Morgunblaðið - 06.12.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1980
3
Ábyrgðarlaus og móðgandi ummæli
— verksmiðjan á fullan rétt á sér
Jón Traustason
— segja nokkrir starfsmenn Álversins um þá skoð-
un iðnaðarráðherra að leggja ætti Álverið niður
SVO SEM frá var skýrt í Mbl. 1
(?ær. lét Hjörleifur Guttormsson
iðnaóarráóherra þau orð falla i
umra'óum á Alþinsi á fimmtu-
daj{. að haiíkvæmasti virkjunar-
kosturinn væri aó loka Álverinu
ok spara með því eina stórvirkj-
un og að 600 starfsmenn þess
Kætu stundaó þjóóhagsleKa
heppilegri störf. Mbl. ræddi við
nokkra starfsmenn Álversins i
tilefni þessara ummæia og spurói
hvað þeir vildu segja við þeim.
— Starfsemi Álversins er nauð-
synleg og á fyllilega rétt á sér og
það þarf miklu frekar að efla
iðnað sem þennan, sagði Jón
Traustason verkamaður hjá ísal.
— Okkur finnst við ekki vinna
einskis nýt störf hér og teljum hér
innt mikilvæg störf af hendi.
Þetta er líka viðkunnanlegur
vinnustaður og vinnan sjálf ekki
mjög erfið, en launin eru hærri
hér fyrir 8 stunda vinnu en fyrir
10 stunda vinnudag þar sem ég
vann áður og má líka nefna að
bæjarfélag eins og Hafnarfjörður
hefur óbeint mikinn hagnað af
starfsemi Álversins.
Ábyrgðarlaus ummæli
— Mér finnst það bera vott um
ábyrgðarleysi gagnvart þeim sem
vinna hér að láta svona ummæli
falla, því hvernig á að finna mörg
hundruð manns nýjan vinnustað,
sagði Helgi Gunnlaugsson, verka-
maður í steypuskála. — Það hefur
verið mikið rætt um þessi ummæli
iðnaðarráðherra hér í dag og þeir
sem ekki höfðu séð þau voru
fræddir um þau. Atvinnuástandið
er nú þannig í dag að vart er
auðvelt að finna nokkur hundruð
manns ný störf og ég álít að við,
sem hér vinnum, greiðum mun
hærri skatta, en almennt gerist og
varla telst það þjóðhagslega
óhagkvæmt. En þessi ummæli eru
kannski eins og annað, sem heyr-
ist frá Alþýðubandalaginu, Svavar
ætlar að fella ríkisstjórnina á
Helguvíkurmálinu óg Guðrún ætl-
ar að fella hana á Gervasoni-
málinu.
— Ég hef rætt þessa skoðun
iðnaðarráðherra við eina 30
starfsfélaga mína í dag og þeir eru
allir „rasandi" yfir þessum um-
mælum, sagði Gísli Sumarliðason
vélvirki. — Okkur finnast þetta
móðgandi ummæli og menn eru að
hafa það í flimtingum hér hver við
annan, að við séum bara ónytjung-
ar! Nei, við teljum okkur enga
ónytjunga og spyrjum á móti, við
hvað ætlar iðnaðarráðherrann að
láta mannskapinn vinna? Bæði þá
starfsmenn sem hjá Isal vinna og
alla hina, sem óbeint hafa atvinnu
sína af starfsemi Álversins.
— Ég tel þessa verksmiðju
standa alveg fyrir sínu og hún
hefur á vissan hátt verið braut-
ryðjandi, því varla hefðu stór-
virkjanir orðið svo fljótt að raun-
veruleika ef Álverið hefði ekki
komið til, sagði Móses Guð-
mundsson, starfsmaður í kerja-
skála. — Þessi orð iðnaðarráð-
herra eru því fyrst og fremst
leiðinleg fyrir okkur, sem hér
vinnum.
Hefur gleymt rnörsu
— Ég hef ekki hitt nokkurn
mann hér í dag, sem ekki er
bálvondur vegna þessa álits iðnað-
arráðherrans á starfseminni hér,
sagði einn skálastjórinn, Einar
Sigurjónsson. — Ráðherrann segir
að við vinnum ekki þjóðhagslega
heppileg störf, en ég dreg í efa að
hann hafi sjálfur unnið arðbærari
störf en menn hér. Það er heitt í
mönnum hér vegna þessara orða
nú og vegna þess að við höfum
þurft að segja upp 12 mönnum í
kerjaskálanum vegna orkuskorts
nú og hætta þeir störfum hér um
áramótin. Þessi orkuskortur er
vegna þess að iðnaðarráðherrann
átti þátt í því að seinkað var
framkvæmdum við Hrauneyja-
fossvirkjun. Það er annað en
gaman að þurfa að láta þessa
hæfu menn hætta störfum. Ráð-
herrann segist ekki hafa gleymt
600 starfsmönnum Álversins þeg-
ar hann lætur þessi orð falla, en
það má benda á að starfsmennirn-
ir eru mun fleiri auk allra hinna,
sem óbeint koma við sögu. Hvað
með starfsmenn Eimskips, sem
flytja varning héðan og hingað og
hina og aðra, sem atvinnu sína
eiga undir Álverinu? Við teljum
hann hafa gleymt æði mörgu og
þessi orð eru ekki heppileg fyrir
mann í ábyrgðarstöðu, en þau
hæfa þó vel þeim niðurrifsflokki,
sem hann tilheyrir. Ég vildi að
lokum beina þeim tilmælum til
þeirra starfsmanna okkar, sem nú
verða að hætta, að þeir snúi sér til
iðnaðarráðherra og hann finni
þeim sambærileg störf hvað
launakjör varðar, sagði Einar Sig-
urjónsson að lokum.
Spjallaö við starfsfólk og viðskiptavini i bönkum i Rvík og nágrenni:
Peningaskortur um
í sumum bönkum í
Verkfall bankamanna mun hefj-
ast á mánudag el ekki verður
samið fyrir þann tíma og leggst
þá öll bankastarfsemi niður. Á
föstudag var ekki annaó fyrir-
sjáanlegt en að af verkfallinu yrði
og mikió var um aó fólk færi i
banka til aó taka út peninga.
Blaóamaóur og ljósmyndari Morg-
unblaðsins komu við i nokkrum
bönkum og höfðu tal af afgreióslu-
fólki og viðskiptavinum.
I aðalbanka Landsbankans var
margt um manninn en menn höfðu
þó erindi sem erfiði því bankinn
var peningalaus. Var heldur tóml-
egt að sjá ofaní peningaskúffur
gjaldkeranna því þar sást varla
seðill og urðu þeir að vísa öllum frá
sem komnir voru til að taka út.
Flestir tóku þessu vel en einstaka
maður brýndi þó raust sína og lýsti
vanþóknun sinni á ástandinu.
Anna Birgisdóttir, gjaldkeri,
sagði að talsverð ös hefði verið frá
því að bankinn opnaði. „Það eru
allir að taka út og sumir mjög háar
upphæðir. Það var einhvern tíma
upp úr tvö sem við urðum uppi-
skroppa með peninga en eigum von
á sendingu á hverri stundu og
munum þá væntanlega geta af-
greitt alla okkar viðskiptavini.
Þetta hefur verið voðalegt at og
þegar svona margir koma í einu til
að taka út fer auðvitað allt úr
skorðum“.
„Þetta kemur sér auðvitað illa,“
sagði Jón Bjarnason sem var stadd-
ur í bankanum þeirra erinda að
taka út, „en það þýðir ekkert að
vera að barma sér — fólk hefur
staðið af sér stærri áföll hér á
Islandi. Það er líka hægt að greiða
með ávísunum ef verkfallið dregst
á langinn?
„Mér hefur skilist að ávísanir
ættu að gilda eins og peningar. Ef
það verður ekki tekið við þeim
fyndist mér að það ætti að strika
allar ávísanir út. Annars hef ég
ekki trú á að þetta verði svo langt
verkfall", sagði Jón að lokum.
Það skal tekið fram að eftir að
Morgunblaðsmenn voru á ferðinni
barst Landsbankanum umrædd
peningasending og tókst að af-
greiða alla viðskiptavini bankans
fram að lokun.
í aðalbanka Útvegsbankan3 var
Valgeir Gíslason, gjaldkeri, tekinn
tali. „Við höfum haft næga peninga
í allan dag en því er ekki að neita
að nú eru þeir farnir að minnka. Ég
vona þó að þeir endist fram að
lokun og tel reyndar allar horfur á
því. Ég býst frekar við að það verði
verkfall en það verður varla langt,
Þór Gunnarsson og Guðrún
Bjarnadóttir
— jjetta er ekki svo mikið sem farið
er framá að þeir hljóta að geta
samið við okkur".
„Ég var í Landsbankanum en þar
voru allir peningar búnir“, sagði
Ragna Eiríksdóttir. „Ég var svo
heppin að eiga smá upphæð inni á
bók hérna í Útvegsbankanym sem
ég ætla að taka út — ég vona bara
að það klárist ekki allir peningar
tíma
gær
meðan ég er að tala við þig. Það er
ansi sterkt hjá þeim að fara í
verkfall á þessum tíma einmitt
þegar kaupæðið er að byrja. Ann-
ars hef ég ekki trú á að þetta
verkfall standi Iengi."
Hjá Sparisjóði Kópavogs komum
við að luktum dyrum en á þeim var
tilkynning þar sem stóð að þeir sem
komnir væru til að leggja inn
kæmust inn bakdyramegin. Nokkur
hópur fólks var fyrir við dyrnar og
tókum við einn mann tali þar, Jón
Meyvantsson. „Þetta er vont fyrir
þá sem eiga sparisjóðsbækur og
áttuðu sig ekki á að taka út
tímanlega," sagði Jón. „Sérstaklega
gæti þetta þó komið sér illa fyrir
öryrkja og þá sem ætluðu að sækja
bætur hingað í bankann. Fólk lifir
ekki á loftinu og allt kerfið miðar
við þessa peninga. — Ég hef ekki
trú á að þetta verkfall standi lengi,
— ef svo fer þá verður maður víst
bara að gefa út gúmmítékka þang-
að til þeir opna bankana aftur.“
Ása Einarsdóttir, fulltrúi, hjá
Sparisjóði Kópavogs sagði m.a.:
„Við lokuðum vegna þess að við
töldum okkur ekki geta afgreitt
fleiri en komnir voru inn. Þetta er
ástand sem við ráðum ekki við, —
flestir taka þessu vel og sýna okkur
skilning. Við vorum að loka núna
um þrjúleytið — annars höfum við
getað afgreitt alla með venjulegum
hætti í allan dag. Ég tel að við
munum geta afgreitt allt þetta fólk
sem komið er inn og ef eitthvað
verður eftir munum við afgreiða þá
sem bíða fyrir utan.“
í Sparisjóði Hafnarfjarðar var
allmikil ös. „Okkur hefur tekist að
fljóta í dag“, sagði Þór Gunnars-
son, starfsmaður bankans. „Ég var
orðinn áhyggjufullur á tímabili en
er nú bjartsýnn á að okkur takist
að lafa þessar mínútur sem eftir
eru að lokun. Við höfum aðeins
afgreitt okkar viðskiptavini og ekki
tekið ávísanir frá öðrum bönkum.
— Ég held að það verði verkfall en
það verður varla langt — annars er
erfitt að spá í þetta.“
I Útibúi Iðnaðarbankans í Hafn-
arfirði varð Albert Sveinsson fyrir
svörum. „Það er mjög lítið eftir af
peningum hjá okkur núna en
klukkan er sem betur fer að verða
fjögur þannig að allar horfum eru á
að við sleppum. Við höfum reynt að
halda eftir fyrir eldra fólk, það á
yfirleitt ekki ávísanahefti. Vænt-
anlega verður verkfallið stutt
þannig að fólk þarf ekki að gera sér
áhyggjur. Ég skil ekki í öðru en það
hljóti að takast samningar um
þessi 3 prósent, — þetta er ekki svo
mikil krafa.“
„Ef úr verkfalli verður þá kemur
það sér auðvitað illa fyrir marga,
ekki síst fyrir blessaða kaupmenn-
ina, núna þegar jólaösin er að
byrja“, sagði Þórlaug Guðmunds-
dóttir. „Ég veit ekki hvort þetta
verður langt verkfall eða ekki og vil
ekkert um það segja. Maður vonar
bara að það leysist sem fyrst.“