þing yrði tafarlaust látin laus. Eftir næturlangar viðræður við yfirvöld létu ræningjarnir gísla sína lausa og gáfust upp. Sigur Kongressflokksins í kosn- ingunum í fyrri viku veldur því að flokkurinn fær brátt meirihluta í efri deild ríkisþingsins, því það eru fylkisþingin, sem kjósa fulltrúa þangað. Sá meirihluti er stjórn Indiru Gandhi nauðsynlegur til að tryggja framgang fjármála og breytinga á stjórnarskránni. Kosningabaráttan stóð j þrjár vikur, og leiddi til mikilla átaka, sem urðu 52 manns að bana, en um 2.000 særðust. Tyggigúmmí til að hætta reykingum Það á að byggja upp en ekki skera New York, 2. júní. AP. EZER Weizman fyrrum varn- armálaráðherra ísraels sat fyrir svörum i bandarískri sjónvarps- dagskrá um helgina, og sagði þá að tímabært væri fyrir ísrael að taka upp nýja stefnu til að hvetja þjóðina til dáða. Ilann sagði að leggja bæri meiri áherzlu á upp- byggingu og ekki sífellt að segja þjóðinni að skera, skera og skera niður. heldur hvetja hana til að byggja, byggja og byggja upp. Weizman viðurkenndi að hann hefði hug á að leysa Begin forsæt- isráðherra af hólmi, og kvaðst vilja stuðla að örari þróun mála á Vesturbakkasvæði Jórdanárinnar, til dæmis með því að taka völdin úr höndum ísraelshers á Vestur- bakkanum og Gaza-svæðinu, og færa aukin völd til arabískra íbúa svæðanna. Weizman kvaðst aldrei fallast á neitt samkomulag er bannaði ísraelum að búa á Vesturbakkan- 1976 — Fyrrverandi forseti Bóli- víu, Juan Jose Torre, finnst myrtur í París. 1973 — Hljóðfrá sovézk þota fórst á flugsýningu í París. 1967 — Brezk leiguflugvél fórst í Pýreneafjöllum með 88 manns. 1966 — Peng Cheng, borgarstjóri í Peking, settur af. 1962 — 130 fórust í flugslysi nálægt Orly-flugvelli, París. 1959 — Singapore fær sjálfstjórn. 1948 — Daniel Malan myndar stiórn þjóðernissinna í S-Afríku. 1942 — Orrustan um Midway hefst — Japönsk loftárás á Dutch Har- bor, Alaska. 1940 — Brottflutningnum frá Dunkirk lýkur. 1937 — Hertoginn af Windsor kvænist frú Wallis Simpson. 1935 — Franska farþegaskipið „Normandie" setur hraðamet á jómfrúrsiglingu yfir Atlantshaf; fjórir dagar & ellefu klst. 1917 — Lýst yfir sjálfstæði Alb- aníu undir vernd ítala. 1915 — Bretar taka Amarah við Tigris-fljót og ná undir sig Mesó- pótamíu. 1899 — Fyrstu réttarhöldin gegn Alfred Dreyfus ómerkt og ný fyrir- skipuð. 1896 — Rússar og Kínverjar gera varnarsamning til 15 ára og Rússar fá að reka járnbraut í Norður- Mansjúríu. um, en hann gæti ekki heldur sætt sig við að lög heimiluðu eignaupp- töku á svæðinu til þess að Israelar gætu setzt þar að. „Ég léti Arabana ganga að kjörborðinu og kjósa sitt eigið þing, svo þeir geti ráðið sínum málum sem mest sjálfir, þótt varnir svæðisins og öryggi Israels yrði að öllu leyti í okkar höndum," sagði Weizman. Bankok, 2. júní. AP. VÍETNAMAR hafa hafið und- irbúning að miklum flutningi „bátafólks“ frá landinu. Thai- lenska blaðið „Bankok Post“ 1818 — Bretar fá Poona, Indlandi. 1745 — Orrustan um Hohenfried- berg. 1665 — Sjóorrustan við Lowestoft. 1647 — Oliver Cromwell flýr frá þinginu til hersins í Bretlandi. Afmæli: Sir William F. Petrie, brezkur fornleifafræðingur (1853—1942) — Georg V Bretakon- ungur (1865-1936 ) - Richard Cobden, brezkur stjórnmálaleiðtogi (1804—1865) — Jefferson Davis, bandarískur stjórnmálaleiðtogi (1808-1889) - Tony Curtis, bandarískur leikari (1925—). Andlát: 1657 William Harvey, vísindamaður — 1875 Georges Biz- et, tónskáld — 1899 Johann Strauss yngri tónskáld — 1963 Jóhannes páfi XXIII. Innlent: 1501 Vestfirðingaskrá — 1334 d. Haukur Erlendsson — 1645 Vælugerðisdómur — 1746 Húsaga- tilskipun — 1843 f. Friðrekur VIII — 1932 Ráðuneyti Ásgeirs Ás- geirssonar skipað — 1937 Flugfélag Ákureyrar, nú íslands, stofnað — 1951 Operan „Rigoletto" flutt — 1951 sr. Bjarni Jónsson kveður söfnuð sinn — 1968 Hornsteinn að Búrfellsvirkjun lagður — 1883 f. Páll Eggert Ólason — 1887 f. Guðrún frá Lundi. Orð dagsins: Enginn flokkur er eins slæmur og leiðtogar hans — Will Rogers, bandarískur grinisti (1879-1935). niður Hann sagði að þótt líklegt mætti telja að Egyptar og ísraelar gætu komizt að samkomulagi um framtíðarskipulag á þessum um- deildu svæðum, væri ekki líklegt að Palestínu-Arabar fengjust til að samþykkja það samkomulag. Væri þá ekki um annað að ræða en einhliða ákvarðanir ísraela um framtíðina. skýrir frá þessu í dag og segist hafa fyrir því áreiðan- legar heimildir. Blaðið segir að fyrstu flótta- mennirnir muni koma til ríkja SA-Asíu þegar í næstu viku. Víetnamar stöðvuðu „báta- fólkið" á sínum tíma vegna mótmæla erlendis frá. Þrátt fyrir það hefur ávallt verið nokkur straumur fólks frá landinu á bátum. Blaðið segir, að Víetnamar hafi ákveðið að hleypa fólkinu á bátum á opið haf, eftir að samningaviðræður við erlend riki hafi siglt í strand. NIKOTÍN-tyggigúmmí verður sent á markað í Bretlandi i næsta mánuði til að hjálpa fólki sem vill hætta að reykja að sögn brezka blaðsins Times. Tilraunir með jórturgúmmíið hafa verið mjög uppörvandi síðan þær hófust fyrir sex árum að sögn Michael Russel við Maudsleysjúkra- húsið sunnan við London þar sem tilraunirnar hafa farið fram. Hann segir að aðferðin beri ár- angur í 40 af hundraði tilfella í lok eins árs og það sé helmingi betri árangur en með öðrum aðferðum. Að dómi Russels verður tyggi- gúmmíið gagnlegra meðal en svefn- pillur eða róandi lyf þar sem það komi í veg fyrir slæma heilsu og ekki þurfi að nota það eins lengi. David Simpson, forstöðumaður herferðar gegn reykingum, segir að fagna beri öllum ráðum sem geti fengið fólk til að hætta að reykja en telur að engin töfraformúla sé til. Lungun verða vernduð ef fólk neytir nikotíns í tyggigúmmíi í stað þess að reykja en sameiginleg áhrif nikotíns og kolsýrings virðast skýr- ingin á sambandinu sem virðist vera Trlpoll, Lundúnum. 2. júnl. AP. STJORNVÖLD í Líbýu ráku í gær þrjá brezka diplómata úr landi og að sögn brezka utanrikisráðuneyt- isins er talið. að Libýumenn hafi sagt 17 öðrum Bretum að hafa sig á brott úr landinu. Talsmaður brezka utanríkisráðu- neytisins sagði í Lundúnum í dag, að líklega væru Líbýumenn að svara Bretum. Um miðjan síðasta milli reykinga og hjarta- og æða- sjúkdóma, að sögn Simpsons. Simpson sagði að kolsýringurinn svipti hjartað súrefni en nikotínið yki hjartastarfsemina. Hjartað yrði því að erfiða meira með minna súrefni. Það muni ekki gerast með tyggigúmmínu, sagði hann. Fjórtán myrt- ir í Tyrklandi Istanbul, 30. maí. AP. AÐ MINNSTA kosti fjórtán manns voru myrtir víðs vegar i Tyrklandi aðfaranótt föstudags og fram eftir föstudegi. í bænum Corum í miðhluta Tyrklands gerði æstur múgur að- súg að verzlunum og búðum, skemmdi þar, rændi og ruplaði. Heimildir AP-fréttastofunnar segja, að þeir sem hafi haft sig mest í frammi hafi verið stuðn- ingsmenn hægrisinnaða þjóðernis- flokksins en varaformaður hans var myrtur í fyrradag eins og skýrt hefur verið frá. mánuð ráku brezk yfirvöld fjóra Líbýumenn úr landi eftir að tveir andstæðingar Khadafys í Bretlandi voru sKotnir til bana. Khadafy boðaði á sínum tíma, að gengið yrði í skrokk á andstæðingum stjórnar- innar erlendis. Síðan þá hafa tveir Líbýumenn, andsnúnir Khadafy, verið skotnir til bana í Lundúnum, þrír í Róm og einn var skotinn til bana í Bonn. Brezkur kennari í höndum afganskra skæruliða: Héldu hann Rússa og hótuðu að skjóta hann Lundúnum, 2. júnl — AP. BREZKUR kennari. Jeremy Norman, skýrði frá því í dag í viðtali við Lundúnabiaðið Daily Mail, að hann hefði verið tekinn höndum af afgönskum skæru- liðum og álitu þeir hann Rússa og hótuðu að skjóta hann. Norman var í langferðabíl á leið frá Kabúl til Kandahar, þegar skæruliðar stöðvuðu bílinn. Þeir yfirheyrðu farþega og skutu 20 manns á staðnum, þar sem þeir grunuðu þá um að vera í kommúnistaflokknum. „Leiðtogi skæruliðanna hélt að ég væri Rússi og hvað eftir annað sló hann mig með riffli sínum,“ sagði Norman. Daginn eftir töku langferða- bílsins skutu skæruliðar fjóra til viðbótar. Norman tókst að sann- færa skæruliðana, um að hann væri Breti. Að þremur dögum liðnum var honum sleppt úr haldi. Hann hélt áfram göngu sinni en í Baluehistan var hann tekinn öðru sinni. Þar leið þó ekki á löngu áður en honum var sleppt, þar sem honum tókst að sannfæra skæruliða um að hann væri Breti. Áfram hélt hann en í þriðja sinn var hann tekinn og í þetta sinn var honum haldið í fjóra daga áður en honum tókst að sannfæra skæruliða um að hann væri Breti — ekki Rússi. Þetta gerðist ______ 2. júní Nýr straumur „bátafólks“? Líbýumenn reka Breta úr landi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.