Morgunblaðið - 06.12.1980, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1980
HÖGNI HREKKVÍSI
“T
t /M-/M © 1980
McNaught Synd., Inc.
„ þj El?T BðlWM A$ Fav HElMóoAN .. ft)A tR
þETTA KAMMSKl Fy£(P SU2öFNu ?/
ást cr...
ZD *- i____i_JC3CL_jC
‘•ctíct'c: mcicrcL^
... að segja honum
að þig hafi eiginlega
ekki iangaó í pels
TM Refl. U.S. Pat. Off—all rights roserved
•1977 Los Angeles Times
Því gastu ekki séð um aO hafa
þetta í lagi. þegar viO logðum af
stað?
Ég held þið reisið ykkur ekki hurðarás um öxl, ef þið
kaupið það sem ég ætla að sýna ykkur hér!
Ástæðulaust að hræð-
ast stór sambýlishús
Pauf V. Michelsen skrifar:
„Lítið bréf langar mig að skrifa
þér um hvernig það er að búa í
stórum sambýlishúsum. Ég hefi
orðið þess var að margt eldra fólk
býr í of stórum íbúðum og hefir
varla tök á því að halda í horfinu
öllu er þar þarf að gera og
sömuleiðis í einbýlishúsum, en er
hrætt við að flytjast í sambýlis-
hús.
Kveið mikið fyrir
Ég hefi alla mína löngu ævi átt
heima í einbýlishúsi með stórum
garði og þekki því af eigin reynslu
að það er ekki lítið verk að halda
því öllu við, svo að það grotni ekki
niður. Þegar ég seldi allt mitt í
Hveragerði í vor, kveið ég mjög
mikið fyrir því að flytjast í blokk
og það alla leið upp í Breiðholt. En
sú hræðsla reyndist ástæðulaus
með öllu.
Lítill heimur út
af fyrir sig
Krummahólar 6 og 8 eru 7 hæða
hús og tengd saman með stórum
gangi. Þar er lyfta upp allar
hæðir, og auðvitað einnig stiga-
gangar. fbúðir eru misstórar, svo
að allir geta fengið íbúð við sitt
hæfi. Ibúðareigendur þurfa ekkert
að gera, því að húsvörður sér um
að halda öllu hreinu og gera við
það sem þarf og aflaga fer, en við
sem búum hér þurfum auðvitað að
ganga vel um sameignina og held
ég að flestir geri það.
Þetta er eins og lítill heimur út
af fyrir sig og umgangur við aðra
íbúa er ekki mikill, en því ræður
hver og einn hverja hann vill
umgangast. íbúar mætast á göng-
um og í lyftu og þá bjóða þeir
góðan dag og skiptast stundum á
orðum. Að öðru leyti verður mað-
ur lítið var við fólk.
Sameijín allra er
búa í hlokkinni
Bílskýli fylgir öllum íbúðum og
fullkomið frystihús er á neðstu
hæð, þar sem hver hefur sitt
frystihólf. Stórt sameiginlegt
þvottahús er hér með öllum þeim
vélum er þarf til þvottar, þurrkun-
ar á tauinu og strauvél. Við getum
haft tíma í þvottahúsi tvisvar í
viku og skrifar maður þá á töflu
hvaða dag og tíma maður vill nota
þvottahúsið. En hver og einn
verður að ganga vel um og þrífa
eftir sig og fara vel með allar
Paul V. Michelsen
vélar, því að þetta er sameign
allra er búa í húsinu.
Það er séð fyrir öllu
Hér er mikið af börnum og
unglingum og verðum við ekki
fyrir neinu ónæði af þeim. Það er
þá helst að þau keyri upp og niður
í lyftunni sem getur verið hættu-
legt og skapar óþarfa hávaða. Hér
er og stór hjólhestageymsla og
geymsla fyrir barnavagna. Góðar
svalir fylgja öllum íbúðunum og
stórar grasflatir í skjóli sunnan-
megin við blokkina og margvísleg
leiktæki fyrir börnin, svo það er
séð fyrir öllu. Göngugata er frá
blokkinni að verslunum þar sem
engir bílar mega keyra, svo að þar
er hættulaust fyrir börn og eldra
fólk að ganga um. Rétt hjá er stór
og góð kjörbúð með alla hluti og
sérlega lipra og góða þjónustu.
Svo er hér líka söluop sem er opið
til 23.30 á kvöldin, en því fylgir
einn stór galli: fyrir utan það og
allt um kring er mikill sóðaskapur
af umbúðaleifum og bréfadrasli
sem fýkur um. Þetta er mjög
ógeðfellt, en er auðvelt að færa í
betra horf.
Ég vona nú að fólk hræðist það
ekki eins eftir þessa lýsingu að
flytjast í sambýlishús."
„Sá yðar sem syndlaus er...“
Filippía Kristjánsdóttir skrif-
ar:
Eln cr upp til fjalla/yli húsa fjœr
út um hamra hjalla hvít mcÁ loúnar tær
brýst í bjarKaleysi/ber því hyggju KÍjópa.
A sér ekkert hreysi/útibarin rjúpa.
Við þekkjum að þetta er upphaf-
ið á kvæði Jónasar Hallgrímsson-
ar, um rjúpuna sem flýði undan
vargfuglinum, til þess að bjarga
lifi sínu. Hvert flýði hún? Innum
glugga á mannabústað. Við þekkj-
um örlög hennar. Þau voru
hörmuleg. Hún vænti miskunnar.
Mér finnst eitthvað svo líkt á
komið með Patrick Gervasoni og
þessari rjúpu, þótt ekki hljóti
hann sömu meðferð og hún. Hann
flýr í dauðans ofboði á náðir okkar
íslendinga, en hvað skeður? Það á
að hrekja hann út í allsleysið og
vonleysið rétt fyrir jólin, hátíð
ljóss og friðar.
Við hefðum sennilega
gripið hvert hálmstrá
Mér skilst, eftir því sem til-
kynnt var í sjónvarpi síðastliðið
þriðjudagskvöld, að þeir sem völd-
in hafa viti lítið hvað um hann
verður eftir að hann fer héðan, en
lögunum verður víst að hlýða hvað
sem mannúðinni líður. Stundum
finnst manni að hún þyrfti að
ganga fyrir. í þessu tilfelli á
pilturinn engan að. Hann þráir
frelsi og vill sýna að hann er
heilsteyptur og sannur í ákvörðun
sinni að vilja ekki drepa meðbræð-
ur sína. Láta samviskuna ráða.
Fyrir þetta er hann hrakinn og
hrjáður. Hann bíður og vonar að
úr rætist og íslendingar skilji að
það var örþrifaráð sem hann tók
er hann kom skilrikjalaus til
landsins. Við hefðum sennilega
flest okkar gripið hvert hálmstrá
sem gafst til þess að bjarga okkur
í neyðinni.
Ættum við ekki að hjálpa
til að græða þau
Hefur ekki margur brotið annað
eins af sér? „Sá yðar sem syndlaus
er, kasti fyrsta steininum." Sá, er
þetta sagði, þegar átti að grýta
bersyndugu konuna, var öllum
dómurum æðri. Hann vigtar
hvorki eða mælir sekt mannanna.
Patrick Gervasoni er alinn upp á
munaðarleysingjahæli. Getur ekki
verið að hann hafi fengið þar
hjartasár, sem enn eru lítt gróin?
Ættum við ekki að hjálpa til að
græða þau? Margur munaðarleys-
inginn hefur frá ýmsu sorglegu að
segja. sem getur fylgt þeim allt
lífið í jegn. I von um að úr þessu
máli greiðist á farsælan hátt, óska
ég öllum gleðilegra jóla.