Morgunblaðið - 06.12.1980, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 1980
45
Patrick Gcrvasoni
Gróíst ekki fyrir um
uppruna söguhetjunnar
Það er mjög skiljanlegt, að
stjórnendur stórvelda óttist múg-
hreyfingaí og sendi því „kenni-
rnenn" sína á vettvang, þegar
mikið liggur við.
Kaspar Hauser, sem fannst í
jarðhólu eða helli um 1830, og
sagðist vilja verða hermaður eins
og faðir hans hefði verið, skapaði
að vísu enga múghreyfingu, en
lifði í nokkur ár og undraðist
þennan heim jarðarbúa, sem kom
honum ókunnuglega fyrir sjónir.
Hefur Herzog kvikmyndastjóri vel
lýst hugrenningum og tilfinning-
um Kaspars, en enga tilraun gerði
Herzog til að grafast fyrir um
uppruna söguhetju sinnar.
Kaspar Hauser
og Gervasoni
Þorsteinn Guðjónsson skrifar:
„í janúar 1975 gengu furðulegar
sögur manna á meðal í New
York-borg um það að gestir frá
öðrum hnöttum í sérstökum bún-
ingi væru á ferð víða um borgina
og segðu mönnum að vera rólegir
og óhræddir, því að aðkomumenn
mundu þeim ekki illt gera — en
ekki leið á löngu áður en í sömu
hverfum birtist hver fjögra
stjörnu-hershöfðinginn eftir
annan og færi að segja mönnum,
að þetta væri allt saman einhver
misskilningur og að menn ættu
ekki að leggja trúnað á þetta.
Enginn mun hafa efað að hers-
höfðingjarnir — þeir menn sem
mest mark er á tekið — voru
þarna raunverulega á ferð, en
hvað undanfara þeirra „gestina"
snerti, munu menn hafa átt erfið-
ara með að komast að sameigin-
legri niðurstöðu, og hugur manna
smám saman fjarlægzt þá, unz
þeir hurfu í móðu gleymskunnar.
Skýrir ekkert hvað
sé svona sérstakt
Patrick Gervasoni, sem komizt
hefur til íslands án þess að nokkur
þekki til hlítar feril hans —
skúrinn sem hann gekk í gegnum
á Seyðisfirði er fokinn — er
sagður vera franskur borgari, en
um sögu hans og uppruna er
minna rætt. Og þegar félagið
Sakaruppgjöf talar um að mál
hans sé svo sérstætt að slíks séu
nálega engin dæmi, skýrir það
ekkert hvað sé svona sérstakt við
það. Hrafn Bragason lögmaður
var að vísu eitthvað að tala um
það í sjónvarpinu (Fréttaspegill
28. nóv.), að við værum „þegnar
þessa hnattar", en meira lét hann
ekki uppi um það mál.
Ég hef þá trú, að ef upplýst
verður, hvar Gervasoni er fæddur,
af hvaða foreldrum og hvernig
alinn upp til herskyldualdurs,
muni mál hans leysast farsællega
fyrir alla aðila."
fyrir 50 árum
„Stúdentar höfðu lofað
fjölbreyttri skemtun 1.
des., og þó útsynnings-
illviðri væri þennan dag,
stóðu þeir prýðilega við
loforðið. Kl. 2Vi e.h. söfn-
uðust stúdentar saman i
Lækjargötu, og gengu
þaðan í skrúðgöngu til
Háskólans, en lúðrasveit-
in ljek nokkur lög.
Flutti Benedikt
Sveinsson forseti snjalla
ræðu af svölum alþingis.
Mintist forseti á nauð-
synjamál stúdentanna,
svo sem Stúdentagarð-
inn, og skoraði á þjóðina
að standa fast um þetta
velferðarmál.
Kl. 3 í gær höfðu stúd-
entar skemtun fyrir al-
menning í Gamla Bíó.
Var hver bekkur full-
skipaður. Gunnar Thor-
oddsen mælti fyrir minni
stúdenta. Emil Thor-
oddssen ljek einleik á
flygil. Halldór Killjan
Laxness las upp kafla úr
óprentaðri sögu eftir sig.
Kennarar Hljómlistar-
skólans, þeir dr. Franz
Mixa, Heller og Fleisz-
mann léku. Tvö ung
skáld meðal stúdenta,
Jónas Thoroddsen og
Helgi Sveinsson, fóru
með frumsamin kvæði
eftir sig. Stúdentarnir
Garðar Þorsteinsson og
Jón N. Sigurðsson sungu
nokkra söngva úr „Glunt-
arne. ..“
Ljósastikur biskupanna
Sigurveig Guðmundsdóttir,
Hafnarfirði, skrifar:
„Velvakandi.
Miðstjórn biskuparáðstefnu
Evrópu hefur gefið út yfirlýsingu í
mörgum liðum og er hægt að lesa
hana í heild í Merki Krossins,
blaði kaþólsku kirkjunnar á ís-
landi. Segir þar meðal annars:
Hlutur þeirra verði
ekki íyrir borð borinn
Þeir menn, sem yfirgefa föður-
land sitt, af hvaða ástæðum sem
þeir kunna að gera það, eiga oft á
hættu að verða misskildir, að ekki
sé tekið tillit til þeirra og að þeim
sé ekki sýnd full virðing.
Vér krefjumst því þess að þeirra
hlutur verði ekki fyrir borð bor-
inn, miðað við innlenda menn.
Vér endurtökum einriig þá
áskorun í þágu hverskonar flótta-
manna sem er, að raunveruleg
samstaða krefst ekki aðeins þess,
að tekið sé örlátlega við þeim
mönnum, sem í óláni hafa lent,
heldur verði umfram allt barist
fyrir frelsi og réttlæti í heiminum.
í sögudálkum
framtíðarinnar
Þetta segja hinir kaþólsku bisk-
upar. Nú eru kirkjugrið löngu
afnumin og ólögleg svo lítt myndi
stoða fyrir Gervasoni að flýja inn
í kirkju og grípa þar um altaris-
hornin. En kirkjan hefur þó talað
til samvisku kristinna manna og
stundum hefur það dugað nokkuð.
Eitt er víst. Það verður minnis-
verð frétt í sögudálkum framtíð-
arinnar, dagurinn sá, þegar ís-
lendingar hröktu úr landi um-
komulausan útlending, svona rétt
fyrir jólahátíðina árið 1980.“
Þessir hringdu . . .
Það er líka
fólk í þessu
landi, sem...
Susie Bachmann hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
— Ég vil gjarna spyrjast fyrir
um það hvaða folk það er sem
hefur ekki annað að gera við sinn
tíma er að hanga á göngum
Stjórnarráðsins í Arnarhvoli
vegna manns sem kemur til lands-
ins á fölskum forsendum. Ef þetta
er vinnandi fóik þá eru atvinnu-
rekendur þess ekki öfundsverðir.
Af myndum að dæma eru þetta
mest unglingar og þá jafnvel í
skólum. Mér er spurn: Eru ekki
próf að byrja? Hver styður þetta
fólk til að gefa út blaðabækling
sem dreift er á Lækjartprgi til
stuðnings Gervasoni? Ég vil
minna á (setning sem mikið er
notuð í dag), að það er líka til fólk
í þessu landi, sem treystir. því að
dómsmálaráðherra láti engan
hafa áhrif á fyrri yfirlýsingar
sínar, því að með lögum skal land
byggja en með ólögum eyða.
Ekki fulltrúar
þjóðarinnar
Dagmar Gunnlaugsdóttir
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja:
— Ég er alveg hneyksluð á
þessum þrýstihópi, sem sest hefur
að í dómsmálaráðuneytinu. Venju-
legir borgarar.hafa ekki tíma til
að standa í slíku. Þetta hljóta að
vera einhverjir slæpingjar og sitja
þarna ekkj sem fulltrúar þjóðar-
innar. Ég held Guðrún megi missa
sig af þingi. Eða ætlar hún að
bjóða þessum 450 landvist líka?
Ég segi bara það, að við höfum
enga þörf fyrir menn sem ekki
geta þjónað sínu föðurlandi.
Kveðja til
dómsmálaráð-
herra
Jóna borsteinsdóttir hringdi og
bað fyrir kveðju til Friðjóns Þórð-
arsonar dómsmálaráðherra. — Ég
vona að hann láti sér ekki gleym-
ast að með lögum skal land byggja
en með ólögum eyða.
Fullt hús matar
Kjúklinga-
útsala
10 stk. í kassa 3.200 kr. kg.
6 stk. í kassa .3.400 kr. kg.
leyft verö . 4.755 kr. kg.