Morgunblaðið - 06.12.1980, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1980
8
DOMKIRKJANKI. 11 messa.
Organleikari Marteinn H. Friöriks-
son. Sr. Hjalti Guömundsson. Kl. 2
messa. Fermingarbörn aöstoöa.
Þess er vænst aö aðstandendur
fermingarbarna mæti til messunnar
meö börnunum. Organleikari
Orthulf Prunner. Sr. Þórir Steph-
ensen.
ÁRBÆJARPESTAKALL Kirkjudag-
ur Árbæjarsafnaöar. Barnasam-
koma í safnaöarheimili Árbæjar-
sóknar kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta
í safnaöarheimilinu kl. 2. Þóra
Einarsdóttir syngur einsöng. Vænst
er þátttöku væntanlegra fermingar-
barna og foreldra þeirra. Kaffisala
Kirkjunefndar Kvenfélags Árbæjar-
sóknar og skyndihappadrætti
Kirkjudagsins í hátíöarsal Árbæj-
arskóla frá kl. 3—6 síöd. Sr.
Guömundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL Messa aö Norö-
urbrún 1 kl. 2. Jólafundur safnað-
arfélags Ásprestakalls eftir messu.
Jólaminning, Sigríöur Ingimars-
dóttir. Kirkjukórinn syngur. Kaffi.
Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIDHOLTSPRESTAKALL
Sunnudagaskólinn kl. 10.30. Guös-
þjónusta kl. 14 í Breiöholtsskóla.
Muniö samkomuna aö Seljabraut
54, miövikudag kl. 20.30. Sr. Lárus
Halldórsson.
BÚSTADAKIRKJA Barnasamkoma
kl. 11. Guösþjónusta kl. 2. Haraldur
Ólafsson, háskólakennari flytur
stólræöuna og situr fyrir svörum á
eftir. Organleikari Guöni Þ. Guö-
mundsson. Sr. Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL Barna-
samkoma í safnaöarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guösþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 2. Altaris-
ganga. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
LANDSPÍTALINN Messa kl. 10.
Organleikarl Birgir Ás Guömunds-
son. Sr. Þórir Stephensen.
FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL
Laugardagur: Barnasamkoma í
Hólabrekkuskóla kl. 2. Sunnudag-
ur: Barnasamkoma í Fellaskóla kl.
11 árd. Guösþjónusta í safnaöar-
heimllinu aö Keilufelli 1 kl. 2 e.h.
Sameiginleg samkoma safnaöanna
í Breiöholti mióvikudagskvöld kl.
GUÐSPJALL DAGSINS
Lúk. 21.: Teikn á sólu og
tungli.
20.30 að Seljabraut 54.
GRENSÁSKIRKJA Barnasamkoma
kl. 11. Guösþjónusta kl. 2. Organ-
leikari Jón G. Þórarinsson. Almenn
samkoma n.k. fimmtudagskvöld kl.
20.30. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA Messa kl. 11.
Sr. Gísli Brynjólfsson f.v. prófastur
messar. Þriöjudagur kl. 10.30 fyrir-
bænaguösþjónusta. Beöiö fyrir
sjúkum. Laugard. 6. des. kl. 5:
Samkór Rangæinaa flytur aöventu-
dagskrá. Söngstjóri Friörik Guöni
Þórleifsson Sr. Halldór Gunnars-
son í Holti flytur aöventuhugvekju.
Aögangseyrir 2000 krónur. Kirkju-
skóli barnanna er á laugardögum
kl.2.
HÁTEIGSKIRKJA Barnaguösþjón
usta kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson.
Messa kl. 2. Sr. Arngrímur Jóns-
son. Kór og nemendur úr Tónlist-
arskólanum flytja aöventu- og jóla-
lög í 15 mínútur fyrir messu.
Sömuleiöis sjá nemendur Tónlist-
arskólans um allan söng í mess-
unni. Orgel og kórstjórn Marteinn
H. Friöriksson. Lesmessa og fyrir-
bænir fimmtudagskvöld 11. des. kl.
8.30. Sr. Arngrímur Jónsson.
KÁRSNESPRESTAKALL Barna-
samkoma í Kársnesskóla kl. 11
árd. Guösþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11 árd. Aðventukvöld
safnaöarins í Kópavogskirkju kl.
20.30. Ræöumaöur: Kári Arnórs-
son, skólastjóri Fossvogsskóla.
Manuela Wiesler leikur einleik á
flautu. Kirkjukórinn syngur undir
stjórn Guömundar Gilssonar. Al-
mennur söngur. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA Barnasam-
koma kl. 11. Söngur, sögur, mynd-
ir. Guösþjónusta kl.‘2. Prestur sr.
Sig. Haukur Guöjónsson, organ-
leikari Jón Stefánsson. Minnum á
kökusölu kórs Langholtskirkju kl.
3. Sóknarriefndin.
LAUGARNESKIRKJA Barna-
guösþjónusta kl. 11 og messa kl. 2.
Þriöjudagur 12. des.: Bænaguðs-
þjónusta kl. 18 og æskulýösfundur
kl. 20.30. Sóknarprestur.
NESKIRKJA Barnesamkoma kl.
10.30. Guösþjónusta kl. 2. Orgel og
kórstjórn Reynir Jónasson. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Kirkjukaffi.
SELJASÓKN Barnaguösþjónusta
að Seljabraut 54 kl. 10.30. Barna-
guösþjónusta í Ölduselsskóla kl.
10.30. Guösþjónusta aö Seljabraut
54 kl. 2. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK Jóla-
vaka Fríkirkjunnar kl. 5. Mjög
fjölbreytt og heillandi dagskrá. At-
hugið að messan kl. 2 fellur niöur.
Safnaðarprestur.
DÓMKIRKjA KRISTS Konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd.
Hámessa kl. 10.00 árd. Lágmessa
kl. 2 síðd. Alla virka daga er
lágmessa kl. 6 síöd., nema á
laugardögum þá kl. 2 síöd.
FELLAHELLIR Kaþólsk messa kl.
11 árd.
FÍLADELFÍUKIRKJA Safnaöar-
samkoma kl. 14. Samhjálpar sam-
koma kl. ?0. Samkomustjóri Óli
Ágústsson.
KFUM & K, Amtmannsstíg: Sam-
koma í uinsjá Kristilegs stúdentafé-
lags.
BÆNASTAOURINN Fálkagötu 10:
Samkoma kl. 20.
NÝJA POSTULAKIRKJAN, Háa-
leitisbr. 58: Messa kl. 11 og kl. 17.
BESSASTADAKIRKJA Messa kl.
14 í umsjá guöfræöideildar Háskól-
ans. Sr. Einars Sigurbjörnsson
þjónar fyrir altari. Stud. theol.
Pétur Þorsteinsson prédikar. For-
söngvari Jón Ragnarsson. Söng-
stjóri Jón Stefánsspn. Sr. Bragi
Friðriksson.
GARÐASÓKN Barnasamkoma í
skólasalnum kl. 11 árd. Sr. Bragi
Friðriksson.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Caröabæ: Hámessa kl. 2 síöd.
VÍÐISTADASÓKN Barnasamkoma
í Hrafnistu kl. 11 árd. Tónleikar
kórs Víöistaöasóknar veröur í
Hafnarfjaröarkirkju kl. 20.30. Flutt
veröur „Jólamessaa" eftir Jakub
Jan Ryba. Sr. Siguröur H. Guö-
mundsson.
HAFNARFJAROARKIRKJA Al-
menn guðsþjónusta kl. 2 síöd.
Sóknarprestur.
KAPELLAN St. Jósefsspítala
Hafnarf.: Messa kl. 10 árd.
KARMELKLAUSTUR Hámessa kl.
8.30 árd. Messa rúmhelga daga kl.
8 árd.
GRINDAVÍKURKIRJA Barna-
guðsþjónusta kl. 11 árd. Sóknar-
prestur.
INNRI-NJARDVÍ.URKIRKJA Guös-
þjónusta kl. 11 árd. Fermingarbörn
aöstoöa. Sóknai prestur.
YTRI- NJARÐVÍKURKIRKJA
Bænastund kl. 18. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA Barnasamkoma
kl. 10.30. Messa kl. 14. Sr. Hugh
Martin prédikar. Altarisganga. Sr.
Björn Jónsson.
Sagan um Pílu plnu á
bók og hljómplötu
„PÍLU PÍNU platan“ heitir ný
hljómplata. sem bókaútgáfan
Örn ok Örlygur hafa gefið út
samtímis harnabókinni eftir
Kristján frá Djúpalæk, en platan
hefur að geyma söguna um mús-
ina Píiu pínu og lög Heiðdísar
Norðfjörð við söngva Kristjáns
frá Djúpalæk.
Heiðdís Norðfjörð las söguna
um Pílu pínu í útvarp í fyrra og
söng þá einnig eigin lög er tengd-
ust efni sögunnar. Segir bún
Tómas Árnason:
Sammála
skýrslu
OECD um
nauðsyn
aðgerða
„ÉG ER búinn að segja það mikið
um þessi mál, að mínar skoðanir
liggja ljósar fyrir," sagði Tómas
Arnason, viðskiptaráðherra, er
Mbl. spurði hann í gær álits á
skýrslu OECD um þróun efna-
hagsmála á íslandi. „Ég er sam-
mála því, að það verði að grípa til
ákveðinna aðgerða til að telja
verðbólguna niður og ég hef líka
marglýst því yfir, að niðurtalning-
in verði að ná til allra höfuðþátta
efnahagslífsins."
söguna einnig á plötunni og syng-
ur nokkur laganna, en auk hennar
syngur Margrét Helga Jóhanns-
dóttir hlutverk litlu músarinnar
og Ragnhildur Gísladóttir syngur
þulu, en hún annaðist jafnframt
allan undirbúning að gerð
hljómplötunnar, útsetti lögin og
stjórnaði upptöku. Hefur Ragn-
hildur einnig samið eitt lagið á
plötunni. Auk framantaldra
leggja hönd á plóginn þau Magnús
Kjartansson, Pálmi Gunnarsson,
Sigurður Karlsson, Þórhallur Sig-
urðsson, Valva Gísladóttir og
Ólöf, Sesselja Ólafsdóttir. Hljóð-
stjórn annaðist Gunnar Smári
Helgason og fór upptaka fram í
Hljóðrita í Hafnarfirði.
Ný barnabók
á hjólum
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf.
hefur sent frá sér bókina: Á hjólum,
eftir Huck Scarry, sem er sonur hins
þekkta barnabnkahöfundar Ric-
hards Scarry. Hefur bók þessi fengið
mikið lof í fjölmörgum iöndum þar
sem hún hefur komið út, og þykir
Iluck Scarry líklegur til þess að ná
sömu vinsældum hjá bórnum og
faðirinn.
Á hjólum segir frá þróunarsögu
hjólsins á mjög sérstæðan og
skemmtilegan hátt, allt frá því að
frummennirnir mótuðu óvönduð hjól
úr tré eða steinum, til þess sem gerist
á okkar dögum, en hjólið kemur
ótrúlega víða við sögu í daglegu lífi
manna.
Þýðendur bókarinnar eru þeir Jó-
hann Pétur Sveinsson og Ólafur
Garðarsson. Bókin var filmuunnin og
sett í Prentstofu G. Benediktssonar
en prentuð erlendis.
Jóla-köku-
basar hjá
KR-konum
KR-konur halda inn árlega jóla-
kökubasar í KR-húsinu við
Frostaskjól sunnudaginn 7. des-
ember kl. 14:00.
Kökubasar
A sunnudaginn 7. desember verð-
ur haldinn kökubasar að Selja-
braut 54 i húsi Kjöts og Fisks.
Basarinn er haldinn til styrktar
bygging Bibliuskólans að Eyj-
ólfsstöðum á Héraði. Skólinn er
hinn fyrsti sinnar tegundar hér á
landi og verður markmið hans að
þjálfa leikmenn innan kirkjunn-
ar.
Um þessar mundir er skólahúsið
á Eyjólfsstöðum fokhelt en mikil
þörf er á því að skólinn komist í
notkun sem fyrst. Samtökin ungt
fólk með hlutverk standa að bygg-
ingu þessa skóla og er öll vinna við
hann unnin í sjálfboöavinnu. Þeir,
sem standa að þessum basar trúa
því að margir verði til að koma að
Seljabraut 54 og styrkja gott
málefni. Kökubasarinn verður á
milli 3,30 og 6 á sunnudag.
Kitty
Sögusafn heimilanna hefur gef-
ið út bókina Kitty eftir Rosamond
Marshall. Þetta er ástarsaga, 256,
blaðsíður, þýðandi er Hersteinn
Pálsson.
Tengdadóttirin
Sögusafn heimilanna hefur gef-
ið út söguna „Tengdadóttirin"
eftir E. Juncker. Þetta er ástar-
saga, 199 blaðsíður, þýðandi
Hersteinn Pálsson.
45 ára afmæli Vöku
Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta er 45 ára á þessu ári. í
tilcíni þessa merka afmælis er
ætlunin að halda afmælishóf 12.
desember nk. Hófið verður
haldið í Lækjarhvammi, Ilótel
Sögu og hefst kl. 20 með borð-
haldi og verða fiuttar ræður
ungra sem gamalla stuðnings-
manna félagsins. Að borðhaldi
loknu verður stiginn dans. Hús-
ið verður opnað kl. 19.
Vaka hefur starfað sleitulaust
innan Háskólans frá stofnun
félagsins árið 1935. Félagið hef-
ur ávallt verið boðberi lýðræðis
og einstaklingsfrelsis og jafn-
framt barist gegn hvers kyns
alræði.
Vaka hefur verið með öfluga
útgáfustarfsemi innan Háskól-
ans og gefur m.a. út eigið
stúdentablað, Vöku-blaðið. Fé-
lagið hefur nú aðsetur að Bald-
ursgötu 7A og býr þar í leigu-
húsnæði við þröngan kost.
Starfsemi félagsins, sem er fjár-
fíek, er fjármögnuð með auglýs-
ingum í málgagni félagsins og
frjálsum framlögum. Einnig
hafa félagsmenn unnið í sjálf-
boðavinnu við ýmis störf, svo
sem uppskipun og bygginga-
vinnu til að afla fjár til starf-
seminnar.
Vaka er nú í mikilli sókn
innan Háskólans og hefur félag-
ið aukið fylgi sitt stórlega á
síðustu árum. Vaka sækir fylgi
sitt inn í raðir allra lýðræðis- |
sinna innan Háskólans og starf-
ar því á breiðum grundvelli.
Miðaverð á áðurnefnda af-
mælishátíð Vöku, með þrírétta
máltíð er 15.000 kr. Miðapantan-
ir eru í síma félagsins 22465,
laugardaginn 6. des. og sunnu- |
daginn 7. desember kl. 13—18 og I
mánud. 8 des. — miðvikud. 10.
des. í síma 22465 kl. 17—19.
Miðar verða einnig seldir í Fé-
lagsstofnun stúdenta, við Hring-
braut 8. des. — 10 des. kl. 10—14.
Athygli er vakin á því að
gamlir stuðningsmenn Vöku eru
sérstaklega hvattir til að mæta
auk þess sem öllum stúdentum
er heimill aðgangur.
Fjörulalli — ný
íslenzk barnabók
BÓKAÚTGÁFAN Salt heíur sent
frá sér harna- og unglingabókina
Fjörulalli eftir Jón Viðar Guð-
laugsson á Akureyri. „í sögunni
kynnist lesandinn lifi og hugar-
heimi da'migerðra íslenzkra
drengja og fær að fylgjast með
nokkrum spaugilegum uppátækj-
um þeirra,“ segir m.a. á bókar-
kápu, en hér er um að ræða
fyrstu bók höfundar.
I frétt frá útgefanda segir m.a.
„Nafnið Fjörulalli er sprottið af
krytum, sem áttu sér stað milli
barnanna í hinum ýmsu bæjar-
hluturn á Akureyri, hér fyrr á
árum. Þá voru íbúar innbæjarins
eða Fjörunnar uppnefndir „fjöru-
lallar", Brekkubúar kölluðust
„brekkusniglar", íbúar Oddeyrar
„eyrarpúkar" og íbúar Glerár-
þorps „þorparar". Söguhetjan í
bókinni, Fjörulalli, er hálfgerður
„kramaraumingi" og finnur hann
upp á ýmsu til að bjarga sér úr
ótal klípum."
Höfundurinn, Jón Viðar Guð-
laugsson lyfjatæknir, er fæddur
og uppalinn á Akureyri. Samdi
hann sögur þessar í upphafi sem
sjálfstæða þætti til að skemmta
börnum og unglingum í KFUM og
K á Akureyri og koma þær hér út
í einni heild. Kápumynd og
myndskreytingar í bókinni eru
eftir Búa Kristjánsson. Prentverk
Akraness annaðist prentun og
bókband.
JónViðar Guðlaugsson
FJÖRULALLI