Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981 23 r • Hnefalcikakappjnn Larry Holmes varði heimsmeistaratitil sinn um síd- ustu helgi. Hér er Larry Holmes (t.v.) að keppa á móti Ali og hefur greinilega betur. Holmes er stundum nefndur rotarinn, því ad þad verður að teljast til undantekninga ef hann rotar ekki mótherja sína. Holmes varði titilinn létt LARRY Holmes vardi um helgina heimsmeistaratitil sinn í þungavigt er hann baróist við landa sinn Rein- aldo Snipes í Pittsburgh í Pennsyl- vaníu. Holmes vann á tæknilegu rot- höggi í elleftu lotu, en minnstu mun- aði að hann yrði rotaður í sjöundu lotu er Snipcs kom á hann öflugu höggi og sendi hann í gólfið. Með þessum sigri hefur Holmes varið heimsmeistaratitil sinn (WBC) ellefu sinnum og í tíu skipti hefur hann unnið með rot- höggi. Hefur Holmes jafnframt unnið 39 sigra í röð í hnefaleika- keppni. Snipes tapaði hér fyrstu viðureign sinni eftir 22 sigra í röð. Fyrir sigur í þessari keppni fékk Holmes 1,1 milljón dollara í sinn hlut, en Snipes „aðeins" 150 þús- und dollara. Að mati World Box- ing Council, annarra tveggja sam- taka hnefaleikamanna, er Snipes sjöundi bezti þungavigtarhnefa- leikari í heiminum. Næsta viðureign Holmes, sem varð 32 ára fyrir viku, verður í mars næstkomandi er hann mun etja kappi við Gerry Cooney, þar sem hann á möguleika á að hljóta tíu milljónir dollara í sigurlaun. Rúmt mark á mínútu - þegar Þór sigraöi Reyni 35-26 Á FÖSTUDAGINN sótti Reynir, Sandgerði, Þór heim í 3. deildar keppninni í handknattleik, og er óhætt að segja að Þórsarar hafi ekki sýnt þcim mikla gestrisni, en þeir sigruðu þá örugglega 35—26 eftir að þeir höfðu leitt 11—13 í hálfleik. Um fyrri hálfleikinn er best að hafa sem fæst orð því hann var vægast sagt mjög slakur af beggja hálfu og var handboltinn sem leik- inn var af mjög skornum skammti. Það lifnaði heldur yfir leiknum í seinni hálfleik og voru Þórsararnir mun ákveðnari og juku jafnt og þétt forystu sína leikinn út í gegn. Sóknin var ágæt af beggja hálfu í seinni hálfleik en það sama er ekki hægt að segja um varnirnar, en menn gátu geng- ið svo að segja óhindrað út og inn um þær að vild. Mörk Þórs: Guðjón Guðmunds- son 7(3v), Sigurður Pálsson 5, Árni Stefánsson 5, Sigtryggur Guðlaugsson 4(2v), Rúnar Stein- grímsson 4, Gunnar Gunnarsson 3, Einar Árnason 3, Árni Gunnarsson 2, Sölvi Ingólfsson 1 og Örn Guðmundsson l(lv). Mörk Reynis: Guðmundur Á. Stefánsson 8(6v), Daníel Einars- son 5, Hólmþór Morgan 4, Heimir Morthensen 3, Eiríkur Benedikts- son 2, Sigurður Guðnason 1, Sig- urður Sumarliðason 1 og Kristinn Árnason 1. — re Lofsverð frammistaða Þróttara þrátt fyrir tap „ÉG VERÐ að segja eins og er, að ég átti von á því að Norðmennirnir ynnu okkur með meiri mun. Þetta gekk betur og munurinn varð minni en ég átti von á,“ sagði Gunnar Árnason, annar tveggja leikreyndustu blakmanna Þróttar eftir viðureign Þróttar og KFUM frá Osló í Evrópukeppninni í blaki í Hagaskólanum á laugardag. Viðureign liðanna lauk á þann veg að Norð- mennirnir unnu þrjár hrinur í röð og þar með sigur í leiknum, en Þróttarar veittu útlendingunum harða og verðuga keppni, og sýndu að þátttaka þeirra í Evrópukeppninni á fullan rétt á sér. Það var fyrirfram við því búist að Oslóarliðið færi með sigur í þessum leik, og flestir áttu von á auðveldum og stórum sigri þeirra, enda hér á ferðinni bezta lið Nor- egs, en þar er þessi íþróttagrein vinsæl og útbreidd. En Þróttarar komu ákveðnir til leiks og létu aldrei deigan síga, börðust vel út hverja hrinu og hvöttu hvorn annan. Auk þess voru þeir vel studdir af rúmlega tvö hundruð manns sem sáu viður- eignina í Hagaskólanum. I fyrstu hrinunni var lengst af jafnræði með liðinum, sjá mátti á töflunni tölur eins og 9:9 og 10:9 en Norðmennirnir áttu góðan enda- sprett og sigruðu 15:12. Frammi- staða Þróttara í þessari hrinu var betri en flestir höfðu reiknað með. I annarri hrinu tókst Norð- mönnum vel upp, en miður gekk hjá Þrótturum og lauk þessari hrinu með 15:7 sigri Norðmanna. í þriðju hrinunni voru Þróttarar betri aðilinn alveg fram undir lok- in, léku skemmtilega og komu gestunum hvað eftir annað í opna skjöldu með skemmtilegum leik, enda ákveðnir í að vinna hrinuna svo Norðmennirnir ynnu ekki 3:0. Þróttarar komust í 2:0 i þriðju hrinunni, en þá skora Norðmenn fjórum sinnum í röð og komast í 4:2. Þróttarar létu ekki deigan siga, jöfnuðu og komust síðan yfir. Höfðu þeir síðan frumkvæðið og komust um tíma í 9:7, og seinna var staðan 10:10. Norðmenn kom- ust í 12:11 og áttu síðan síðasta orðið, skoruðu þrisvar í röð og unnu hrinuna með 15:11. Þar með var leiknum lokið með sigri Nroðmanna, en það verður að segjast eins og er, að Þróttarar stóðu sig með miklum sóma í leiknum, börðust jafnan vel og sýndu fram á að tæknilega standa íslenzkir blakmenn sízt að baki Norðmönnum. Norðmennirnir þurftu að hafa fyrir sigri í hrinun- um, gátu ekki leyft sér að leika af rósemi eða spara sínar sterku hliðar, eins og oft á við þegar út- lend keppnislið heimsækja land- ann í keppnum af þessu tagi. Hér verður ekki farið út í þá sálma að draga leikmenn í dilka, en að öðrum ólöstuðum má þó halda því fram að Þróttarar kom- ust langt á góðum leik sinna tveggja leikreyndustu manna, þeirra Gunnars Árnasonar og Guðmunds E. Pálmasonar. Allir leikmenn Þróttar stóðu sig þó vel og lögðu sig fram um að gera hlut síns félags sem stærstan. I norska liðinu voru ívið hærri leikmenn, meðalhæð þeirra tíu sentimetrum meiri en meðalhæð leikmanna Þróttar. Ekki er hægt að segja að þessi munur hafi gert útslagið, því á stundum mátti sjá lægstu menn vallarins, suma Þróttara, verja og skora úr hávörn eftir skot stærstu manna Norð- manna. Seinni viðureign liðanna fer fram í Noregi síðar í vetur og verður að ætla að Norðmennirnir fari þar með sigur af hólmi, en miðað við frammistöðu Þróttara í Hagaskólanum, má ætla að Norð- menn verði að hafa fyrir því að komast áfram í þessari keppni. FRÍ fær boö á tugþrautamót BREZKA frjálsíþróttasambandið hefur boðið Frjálsíþróttasambandi íslands að senda nokkra tugþraut- armenn á brezka meistaramótið í fjölþrautum á næsta ári. Mótið er jafnan haldið í júlímánuði og hentar okkar tugþrautarmönnum einkar vel. Það hefur jafnan verið opið út- lendingum og oft hafa verið þátttak- endur frá öðrum þjóðum í þessu móti. Má með góðum rökum segja, að þátttaka í móti af þessu tagi sé hentugri og sniðugri en að stofna tit landskeppni í fjölþrautum. Það er i höndum FRI hversu margir þátttakendur verða sendir til mótsins, en sambandið er skuld- bundið til að senda a.m.k. fjóra menn til landskeppni og ef einhver okkar beztu tugþrautarmanna á við meiðsl að stríða þegar keppni af því tagi skal fara fram, höfum við ekki miklu til að tjalda. Knattspyrnan á Spáni: Barcelona tapaði MIKIL spenna er nú í 1. deild knattspyrnunnar á Spáni. Lítið skil- ur á milli fimm efstu liðanna í deild- inni. Lið Barcclona tapaði nokkuð óvænt fyrir liði Sevilla um helgina, 2—1. Og tókst því ekki að ná foryst- Hercules — Castellon Sevilla — Barcelona Atl. Madrid — Racing 2-2 2-1 0-0 Real Valladolid — Sociedad 2—1 Staða efstu liðanna: • Guðmundur Árni Stefánsson fyrr unni í deildarkeppninni. l'rslit leikja Real Sociedad 9 6 2 1 18-7 14 um handknattleiksmaður úr FH urðu þessi: Barcelona 9 6 12 24-9 13 þjálfar nú lið Reynis. Jafnframt leik- Atl. Bilbao — Real Madrid 1-2 Caraboza 9 5 3 1 14-9 13 ur Guðmundur með liðinu og skorar Osasuna — Real Betis 0-1 Real Madrid 9 5 2 2 13-9 12 mikið af mörkum. Espanol — Cadiz 1-0 Hercules 9 4 2 3 18-13 10 Valencia — Las Palmas 3-2 Valencia 9 4 2 3 14-11 10 Zaragoía — Sporting Gijon 1-1 Atl. Madrid 9 4 1' 1 12-9 9 HanflknatlielRur) Staðaní 3. deild STAÐAN í 3. deild íslandsmótsins í handknattleik að loknum leikjum helgarinnar er nú þessi: Reynir náði í tvö stig Þór AK. Ármann Grótta Keflavík Reynir S. Akranes Dalvík Selfoss Skalla-Grímur.3 0 0 Ögri 4 0 0 190—156 13 123—88 8 114—103 132—96 147—150 112—81 164-177 62—87 50—91 64—129 0 REYNIR Sandgerði bar sigurorð af Dalvíkingum í þriðju deildinni í handbolta er liðin áttust við í íþróttaskemmunni á Akureyri á laugardaginn. Reynismenn skoruðu 25 mörk en norðanmenn svöruðu 20 sinnum. Leikurinn var í jafnvægi lcngst af og var staðan í hálfleik 14 mörk gegn 12 Reyni í vil. Dalvík komst 2 mörk yfir strax í byrjun leiksins en síðan tóku gest- irnir forystuna og héldu henni allt til loka leiksins. Munurinn varð aldrei verulegur og þegar örfáar mínútur voru eftir var Reynir einu marki yfir 21:20 og allt í járnum. En þá sprungu Dalvíkingar á limminu og Reynismenn skoruðu 4 síðustu mörkin og tryggðu sér sig- urinn. Mörkin skiptust þannig: Dalvík: Stefán Georgsson 5, Jón Emil Ágústsson, Björn Friðþjófs- son og Aðalsteinn Gottskálksson skoruðu þrjú mörk hver, Einar Emilsson gerði tvö og eitt gerðu Einar Arngrímsson, Júlíus Við- arsson, Björgvin Hjörleifsson og Oli Már Guðmundsson. Guðmundur Árni Stefánsson skoraði mest fyrir Reyni eða 6 mörk, fjögur mörk skoruðu Sig- urður Guðnason, Hólmþór Morg- an, Daníel Einarsson og Heimir Morthens, og eitt mark skoruðu þeir Eiríkur Benediktsson, Valgeir Sverrisson og Sigurður Sumar- liðason. Leikinn dæmdu Guð- mundur Lárusson og Jón Hensley. — sh

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.