Morgunblaðið - 06.12.1980, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1980
Jólatónleikar Kammersveit-
ar Reykjavíkur eru á morgun
Kammersveit Reykjavíkur
hefur síðustu daga verið að
æfa af kappi fyrir tónleika,
sem hún mun halda í Bú-
staðakirkju á morgun. Blaða-
maður leit inn á æfingu hjá
hljómsveitinni nýlega ok
ra'ddi við þær Ilelgu llafliða-
dóttur og Itut Ingólfsdóttur
um tónleikana oir starfsemi
sveitarinnar almennt.
„Á tónleikunum á morgun mun-
um við leika fjögur verk sem öll eru
frá barrokk-tímanum. í fyrsta Iagi
leikur Lárus Sveinsson með kamm-
ersveitinni konsert fyrir trompet
eftir Telemann. Helga Ingólfsdóttir
og Elín Guðmundsdóttir eru einleik-
arar í konsert fyrir tvo sembala og
kammersveit eftir Bach, en síðan
munu þær Rut Ingólfsdóttir og
Laufey Sigurðardóttir leika þetta
sama verk í frumútgáfu sinni fyrir
tvær fiðlur og kammersveit," sagði
Helga.
„Það er eftirtektarvert að Bach
skuli hafa skrifað þennan konsert í
tvenns konar mynd og fróðlegt að fá
að heyra báðar útgáfurnar á tón-
Einleikarar á tónleikunum eru þær Elin Guðmundsdóttir, semballeikari, Rut Ingólfsdóttir,
fiðluleikari, Helga Ingólfsdóttir, semballeikari og Laufey Sigurðardóttir, fiðluleikari.
husgogn
Vorum aö taka upp
BORÐSTOFU-
HÚSGÖGN
í rokokko og Lúövíks XVI stíl.
Rúm, hvít og í kirsuberjaviö.
Húsgögn fyrir þá sem hafa hrifnæman smekk
o ° og vilja byggja upp heimiliö
meö vönduöum og sígildum húsgögnum,
húsgögnum sem ganga í erföir.
Viö eigum erfitt meö aö lýsa þeim meö oröumP
en gjöriö svo vel og lítiö inn til okkar.
Opiö í dag
kl. 9—5
husgogn
Ármúla 44 — Sími 85153.
leikum kammerhljómsveitarinnar.
En hvers vegna skyldi Bach hafa
skrifað þennan konsert í tveimur
útgáfum?
Vitað er að á þeim árum sem
hann skrifaði þessa konserta varð
hann að sjá tveimur kammersveit-
um fyrir nægum verkefnum og var
önnur Collegium Musicum í Leipzig,
en hin var tónelska fjölskylda hans,
sem hann var mjög stoltur af enda
ekki margir sem geta haldið kons-
erta í heimahúsum með fjölskyldu
sinni.
Síðasta verkið á tónleikunum
verður svo Conserto Grosso eftir
Corelli, sem er mjög frægt verk og
upphaflega samið til flutnings á
jólanótt og þess vegna er það mjög
gjarnan kallað Jólakonsert. Það
verk er mjög skemmtilegt því þar er
teflt einleikssveit gegn kammer-
sveit. Hljóðfæraleikararnir eru í
tveimur hópum til að undirstrika
þetta form og svara og spyrja á
víxl,“ sagði Helga.
Fastir meðlimir Kammersveitar-
innar eru þrettán að tölu og það
vekur eftirtekt að einn þeirra er
ekki hljóðfæraleikari. Það er Gunn-
ar Þjóðólfsson og hann er algerlega
ómissandi hljómsveitarmeðlimur
því hann sér um alla flutninga á
hljóðfærum og mæðir oft mikið á
honum fyrir tónleika og æfingar.
Hvernig hafa æfinKarnar
genKÍð?
„Æfingarnar hafa verið bæði góð-
ar og erfiðar. Við höfum engan
stjórnanda, svo vinnan verður þeim
mun meiri en að mörgu leyti
ánægjulegri fyrir bragðið. Ýmsar
skoðanir koma upp sem síðan þarf
að samræmá og öllum er leyfilegt að
leggja sitt til málanna. Tíminn milli
tónleika er stuttur svo æfingapró-
grammið er strembið," sagði Helga.
Hvaða verk munuð þið svo
flytja á næstu tónleikum?
„Á janúartónleikunum munum
við endurtaka Pierrot Lunaire eftir
Schoenberg, sem við fluttum á
Listahátíð við mikla hrifningu. Við
viljum með þessu verða við fjölda
áskorana um endurflutning á
verkinu. Paul Zukovsky er gestur
hljómsveitarinnar á tónleikunum og
mun hann stjórna verkinu," sagði
Rut.
Á tónleikunum verður ennfremur
fluttur klarinettukvintett eftir
Brahms og leikur Zukovsky með.
Á tónleikunum í mars munum við
flytja sex lög eftir Hjálmar Ragn-
arsson, sem hann samdi í tilefni
áttræðisafmælis föður síns, Ragn-
ars H. Ragnars. Þessi verk hafa
aldrei fyrr verið flutt á tónleikum í
Reykjavík svo okkur fannst vel við
eiga að flytja þau nú.
Við munum flytja svítu eftir
Stravinsky, „Söguna af dátanum",
sem er bæði leikrit og hljómsveitar-
verk, en við munum sleppa textan-
um að þessu sinni.
Ná framtíðaráætlanir lengra?
Já, okkur hefur verið boðið að
flytja Oierrot Lunaire á Listahátíð í
Þrándheimi á næsta ári en þar
munum við einnig spila nokkur
íslensk verk.
IIvernÍK K<*nKiir rekstur
hljómsveitarinnar?
Hljóðfæraleikararnir vinna sitt
starf í sjálfboðavinnu og kostnaður
við hljómleikahaldið er að mestu
leyti fjármagnaður með aðgangseyri
og ákriftargjöldum að tónleikum.
Einnig höfum við fengið smástyrk
frá Reykjavíkurborg. Með því að
vinna allt okkar starf í sjálfboða-
vinnu tekst okkur að láta enda ná
saman. Það er auðvitað aðallega
ánægjunnar vegna sem við erum að
fást við þetta og einnig til þess að
kynna kammerverk, sem ekki væru
annars leikin hér á tónleikum.
Undirtektir sem við höfum fengið á
tónleikum eru okkur mikil hvatning.
Starsemi Kammersveitar Reykja-
víkur gefur mörgum hljóðfæraléik-
urum tækifæri til þess að koma
fram opinberlega, jafnt þeim sem
hafa starfað um árabil og þeim sem
eru nýkomnir heim frá námi erlend-
is.
Á tónleikunum á morgun munum
við leika eingöngu barrok-tónlist,
sem er mjög hátíðleg og vel til þess
fallin að koma fólki í gott jólaskap,"
sagði Rut að lokum.