Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÖJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981
Soldatov sviptur
borgararétti og
rekinn úr landi
Slokkhólmi, 9. nóvomlHT, Al*.
YFIRVÖLI) í Sovélríkjunum hfa svipt Sergei Stoldaov, 48 ára verkfræðing
frá Tallin í Kisllandi og einn af leiðtogum baráttunnar fyrir mannréttindum
í Sovétríkjunum, og konu hans ríkisborgararétti og neytt þau til að flytjast úr
landi.
Soldatov, sem nú er á fyrirlestr-
aferð í Svíþjóð, sagði við frétta-
menn, að yfirvöld hefðu óttast að
heimili hans yrði einhvers konar
miðstöð mannréttindabaráttunn-
ar í Sovétríkjunum, og því talið
öruggast að reka sig úr landi.
Sagði Soldatov að það hefði ver-
ið honum á móti skapi að fara úr
Skutu niður
angólskar
flugvélar
Lissabon, 9. nóvember. AP.
PEDRO Maria Tonha, varnarmála
ráðherra Angóla, heldur því fram í
frétt sem angólska fréttastofan Ang-
op sendi hingað í dag, að tvær suð-
urafrískar orrustuþotur af gerðinni
Mirage III C2 hefðu skotið niður
angólskar herflugvélar 200 kíló-
metrum innan við landamæri Ang-
óla og Namibíu.
Að sögn fréttastofunnar átti
þetta atvik sér stað á föstudag í
námunda við borgina Mulondo í
Angóla. Er þetta í fjórða sinn sem
yfirvöld í Angóla saka Suður-
Afríkumenn um aðgerðir af þessu
tagi frá því 4. september síðastlið-
inn, en þá drógu herir S-Afríku
sig til baka frá Angóla eftir innrás
fjölmenns liðs í ágústlok, sem gerð
var með því markmiði að eyði-
leggja stöðvar skæruliða SWAPO.
landi, hann hefði kosið að berjast
fyrir málstað sínum innan Sovét-
ríkjanna.
„Eftir að ég var látinn laus i
október í fyrra, tók ungt fólk alls
staðar að úr Sovétríkjunum, jafn-
vel frá Moskvu og Leningrad, að
flykkjast til heimilis míns í Tallin
til að kynna sér mannréttindabar-
áttuna í Sovétríkjunum og starf-
semi andófsmanna," sagði Solda-
tov.
Soldatov sagði ennfremur, að
andúð í garð stjórnvalda í Sovét-
ríkjunum hefði farið vaxandi hin
síðustu misseri, og hefði þróun
mála í Póliandi haft mikil áhrif
þar á. Jafnframt hefðu tilraunir
sovézkra yfirvalda til að þagga
niður í andófsmönnum og mann-
réttindabaráttumönnum mistek-
ist.
Soldatov var tekinn fastur í
marz 1975 ásamt fjórum öðrum
andófsmönnum og hafður í haldi á
geðveikrahælum, þar sem honum
var misþyrmt mörgum sinnum. í
október sama ár var hann dæmd-
ur til sex ára vinnuþrælkunar, en
var látinn laus eftir fimm ára vist
í fangelsi. Var Soldatov sakaður
um að hafa samið og sent bréf til
Sameinuðu þjóðanna, þar sem
þess var krafist að Eistland hlyti
sjálfstæði á ný, en landið var inn-
limað í Sovétríkin 1940.
Sonur Soldatovs, sem er 23 ára,
hefur ekki fengið að fara úr landi
til foreldra sinna, en hann var ný-
verið látinn laus úr haldi, eftir að
hafa setið fimm ár í fangelsi fyrir
sakir sem lognar voru upp á hann.
Palestínsk vopn
afhent á ítalfu
('agliari, Sardiníu, 9. nóv. Al'
TVEIR menn úr Rauðu herdeildun-
um á Ítalíu segjast hafa fengið véh
byssusendingu frá palestínskum
skæruliðum samkvæmt dómskjöl-
Mennirnir, Carlo Bozzo og Gian-
luigi Cristani, sem eru ákærðir
fyrir þátttöku í undirróðursfélagi,
sögðu saksóknaranum Leonardo
Bonsignore að þeir hefðu hitt að
máli nokkra andófsmenn úr Frels-
issamtökum Palestínu (PLO) í
Mestre, skammt frá Feneyjum.
Bozzo og Cristiani fengu vopn í
Méstre og fluttu þau í ferðatösk-
um til Genúa í nokkrum járn-
brautarferðum.
„Yassir Arafat og aðrir leiðtog-
ar PLO voru því andvígir að út-
vega Rauðu herdeildunum vopn,“
sagði Cristiani rannsóknar-
mönnum. „En innan samtakanna
var viss hópur bæði lágt og hátt
settra starfsmanna og yfirmanna
sem voru hlynntir því.“ Hann
sagði að leiðtogar PLO hefðu ekki
vitað um hergagnasendingarnar.
Italska hryðjuverkalögreglan
hefur lengi haft grun um að
Rauðu herdeildirnar fái hergögn
frá palestínskum hópum.
Patrizzio Peci, fyrrum yfirmað-
ur Torino-deildar Rauðu herdeild-
anna sem nú hefur samstarf við
lögregluna, sagði í febrúar að leið-
togi Rauðu herdeildanna, Mario
Moretti, hefði farið í seglbáti til
Líbanons til að sækja sprengiefni
og vopn frá PLO. Þá neitaði
skrifstofa PLO í Róm að hún væri
í nokkrum tengslum við Rauðu
herdeildirnar.
Bozzo og Cristiani eru vitni í
réttarhöldum tveggja meintra
liðsmanna Rauðu herdeildanna,
sem eru ákærðir fyrir skotárásina
í járnbrautastöðinni í Cagliari í
febr. 1980 þegar einn slasaðist.
Það slys vildi til á flugvelli skammt fyrir utan Hamborg í VesturÞýzkalandi í síðastliðinni viku, að þegar verið
var að lesta vörur um borð í „Super Guppy“-flutningaflugvél hrundi trjóna flugvélarinnar af hjörunum, ef svo
má að orði komast, og hlammaðist niður á malbikið, eins og þessi mynd ber með sér. Verið var að skipa
flugvélahlutum um borð í flutningaflugvélina er fara áttu tii Airbus-samsetningarverksmiðjanna í Toulouse í
Frakklandi, þar sem Airbus-farþegaþotur eru settar saman.
Kommúnistar teknir
fastir 1 Egyptalandi
Kaíró, 9. nóv. AP.
YFIRVÖLD í Egyptalandi
hafa handtekið 65 félaga úr
tveimur neðanjarðarsamtök*
um kommúnista fyrir tilraun
til að kollvarpa ríkisstjórn*
inni að sögn málgagns
egypzka stjórnarflokksins.
Blaðið sagði að hinir handteknu
hefðu aukið starfsemi sína að und-
anförnu þar sem þeir hefðu talið
að yfirvöld væru önnum kafin
vegna öryggis-ástandsins í kjölfar
morðsins á Anwar Sadat forseta.
Neðanjarðarsamtök þau, sem
hér um ræðir, eru egypzki
kommúnistaflokkurinn og egypzki
kommúnista- og verkamanna-
flokkurinn. Flokkar sem predika
kommúnisma eru bannaðir í
Egyptalandi.
I árásum á felustaði kommún-
ista var hald lagt á prentvélar,
skjöl með nöfnum félaga úr sam-
tökunum og fundargerðir auk
bæklinga með áskorunum um upp-
þot gegn stjórnvöldum. í bækling-
unum voru Egyptar einnig hvattir
til að hafna Camp David sam-
komulaginu.
Egypzki kommúnista- og verka-
mannaflokkurinn kom á fót bylt-
ingarnefndum til undirbúnings
vopnaðri baráttu fyrir stofnun
„lýðræðislegs alþýðulýðveldis" í
Egyptalandi og endurreisn náinna
tengsla við Sovétríkin.
Hinir handteknu eru sagðir
hafa játað að hafa fengið það
verkefni að safna upplýsingum um
dvalarstaði áhrifamanna til und-
irbúnings morðum á þeim og um
mannvirki til undirbúnings
skemmdarverkum. Meðal þessara
áhrifamanna voru leiðogar Mú-
hameðstrúarmanna og kristinna
Kopta og meðal mannvirkjanna
bænahús og kirkjur. Tilgangurinn
var sagður sá að æsa til trúar-
deilna.
Will Durant
látinn, 96 ára
Lom Angcles, 9. nóv. AP.
WILL IHIRANT, sem í hálfa öld
vann að riti sínu „Saga siðmenn-
ingarinnar** í ellefu bindum, lézt á
laugardaginn, 96 ára að aldri, tæp-
um hálfum mánuði eftir lát eigin-
konu sinnar og samstarfskonu, Ari-
el.
Durant hefur legið í sjúkrahúsi
17 ára íri drepinn
með sprengju í bíl
Keira.Nl, 9. nóv. AP.
ÍRSKI lýðveldisherinn (IRA) sagði í
dag að liðsmenn hans hefðu drepið
17 ára mótmælanda „óviljandi" með
sprcngju, scm komið var fyrir í bfl
föður hans í Lisnadill, skammt frá
landamærum írska lýðveldisins.
Tók bátinn traustataki og
sigldi frá Nígeríu til Noregs
(>«ló, 9. nóvember, frá Jan Krik Laure fréllaritara Mbl.
NORSKUR skipstjóri tók fiskibát í Nígeríu traustataki fyrir skömmu og
sigldi honum til Noregs og þar krefst hann 300 þúsund króna lausnar-
gjalds fyrir bátinn.
Skipstjórinn heldur því fram,
að útgerðaraðilarnir í Nígeríu
hafi ekki greitt sér og áhöfn
sinni laun að upphæð 300 þúsund
norskra króna. Segist hann orð-
inn uppgefinn á því að reyna að
fá leiðréttingu mála sinna og því
gripið til þessa úrræðis.
A bátnum eru bæði norskir
menn og Nígeríumenn, og þegar
þeir síðarnefndu urðu þess
áskynja að skipstjórinn hafði
tekið bátinn traustataki og
stefndi til Noregs, ætluðu þeir að
varpa honum fyrir borð og taka
við stjórninni, en hættu við þau
áform sín er skipstjórinn sagði
þessa ráðstöfun gerða í þeim til-
gangi að kreista út laun fyrir
áhöfnina.
Báturinn er smíðaður í Noregi,
en opinberir aðilar í Nígeríu
hafa tekið við rekstri hans og
fleiri skipa af þessu tagi. Skip-
stjórinn hefur skotið málinu til
norskra dómstóla og krefst þess
að fá tryggingu fyrir laununum,
en fulltrúi útgerðaraðilanna er
kominn til Oslóar og krefst þess
að bátnum verði skilað þegar í
stað og kvaðalaust.
Skömmu áður hafði mótmæl-
andaleiðtoginn séra Ian Paisley
fordæmt hið nýja samstarfsráð
Breta og Ira, hrósað mótmæla-
göngu öfgasinnaðra mótmælenda
á laugardaginn og lýst yfir: „Þetta
er bara byrjunin."
Unglingurinn steig inn í bíl föð-
ur síns og þegar hann ók af stað
varð sprenging að sögn lögregl-
unnar. IRA segir að skæruliðar
hafi drepið hann í misgripum
fyrir föður hans. Hann var fluttur
í sjúkrahús, en var látinn þegar
hann kom þangað.
Faðir hans er hermaður í Varn-
arsveitum Úlsters (UDF). Bróðir
unglingsins er í varalögreglunni.
Thomas OFiaich kardináli, yfir-
maður kaþólskra manna á öllu ír-
landi og yfirmaður anglíkönsku
kirkjunnar á írlandi, John
Armstrong, biskup í Armagh, for-
dæmdu árásina harðlega.
Alls hafa 45 óbreyttir borgarar
verið drepnir á Norður-írlandi á
þessu ári og a.m.k. 2.156 hafa fall-
ið síðan 1969.
í nokkrar vikur og virðist hafa lát-
izt án þess að vita um dauða konu
sinnar 25. okt. Þau hefðu átt 68
ára brúðkaupsafmæli 31. okt. Frú
Durant var aðeins 15 ára þegar
hún giftist.
Flestir lesendur Durants töldu
hann heimspeking, en hann leit á
sig sem sagnfræðing. Nokkrir
gagnrýnendur töldu „Sögu sið-
menningarinnar" frábærasta
sagnfræðiverk þessarar aldar.
Durant-hjónin luku ævistarfi
sinu með æviminningum 1977 og
Durant sagði oft á síðari árum að
hann væri viðbúinn dauðanum. Á
síðari árum átti Durant í kapp-
hlaupi við tímann, því að hann
vildi ljúka hinu mikla verki sínu
áður en hann létist.
Ritið átti upphaflega að vera 10
bindi. Tíunda bindið, „Rousseau og
bylting", kom út 1966 og fyrir það
fékk hann Pulitzer-verðlaunin.
Síðan samdi hann 11. bindið, „Öld
Napoleons", 1975.
Upphaflega samdi Durant bæk-
ur sínar einn, en þegar kom fram í
sjöunda bindi var orðið ljóst að
hjálp konu hans Var svo mikil að
hennar er einnig getið sem höf-
undar síðustu bindanna.
Durant var á þrítugsaldri, aura-
laus kennari og greinahöfundur,
þegar hann fór að viða að sér efni
í meistaraverk sitt.
Hann sendi ekki frá sér fyrstu
bókina fyrr en hann var fertugur.
Sú bók, er hét „Saga heimspekinn-
ar“, náði gífurlegum vinsældum
og seldist í milljónaupplagi. Það
gerði honum kleift að helga sig
sagnfræði eingöngu það sem eftir
var ævinnar og hann losnaði við
fjárhagsáhyggjur.
Saga Forn-Grikkja og Róma-
veldis eftir Will Durant hafa kom-
ið út í ísl. þýðingu.