Morgunblaðið - 25.06.1981, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ1981
27
Athugasemd frá Tómasi Árnasyni,
viðskiptaráðherra, við ummæli
Prestastefnan:
Kirkjan í dag
og á morgun
Davíðs Sch. Thorsteinssonar
Ég furða mig á þeirri óskamm-
feilni Davíðs Scheving Thor-
steinsson að halda því fram, að ég
hafi farið með rangt mál, þegar ég
skýrði fjölmiðium frá því, að mikil
andstaða væri af hálfu Efnahags-
bandalagsins og EFTA gegn því,
að lagt yrði nýtt aðlögunargjald á
iðnaðarvörur, sem nú eru fluttar
inn tollfrjálsar frá EBE og
EFTA-löndum.
Ég hef nýlega átt ítarlegar
viðræður við ráðamenn Efnahags-
bandalagsins og EFTA og mælst
til þess, að þessi samtök létu það
afskiptalaust, að lagt yrði á 2%
aðlögunargjald, sem. síðar yrði
fellt niður í áföngum. Þrátt fyrir
ákveðinn málflutning af minni
hálfu var þessum tilmælum af-
dráttarlaust hafnað. Wilhelm
Haferkamp, sá framkvæmdastjóri
sem fer með utanríkismál Efna-
hagsbandalagsins, sagði, að álagn-
ing almenns innflutningsgjalds
væri skýlaust brot á fríverslunar-
samningi íslands og Efnahags-
bandalagsins. Bæði hann og
Charles Múller, framkvæmda-
stjóri EFTA, bentu á, að sam-
kvæmt EBE-samningnum og
stofnsamningi EFTA væri hægt
að fá undanþágu frá fríverslun-
arskuldbindingum, þegar um væri
að ræða erfiðleika einstakra
iðngreina eða byggðarlaga, enda
yrði sýnt fram á nauðsyn slíkra
verndaraðgerða. Hins vegar væri
alls ekki heimilt að leggja á
almennt innflutningsgjald. Benti
Charles Múller á, að það ákvæði
EFTA-stofnsamningsins, sem
samþykkt EFTA-ráðsins á aðlög-
unargjaldinu 1979 byggðist á, væri
ekki lengur í gildi, þar sem
aðlögunartími íslands væri liðinn.
Hins vegar mótmælti EBE aðlög-
unargjaldinu, en lét það afskipta-
laust aðeins vegna þess, að íslend-
ingar lýstu því yfir að viðlögðum
drengskap, að það yrði fellt niður í
árslok 1980.
Það lýsir einnig furðulegri van-
þekkingu eða misskilningi á samn-
ingi íslands og Efnahagsbanda-
lagsins, þegar því er haldið fram,
að halli á vöruskiptajöfnuði ís-
lands við lönd Efnahagsbanda-
lagsins geti réttlætt aðlögunar-
gjaldið. Hér mun vera átt við það
ákvæði í EFTA-stofnsamningnum
og samningnum við EBE, sem
heimilar, að gerðar séu nauðsyn-
legar verndarráðstafanir, ef eitt-
hvert land á við mikla gjaldeyris-
erfiðleika að stríða. Þarna er um
að ræða almennan gjaldeyris-
skort, en alls ekki þótt halli sé á
vöruskiptajöfnuði milli einstakra
ríkja, sem byggja viðskipti sín á
frjálsum gjaldeyri. Það er fráleitt
að ætla, að fulltrúi hjá Efnahags-
bandalaginu, Bang Hansen, sé
ekki betur að sér í þessum málum
heldur en kemur fram í viðtali
Davíðs Scheving. Þessi fulltrúi
hefur lýst því yfir við sendiráð
íslands í Br’ussel, að hann hafi
alls ekki rætt við Davíð Scheving
og fulltrúa iðnaðarins um nýtt
innflutningsgjald eða framleng-
ingu á aðlögunargjaldi heldur
aðeins rifjað upp afskipti Efna-
hagsbandalagsins af jöfnunar-
gjaldinu og aðlögunargjaldinu á
sínum tíma. Er því ómaklegt að
eigna honum ummæli, sem hann
segist alls ekki hafa við haft.
Samningur íslands við Efna-
hagsbandalagið hefur ómetanlega
þýðingu fyrir íslenskt atvinnulíf
og útflutning. Við verðum því að
gæta þess vandlega að gefa ekkert
tilefni til að endurskoða hann,
sem gæti leitt til skerðingar á
þeim fríðindum, sem við höfum
fengið fyrir útflutning á sjávaraf-
urðum til Efnahagsbandalags-
landanna. Af hálfu starfsmanna
Efnahagsbandalagsins hefur verið
vakin athygli á þessu atriði og
bent á, að sjávarútvegsstefnan sé
nú mjög viðkvæmt og óleyst deilu-
mál innan bandalagsins. Hafa
komið fram hugmyndir um að
greiða fyrir samkomulagi innan
bandalagsins m.a. með því að
skerða þau fríðindi, sem íslend-
ingar hafa verið aðnjótandi. Verð-
um við því að varast að grípa til
nokkurra aðgerða, sem geta stefnt
þessum miklu hagsmunum okkar í
hættu.
Þótt almennt innflutningsgjald
sé ekki talið koma til greina, eru
samningar okkar við EBE og
EFTA þó ekki þannig, að þeir
útiloki ráðstafanir til verndar
einstökum iðngreinum, sem eru í
vanda staddar. Hefi ég því lagt til,
að málefni einstakra iðngreina,
sem eiga í miklum erfiðleikum,
verði athuguð sérstaklega í sam-
ráði við samtök iðnaðarins með
hliðsjón af gildandi reglum í
fríverslunarsamstarfinu.
Ég vísa á bug aðdróttunum
Davíðs Scheving um, að það sé
ekki fullur skilningur í viðskipta-
ráðuneytinu á stöðu íslensks iðn-
aðar og ítreka, að ég lagði fast að
ráðamönnum í EBE og EFTA að
heimila álagningu gjaldsins í sam-
ræmi við lagaheimild þar um. Ég
mun ræða þessi mál ítarlega í
ríkisstjórninni og síðar verða
teknar ákvarðanir um það, hvað
gert verður.
Djúpavogi, 24. júní 1981.
Tómas Arnason.
Aths. ritstj.:
í þessari athugasemd viðskipta-
ráðherra er því haldið fram, að
Bang Hansen, starfsmaður hjá
EBE, hafi ekki viðhaft þau um-
mæli, sem eftir honum eru höfð í
Morgunbiaðinu í gær. Af þessu
tilefni skal tekið fram, að Morgun-
blaðið stendur við frétt sína í einu
og öllu. Fréttamaður Morgun-
blaðsins var einn í hópi allmargra
Islendinga, sem hlustuðu á Bang
Hansen láta þau orð falla sem
eftir honum voru höfð í blaðinu í
gær og fer ekki á milli mála að
rétt er eftir honum haft.
Ole Kortzau
Sýning í Epal
EPAL, Síðumúla 20, hefur nú
opnað enn eina sýningu á listmun-
um — hina fjórðu. Að þessu sinni
eru sýndar grafík- og vatnslita-
myndir og textílverk eftir hinn
kunna danska listamann og arki-
tekt Ole Kortzau.
Kortzau er mjög fjölhæfur lista-
maður og listhönnuður. Hann hef-
ur meðal annars gert silfurmuni
fyrir hina þekktu dönsku silf-
ursruiðju Georg Jensen og postu-
línsgripi fyrir Konunglegu postu-
línsverksmiðjuna, svo að nokkuð
sé nefnt.
Á sýningunni í Epal eru um 30
grafík- og vatnslitamyndir og um
30 textílar, sem Ole Kortzau hefur
hannað.
Sýningin verður opin í þrjár
vikur frá og með fimmtudeginum
25. júní. Opið er á venjulegum
verslunartíma.
Þegar sýningunni í húsakynnum
Epal í Reykjavík lýkur, verða
listaverkin flutt til Akureyrar og
sýnd í húsakynnum Epal þar í
ágúst. Fréttatilkynnimr
PREST ASTEFN A N verður
haldin í Reykjavík dagana 2.
og 3. júlí nk. og fara fundir
hennar fram í Iláskóla ís-
lands. Er það síðasta presta-
stefna sem hr. Sigurbjörn
Einarsson biskup stjórnar, en
árið 1959 stjórnaði hann
fyrstu prestastefnu sinni og
fór hún einnig fram i Háskól-
anum.
í nýjasta Fréttabréfi biskups-
stofu segir, að á prestastefnu verði
m.a. rætt um hvað sé raunhæft og
brýnt í sambandi við líf og starf
kirkjunnar á næstu árum og
minnt á að tæp 20 ár eru þar til
minnst verður 1000 ára kristni á
Islandi. Rætt verður hvernig skuli
hefja kristna sókn og munu sex
ungir prestar fjalla um þessi mál
undir yfirskriftinni „Kirkjan í dag
og á morgun". Eru þeir frá öllum
landsfjórðungum og er sá elzti 37
ára: Sr. Jakob Ág. Hjálmarsson,
ísafirði, sr. Pétur Þórarinsson,
Hálsi, sr. Svavar Stefánsson, Nes-
kaupstað, sr. Sigfinnur Þorleifs-
son, Stóra Núpi, sr. Ólafur Oddur
Jónsson, Keflavík og sr. Valgeir
Ástráðsson í Seljasókn í Reykja-
vík.
Gestir prestastefnunnar i ár
verða hjónin Torben Christensen
og Else Marie Bukdahl og munu
þau flytja erindi á vegum Nor-
ræna hússins. Prestafélag íslands
heldur fund sinn 1. júlí, einnig í
húsakvnnum HáoUólor,,.
Skruftjakkar Kr. 140.-
Flestar gerðir af
Heildsala
smásala
Hjólatjakkar
1,5 tonn Kr. 1.950,-
' Vökvatjakkar 2-20 tonn to rt
Orkubót tekin til starfa ánýPi A A A AA
Orkubót að Brautarholti 22 hæð hússins hefur verið tekin í *P XP *P &P *P AP AP* Jj
hefur hafið starfsemi sina með notkun og bætast þar við salar- ---- X.'
Orkuhót að Hrautarholti 22
hefur hafið starfsemi sina með
nýrri og breyttri aðstöðu. í frétt
frá Orkuhót segir, að lögð hafi
verið áherzla á að gera þjálfun-
arstöðina þannig úr garði gerða
að sem mest vinnuhagræðing
verði á allri starfseminni og
viðskiptavinum líði sem bezt og
sem beztur árangur náist í Hk-
amsrækt og líkamsþjálfun.
Undanfarið hefur verið unnið að
endurbótum á húsakynnum
Orkubótar í Brautarholti 22. Jarð-
hæð hússins hefur verið tekin í
notkun og bætast þar við salar-
kynni, svo nú verða tveir æfinga-
salir að viðbættum tveim búnings-
herbergjum. Einnig hefur verið
bætt við baðútbúnað og komin er
setustofa ásamt með kaffi- og
hressingaraðstöðu. Þegar er fyrir
hendi nuddaðstaða.
Forstöðumenn Orkubótar eru
þeir bræður Sveinbjörn og Viðar
Guðjohnsen, sem sjást á meðfylgj-
andi mynd í endurbættum húsa-
kynnum Orkubótar.
BílavÖrubú6in Skeifunni 2 /■£>
FJÖÐRIN 82944
L" ^ Púströraverkstæói
83466