Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981
47
Frá Norðurlandamótinu, fremst má greina Jóhannes Gísla Jónsson, en hann
tefldi á 1. borði í sveit MR.
NM framhaldsskóla í skák:
MH meistari
í fimmta sinn
MENNTASKÓLINN í Hamrahlíð
varð Norðurlandameistari fram-
haldsskóla í skák, sem lauk á
sunnudag í Keykjavík. MH var þar
með Norðurlandameistari í fimmta
sinn, en alls hefur NM framhalds-
skóla í skák verið haldið átta sinn-
um. Það var glæsilegur endasprettur
sem færði MH sigurinn. í siðustu
umferðinni telfdi MH við norsku
sveitina og þurfti að vinna 3—I; en
strákarnir gerðu betur. Þeir sigruðu
3'/r*/2.
Úrslit í síðustu umferðinni á
sunnudag urðu þau, að Mennta-
skólinn í Reykjavík gerði jafntefli
við dönsku sveitina 2-2 og finnska
sveitin vann þá sænsku 2'/2-1 'h.
Lokastaðan varð:
1. Menntaskólinn við Hamrahlíð
13'h vinning, 2. norska sveitin 12,
3. finnska sveitin 11, 4. MR 9, 5.
sænska sveitin 9 og danska sveitin
rak lestina með 5 'k vinning.
14. einvígísskákin:
Biðstaðan töpuð hjá Korchnoi
Skák
14. einvígisskákin. Karpov:
Korchnoi. Spánski leikurinn.
Karpov brá útaf vananum í 9.
leik er hann lék Rbd2 í stað c3.
í 12. leik brá hann einnig út af
þekktum leiðum og uppskar
ágæta stöðu. Korchnoi lenti því
fljótlega í vandræðum og í 41.
leik varð hann að láta mann af
hendi. Það má því segja að
Karpov sé með örugglega unna
biðstöðu og mun því ná 5 vinn-
ingum gegn tveimur eftir þessa
skák.
1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3.
Bb5 - a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0
- Rxe4, 6. d4 - b5. 7.Bb3 -
d5, 8. dxe5 — Be6, 9. Rbd2 —
Rc5, 10. c3 — d4, 11. Bxe6 —
Rxe6, 12. cxd4 — Rcxd4, 13.
Re4 - Be7, 14. Be3 - Rxf3+,
15. Dxf3 - 0-0, 16. Hfdl -
De8,
17. Rf6+ -
Bxf6, 18. exf6 — Óc8, 19. fxg7
- Hd8, 20. h4 - c5, 21. Hacl
- Dc7, 22. h5 - De5, 23. h6 -
Dxb2, 24. Hd7 - Hxd7, 25.
Dxa8+ — Hd8, 26. Da6 — De2,
27. Hfl - Hdl, 28. Da8+ -
Hd8, 29. Dc6 - b4, 30. Da4 -
Dd3, 31. Hcl - Dd5, 32. Dd3
- De4, 33. Dc2 - Dxc2, 34.
Hxc2 - f5, 35. f4 - Kf7, 36. g4
- Hd5, 37. gxf5 - Hxf5, 38.
Hd2 - Hf6, 39. Hd7+ - Kg8,
40. f5 - Hxf5, 41. He7 -
Rxg7, 42. Hxg7+ - Kh8, 43.
Hc7 - Kg8, 44. Bxc5 - Hg5+,
45. Kf2 - Hg6, 46. Be3.
Jóhann Hjartarson vann sína
skák, Róbert Harðarson einnig.
Árni Á. Árnason gerði jafntefli og
Páll Þórhallsson sigraði. Hann
kom inn sem varamaður í tveimur
síðustu umferðunum og vann báð-
ar sínar skákir.
Jóhann Hjartarson var án nokk-
urs vafa maður mótsins. Hann
sigraði alla andstæðinga sína á 1.
borði, hlaut fimm vinninga í fimm
skákum. Árangur annarra í sigur-
sveit MH varð: Róbert Harðarson
2'k í 5 skákum, Árni Árnason 1 'h
í 4 skákum, Stefán Þórisson 2'h í 4
skákum og Páll Þórhallsson vann
báðar sínar skákir.
Trúarleg tón-
list í MH
MIDVIKUDAG 11. nóvember
gengst Kristilegt stúdentafélag fyrir
hljómleikum í hátíðasal Mennta-
skólans við llamrahlíð. Koma þar
fram hljómsveitir, kór og sönghópar
og flytja trúarlega tónlist.
Meðal flytjenda er 1. Kor. 13,
Rema, Garðar, Anna, Ágústa og
hljómsveit og verða auk íslenskra
flytjenda kynntir erlendir tónlist-
armenn og hljómsveitir, sem
flytja trúariega tónlist svo sem
Bob Dylan, Andraé Crouch,
Johnny Cash og fleiri.
Aðgangur að tónleikum þessum
er ókeypis.
Iðnþingi lokið:
Sigurður
Kristinsson
endurkjör-
inn forseti
IÐNÞINGI, hinu 39. í röðinni, lauk
sl. föstudag og var síðast á dagskrá
kjör í ýmsar nefndir og stjórnir. Var
m.a. kosið í framkvæmdastjórn
Landssambands iðnaðarmanna.
Sigurður Kristinsson málara-
meistari í Hafnarfirði var ein-
róma endurkjörinn forseti Lands-
sambandsins og Sveinn Sæ-
mundsson forstjóri, Kópavogi var
einnig endurkjörinn varaforseti.
Aðrir í framkvæmdastjórn eru
Gunnar S. Björnsson bygginga-
meistari, Markús Sveinsson
frkvstj., Gunnar Guðmundsson
rafverktaki, Karl Maack húsgagn-
asmíðameistari, Jóhannes
Björnsson bakarameistari, Árni
Guðmundsson frkvstj. og Harald-
ur Sumarliðason byggingameist-
ari.
(Sra» KARNABÆR
r Karnabær Laugavegi 66. Lindin Selfossi, Verslunin Skógar
zawiþo
-verzlanir:
Austurstræti 22, Glæsibæ,
Bonanza Laugavegi 20,
Fataval Keflavik,
Bakhúsiö Hafnarfiröi,
Cesar Akureyri,
Eplið Isafiröi.
Eyjabær Vestmannaeyjum.
Hornabær Höfn Hornafiröi, Egilsstööum,
Álfhóll Siglufirði, Báran Grindavík,
Versl. Inga Hellissandi, Kaupfélag Rangæinga
Ram Húsavík, Hvolsvelli,
Óðinn Akranesi, t Þórshamar Stykkishólmi,
Austurbær Reyöarfiröi, ísbjörninn Borgarnesi,
Patróna Patrekstiröi