Morgunblaðið - 06.12.1980, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1980
39
aðarmálum, bæði innan lands og
utan. Þegar hann kom úr bænda-
ferðum, hafði hann frá mörgu að
segja. Hann var virkur þátttak-
andi í sinni stétt og þeim störfum,
sem honum voru þar falin, en á
sinn hljóðláta og yfirlætislausa
hátt. Hann var ávallt hreinskipt-
inn og lét gott af sér leiða.
Hjartahlýjuna hans, sem áður er
getið, kunni ég vel að meta og er
ekki einn um það. Þegar ég var
sóknarprestur í Vík og í Mýrdaln-
um, varð ég oft var við góða
hugann frá fólkinu til Sigursveins.
Það hefur löngum verið mikill
myndarbragur á heimilinu hans,
eiginkonunnar og barnanna
þeirra. Sigursveinn var þeim góða
kosti prýddur að vera heimakær.
Hann kunni því vel að meta þann
aðlaðandi unaðsreit, sem heimilið
á Norður-Fossi var og er. Hann
var háttvís maður og eins og
bræður hans í Gunnarsholti, Run-
ólfur og Páll, þá var Sigursveinn
maður dugnaðar og drengskapar,
gróðurs og ræktunar. Stóru sárin
ættjarðarinnar vildi hann græða.
Fjölskylda Sigursveins þekkir
þann sígilda sannleika, sem krist-
indómurinn færir: Af þeim, sem er
mikið gefið, verður mikils krafist.
í litlu, en hlýlegu sóknarkirkj-
unni sinni, Reyniskirkju, var Sig-
ursveinn kvaddur á allra heilagra
messu, 1. nóv. sl. Þangað kom
fjöldi manns víða að í dýrðlegu
veðri. Ekki langt frá hvílir forfað-
irinn, læknirinn og náttúrufræð-
ingurinn frægi, Sveinn Pálsson.
Kvöldsólin í Mýrdalnum fagra
vermir þeirra beggja gröf.
Þegar góður maður kveður,
koma fram góðar minningar. Ég
og konan mín kveðjum minn
eftirminnilega og hugljúfa
frænda. Virðingu okkar, vináttu
og þakkir átti hann allt af.
Guð blessi minningu hans og
ástvini hans alla. Allt far Sigur-
sveins og breytni við náungann
átti ræturnar sterku í biblíunni:
„Þér skuluð elska hver annan á
sama hátt og ég hefi elskað yður“.
Séra Páll Pálsson,
Bergþórshvoli.
Basar
fóstrunema
NEMENDUR 3ja bekkjar
Fóstruskóla íslands halda
hinn árlega basar sinn í
húsnæði skólans við Lauga-
læk laugardaginn 6. des.
Á boðstólum verður
margt góðra muna, svo sem
jólaskraut, barnafatnaður
allskonar, handunnar
dúkkur og dýr og margt
fleira. Einnig formkökur,
tertur, smákökur og smá-
blóm.
Greiðslu-
skilmálar
vöruL'eriíuHÍ»^,
BJÖRNINN:
Skúlatúni 4. Sími 25150. Reykjavtk I
Vegg- og loft-
klæðningar
8 viðartegundir. Verö frá kr. 3.250.- pr. m* með
söluskatti.
Okkur
vantar
duglegar
stúlkur og
stráka
AUSTURBÆR
Austurstræti og
Hafnarstræti
VESTURBÆR
Hagamelur
35408
ÞILPLOTULIM
GRIPFILL
Nu er óþarfi að negla eða skrúfa þiljur og plötur á veggi og loft, engin
naglagöt og misfellur lengur. Þú notar auövilaö sterka llmefniö frá
Colas, sem er framleitt sérstaklega til þessara nota.
Þaö er I þrýstitúpum sem gerir verkið hreinlegt og auðvelt.
Olíufélagið Skeljungur hf
Verslunin Suðurlandsbraut 4, Stmi 38100 og 38125.
Btrgðastöð við Skerj^jorð. Simi 11425.