Morgunblaðið - 06.12.1980, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1980
5
Samtök gegn astma og ofnæmi:
Halda desember-
fund sinn í
SAMTÖK gegn astma og ofnæmi
halda desemberfund sinn í dag.
laugardag 6. desember, í hliAar-
sal Hótel Sögu ok hefst hann kl.
14:30. Hér er um að ræða eins
konar aðventuskemmtun ok flyt-
ur Kristján Búason dósent ávarp,
Majrnús Jónsson óperusönjrvari
syngur við undirleik Ólafs Vignis
Albertssonar. en fundarstjóri er
Valdimar Örnólfsson.
Loðnan
á aust-
urleið
EFTIR óveðrið, sem var á
loðnumiðunum á mánudaj; og
þriðjudag fékkst ágætur afli á
miðvikudag og fimmtudag.
Loðnan virðist á leið austur
með landinu oj? var á fimmtu-
dag komin austur fyrir Kol-
beinsey og nær landi en áður.
Sagðist Andrés Finnbogason
hjá Loðnunefnd vel geta trúað
því, að loðnan væri nú komin
á göngu austur með landinu
og væri því óvenju snemma á
fcrðinni.
Heildaraflinn á vertíðinni er
nú orðinn um 345 þúsund tonn.
Ellefu bátar eru búnir að fylla
kvóta sinn, en nokkrir eiga
eftir að fara 2—3 túra. Sagðist
Andrés reikna með, að allt að
15 bátar yrðu á loðnuveiðum
fram undir jól, en það færi þó
eftir veðri og afla. Af skipun-
um 52, sem leyfi hafa til
loðnuveiðanna, hafa öll fengið
einhvern afla á vertíðinni
nema Jón Kjartansson SU, en
skipið hefur verið í vélaskipt-
um í Danmörku síðustu mán-
uði.
Eftirtalin skip hafa tilkynnt
um afla síðustu daga:
Miðvikudagur: Sigurður
800, Eldborg 550, Óli Oskars
650, Ársæll 450. Þrjú fyrst-
nefndu skipin voru öll að ljúka
sínum loðnuveiðum á j)essu ári,
en reyndar var Óli Óskars að
veiða upp í leyfi Óskars Hall-
dórssonar, sem er í viðgerð
eftir að hafa fengið sjó í vél á
dögunum.
Fimmtudagur: Rauðsey 580,
Gígja 600, Sæberg 630, Harpa
560, ísleifur 270, Keflvíkingur
450, Júpiter 850, Sigurfari 350,
Húnaröst 270, Skírnir 200.
Kökubasar
í Hveragerði
Hveragcrði, 5. desember.
KVENFÉLAG Hveragerðis heldur
kökubasar laugardaginn 6. des-
ember og hefst hann klukkan 14 í
Barnaskólanum.
Á boðstólum verður margs konar
góðgæti, svo sem smákökur, form-
kökur, tertur og laufabrauð. Ágóði
af kökubasarnum rennur til líknar-
og menningarmála, en kvenfélagið
hefur á liðnum árum látið mörg slík
mál til sín taka með góðum árangri.
Formaður Kvenfélags Hveragerðis
er Pálína Snorradóttir, kennari.
— Sigrún.
Seldi í
Grimsby
EITT skip landaði afla sínum
erlendis í gær. Runólfur seldi
107,3 tonn í Grimsby fyrir 98,2
milljónir króna, meðalverð á kíló
var því 915 krónur. Talsvert var af
steinbít, kola og grálúðu í aflan-
um, en aflinn var 1. flokks og
verðið gott miðað við samsetningu
aflans.
Samtök gegn astma og ofnæmi
hafa á þessu ári jafnan efnt til
funda mánaðarlega, en samtökin
eru nú öölmennasta aðildarfélag
innan SIBS. Var nýlega gefið út
veggspjald með leiðbeiningum
fyrir astmasjúklinga og aðstand-
endur þeirra og verður því dreift
til allra félagsmanna á næstunni.
Samtökin voru stofnuð árið 1974
og er formaður þeirra Hjörtur
Pjetursson endurskoðandi, en
skrifstofa samtakanna er í húsa-
kynnum SÍBS við Suðurgötu.
Jólafundur hjá Hvöt
HVÖT. félag sjálfstæðiskvenna í
Reykjavik, heldur árlegan jólafund
sinn i Sjálfstæðishúsinu Valhöll
sunnudaginn 7. desember og hefst
hann kl. 15.
Undanfarin ár hefur það tíðkast
hjá Hvöt að jólafundurinn er ætlað-
ur allri fjölskyldunni og verður
fundurinn að þessu sinni síðdegis á
sunnudegi.
Dómprófastur í Reykjavík, séra
Ólafur Skúlason, flytur hugvekju,
Unnur Jensdóttir syngur einsöng við
undirleik Agnesar Löve og síðan
verður jölahappdrætti. Brúðuleikhús
kemur í heimsókn og munu þær
Sigríður Hannesdóttir og Helga
Steffensen stjórna því. Rannveig
Tryggvadóttir leikur á hljóðfæri í
upphafi fundar og milli atriða.
Um miðjan daginn eru veitingar á
boðstólum og eru ókeypis fyrir börn
yngri en 13 ára. Þegar fundi lýkur
um kl. 18 verður kveikt á sjónvarpi
og geta þeir sem vilja horft á
„Stundina okkar“ í Valhöll.
Frá jólafundi Hvatar á sl. ári
Fiat 127 árg 78
er til sölu. Bíllinn er sem nýr, vínrauöur aö lit, ekinn
1800 km. Vetrar- og sumardekk fylgja.
Uppl. í síma 40273.
„ Knilikar minir
komið bið sœl!
Jólasveinninn er mættur á staðinn.
Hann kom í morgun eftir erfiða ferð af
fjöllum. Og hann leikur á alls oddi í
Blómavali um helgina.
Sveinki sýnir krökkunum allar jólaskreyt-
ingarnar, jólaskrautið og jólalandið. Það
er meira að segja hægt að fá hann til að
velja með sér jólatréð, en salan á þeim
hefst nú um helgina.
Komið við í Blómavali, heilsið upp á
Sveinka og skoðið mesta úrval landsins
af allskonar jólaskreytingum.
Opið um helgina frá kl. 9 - 21.
Ibl©íll€lö€lll ÍQaiá
Gróðurhúsinu við Sigtún.Símar36770-86340