Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981 3 Kevin Jakobsen og Gabrielle Voigt. Ljósm. Mbl. (iunnar llallsson. Flateyri: Meðlimir írskrar trúarreglu setja upp beitningarvél í DAG var verið að Ijúka við að setja niður beitningarvél í vélbát- inn Sif frá Flateyri. Það er vél- smiðjan Mjölnir hér í Bolungarvík sem annast hefur það verk. Vélin er hönnuð og þróuð hjá Irskri Rómversk-kaþólskri trú- arreglu sem kallast „Mary’s Followers of the Cross", sem að- setur hefur rétt utan við Galway á vesturströnd Irlands. Trúarregla þessi er miklu opnari en almennt gerist um slíkar reglur, t.d. eru í henni bæði karlar og konur, og reglan starfar í tveimur fylkingum, annarsvegar þeirra sem lifa utan klausturs. Tveir af meðlimum reglunnar komu hingað til að hafa umsjón með niðursetningu vélanna, það voru þau Kevin Jakobsen, dansk- ur að uppruna og einn af stofn- endum reglunnar, en hann er að- almaðurinn á bak við þessa beitningarvélaruppfinningu, og með honum hér er ung stúlka, Gabrielle Voigt, sem einnig er meðlimur reglunnar. Hennar helsta hlutverk hér var að skrá niður ýmsar upplýsingar sem að gagni mætti koma við áfram- haldandi þróun vélarinnar. Beitningarvél þessi er í þremur megin þáttum. Fram við dráttarkallinn er slítari, ekki ósvipaður þeim sem við eigum að venjast hér, en þeg- ar línan er dregin gengur hún eftir stokk á dekkinu og í nokk- urs konar uppstokkara, sem gengur frá línunni í svokölluð „magasín". í hverju „magasíni" eru 200 krókar, sem er helmingi minna en í venjulegum bala. Þegar línan er lögð eru þessi „magasín“ sett við beitningar- vélina, sem staðsett er aftast á bátnum og beitunni, sem skorin er í sérstakri vél, er hellt í beitn- ingarvélina um leið og línan er keyrð út. I þeim reynsluferðum, sem farnar hafa verið reyndist beitningarvélin og allt henni fylgjandi mjög vel t.d. beitti hún á um og yfir 90% önglanna á línunni. Guðbjörn Sölvason skipstjóri á m/b Sif kvaðst vera bjartsýnn á að þessi vél kæmi til með að reynast vel. Hann gerði ráð fyrir að byrja með um 30 bala eða 60 „magas- ín“ og þeir yrðu 6 á sem er 4 til 5 mönnum færra en gamla aðferð- in heimti. Hann gerði ráð fyrir að í vetur yrði um tveggja sólarhringa úti- veru að ræða en lengri á sumrin. Þetta er fyrsta beitningarvélin frá þessari írsku trúarreglu sem sett er í íslenskan fiskibát. Gunnar Gabrielle við beitningarvélina um borð í Sif. FulL búð at nýjum vörum t.d. reiðbuxur — flauel, denim — peysur — skyrtur — Vattúlpur — vattbuxur og margt margt fleira Barna vatt-sett Húfa — úlpa — buxur — vettlingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.