Morgunblaðið - 06.12.1980, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1980
46
Gott hljóð
i Texasförum
Friðrik bór tekur til við lóðin í einum lyftingasal Texasháskóla og
styrkir fætur fyrir komandi átök á keppnistimabilinu. bað er ekki
annað að sjá en Friðrik hafi heljarhlass á herðunum, það mikið, að hin
rammgerða stálstöng svignar um herðakamb.
Friðrik bór óskarsson og Oddur Sigurðsson spretta úr spori á einum
af íþróttavöllum skóia þeirra i Texas. Völlurinn er hinn fullkomnasti,
i hvaða skilningi sem er, og mundi þriðjungur islenzku þjóðarinnar
rúmast þar i sæti, en þó er hér bara um að ræða ósköp venjulegan og
ekkert merkilegaan háskólavöll, eins og sagt er þar vestra.
bAÐ HEFUR færst i aukana á
siðustu árum, að islenzkir frjáls-
iþróttamenn hverfi í lengri eða
skemmri tima til æfinga i útlönd-
um. Margir hafa farið út til
náms, sumir jafnvel gagngert til
að skapa sér betri aðstöðu til
æfinga og keppni. t fyrravetur
dvöldu t.d. um tveir tugir frjáls-
iþróttamanna við æfingar og
keppni i Bandarikjunum, flestir i
Kaliforniu, og ekki þarf að
spyrja hverjir standa straum af
kostnaði við slikar æfingadvalir,
það verða iþróttamennirnir
oftast að gera sjálfir. Sumir hafa
þó hlotið styrki við háskóla.
Frjálsiþróttamennirnir Frið-
rik bór óskarsson. Oddur Sig-
urðsson og Ágúst borsteinsson
UMSB eru i hópi þeirra síðast-
töldu, en þeir eru allir við nám i
Texasháskóla i Austin. Morgun-
blaðið sló á þráðinn til þeirra
félaga fyrir skömmu, svona til að
heyra i þeim hljóðið.
Þeir þremenningar létu vel af
dvölinni vestra og sögðust hafa
æft vel og mikið það sem af væri
skólaári. Hefur Oddi gengið vel á
æfingum og vakið sérstaka athygli
fyrir spretthörku sína og dugnað.
Friðrik Þór sagðist líklega aldrei
áður hafa æft eins vel og að þessu
sinni og lét hann í ljós vonir um að
framhaldið yrði ekki lakara.
Ágúst kvaðst hafa átt erfitt að
venjast hitanum í Texas, en þar
var að jafnaði um og yfir 30 gráðu
hiti fyrstu tvo mánuðina, sem
hann var ytra, en nú gengi öllu
betur. Hefur Ágúst keppt í víða-
vangshlaupum og hefur staðið sig
ágætlega, og einnig skólinn, sem
teflir fram öllu sterkara liði en
áður, þar sem í því er m.a. ágætur
hlaupari frá Kenýa, og annar frá
Mexíkó. Ekki er að efa að þre-
menningarnir sýna framfarir á
næsta ári.
Sigurður sterkur
í lok október hélt Sigurður
Svavarsson lyftingamaður til æf-
ingadvalar í Texas. „Ég er hér í
góðu yfirlæti hjá strákunum,"
sagði Sigurður, sem var nánast í
öðrum heimi af ánægju með þær
aðstæður sem honum hefðu boðist
til æfinga vestra. „Mér var boðið
að æfa í sérstökum tækjasal, þar
sem beztu keppnismenn fá aðeins
að æfa,“ sagði Sigurður. Hann
bætti því við, að óæðri lyftingasal-
ur, sem allir gætu gengið í, væri
betur búinn tækjum en nokkur
lyftingasalur á íslandi. Og Sigurð-
ur sannaði, hvesu uppörvandi er
að komast í aðstæður af bezta
tagi, að strax á fyrstu dögum
dvalar sinnar í Texas bætti hann
sig um tíu kíló í bekkpressu, lyfti
150 kílóum.
Sigurður Svavarsson léttklæddur I haustsólinni í Texas og í pásu á
milli æfinga. Sigurður hefur dvalið í tæpa tvo mánuði i Texas við
æfingar, en hann stundar lyftingar af kappi og hefur tekið framförum
vestra.
Við látum hér fylgja nokkrar
myndir frá Texas. Iþróttamenn-
irnir íslenzku eru frekar létt-
klæddir, enda veðurfar milt í
Texas, en þar eru köldustu mánuð-
irnir tveir eins og þeir heitustu á
Islandi. Það næðir því ekki um
þessa ágætu íþróttamenn meðan
vinir þeirra heima á Fróni berja
lóminn og bíta á jaxlinn við að
koma sér í margfaldan æfinga-
gallann. _
Mliller meiddur
GERD Múller, markaskorarinn
frægi, á við erfið meiðsli í hrygg
að stríða. Múller hefur leikið i
Bandaríkjunum siðustu misserin,
en er nú á förum til Grikklands,
þar sem hann ætlar að freista
þess að losna við meiðslin með
algerri hvíld. Dugi það ekki.
verður kappinn skorinn upp. I
Grikklandi mun Múller búa hjá
Guyla Lorant, áður þjálfara hjá
Bayern, en nú hjá gríska liðinu
PAOK. Stefnt er að því að hann
geti byrjað að æfa á nýjan leik
nálægt mánaðamótum janúar og
febrúar.
Mikil fimleika-
sýning í höllinni
DEISEMBERSÝNING Fimleikasambands íslands fer fram í Laugar-
dalshöllinni á morgun, sunnudag, og hefst kl. 15.00. Að venju verður
sýningin mjög fjölbreytt. Sýningarfólk verður á öllum aldri, allt frá 6
ára börnum upp i séræfða kvenna- og karlaflokka. Sýndir verða
fimleikar, æfingar með tónlist og acróbatic.
Sýningarhópar verða frá mörgum fimleikafélögum á Stór-Reykja-
vikursvæðinu, frá Akureyri, Húnaþingi, Vestmannaeyjum og hreyfi-
flokkur 63 unglinga frá Reykjaskóla i Hrútafirði. Hér á eftir fara
sýningaratriðin.
1. Björk „Samæfingar með músík." Stjórnendur: Karolína Valtýsdóttir
og Inga ívarsdóttir. 16—18 stúlkur og drengir.
2. Fimleikaráð Akureyrar. „Æfingar á dýnu“. Stjórnendur: Anna
Hermannsdóttir. 10 stúlkur og drengir 10 ára og eldri.
3. Barnaskóli Vestmannaeyja. „Áhalda- og dýnustökk." Stjórnendur:
Ólöf A. Elíasdóttir og Gísli Magnússon. 22 stúlkur og piltar 9—13
ára.
4. „Hressingarleikfimi — kvennaflokkur." Stjórnandi: Ástbjörg Gunn-
arsdóttir. 25—30 konur.
5. Fylkir „Acrobatic". Stjórnandi: Heimir Gunnarsson. 2 piltar.
6. ÍR „Jazz“. Stjórnendur: Hildigunnur Gunnarsdóttir og Gunnhildur
Úlfarsdóttir. 8 stúlkur 10—16 ára.
7. Fylkir. „Dýna og Trampoline." Stjórnandi: Steinn Magnússon. 6—8
stúlkur.
8. „Húsmæður úr Húnaþingi sýna frúarleikfimi á vegum UMF Geisla
þar í sveit“. Stjórnandi: Karl Lúðvíksson. 25 konur.
9. Fylkir „Hrist upp í rykinu". Stjórnandi: Jónína Karlsdóttir. 8—10
stúlkur 14—17 ára.
10. Leikfimiskóli Hafdísar Árnadóttur. Stjórnandi: Hafdís Árnadóttir.
11. „Hressingarleikfimi; — Karlaflokkur." Stjórnandi: Ástbjörg Gunn-
arsdóttir. 10—12 karlar.
12. Héraðsskólinn Reykjum. „Hreyfiflokkurinn." Stjórnandi: Jónína
Benediktsdóttir. 63 piltar og stúlkur.
Docherty til Astralíu?
TOMMY Docherty, knattspyrnu-
framkvæmdastjórinn kunni, er
nú að öllum likindum á förum til
Ástralíu. Ilann hefur verið við
stjórnvölinn hjá hinum og þess-
um félögum um langt skeið,
síðast hjá QPR. baðan var hann
rekinn, eftir að hafa viðhaft
ósæmileg afskipti af innanfélags-
málum hjá Manchester Utd., einu
af sinum gömlu félögum. Nokkr-
ar vikur eru síðan að Docherty
fór frá QPR og til þessa hefur
hann engin fengið vinnutilboðin
á enskri grund.
En hann hefur fengið neyðar-
kall úr suðurhöfum, ástralska
félagið Sydney Olympics hefur
falast eftir honum og Docherty
hefur látið hafa eftir sér: „Þetta er
spennandi." Það má því búast við
því, að hinn 52 ára gamli Skoti
fari til Ástralíu á næstu dögum.
Uröu að sleppa sturtunni
YFIRLEITT eru knattspyrnufé-
lögin í Suður-Ameríku ekki auð-
ug, þvert á móti. Eitt þekktari
félaganna, San Lorenzo í Argent-
ínu. á i hrikalegum kröggum.
Fyrir um ári seldi félagið Claudio
Marangoni til enska liðsins Sund-
erland. Peningarnir sem inn
koma fyrir Marangoni fóru næst-
um allir i að greiða tekjur
leikmanna San Lorenzo langt
aftur i timann.
Félagið átti þó örlitið eftir og
festi þvi kaup á sápu og hand-
klæðum í sturtuklefum félagsins.
En það kom að engum notum. þvi
daginn eftir var lokað fyrir
rafmagnið hjá Lorenzo. Félagið
gat ekki borgað reikninginn og
leikmenn urðu að sleppa sturtu
eftir næstu heimaleiki félagsins
f