Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981
Kæra til félagsmálaráðuneytis
vegna meðferðar bæjar-
stjórnar á reikningum BUH
eftir
Árna Grétar Finnsson
og Einar Þ. Mathiesen
Morgtinblaðinu hefur borist til
birtingar kæra Árna Grétars Finns-
sonar og Einars l>. Mathiesen, bæj-
arfulltrúa í Hafnarfirði, til félags-
málaráðuneytisins vegna meðferðar
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á reikn-
ingum BÚH fyrir árið 1980. Kæran
fer hér á eftir í heild:
Til félagsmála-
ráðuneytisins,
Arnarhvoli
Keykjavík
Efni:
Kæra vegna meðferðar bæjarstjórnar
llafnarfjarðar á reikningum Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar fyrir árið 1980.
Á fundi bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar 13. október 1981 voru lagöir
fram til 1. umræðu reikningar Bæj-
arútgerðar Hafnarfjarðar fyrir árið
1980. Á þessum fundi lögðum við
undirritaðir bæjarfulltrúar fram
eftirfarandi tillögu:
„í tilefni þeirra athugasemda og
upplýsinga, sem bæjarfulltrúum
hafa borizt frá endurskoðanda bæj-
arins í endurskoðunarskýrslu með
ársreikningum og greinargerð hans í
framhaldi af þeirri endurskoðun-
arskýrslu um fjárreiður Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar á árinu 1980
og með vísan til ákvæða 3. kafla
sveitarstjórnarlaga, þá leggur bæj-
arstjórn áherzlu á, að mál þessi
verði upplýst að fullu. Bæjarstjórn
samþykkir því að fela bæjarstjóra og
bæjarendurskoðanda að athuga nán-
ar þau atriði, sem fram hafa komið
hjá bæjarendurskoðanda um fjár-
reiður bæjarútgerðarinnar. Enn-
fremur að láta nú þegar endurskoða
bókhald fyrirtækisins fyrir yfir-
standandi ár, eftir því sem tilefni
kunna að gefast til. Að athugun
þessari lokinni skulu þeir skila
skýrslu um málið til bæjarstjórnar,
ásamt tillögum um, hvernig með
skuli fara.
Bæjarstjórn leggur áherzlu á, að
athugun þessari verði hraðað, svo
sem frekast er kostur og lokið eigi
síðar en 1. desember næstkomandi.
Skulu bæjarstjóri og bæjarendur-
skoðandi kveðja til það aðstoðarfólk,
sem þeir telja nauðsynlegt, til þess
að verkið megi vinnast sem fyrst.
Jafnframt samþykkir bæjarstjórn
að fresta fyrri umræðu um reikn-
inga Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar
fyrir árið 1980, þar til niðurstöður
athugunarinnar liggja fyrir og til-
lögur að afgreiðslu."
Ástæður fyrir flutningi tillögunn-
ar voru þessar:
I fyrsta lagi teljum við, að ýmis
atriði, sem bæjarendurskoðandi hef-
ur gert athugasemdir við í reikning-
um og fjárreiðum bæjarútgerðarinn-
ar séu ekki nægjanlega upplýst og að
bæjarstjórn beri skylda til að afla
sér um þau fyllri upplýsinga, áðuren
reikningamir eru afgreiddir.
I öðru lagi fylgdu ekki reikningun-
um tillögur til bæjarstjórnar frá
bæjarendurskoðanda um úrskurð á
þeim athugasemdum, sem hann
hafði gert við reikningana, svo sem
57. grein sveitarstjórnarlaganna
mælir fyrir um.
Á bæjarstjórnarfundinum var
framangreindri tillögu okkar frestað
til næsta fundar, ásamt fyrri um-
ræðu um reikningana.
Á fundi bæjarstjórnar 27. október
1981, báru bæjarfulltrúarnir Stefán
Jónsson, Árni Gunnlaugsson, Hörð-
ur Zophaníasson, Rannveig Trausta-
dóttir og Andrea Þórðardóttir fram
eftirfarandi frávísunartillögu á áð-
urnefnda tillögu undirritaðra:
„í fundargerð útgerðarráðs frá 23.
október sl. kemur fram sú niður-
staða, eftir sameiginlega umfjöllun
útgerðarráðs og bæjarendurskoð-
enda um reikninga Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar fyrir árið 1980, að
bæjarendurskoðandi telur að full-
nægjandi grein hafi verið gerð við
aðfinnslum hans, vegna endurskoð-
unar hans fyrir árið 1980.
Með tilliti til þessara upplýsinga
telur bæjarstjórn tillögu þeirra
Árna Grétars Finnssonar og Einars
Þ. Mathiesen svo og breytingartil-
lögu Guðmundar Guðmundssonar
óþarfar og vísar þeim því frá.“
Þessi frávísunartillaga var sam-
þykkt að viðhöfðu nafnakalli með sjö
atkvæðum gegn þremur, en einn sat
hjá.
Þegar þessi úrslit lágu fyrir,
áskildum við undirritaðir okkur rétt
til að leita með mál þetta til félags-
málaráðuneytisins og gerum við það
hér með þessu bréfi.
Aðdragandi þessa máls hefur í
höfuðdráttum verið þessi: Viðendur-
skoðun á reikningum Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar fyrir árið 1980 hefur
bæjarendurskoðandi gert ýmsar at-
hugasemdir við reikninga og fjár-
reiður fyrirtækisins. Það hófst með
bréfi hans dagsettu 21. janúar 1981,
þar sem hann beinir fyrirspurnum í
16 liðum til forstjóra bæjarútgerðar-
innar. Því bréfi svarar forstjórinn
þann 26. janúar 1981. Með bréfi,
dagsettu 28. apríl 1981 til Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar óskar bæjar-
endurskoðandi skýringa á ýmsum
atriðum, varðandi reikninga og fjár-
reiður fyrirtækisins og eru fyrir-
spurnir hans settar fram í 18 liðum.
Skrifstofustjóri bæjarútgerðarinnar
svarar bæjarendurskoðanda með
bréfi dagsettu 15. maí 1981. Þann 21.
mai skilar bæjarendurskoðandi
endurskoðunarskýrslu með reikning-
um bæjarútgerðarinnar og í fram-
haldi af henni samþykkir útgerðar-
ráð reikningana fyrir sitt leyti.
Þann 6. ágúst 1981 skilar bæjar-
endurskoðandi til bæjarstjórnar
greinargerð í framhaldi af endur-
skoðunarskýrslunni, þar sem nánar
er fjallað um fjárreiður fyrirtækis-
ins. Eftir það fjallar útgerðarráð á
nokkrum fundum um athugasemdir
bæjarendurskoðanda, en gerir engar
tillögur til bæjarstjórnar um af-
greiðslu þeirra. Á fundi sínum 8.
október 1981 gerir útgerðarráð hins
vegar eftirfarandi ályktun um storf
bæjarendurskoðanda:
„Kndurskoðandi bæjarreikninga
hefur lagt mikla vinnu í endurskoðun
reikninga BÚH. Þau vinnuhrögð, sem
viðhöfð hafa verið eru ekki til þess
fallin að skapa einingu og samstarf um
fyrirtækið, heldur þvert á móti vekja
þau upp tortryggni og dylgjur um
stjórnendur þess og allt verkar það á
þann hátt að veikja fyrirtækið bæði út-
og innávið."
í tilefni af þessari ályktun útgerð-
arráðs ritar bæjarendurskoðandi
þann 21. október 1981 bæjarráði
bréf, þar sem hann segir meðal ann-
ars:
„f bókun þessari eru svo órökstudd-
ar dylgjur í minn garð, að ég tel alvar-
lega vegið að mínum starfsheiðri." Og
ennfremur: „f tilefni þessarar bókunar
útgerðarráðs krefst ég þess, að bæjar
stjórn lýsi yfir, að endurskoðun mín
hjá BÚH 1980 hafi verið framkvæmd
eftir settum reglum og venjum, ella sé
ég mig nauðbeygðan til að krefjast
rannsóknar.“
í þessu sama bréfi gefur bæjar-
endurskoðandi eftirfarandi skýr-
ingar á því, að hann hafi ekki gert
tillögur til bæjarstjórnar um úr-
skurð á athugasemdum sínum við
reikninga bæjarútgerðarinnar:
„Samkvæmt 57. gr. sveitarstjórn-
arlaga nr. 58/1961 er gert ráð fyrir
því, að endurskoðandi geri tillögu til
sveitarstjórnar um úrskurð á at-
hugasemdum sem upp hafa komið
við endurskoðun.
Þar sem fullnægjandi svör hafa
verið afar lengi að berast og sumum
athugasemdum enn í dag ósvarað,
hef ég ekki séð mér fært til þessa að
leggja fram fyrir bæjarstjórn tillög-
ur að úrskurði.
í fundargerð útgerðarráðs frá 8.
okt. sl. kemur fram, að útgerðarráð
telji sig vera búið að úrskurða þau
atriði, sem ég hefi óskað eftir að tek-
in yrðu til afgreiðslu. Þarna er ekki
rétt með staðreyndir farið, því ekki
hefur verið tekin afstaða til allra
þeirra atriða, sem ég hefi lagt fram,
t.d. óuppgert tjón vegna bv. Apríl."
Síðar í bréfinu segir bæjarend-
urskoðandi: „Því er það mín tillaga
að til fyrirtækisins verði ráðinn
maður sem hefði fjármál fyrirtækis-
ins að sérsviði."
Tveimur dögum eftir að bæjarend-
urskoðandi skrifar þetta bréf, boðar
útgerðarráð hann á sinn fund, eða
þann 23. október 1981. Þar er gerð
eftirfarandi bókun:
„1. Viðskiptamenn Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar:
Þar sem hreyfing er komin á þau
mál með bréfi skrifstofustjóra dags.
29. sept. sl. til bæjarendurskoðanda,
telur útgerðarráð og bæjarendur-
skoðandi að málið sé í eðlilegum far-
vegi.
2. Tjónamál:
Framkvæmdastjóri hefur gert
bæjarendurskoðanda grein fyrir
stöðu tjónamála bv. Apríl hjá Trygg-
ingamiðstöðinni hf. Von er á bréfi frá
Tryggingamiðstöðinni varðandi
tjónabætur. Telur því bæjarend-
urskoðandi og útgerðarráð að þau
mál séu í eðlilegri vinnslu og full-
nægi þeirri kröfu sem hann hefur
gert.
í tilefni að uppgjöri við Samherja
hf. teljur bæjarendurskoðandi og út-
gerðarráð ekki óeðlilegt að Bæjarút-
gerð Hafnarfjarðar haldi í vörzlu
sinni skuldabréfum þar til endan-
lega hafi verið gengið frá málum við
Póstgíróstofuna.
3. Viðskiptareikningar forstjóra
og starfsfólks:
Með tilliti til áratuga hefðar við-
skiptareikninga starfsfólks, gerir út-
gerðarráð ekki athugasemdir við
áramótastöður þeirra 1980—1981, en
vísar til þeirrar þróunar á yfirstand-
andi ári og ákvörðunar þeirrar sem
gerð hefur verið í þeim málum og
telur útgerðarráð og endurskoðandi
að þetta mál sé tæmt.
I framhaldi af framangreindum
bókunum telur bæjarendurskoðandi
að fullnægjandi grein hafi verið gerð
við aðfinnslum hans vegna endur-
skoðunar hans fyrir árið 1980."
Eftir að þetta hafði verið fært til
bókunar, samþykkti útgerðarráð á
þessum sama fundi að draga til baka
bókun sína frá 8. október 1981, þar
sem harkalega hafði verið veitzt að
störfum bæjarendurskoðanda.
Það er með vísan til þessarar bók-
unar útgerðarráðs frá 24. október
1981, sem meirihluti bæjarfulltrúa
samþykkir að loka málinu. Þessi
málsmeðferð fær ekki staðist. í
fyrsta lagi, er framangreind bókun
útgerðarráðs afar takmörkuð, og
bæjarfulltrúar eru litlu nær um það
með hvaða hætti bæjarendurskoð-
anda hefur verið gerð fullnægjandi
grein fyrir aðfinnslum hans. I öðru
lagi er það efnislega rangt, sem
stendur í 3. lið bókunarinnar, að ára-
tuga hefð hafi skapast um það að
starfsfólk skuldaði fyrirtækinu á
viðskiptareikningum um áramót.
Þetta á einvörðungu við um sjómenn
á skipum útgerðarinnar, sem þar
eins og hjá öðrum fyrirtækjum
hljóta að fá uppígreiðslur á meðan
skip þeirra eru í veiðiferð. Um annað
starfsfólk hefur þessi regla aldrei
gilt og allra sízt um forstjóra fyrir-
tækisins. Hans mál verður því ekki
afgreitt með tilvísun til einhverrar
hefðar, sem aldrei hefur myndast.
Loks skal bent á það, að þrátt fyrir
bókun útgerðarráðs og undirritun
bæjarendurskoðanda undir nefnda
bókun, þá er enn mörgu ósvarað,
varðandi þær athugasemdir, sem
endurskoðandi hefur gert við reikn-
inga og fjármál bæjarútgerðarinnar.
Þá hefur heldur ekki þeirri laga-
skyldu, sem 57. grein sveitarstjórn-
ariaganna mælir fyrir um, verið full-
nægt, það er að endurskoðandi leggi
fyrir bæjarstjórn tillögur til úr-
skurðar á þeim athugasemdum, sem
hann hefur gert við reikningana.
Hér á eftir skulu rakin helztu at-
riði úr athugasemdum bæjarend-
urskoðanda, sem við teljum nauð-
synlegt, að bæjarstjórn fái fyllri
upplýsingar um og síðan fjallað um
lagaskyldu bæjarstjórnar til að fella
efnisúrskurð um athugasemdirnar.
Atriði sem upplýsa þarf nánar:
1. Tjónamál
I skýrslu bæjarendurskoðanda frá
21. maí 1981, kemur fram, að á meðal
viðskiptamanna sé uppfærð inneign
bæjarútgerðarinnar hjá Trygg-
ingamiðstöðinni kr. 90.330.884,00,
sem talið sé óuppgert tjónamál
vegna bv. Apríl. í framhaldsskýrslu
bæjarendurskoðanda frá 6. ágúst
1981 segir: „Þessi fjárhæð saman-
stendur af mörgum viðgerðarreikn-
ingum, sem búið er að greiða og sem
upphaflega voru gjaldfærðir á við-
hald skips, viðhald vélar og viðhald
spils. Þeir eru nú orðnir nær árs-
gamlir." Ennfremur segist bæjar-
endurskoðandi hafa fengið þær upp-
lýsingar hjá Tryggingamiðstöðinni,
að búið sé að gera upp tvö tjónamál,
vegna tjóna á spilum þessa skips frá
því í marz og maí 1980, en óuppgert
sé hinsvegar óveðurstjón frá því í
nóvember 1980, en það sé óskylt
þessu máli. í bréfi sínu 21. október
1981 segir bæjarendurskoðandi með-
al annars svo um þetta mál: „Enn
hafa ekki borist fullnægjandi svör
um þetta atriði og hefur dregist úr
hömlu að fá botn í þessi mál.“ Á
fundi útgerðarráðs 23. október 1981
er hinsvegar bókað, að von sé á bréfi
frá Tryggingamiðstöðinni varðandi
þetta mál og að bæjarendurskoðandi
telji fullnægt þeirri kröfu, sem hann
hefur gert.
Hér skortir bæjarstjórn margar
upplýsingar:
a) Hvers vegna var þessi fjárhæð kr.
90.330.884,00 færð af viðhalds-
kostnaði bv. Apríl og uppfærð sem
eign?
b) Hvaða upplýsingar fékk bæjarend-
urskoðandi á fundi útgerðarráðs 23.
október 1981, sem hann telur full-
nægja þeirri kröfu, sem hann hefur
gert í þessu máli?
c) Er bréf það, sem útgerðarráð bókar,
að von sé á frá Tryggingamiðstöð-
inni, varðandi þetta mál, komið og
hvað stendur í því bréfi.
d) Síðast en ekki sízt: Er einhver
möguleiki á því, að bæjarútgerðin
fái þessa háu fjárupphæð, sem nú
hefur verið eignfærð í reikningum
fyrirtækisins, borgaða? Hvar er
rökstuðningur forráðamanna bæjar
útgerðarinnar fyrir því? Hvar er
umsögn bæjarendurskoðanda um
þá möguleika?
2. Viðskiptamenn
í skýrslu sinni frá 21. maí 1981,
kveður bæjarendurskoðandi að
nauðsynlegt sé, að áritanir, uppá-
skriftir og önnur meðferð reikninga
sé í fastari skorðum, og margar
athugasemdir hans og fyrirspurnir
lúta að samskiptum bæjarútgerðar-
innar við viðskiptamenn hennar. í
framhaldsendurskoðunarskýrslu
sinni frá 6. ágúst 1981 segir bæjar-
endurskoðandi: „Einnig vekur at-
hygli hvað langt líður frá því BÚH
greiðir inná viðskiptareikninga og
þar til reikningar hafa borist yfir
viðkomandi viðskipti." Síðan nafn-
greinir bæjarendurskoðandi tvö
fyrirtæki sérstaklega og segir síðan:
„BÚH virðist ávallt eiga inni hjá
þessum fyrirtækjum, en samt er t.d.
dregið frá afurðasölu 15/1 ’81 g.kr.
14.643.812,00 og talin greiðsla upp í
skuld. Þann 6. maí sl. eru svo sam-
þykktir 2 víxlar samt. g.kr.
10.000.000,00 auk vaxta g.kr.
412.500,00 og talin greiðsla upp í
hjallaefniskaup. Hér hefði undirrit-
uðum þótt t.d. eðlilegt að bein úttekt
BÚH væri dregin frá afurðareikn-
ingum. I stuttu máli: Undirrituðum
finnst nauðsynlegt að eftirlit með
hvað sé útistandandi sé í fastari
skorðum (t.d. ákveðinn aðili sjái um
slíkt). Einnig að Ijóst sé hvað BÚH
er að greiða hverju sinni." í bréfi
sínu 21. október 1981 segir bæjarend-
urskoðandi svo um viðskiptamenn
bæjarútgerðarinnar: „Þó eru nokkrir
stórir óvissuþættir enn fyrir hendi og
ólcystir í dag.“
Á fundi útgerðarráðs 23. október
1981 er bókað, að þar sem hreyfing
sé komin á þessi mál, þá telji bæjar-
endurskoðandi þau í eðlilegum far-
vegi.
Hér skortir ýmsar upplýsingar
fyrir bæjarstjórn:
a) Hefur vaxtauppgjör farið fram á
milli hæjarúterðarinnar og þeirra
tveggja fyrirtækja, sem bæjarendur
skoðandi nafngreinir sérstaklega og
skýrir frá, að bæjarútgerðin sé að
greiða á sama tíma og hún virðist
eiga hjá þeim inneign? Fór fram
samanburður á viðskiptareikningum
bæjarútgerðarinnar og þessara
tveggja fyrirtækja?
b) Hvaða fyrirtæki eru það, sem fá
greitt inn á sín viðskipti við bæjarút-
gerðina löngu áður en reikningar
berast frá þeim yfir þessi viðskipti?
Hvernig eru reikningar þessara