Morgunblaðið - 25.06.1981, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 25.06.1981, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ1981 Leirlist - gler - textill - silfur - gull - að Kjarvalsstöðum Eins og séð verður af þessum titli, er um að ræða fjölþætta sýningu á listiðnaðarhlutum í vestursalnum að Kjarvalsstöum. Þarna er á ferð stór hópur fólks, sem stundar mjög mismunandi gerð listmuna, smíðar í gull og silfur, blæs gler, skapar í leir og vinnur textíl. Af þessu má sjá, að þessi sýning spannar vítt svið, og ætti hún að gefa ein- hverja hugmynd um þær miklu framfarir, sem orðið hafa í þessum listgreinum hjá okkur á seinustu árum. Það er til að mynda algerlega nýtt að sjá blásið gler eftir íslending, og ef ég ekki veð reyk, er það í fyrsta sinn, sem slíkt gerist hér á landi. Þetta er nokkuð mikil sýning, og er það skiljanlegt að margir verði hlutirnir, þegar 11 manns eiga verkin, enda eru skráðir hlutir í sýningarskrá hvorki meira né minna en 246. Það hefur borið til tíðinda á þesssari sýningu, að hið umdeilda loft í vestursalnum hefur verið lagað lítils háttar, grisja hengd þar í víravirkið og ljósinu þannig dreift á annan hátt en áður, en ekki er ég nú alveg sáttur við grisjuna, hún lafir of langt niður Annars er mikiö gert fyrir hlutina á þcssari sýningu og þeim komið fyrir á mjög skemmtilegan hátt og þannig að hver einasti hlutur fær að njóta sín til fullsÁí að mínu mati og mætti áreiðan- lega gera betur. Öll lagfæring á þessu leiðinda lofti er þó til hins betra. Annars er mikið gert fyrir hlutina á þesari sýningu og þeim komið fyrir á mjög skemmtileg- an hátt og þannig að hver einasti hlutur fær að njóta sín til fulls. Mun það vera arkitektinn Sig- urður Snæbjörnsson, sem þarna er á ferð og á veg og vanda af uppsetning allri. Þessi hópur listiðnaðarfólks sýndi í Hássel- by-höll fyrir skömmu og vakti undrun þeirra í Svíþjóð, aðallega fyrir hvað þeir af Islandi væru alþjóðlegir í list sinni. Það er ekki í fyrsta skiptið, sem Svíar halda, að við búum enn við gamla sveitasælu og kalla það ameríkaniseringu á íslandi, ef fólk hefur ísskáp. Auðvitað er margra grasa að finna hjá þjóð, er leitar fyrir ser, ekki eingöngu í Skandinavíu, en þorir að kynn- ast því, er aðrir hafa upp á að bjóða í listsköpun. Ekki sé ég ástæðu til að tala um í þessu skrifi einstaka hluti á þessari sýningu, og ég fullyrði, að Kjarvalsstaðir eru fullsæmd- ir af að hafa þetta sem sumar- gleði fyrir erlenda og innlenda ferðamenn, og auðvitað eiga Reykvíkingar það skilið að fá að sjá, hver framvinda mála hefur verið í þessu hér að undanförnu, Sumar að Kjarvalsstöðum Það var mikið þarfaverk hjá Hafsteini Austmann að mála flekana á Kjarvalsstöðum hvíta. Sannleikurinn er nefnilega sá, að farið er að sjá svo mikið á hinum dökku veggjum staðarins, að ekki var lengur við unað. Það sér maður greinilega, er komið er í Kjarvalssai nú. Þar hefur verið komið fyrir sýningu á verkum Kjarvals, og er hún sérlega vel valin. Nokkrar nýjar myndir hafa áskotnast borginni að undanförnu, og eru þær nú til sýnis almenningi í fyrsta skipti. Þetta mætti einnig segja um nokkrar þeirra mynda, er fyrir voru, en áttu erfitt uppdráttar vegna hinna þungu veggja, sem nú hafa verið hresstir við, ef svo mætti segja, og var ekki vanþörf á. Það er það langt síðan húsið var tekið í notkun, að það furðar engan, að hressa þurfti upp á hlutina. I sumar verða þarna til sýnis yfir hundrað verk eftir Kjarval, sum þeirra eru gamalkunn, en það er alltaf skemmtilegt að sjá myndir þessa merka málara, og hann hefur þann stórkostlega eiginleika að koma manni ætíð í gott skap með sínum furðulegu hugdettum og hinni stórkostlegu í sumar verða þarna til sýnis yfir hundrað verk eftir Kjarval, sum þeirra eru gamalkunn, en það er alltaf skemmtilegt að sjá myndir þessa merka málara, og hann hefur þann stórkostlega eig- inleika að koma manni ætíð í gott skap með sínum furðulegu hug- dettum og hinni stór- kostlegu litameðferð, sem honum var svo eðlileg.tí litameðferð, sem honum var svo eðlileg. Það er annars algerlega óþarft að skrifa um sýningu sem þessa. Það hefur verið gert hvað eftir annað, en því geri ég það nú, að nokkur breyting hefur orðið á sjálfum umbúnaði verka Kjarvals, og er það að þakka því, sem áður er minnst á hér á undan. Nýr litur á grunni, getur Meistari Kjarval úti í náttúrunni. en hún er ótrúleg og ég er viss um, að fáir hafa gert sér grein fyrir, hve lifandi þáttur þetta listastarf er orðið í þjóðlífi okkar. Hér á fyrri árum voru hönnuðir vart til, og ef einhverj- ir voru, var afar hljótt um þá. En allir vita, að enginn iðnaður, hvorki listrænn né ólistrænn, verður til í landi, sem ekki hlúir að hönnuðum sínum. Hér er að rísa ný stétt, sem verulega á það skilið, að eftir henni sé tekið. Þeir, sem eiga verk á þessari sýningu, eru gullsmiðirnir, Ásdís Thoroddsen, Jens Guðjónsson og Guðbrandur J. Jezorski. Elísabet Haraldsdóittir, sem sýnir postu- lín ofl., Guðrún Guðnadóttir stundar keramík, Ragna Rób- ertsdóttir vefur merkilega hluti, Sigríður Jóhannsdóttir vefur eftir teikningu manns síns, Leifs Breiðfjörð, Sigrún Ólöf Einars- dóttir blæs fagra hluti í gler og Steinunn Marteinsdóttir sýnir hluti úr postulíni og steinleir. Allt eru þetta að mínu mati mjög frambærilegir hlutir, og þessir listamenn hafa mikinn sóma af þessari sýningu. Það er einnig fróðlegt að sjá, hvernig andlit okkar í þessum hlutum birtist á erlendum vettvangi, og hvað það snertir, má ekki gleyma hluti Stefáns Snæ- björnssonar, sem hefur gert ágætt verk með uppsetningu og frágangi öllum. Þessi sýning stendur sumar- langt á Kjarvalsstöðum og ættu allir sem því við geta komið, að sjá hvert stefnir hjá okkur í þessum listgreinum. Eg álít það ánægjulegt og forvitnilegt og vonast til að margir aðrir verði mér sammála. Myndllst eftir VALTÝ PÉTURSSON maður kallað það, og svo er viðbótin, sem til varð á seinustu sýningu á verkum eftir Kjarval ofl., úr safni Ragnars og Grete Ásgeirssonar. Það er skemmti- legt að hugsa til þess, að það eru alltaf að koma nýir möguleikar í ljós með þessa byggingu, og ég fagna því, þegar slíkt kemur fyrir. Vandinn er eingöngu sá að hafa hugmyndaflug til að nýta möguleikana, og það er einmitt það, sem nú hefur gerst. Kjarvalsstaðir hafa nú um árabil þjónað ýmsum listgrein- um og annarri menningarstarf- semi. Nú er sú tíð að renna upp, að menn verða að fara gera sér ljóst, að starfsemin er margþætt og ætti að eiga hljómgrunn hjá borgarbúum. Það eru miklir möguleikar þarna fyrir hendi, ef fjármagn væri að sama skapi, því að allt kostar fjármagn í blessaðri verðbólgunni. Það þarf að verða þannig í framtíðinni, að Kjarvalsstaðir og umhverfi verði miðstöð í menningarlífi borgar- innar og þá loksins hefur til- gangi með byggingu þessa góða húss verið náð. Sólstöðutónleikar Snorri Sigfús Birgisson er stóra vonin í hópi ungu tón- skáldanna. Hann hefur verið einna iðnastur þeirra og nú síðast, er dagur og nótt skarast eitt andartak, hefur hann upp raust sína og kallar menn til fundar við sig. Að þessu sinni er fundarstefna nokkuð óvenjuleg. Snorri leggur fram tvö verk, einleiksverk, og á augnabliki skulu hlustendur dæma um þau verk er tónskáldið hefur á löng- um tíma unnið og beitt þar til allri hugkvæmni sinni og þekk- ingu. Fyrra verkið eru 21 æfing fyrir píanó en það seinna er einleiksverk fyrir klarinett. Tónllst eftir JÖN ÁSGEIRSSON Snorri leikur sjálfur æfingarnar en klarinettverkið leikur Óskar Ingólfsson. Píanóæfingarnar eru mjög í ætt við það sem gerst hefur um slíka tónlist á undan- förnum árum og sem tónverka- röð eru margar æfingarnar of líkar, að þrátt fyrir að sumar þeirra séu fallegar sér, fela þær hvor aðra vegna samstæðu í gerð og blæ. Það gæti bætt um að skipa æfingunum í færri flokka og leika þær sem samstæðu. Þarna eiga íslenskir píanistar sjóði til að sækja í og auka fjölbreytnina í verkefnavali sínu. Eins og mörg góð tónskáld hefur Snorri ritað sínar æfingar ^Eins og mörggóð tónskáld hefur Snorri ritað sínar æfingar í tónsmíði og píanóleik og þá er aðeins að bíða eftir stærri gerð tón- verka fyrir píanó og heyra hann sprengja af sér viðjar smálags- insÁí í tónsmíði og píanóleik og þá er aðeins að bíða eftir stærri gerð tónverka fyrir píanó og heyra hann sprengja af sér viðjar smálagsins. Seinna verkið, Rot- undum, fyrir klarinett, er nokk- urs konar skreytilistaverk. Tón- ferlið er skreytt með hröðum tvíslagsstrófum, hljómbrotum (arpeggio) og forslögum, en ein- staka sinnum er lagferlið án allra skreytinga. Verkið er nokk- uð langt, sem Óskar Ingólfsson bætti þó upp með mjög góðum flutningi. Það verður ekki sagt að Snorri Sigfús Birgisson hafi slegið í gegn með flutningi þess- ara verka, hann hefur þó sann- fært hljómleikagesti um að hér sé alvara á ferðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.