Morgunblaðið - 25.06.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ1981
39
Kjartan Steingríms-
son — Minning
Fæddur 16. júli 1918.
Dáinn 16. júní 1981.
Það er svo erfitt að trúa því að
hann afi sé dáinn. Hann sem hafði
aldrei kennt sér neins meins og
lagði af stað um miðjan dag þann
16. júní í smáferðalag, ásamt
ömmu en afi kom ekki aftur, hann
lést snögglega um kvöldið.
Með afa hefur verið höggvið
stórt skarð í okkar litlu fjölskyldu.
Skarð sem aldrei verður fyllt.
Afi var mjög mikið fyrir úti-
veru. Það voru ófá skiptin sem
hann tók okkur með niður á höfn
til að skoða skipin og bátana og
fylgjast með athafnalífi við höfn-
ina, sem hann hafði alltaf svo
mikinn áhuga á.
Afi hafði mjög gaman af
stangveiði, ekki endilega til að
veiða einhvern ósköp heldur til að
vera úti og kanna náttúru lands-
ins. Við fórum oft með afa á
sunnudögum upp að Elliðavatni
þar sem hann var að spyrja
veiðimenn um afla þeirra og eins
til að dorga svolítið.
Nú verður tómlegra fyrir okkur
að koma í heimsókn upp á Miklu-
braut þegar afi er ekki til að taka
á móti okkur, spila við okkur eða
ræða um heima og geima.
Við þökkum afa, allar yndislegu
stundirnar sem við áttum með
honum. Minningin um góðan og
traustan mann mun alltaf lifa i
hjörtum okkar.
Hvíl þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Jón Kjartan og Fríða Björg
í dag, 25. júní, er til moldar
borinn i Reykjavík, Kjartan
Steingrímsson, fyrrum útvegs-
maður í Keflavík og hóteleigandi á
Akureyri. Hann varð bráðkvaddur
á ferðalagi vestur á Snæfellsnesi
að kveldi 16. júní. Kjartan
Steingrímsson var fæddur á Flat-
eyri við Önundarfjörð 16. júlí 1918
og hafði því tæplega þrjá um
sextugt er hann lést. Hann var af
kjarkmiklum og tápmiklum vest-
firskum ættum. Faðir hans var
Steingrímur Árnason frá Kletti í
Gufudalssveit, þjóðkunnur útvegs-
maður og stjórnandi vinnslu-
stöðva á sinni tíð. En móður
Kjartans var Kristín Hálfdánar-
dóttir frá Meiri-Hlíð í Bolungar-
vík, en hún andaðíst, þá er hann
var kornungur.
Vestfirðingar eru engir aukvis-
ar á sjó, sem kunnugt er, og
Önfirðingar engir eftirbátar með-
al þeirra. Kjartan átti til slíkra
manna að telja.
Kjartan Steingrímsson var fríð-
ur maður sýnum, skarpleitur i
yfirbragði, augun snör og lifandi.
Hann leitaði snemma úr föður-
garði. Fljótt varð Kjartan riðinn
við ýmis fyrirtæki. Árið 1942 lagði
Kjartan leið sína til Akureyrar og
festi kaup á Hótel Gullfoss í félagi
við Gunnar bróður sinn. Hótelið
rak hann til ársins 1944, er hann
seldi Gunnari hlut sinn. Árið 1946
tók Kjartan að sér framkvæmda-
stjórn Hraðfrystihúss Keflavíkur
hf. og gegndi því starfi svo árum
skipti. Jafnhliða gerði hann út e/s
Sverri EA 20 til síldveiða og
annars sjávarafla. Um 12 ára
skeið var Kjartan búsettur á
Hellissandi og fékkst þar við
ferskfiskmat, söltun sjávarafla og
lifrarbræðslu. Að lokum átti hann
heima í Reykjavík, en hafði jafn-
framt með höndum nokkra starf-
semi á Hellissandi.
Á Akureyri bar fundum okkar
Kjartans saman fljótlega eftir að
hann fluttist þangað. Oft minnist
ég þeirrar Akureyrar, sem einu
sinni var. Þar eignaðist ég marga
og trygga vini. Sumir fluttu að
vísu búferlum, aðrir féllu í valinn,
nokkrir búa þar enn. Kjartan var
einn þeirra, er fluttu brott en
hann hafði jafnan sterkar taugar
til Akureyrar, eins og hún var og
er. Ókunnugir halda því stundum
fram, að Akureyri taki þeim ekki
opnum örmum. En þeir, sem deilt
hafa með þessum stað æsku sinni,
láta ekki slíkar staðhæfingar
rugla sig. Jafnvel þó að einhverjir
flytjist brott, þá sleppir Akureyri
ekki af þeim hendinni, enda hefur
hún einlægt mótað þá meir en
þeim sjálfum er kannski ljóst.
Þeir bera með sér eitthvað af
yfirbragði henar, hvar sem þeir
fara eða flækjast.
Það var einn kosta Kjartans
Steingrímssonar, að hann var
jafnan glaður maður og reifur,
hvar sem hann fór, fyndinn og
kíminn og kunni vel að meta þessa
heims gæði. Hann tók hlutina,
eins og þeir voru og var ekki með
neinn tilfinningaklökkva. Um
hann var aldrei neinn drungi né
sofandaháttur, en gusturinn, sem
af honum gat staðið, var yljaður
hlýju hjartans og glóð hinna frjóu
lífsnautna. Hann sýndi mér aldrei
annað en frábæra vinsemd og
traust, þó að ég hefði einlægt
harla lítið til þess unnið.
Kjartan vár kvændur Ingi-
björgu Jónsdóttur Jósefssonar á
Akureyri, hinni ágætustu konu.
Áttu þau fagurt heimili, þar sem
ríkti höfðingsskapur og hjarta-
hlýja. Ingibjörg lifir mann sinn og
eru börn þeirra tvö: Guðrún Lára
og Kjartan. Dóttir Kjartans er
Kristin, gift Jóhanni Gunnari
Sæmundssyni, skrifstofumanni í
Reykjavík.
Eg kann ekki á svona stundu að
mæla nein þau orð, er til huggun-
ar mættu verða. Ástvinum Kjart-
ans og vandamönnum öllum votta
ég einlægustu samúð.
Kristján Eiriksson
Kjartan Steingrímsson varð
bráðkvaddur hinn 16. júní sl.
aðeins 62 ára að aidri. Hann var
þá á ferðalagi vestur á Snæfells-
nesi ásamt konu sinni Ingibjörgu
Jónsdóttur.
Fráfall Steingríms kom mjög á
óvart, því alla tíð og til hinzta
dags var hann mjög heilsuhraust-
ur og nær aldrei orðið misdægurt.
Kjartan Steingrímsson fæddist
að Flateyri við Önundarfjörð hinn
16. júlí 1918. Foreldrar hans voru
hjónin Kristín Hálfdánardóttir
frá Meiri-Hlíð í Bolungarvík og
Steingrímur Árnason útgerðar-
maður frá KÍetti í Gufudalssveit.
Eignuðust þau 3 syni og var
Kjartan þeirra elztur en hinir eru
Gunnar og Hálfdán. Konu sína
missti Steingrímur frá drengjun-
um barnungum og flutti hann
ásamt þeim til Reykjavíkur stuttu
síðar.
Kjartan fór ungur að vinna hjá
föður sínum, sem rak umfangs-
mikla fiskvinnslu og útgerð um
árabil víða um land. Árið 1942
keyptu þeir bræðurnir Kjartan og
Gunnar Hótel Gullfoss á Akureyri
og ráku það saman um tíma.
Næstu árin var Kjartan í útgerð
og rak m.a. Hraðfrystihús Kefla-
víkur hf. með föður sínum. Á
þessum árum var rekstur útgerð-
ar- og fiskvinnslustöðva oft mjög
erfiður og fóru þeir feðgar ekki
varhluta af því.
Hinn 4. maí 1954 kvæntist
Kjartan Ingibjörgu Kristínu Jóns-
dóttur frá Ákureyri. Foreldrar
hennar voru hjónin Guðrún Jó-
hannsdóttir og Jón Jósefsson.
Kjartan og Ingibjörg bjuggu sín
fyrstu hjúskaparár í Keflavík og
síðan nokkur ár í Garðabæ. Árið
1960 fluttust þau til Hellissands
og rak Kjartan þar fiskverkun og
lifrarbræðslu ásamt öðrum og
vann auk þess við ferskfiskmat.
Ingibjörg stundaði þar kennslu í
barnaskólanum. Bjuggu þau hjón-
in á Hellissandi og Rifi til ársins
1972 þegar þau fluttust til Reykja-
víkur, þar sem þau hafa búið
síðan. Kjartan hélt áfram rekstri
lifrarbræðslunnar með félaga sín-
um Ársæli Jónssyni, eftir að hann
flutti til Reykjavíkur. Þegar hann
féll frá átti hann í smíðum
myndarlegt iðnaðarhús í Hvera-
gerði.
Hjónaband þeirra Ingibjargar
og Kjartans var sérstaklega ham-
ingjuríkt og farsælt. Ingibjörg er
mikil dugnaðarkona og hefir hún
lengst af unnið fullan vinnudag
utan heimilisins og er hún núna
forstöðukona barnaheimilisins
Múlaborg. Auk þess hefir hún
unnið mikið að félagsmálum. Þau
hjón eignuðust 2 börn, þau Guð-
rúnu Láru, skrifstofustúlku og
Kjartan, prentara. Áður en Kjart-
an kvæntist eignaðist hann eina
dóttur, Kristínu, sem er gift
undirrituðum. Barnabörnin eru
orðin 5.
Það var ávallt mjög ánægjulegt
að heimsækja þau Kjartan og
Ingibjörgu að Miklubraut 66. Þau
voru mjög hamingjusöm hjón og
samhent í öllu. Gestrisni var þeim
í blóð borin og nutu þau þess að
taka á móti stórum gestahópum.
Nú þegar kveðjustundin er
runnin upp vil ég þakka Kjartani
hans mikla velvilja í garð fjöl-
skyldu minnar og færa Ingibjörgu
og börnum hennar mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Kjartans
Steingrímssonar.
Jón Gunnar Sæmundsson
+
Innilegar þakkir færum viö öllum fyrlr auösýnda samúö viö andlát
og útför móöur okkar,
HELGU JÓNSDÓTTUR,
Grenimel 15, Rvík.
Jón Gunnar Arnason,
Svavar Árnason,
Steinþór Árnason.
+
Þökkum heilshugar auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför
KRISTÍNAR MARÍU SÆMUNDSDÓTTUR,
Austurbrún 4.
Sérstakar þakklr til lækna og hjúkrunarliðs á 3. D Landspítalans
fyrir frábæra umönnun.
Jóhannes Gíslason,
Reynir Jóhannesson, Hjördis Sturlaugsdóttir,
Elsa Mosdal, Sumarliöi Mosdal,
Sólrún Jóhannesdóttir, Stefán Siggeirsson.
Guðný G, Guðmunds-
dóttir — Minning
Fædd 18. nóvember 1893.
Dáin 14. júni 1981.
Amma okkar Guðný Guðrún
Guðmundsdóttir verður lögð til
hinstu hvíldar í dag eftir nokk-
urra mánaða rúmlegu, 87 ára að
aldri.
Hún lést sl. sjómannadag, en sá
dagur hlýtur að skipa sérstakan
sess í huga konu sem bæði hefur
séð á eftir manni frá þremur
ungum börnum og síðar einkasyni,
en þeir lögðu hvorugur að landi úr
síðustu sjóför sinni.
Síðar á lífsleiðinni kynntist
hún, Sigurði S. Heiðberg, þeim
manni sem við þekktum sem afa
okkar. Afi Sigurður dó 28. júlí
1978 og verður hann lagður í kistu
með henni.
Svo lengi sem við munum
bjuggu afi og amma á Sólvallagöt-
unni, þangað var hlýlegt og nota-
legt að koma. Hjá afa var lestur
góðra bóka í heiðri hafður og þar
kynntumst við fyrst leyndardómi
siafrufsins. Amma vann mikið við
hannyrðir meðan heilsa leyfði og
sjaldan var það sem við hurfum
þaðan án þess að hafa meðferðis
eitthvað sem hún hafði prjónað
eða heklað.
Amma Guðný var sérstaklega
barngóð og fylgdist vel með af-
komendum sínum af natni og
velvild fram á síðasta dag.
Ferðir okkar á Sólvallagötuna
munum við ætíð. Margs er að
minnast sem erfitt er að tjá í
orðum en hlýja og bros geymist í
huga.
Barnabörnin
Laugagerðisskóli á Snæfellsnesi.
Sumarvinnustofa
listamanna starf-
rækt á Islandi
Sumarvinnustofa listamanna
— Mobile Summer Workshop
stytt i Mob Shop — er starfrækt
á íslandi i sumar. Listamönnum
frá Norðurlöndum er boðin
þátttaka og einnig koma aðrir
erlendir gestir við sögu.
Það er Magnús Pálsson, lista-
maður, sem á hugmyndina að Mob
Shop. Hann vildi fitja upp á
einhvers konar starfsemi, sem
efldi strauma nútímans til Norð-
urlandanna. Hann leitaði því til
norræna menningarsjóðsins, eftir
að hafa snúið sér til listastofnana
og einstaklinga á Norðurlöndum
um stuðning og fékk fjárveitingu
þaðan. Einnig fékk hann stuðning
frá Alþingi íslendinga.
Síðan hafði Magnús samband
við ýmsa erlenda listamenn aðra
en norræna, til að fá þá til að
koma og veita straumum til hinna
norrænu þátttakenda. Því næst
sendi hann boðsbréf til jiorrænna
listamanna. Gistiaðstaða var
fengin í Hjúkrunarskólanum —
og aðstaða til vinnu í Laugagerð-
isskóla á Snæfellsnesi og Iðnskól-
anum í Reykjavík.
Meðal gesta, sem koma á Mob
Shop, má nefna Frakkann Pobert
Filliou, sem mörgum íslendingum
er að góðu kunnur, kenndi m.a. í
Handíða- og myndlistaskólanum
um skeið. Þá má nefna
Bandaríkjamennina Philip Corn-
er, sem er uppákomumaður,
tónskáld og hljóðfæraleikari og
Malcolm Goldstein, tónskáld og
hljóðfæraleikara.
Nú þegar eru komnir hingað
fjórir norrænir listamenn. Von er
á fleirum frændum okkar þegar
lengra kemur fram á og eins
munu íslenskir listamenn taka
þátt í starfinu eftir því sem þeir
fá við komið. Starfið mun einkum
fara fram [ Laugagerðisskóla en
einnig í Reykjavík eftir því sem
ástæða verður til. í Mob Shop
verður lögð stund á myndlist,
tónlist, uppákomur og gerninga.
Reynt verður að gera starfið sem
allra fjölbreyttast til gagns og
gamans fyrir þátttakendur og þá
sem koma til með að njóta þeirrar
listar, sem verður afraksturinn af
þessari norrænu samvinnu í
verki.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug við andlát og útför
fööur okkar, tengdafööur og afa,
BJÖRNS EINARSSONAR.
Börn, tengdabörn og barnabörn.