Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 45
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981 25 „Ég hef áhuga á því að taka að mér knattspyrnuþjálfun“ - segir Jóhannes Eðvaldsson • Karl Heinz Rummenigge, knattspyrnumaður Evrópu, skoraði tvö mörk fyrir lið sitt, Bayern Miinchen um helgina. Lið Bayern hefur sjö sinnum sigrað í þýsku deildakeppninni. Fimm sinnum sigrað í bikarkeppni VesturÞýskalands og fjórum sinnum sigrað í Evrópukeppni meistaraliða. Þá sigraði liðið í keppninni um heimsbikarinn árið 1976. Ásgeir lagöi upp f jórða markið í 4-0 sigri Bayern gegn MSV Duisburg EINS og kunnugt er, hefur Jóhann es Eðvaldsson leikið sem atvinnu- knattspyrnumaður síðastliðin tvö ár með bandaríska knattspyrnuliðinu Tulsa Koughnerks. Nú er samningur Jóhannesar við liðið runninn út og segja má að hann standi á tímamól- um, hvað knattspyrnu varðar. Að sögn Jóhannesar er hann með tilboð frá vestur-þýska liðinu Hannover 96. Sama liði og gerði Sævari Jónssyni tilboð. Jafnframt hefur lið Tuisa áhuga á að endurnýja samninginn við Jóhannes. Síðastliðna viku dvaldi Jóhannes í Vestur-Þýskalandi og æfði þá um tíma með Hannover og kynnti sér aðstæður. Síðan heim- sótti hann Atla bróður sinn og dvaldi hjá honum í nokkra daga. A leiðinni vestur um haf kom hann til íslands og heilsaði upp á foreldra sína og vini og þá tókst Mbl. að spjalla lítil- lega við hann og spurði hann hvað væri framundan hjá honum. — Eg þarf að athuga mín mál mjög vel núna. Ég stend á vissum tímamótum. Samningur minn við Tulsa er runninn út. Ég hef mik- inn áhuga á því að breyta til. Ég er með tilboð frá Hannover 96 og gæti vel hugsað mér að taka því. En fyrst verð ég að ræða málin við konu mína svo og forráðamenn Tulsa. Þeir hafa líka mikinn áhuga á því að endurnýja samn- inginn við mig. Það er hins vegar ekkert laun- ungarmál að mig langar aftur til Evrópu. Ég sakna þess að leika ekki ávallt á laugardögum, stemmningin er svo allt önnur í kring um knattspyrnuna í Evrópu en í Ameríku. Mig er farið að langa í að komast aftur í alvöru- knattspyrnu. Þá er það mikill ókostur við knattspyrnuna í Am- eríku hversu oft maður er lengi í burtu frá fjölskyldu sinni. Mikið er um löng og ströng ferðalög. Vegalengdirnar á milli keppnis- staða eru óskaplegar. Það er þreytandi til lengdar. — Eg er ekki orðinn leiður á knatTspyrnu, síður en svo. Ef svo væri myndi ég leggja skóna á hill- una. Sennilega verð ég í þessu í 3 til 4 ár til viðbótar. Ég hef sloppið alveg við meiðsli í knattspyrnunni í Ameríku. Og það má vera að ég haldi áfram að leika þar, fái ég mjög freistandi tilboð. Það eru W • Jóhannes Kðvaldsson. máske ekki eins miklir peningar í knattspyrnunni þar og í Evrópu en hlunnindi eru mikil og lífsaf- koman einstaklega góð. Ég hef leikið alla leiki með Tulsa, bæði úti og inni, síðastliðin tvö ár, aldrei misst úr leik. Áhorf- endur á heimaleikjum okkar, þeg- ar við leikum úti eru um 20 þús- und. En að meðaltali sex þúsund á inniknattspyrnunni. Innanhúss- knattspyrnan er mjög vinsæl. Jóhannes, hvernig er að leika á gervigrasinu? — Það kemst upp í vana. Tví- mælalaust myndi ég telja að það ætti að fá gervigras til íslands. Það yrði betra en að leika á mal- arvöllunum. Það þyrfti að koma upp gervigrasvelli hér á landi með stórum og skjólgóðum veggjum í kring. Það er þetta mikla rok sem gerir knattspyrnumönnum svo oft erfitt fyrir hér á landi. Ertu enn í framfór sem knatt- spyrnumaður? — Ég spila knattspyrnuna öðru vísi í dag. Hugsa meira. Nú hefur maður meiri tilfinningu fyrir góð- um staðsetningum. Reynslan er orðin mikil og hún er jú alltaf stór þáttur í öllum leikjum. Maður er alltaf að læra meira og meira í þessu. Það er óendanlega hægt að bæta við sig. Hvar ætlar þú að setjast að þegar þú hættir að leika knattspyrnu? — Minn draumur er að opna bjórstofu í Skotlandi. Koma svo heim til Islands á sumrin og þjálfa knattspyrnu. Ég hef mikinn áhuga á því að koma heim til íslands og þjálfa, jafnvel leika með sama liði. Ég fékk til dæmis ágætis tilboð frá 2. deildar liði í Noregi um daginn um að þjálfa og leika með því. Ég er lærður íþróttakennari og hef mik- inn áhuga á þjálfun. Það hræðir mann mikið þegar maður er búinn að vera lengi er- lendis að koma heim og setjast að. Dýrtíðin hér er svo ofsaleg. Það getur varla verið nokkuð vit í því að fjárfesta á íslandi. En hvað framtíðin ber í skauti verður bara að koma í ljós. Jóhannes hélt í gærdag til Bandaríkjanna og ræðir nú við forráðamenn Tulsa. En næstu daga mun skýrast hvort hann leik- ur áfram í Bandaríkjunum, fer til Hannover 96 eða tekur að sér þjálfun og leikur með einhverju liði. Annað hvort hér á landi eða í einhverju öðru landi. — ÞR. „Ég er eftir atvikum ánægður með minn þátt í leiknum, það tók að vísu svolítinn tíma að finna sig, en ég tel mig hafa sloppið ágætlega frá þessu, sérstaklega í síðari hálHeik. Þó tel ég af-og frá að ég hafi á nokkurn hátt tryggt mig í byrjunarliðið, þjálf- arinn Csernai er hræddur við að nota aðra leikmenn heldur en þá sem hann gerði að meisturum í fyrra. Ég lék með nú vegna þess að Udo Horsmann á við meiðsl að stríða, en þau eru ekki alvarlegri en svo, að hann verður orðinn heill þeg- ar næsti leikur fer fram og ég á ekki von á öðru en hann taki stöðu sína á ný og ég fari rétt einu sinni á bekk- inn,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson í samtali við fréttamann Morgun- blaðsins um helgina, en Bayern Munchen hafði þá nýlega sigrað Du- isburg 4—0 á heimavelli í þýsku deildakeppninni. Áður en lengra er haldið, skulum við líta á úrslit leikja: Darmstadt 98. — E. Frankf. 1—4 Bayern Múnchen — Duisburg 4—0 Arm. Bielefeldt — Stuttgart 1—0 Braunschweig — Kaisersl. 2—1 Karlsruhe — Dortmund 0—2 Dússeldorf — Núrnberg 1—1 Werder Bremen — FC Köln 1—1 Bayer Leverk. — Hamb. SV 0—3 Bochum — Gladbach 1—1 Leikur Bayern og Duisburg þótti sæmilegur, en mörkin fjögur í hæsta gæðaflokki. Ásgeir Sigur- vinsson lék vinstra meginn á vall- armiðjunni, tók hann stöðu Bernds Durnberger, sem færði sig aftur í vörnina í fjarveru Udo Horsmann. Bayern sótti strax linnulítið, en fyrst um sinn stóð vörn Duisburg föst fyrir. Höeness og Rumenigge fóru báðir illa með góð færi á fyrsta stundarfjórð- ungnum og síðan fékk Duisburg eitt dauðafæri áður en að Bayern braut ísinn með fyrsta markinu. Fruck komst þá á auðan sjó, en Junghans varði skot hans frábær- lega. En fyrsta markið kom á 39. mínútu, Paul Breitner sendi þá háa sendingu til Rumenigge, sem tók knöttinn skemmtilega niður og skoraði með föstu skoti. Fjór- um mínútum síðar skoraði Dieter Höness glæsilega með skalla eftir fyrirgjöf frá Augenthaler, 2—0 í hálfleik. Ekki minnkuðu yfirburðir Bay- ern í síðari hálfleik og á 55. mín- útu bætti Rumenigge þriðja mark- inu við með skoti af stuttu færi eftir mjög fallegan undirbúning. En glæsilegasta markið af þeim öllum og eitthvert rosalegasta mark sem sést hefur á Olympíu- leikvanginum og þótt víðar væri leitað skoraði Dieter Höness á 64. mínútu. Ásgeir kom þar verulega við sögu, átti sendinguna frá vinstri kantinum sem Höness tók og skoraði . Þegar knötturinn barst fyrir frá Ásgeiri skallaði Höness fast að markinu. Knöttur- inn skall í stöng og þeyttist aftur út, en Höness náði með einhverj- um hætti að teygja sig í knöttinn þar sem hann var jafnvægislítill og árangurinn var stórglæsilegt mark, þrumuskotið þaut í stöng- ina, þaðan yfir í hina stöngina og loks í netið! „Við höfuð unnið tvo afgerandi sigra í röð eftir að hafa tapað nokkrum sinnum illa. Ég trúi því að við séum að ná okkur á strik á nýjan leik, en tíminn verð- ur þó að skera úr hvort það sé raunin," sagði Ásgeir að lokum. Lélegt í Diisseidorf Flestir leikjanna í þýsku deild- arkeppninni um helgina þóttu óvenjulega góðir, en viðureign Dússeldorf og Núrnberg var ekki í þeim hópi. Amand Theiss skoraði fyrir Dússeldorf á 46. mínútu, spyrnti knettinum í gegn um þvögu leikmanna á markteig Núrnberg þannig að markvörður- inn sá lítið til. Austurríkismaður- inn Hintermayer jafnaði á 86. mínútu með góðu skoti eftir fyrir- gjöf frá Lieberwirth. Lið Dússel- dorf lék illa sem heild að þessu sinni, aðeins Thomas Allofs gat talist góður. Atli var hvorki góður eða slæmur, en svona sæmilegur. Er ljóst, að hann gegnir mun stærra hlutverki hjá Dusseldorf heldur en hjá Dortmund. Áhorf- endur voru 11.500. Sýnikennsla HSV Hamburger SV lék þennan leik hreint frábærlega, var hreinlega með sýnikennslu. Lið Leverkusen lék alls ekki illa, en hafði ekkert í HSV að segja, sem sýndi geysilegt öryggi, hraða og tækni. Hrubesch, Bastrup, Beckenbauer og Magath léku alveg sérstaklega vel og virð- ist HSV vera sterkasta liðið um þessar mundir. William Hartwig skoraði fyrsta markið strax á 5. mínútu eftir fyrirgjöf frá We- hemayer og Horst Hrubesch bætti öðru marki við á 38. mínútu, skall- aði í netið eftir fyrirgjöf frá Lars Bastrup. Hartwig skoraði annað mark sitt og þriðja mark HSV á 80. mínútu með góðu skoti af 14 metra færi. Áhorfendur voru 15.000. Tveir góðir Einhver besti leikur vetrarins var í Bremen, þar sem heimaliðið fékk Köln í heimsókn. Áhorfendur á Weser Stadion voru 38.000 talsins, met í Bremen og heimaliöið þykir eitthvert skemmtilegasta lið sem fram hefur komið í Vestur-Þýska- landi í manna minnum, leikmenn liðsins upp til hópa „tekniskir" fram úr hófi og liðið þykir leika hugmyndaríkari sóknarleik held- ur en nokkuð annað lið í þýsku úrvalsdeildinni. Sóknarknatt- spyrnan var þarna í algleymingi þrátt fyrir að mörkin yrðu aðeins tvö, markverðirnir og marksúl- urnar sáu fyrir því. En Ziegman náði forystunni fyrir Bremen á 19. mínútu, skallaði í netið eftir auka- spyrnu frá Bracht. Köln náði ekki að jafna fyrr en á 88. mínútu, en þá skoraði Klaus Fischer eftir að Rene Botteron hafði vaðið upp all- an völlinn og sent síðan á Fischer sem skoraði. Viðureign Bochum og Gladbach þót.ti einnig framúrskarandi skemmtileg, en einnig þar urðu mörkin færri heldur en efni stóðu til. Fyrrum Bochum-leikmaðurinn Kurt Pinkall skoraði fyrir Glad- bach í fyrri hálfleik eftir undir- búning Mills, en Schreier jafnaði á 77. mínútu. Áhorfendur voru 32.000 og þeirra á meðal Jupp Derwall, landsliðseinvaldur þeirra Þjóðverja, en hann var að fylgjast með varnarmanni Bochum að nafni Bast. Og Bast notaði tæki- færið og átti stórleik. Opið bréf frá Keflavík: Énn eru dómaramálin í ólestri LAUGAKDAGINN 17. október sl. áttu að fara fram handknattleikir á milli ÍBK og Reynis í Sandgerði í 3. deild karla og ÍBK—UBK í 2. deild kvenna. Áhorfendur voru 250 talsins og hafa ekki verið fleiri i annan tíma á handboltaleikjum t Keflavík. Dómararnir í þessum leikjum, þeir Alf Pedersen og Er- lingur Kristensen, sáu hins vegar ekki ástæðu til að mada í þessa leiki. Eftir mikla eftirgrennslan og leit að þeim félögum (m.a. var at- hugað á Keykjanesbrautinni vegna hugsanlegrar bilunar á bfi), fund- ust þeir I fþróttahúsinu í Hafnar- firði, þar sem þeir fylgdust með leik í 1. deild karla og tjáðu þeir talsmanni ÍBK að þeir ætluðu sér ekki að mæta í Keflavík, til að dæma umrædda leiki. 45 mínútum eftir auglýstan tíma neyddust ÍBK-menn til að tilkynna fjölmörg- um þolinmóðum áhorfendum, sem margir voru komnir frá Sandgcrði, að af óviðráðanlegum orsökum gætu leikirnir ekki farið fram. Þegar hér var komið sögu voru ma'ttar til Keflavíkur, með rándýr- um langferðabíl, stúlkurnar frá UBK. Urðu þær frá að hverfa við svo búið. Óll félögin, sem hér komu við sögu urðu fyrir miklum fjárútlátum og er spurningin því: Hver á að greiða? Áhorfendum viljum við þakka mikla þolínmæði. Miðvikudaginn 4. nóvember kl. 20.00, keyrðu stúlkur úr 2. deild kvenna IBK sem leið liggur í Mosfellssveit og áttu þá að leika við UMFA. Til þessarar ferðar var að venju leigður langferða- bt'll. Skemmst er frá því að segja að þegar leikurinn átti að hefj- ast voru þeir Guðmundur Ósk- arsson og Þórður Óskarsson, dómarar, ekki mættir. Máttu þá stúlkurnar gjöra svo vel að setj- ast út í rútu og aka heim á leið’ eftir eina fýluferðina enn. Það er lágmarkskrafa að HSÍ sjái svo um með einhverju móti að dómarar laíi sig ekki vanta í leiki. Leikmenn og aðstandendur liðanna leggja á sig ómælda vinnu við æfingar og undirbún- ing leikja og er það sárgrætilegt að sjá allan undirbúning renna þannig út í sandinn. Við gerum okkur grein fyrir að aðstaða HSÍ er ekki góð, því þeir eiga erfitt með að fylgjast með öllum leikj- um. Hitt er annað mál, að tími er kominn til að endurskipu- leggja dómarakerfið. Dómarar vinna ákaflega van- þakklátt starf og eiga þeir menn heiður skilið sem gefa sér tíma til að hlúa að íþrótt sinni á þenn- an hátt, oft með skammir og leiðindi sem einu laun fyrir erf- iði sitt. En þeir dómarar sem • uppvísir verða að því að mæta ekki til leiks, eiga að skammast sín og bæta ráð sitt eða hætta ella, því þeir skemma fyrir þeim dómurum sem vel vilja gera. Virðingarfyllst, f.h. Handknaltleik.sráðs Kefla- víkur, Ragnar Marinósson, Jón Olsen, Grétar Grétarsson, Magnús Jónsson, Þuríður Jónasdóttir, Jóhanna Keynisdóttir. Heimavöllur knattspyrnuliðs Tulsa Koughnecks. Níu marka tap gegn Rúmenum • íslenska landsliðið í handknatt- leik tapaði síðasta leik sínum í hand- knattleiksmótinu í Tékkóslóvakíu með níu marka mun. Síðasti leikur inn var gegn Rúmenum. Lokatölur leiksins urðu 17—26 fyrir Rúmena. Síðustu tveir leikirnir töpuðust því með 19 mörkum. Það rennir stoðum undir það að þrek hafi vantað í hið unga íslenska landslið til að stand- ast svo erfiða keppni. Fimm leikir á fimm dögum er greinilega enn of mikið. UEFA-keppnin: Lokeren gegn Kaiserlautern DREGIÐ hefur verið til 3. umferðar innar í UEFA-keppninni í knatt- spyrnu. Arnór Guðjohnsen og félag- ar hans hjá Lokeren fengu erfiðan Staðan í V-Þýskal. llamhuriH'r SV Kóln Itaycrn Munrhcn Hor. Mönrhcngl. Wrrdcr ftrrmcn Kinlr. Krankfurl Hnr. Dnrlmund BiH-hum kaisrrslautcrn Kintr. Hraunschwcig Siuilnari karlsruhr Havrr Lcturkuscn Kort. lhiss<‘ldorf Arminia HiclcfcW Nurrmbrrjí Darmstadt 9X Ituishurg l.‘i 7 4 2 1.1 7 4 2 11 8 1 4 II fi 5 2 m«41 II 7 I 5 II 6 2 5 II 5 4 4 II 4 5 4 II fi 0 7 13 4 4 5 11 4 3 fi II 4 3 fi 13 3 4 K 13 2 5 « 13 3 3 7 13 2 5 fi 13 3 2 H 34:15 IX 24:11 IX 31:24 17 25:21 17 21:15 Ifi 2»:23 15 22:16 14 24:21 14 26:24 13 20:21) 12 10:21 12 21:22 11 IX:2D 11 21:27 1« 12:1» » 15:25 » 15:2X » 1*35 X keppinaut, þýska félagið Kaisers- lautern, og fer fyrri leikurinn fram í Belgíu. Dundee Utd., sem rassskellti vesturþýska félagið Borussia Mönchengladbach í síðustu umferð dróst nú gegn léttari mótherja, belg- íska félaginu Winterslag. En lítum á dráttinn: Hamburger SV — Aberdeen Lokeren — Kaiserslautern Dundee Utd. — Winterslag Real Madrid — Rapid Vín Gautaborg — Din. Búkarest Sporting Lisbon — Neuchatel Radnicki Nis — Feyenoord Valencia — Hadjuk Split Stórsigur íslensku unglinganna íslenska unglingalandsliðið í körfuknattleik gersigraði jafnaldra sína frá Luxemborg ytra á sunnu- daginn. Lokatölur leiksins urðu 104—70, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 47—37. íslenska liðið náði að sýna þarna stórleik, sérstaklega í síðari hálfleik, er munurinn jókst jafnt og þétt. Valur Ingimundarson frá Njarðvík fór gersamlega á kostum að þessu sinni, lék frábærlega vel bæði í sókn og vörn. Hann var stigahæstur íslensku piltanna, skoraði 32 stig. Axel Nikulásson frá ÍBK og Viðar Vignisson, einnig frá ÍBK, skoruðu 16 stig hvor, en Pálmar Sigurðsson frá Haukum skoraði 15 stig. Næstur kom síðan Birgir Mikaelsson með 8 stig. Fjárlög gerðu ekki ráð fyr- ir nýja íþróttahúsinu í SÍÐUSTU viku fjölmenntu Laug- dælir til Reykjavíkur, bæði sveita- menn og nemendur þeirra fjögurra skóla sem starfræktir eru á Laugar vatni, og fór flokkurinn í kröfu- göngu. Viðkoma var höfð bæði við ráðuncytið svo og við Alþingi, þar sem menntamálaráðherra og fjár málaráðherra fengu í hendurnar undirskriftalista þar sem því var mótmælt að fjárlög gerðu ekki ráð fyrir fé til handa byggingu íþrótta- mannavirkja á Laugarvatni þrátt fyrir að teikningar af nýju íþrótta- húsi séu fyrir nokkru tilbúnar. Að- staðan til íþróttaiðkunar á Laugar vatni er afar léleg miðað við þann mikla fjölda nemenda og heima- manna sem þar stundar fþróttir. Bæði íþróttahúsið og sundlaugin eru afgömul mannvirki og úr sér gengin. Þarf þó helst að líta á kofana til þess að trúa því hversu bágborið ástandið er. Mbl. leit við að Laugarvatni í síðustu viku og kynnti sér ástandið. Þeir Jósef Olafsson, nemandi í íþróttakennaraskóla íslands og Jón Hrafnsson, nemandi í Menntaskólanum leiddu blaða- mann um svæðið og sýndu honum alla dýrðina. Fyrst var komið að sundlauginni. Þegar inn var komið var eins og gengið væri á vegg, svo þungt var loftið. Loftræsting í sundsalnum er fyrir neðan allar hellur og þakið er bókstaflega að hrynja. Hafa flísar skilið sig frá loftinu og fallið niður en til þessa hefur enginn fengið flís í höfuðið. Þá er rakinn slíkur í veggjum og lofti, að húsið míglekur þrátt fyrir að úti skini sól og rigning væri víðs fjarri. Mbl. spurði þá félaga, Jón og Jósef, hvernig ástandið væri þegar úrkoma gerði vart við sig. Staðfestu þeir að þá læki hús- ið mikið. Sundlaug þessi er auk þess afar lítil, aðeins 8x12,5 metr- ar. Einn búningsklefi fylgir hús- inu og er aðstaða þar fyrir 20 manns og þá geysileg þröng á þingi. En þarna eru engu að síður yfirleitt 40 manns og geta menn ímyndað sér troðninginn. Sturtu- klefarnir eru þannig að öruggt má heita að menn fá þar ekki víðáttu- æði. Síðan var blm. leiddur í íþrótta- húsið. Er það afar lítið hús og þar sem við stóðum á svölunum benti Jósef upp í rjáfur í einu horninu. „Þarna hrundi einu sinni niður stór hluti úr loftinu en til allrar hamingju varð enginn fyrir því.“ Sem fyrr segir, er salurinn mjög lítill, bæði stuttur og þröngur. Þegar Mbl. var þarna á ferðinni var verið að kenna nemendum ÍKÍ samkvæmisdansa og er það kannski það eina sem hægt er að kenna þarna að einhverju marki. Þá er þarna malarknattspyrnu- völlur sem var álika sléttur og úfið kapalhraun. Grasvöllur er þarna einnig, en það má ekki „tipla á hann tánum" fyrr en langt er komið fram á sumar og nemendur farnir til síns heima vítt og breitt um landið. Þá er þarna olíuborinn smávöllur með handboltamörkum og körfuhringjum, en að sögn fylgdarmanna er ekki mikið um að nemendur eða heimamenn noti útiaðstöðuna, enda er þarna oft snjóþungt. Blm. fékk einnig að kíkja á lyftingaklefann, en lyft- ingaskápur væri meira réttnefni. Eitthvað af lóðum lá þarna eins og hráviði, en því meiriháttar lyft- ingabekkir voru fyrirferðarmestu gripirnir. Einn þeirra er i eigu eins nemenda skólans, annar til- heyrir ekki skólanum og sá þriðji er bilaður. Gæfulegt ástand það. Þegar heimamenn höfðu leitt borgarbúann í allan sannleika um ástand íþróttamannvirkja, var þeim síðarnefnda boðið að sitja fund með sérstakri baráttunefnd sem skipuð er fulltrúm skólanna fjögurra auk aðila úr hópi heima- manna. Fund þennan sátu auk undirritaðs Jósef Ólafsson, Svava Arnórsdóttir, Hildigunnur Ólafs- dóttir, Jón Hlöðver Hrafnsson, Árni Guðmundsson, Torfi Rúnar Kristjánsson, Þórir Þorgeirsson, Jensína Halldórsdóttir, Guðmund- ur B. Þorkelsson, Hreinn Ragn- arsson, Þórhallur Gunnarsson, Anna Lína Vilhjálmsdóttir, Krist- ín Björk Hilmarsdóttir, Harpa Guðmundsdóttir, Kristinn Kristmundsson og Benedikt Sig- valdason. Árni Guðmundsson, skólastjóri ÍKI, byrjaði á því að rekja í stuttu máli sögu íþróttamannvirkjanna á svæðinu. Kjarninn var sá, að þeg- ar sundlaugin og íþróttahúsið voru byggð, árin 19219 og 1946, þóttu þetta hin glæsilegustu mannvirki. Síðan hefur nemend- um og íbúum þorpsins að Laug- arvatni fjölgað svo, að aðstaðan er ekki lengur boðleg. Kom það fram í málflutningi Laugdæla, að þeir teldu að hvergi á landinu byggi jafn stór hópur fólks við jafn slæmar aðstæður til íþróttaiðk- ana. Íþróttalíf væri mikið, en að- staðan öllu slíku fjötur um fót. Guðmundur B. Þorkelsson minnt- ist þess jafnvel, er nemandi nokk- ur kom frá Vestmannaeyjum, til að stunda nám á Laugarvatni, leit á aðstöðuna og var farinn heim daginn eftir! Laugdælingarnir tjáðu gesti sinum, að þeir hefðu margsinnis farið fram á fjárveitingar til nauðsynlegs viðhalds, en verið sviknir um slíkt oftar en tölu yrði á komið. Síðan hefði það gerst, að málið hefði farið að skríða af stað og 9. júní 1980 hafi menntamála- ráðherra samþykkt teikningar sem þá lágu fyrir fullgerðar af nýju og glæsilegu íþróttahúsi sem reisa átti á Laugarvatni. Fjárlög fyrir 1981 gerðu hins vegar ekki ráð fyrir grænum eyri til að hefja smíði umrædds húss og málið því komið í strand á ný. Þessu vilja flestir Laugdælinga ekki una og nefnd sú er þennan fund sat ásamt undirrituðum var kjörin á 400 manna fundi á Laugarvatni, þar sem heimamenn reifuðu þessi mál. Varla eru Laugdælingar mikið fleiri en 400, þannig að áhugi þar eystra er nokkuð almennur. Krafa Laugdæla er sú, að í fjárlögum fyrir árið 1982 verði gert ráð fyrir aurum til að hefja framkvæmdir, því „það er ekkert hægt að gera til bráðbirgða, menn verða að ákveða hvort reisa á þessi mannvirki eða ekki og ef það síðarnefnda verður ofan á, þá getum við þraukað áfram," sagði Árni Guðmundsson. Baldur Óskarsson, varamaður á þingi fyrir Suðurlandskjördæmi flutti tillögu til þingsályktunar á fimmtudaginn og spunnust tals- verðar umræður af málflutning hans. Stakk hann upp á því að hreyfa við framkvæmdum og endurreisa Laugarvatn sem meiri háttar íþróttamiðstöð. Nú er að sjá hvaða áhrif hreyfing þessi hjá Laugdælum hefur á gang mála. GG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.