Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 40
Síminná QQHQQ afgreiðslunni er OOUOO fltorgtutÞIabtfr Sími á ritstjórn H 1HH og skrifstofu: lU IUU JHt»rxjxtníiIíií»íí» ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981 Kvótakerfið mikið rætt á Fiskiþingi FJÓRAR af sex deildum Fiskveiði- félags íslands úti um land hafa ályktaú að kvótakerfi verði sett á togarana, en Ijóst er að kvótamálið verður mikið rætt á yfirstandandi Kiskiþingi, sem hófst í gær. Hins vegar kom það fram í ræðu sjávarútvegsráðherra á Fiskiþingi í gær, að hann myndi ekki koma á kvótakerfi með þvingunaraðgerð- um. Menn yrðu að ná algjörri samstöðu um þetta mál fyrst. Sjá ræðu Más Elíssonar, fiskimála- stjóra á miðopnu. Guðrún Helgadóttir: Geymi mér að dæma danskan kollega Cuðrún Helgadóttir, þingmað- ur Alþýðubandalags, harmaði á Alþingi í gær, í umræðu um hugsanlegan vopnaflutning ís- lenzkra flugvéla, að strand sov- ézks kafbáts með kjarnavopn á suðurströnd Svíþjóðar væri not- að til að kasta rýrð á „friðar- hreyfingar" til einhliða afvopn- unar í V—Evrópu. Ragnhildur Helgadóttir (S) sagði strand hins sovézka kjarnakafbáts, að viðbættri uppljóstrun um njósnir forystumanns í svokallaðri „friðarhreyfingu" í Danmörku, sem greitt hafi herkostnað hreyfingarinnar með rúss- nesku fjármagni, hafa svipt áróðurshulinni af þessari hreyfingu einhliða afvopnun- ar. Guðrún Helgadóttir (Abl) sagðist þá ætla að geyma sér að dæma hinn danska kollega unz sekt hans væri sönnuð. Sjá nánar á þingsíðu Mbl. í dag. 4 bflum ekið á sama umferðar- merkið á Vi mánuði TVÆR bílvetur áttu sér stað á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði til móts við hús nr. 66, skammt frá Hjallabraut, á iostudagskvöldið og um nóttina. Bifreið á leið úr Reykjavík var um kl. 20 ekið á umferðamerki og upp á umferð- areyju með þeim afleiðingum, að hún valt. Tvennt var í bílnum og skarst kona talsvert á fótum. Bifreiðin er mikið skemmd. Um tvöleytið um nóttina var svo bifreið á leið úr Reykjavík ekið á sama umferðamerki, sem reist hafði verið við. Bif- reiðin lenti á umferðaeyjunni og valt á miðri götunni. Fimm manns voru í bílnum, sem er mikið skemmdur, en engann sakaði. A um hálfum mánuði hefur fjórum bifreiðum verið ekið á þetta sama umferðarmerki og síðan upp á umferðaeyjuna með þeim afleiðingum að þeir ultu. VutOþfTíA i VfGGt Foreldrafélag Grænuborgar efndi í gærdag til mót- mælafundar fyrir utan Alþingishúsið til að mótmæla niðurskurði á fjárlagafrumvarpinu til byggingar nýrrar Grænuborgar. Foreldrarnir tóku börnin sem á Grænuborg dveljast með, og þau lágu ekki á liði sínu, veifuðu mótmælaspjöldunum og kölluðu „Við viljum nýja Grænuborg", með foreldrum sínum. Sjá mið- Opnil. Ljósmynd Mbl. ÓI.K.M. Ákvörðun um efnahagsráðstafanir í dag: Peninga úr bankakerfinu, lækk- un skattbyrði og gengisbreyting - meðal hugmyndanna til að koma fótum undir atvinnulífið á ný Á ríki.sstjórnarrundi, sem haldinn verður árdegis í dag, veróa sennilega, ad sögn forsætisráðherra, teknar ákvarðanir um aðgerðir í efnahagsmálum. Aðgerðir þessar munu samkvæmt heimildum Mbl. fela í sér breytingu á gengisskráningu og ráðstafanir til að lagfæra rekstrargrundvöll atvinnufyrirtækja. Mest hefur verið rætt innan stjórnarliðsins um að ná peningum úr bankakerfinu, sem þeir telja hafa safnast þar upp vegna gengismismunar og í formi vaxta og refsivaxta á lánum til atvinnufyrirtækja. I»á hefur einnig verið rætt um lækkun skattabyrði fyrirtækja og fleira. Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra, Steingrímur Hermanns- son formaður Framsóknarflokksins og Svavar Gestsson formaður Al- þýðubandalags sátu fund í gær vegna þessa máls. Gunnar Thor- oddsen sagði aðspurður í viðtali við Mbl., að fjögurra manna nefnd hefði haft málið til meðferðar og gert tillögur um ráðstafanir til að greiða fyrir þeim atvinnurekstri sem ætti í sérstökum erfiðleikum. Meðal nefndarmanna er Lúðvík Jósepsson. Aðspurður um hvort hann hefði ekki lýst því yfir að gengisfelling væri ekki rétta leiðin úr efnahagsógöngunum, svaraði forsætisráðherra: „Ég hef alltaf sagt um þessi mál, að matið á því hvort eigi að breyta gengi krónunn- ar er fyrst og fremst í höndum Seðlabankans, það er hans verkefni samkvæmt lögum. Því aðeins að hann geri tillögu um breytingu kemur málið til ríkisstjórnarinnar. Þetta hefur verið mín afstaða. Ann- ars kemur mál þetta til umræðu á morgun." Hann sagði málið senni- lega verða afgreitt á fundinum. — Hefur komið tillaga um geng- isfellingu frá Seðlabankanum? — Þú verður að spyrja hann um það,“ svaraði forsætisráðherra. Jóhannes Nordal Seðlabanka- Þrýstingur á að-, gerðir innan ASI SAMNINGANEFNDIR Alþýðusam bandsins og vinnuveitenda hittast á fundi hjá sáttasemjara í dag, en þessa viku eru einnig ákveðnir fundir með sérsamböndum og féiögum innan ASÍ. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins eru ýmsir áhrifamenn innan verka- lýðshreyfingarinnar farnir að þrýsta á um aðgerðir og mun m.a. hafa verið rætt um yfirvinnubann. Benda þeir á, að enn s sé lítið farið að ræða kröfurn- ar efnislega og nauðsynlegt sé að grípa til aðgerða til að þrýsta á um samn- ingsgerð. I gær voru fundir hjá sáttasemj- ara í kjaradeilum bókagerðarmanna og blaðamanna. Guðlaugur Þor- valdsson, ríkissáttasemjari, sagði í gær, að mikil áherzla yrði lögð á samninga þessara hópa í vikunni, en bókagerðarmenn hafa boðað verkfali frá og með næstkomandi laugardegi en Félag prentiðnaðarins hefur boð- að verkbann á bókagerðarmenn og blaðamenn frá næstkomandi þriðju'- degi. Á fundi í stjórn, trúnaðarmanna- ráði og samninganefnd Blaðamanna- félags Islands í gærkvöldi var tekin ákvörðun um að boða til verkfalls frá og með föstudeginum 20. nóv- ember. í gær voru fundir hjá sáttasemj- ara með vinnuveitendum og Verka- mannasambandi íslands, Lands- sambandi verzlunarfólks og Lands- sambandi iðnverkafólks. Fundurinn um kröfur VMSÍ var langur og eru viðræður nokkuð komnar af stað, og hjá verzlunarmönnum var skipuð undirnefnd til að fjalla um ýmis sérmál. stjóri sagði, er Mbl. spurði hann hvort slíkar tillögur hefðu verið gerðar. „Seðlabankinn er ekki van- ur að gefa upplýsingar um tillögur, sem sendar eru ríkisstjórn fyrr en ríkisstjórnin hefur haft tíma til að fja.Ha um þær.“ Steingrímur Hermannsson for- maður Framsóknarflokksins var spurður hvort hann hefði í ræðu sinni á Fiskiþingi í gær verið að boða gengisfellingu. Hann svaraði: „Ég sagði þar að það yrðu gerðar nauðsynlegar ráðstafanir. Þú verð- ur svo að lesa milli línanna." Hann sagði einnig að hægt væri að gera margt til að draga úr gengisfell- ingarþörfinni og nefndi sem dæmi að draga mætti úr því sem færi inn í bankana, minnka gróða þeirra, eins og hann orðaði það. Svavar Gestsson formaður Al- þýðubandalagsins staðfesti í sam- tali við Mbl. að ráðherrar Alþýðu- bandalags hefðu í gær fengið um- boð síns þingflokks til að sam- þykkja nauðsynlegar efnahagsað- gerðir, á sama hátt og ráðherrar framsóknar hefðu fengið hjá sínum þingflokki. Hann sagði alþýðu- bandalagsmenn hafa ákveðin sjón- armið varðandi hagnað banka- kerfisins og sérstaklega Seðla- bankans og hvernig hægt væri að hagnýta þann hagnað útflutnings- atvinnuvegunum til góða. Svavar sagði einnig að engar ákvarðanir lægju fyrir um það til hvaða ráða yrði gripið. „Þetta verður rætt á ríkisstjórnarfundinum og ég vil ekkert um það segja hver ákvörðun- in verður," sagði hann í lokin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.