Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981
Fólk og fréttir í máli og myndum
Hnefaleikakappi
í maraþonhlaupi
IINKFALEIKAKAPPINN Ingemar
Johannsson, sem varó heimsmeist-
ari í þungavigt með því að sigra
Eloyd Patterson í eftirminnilegri við-
ureign í New York fyrir 22 árum er í
hópi þeirra sem halda sér í góðri
líkamsþjálfun með því ad hlaupa
nokkra kílómetra í senn. Og þótt
hann sé ennþá vel yfir eitthundrað
kíló að þyngd lætur hann sér lítið
muna um að hlaupa eitt og eitt mara-
þonhlaup.
Johannsson tók þátt í sínu fyrsta
maraþonhlaupi í Stokkhólmi í ág-
ústmánuði og varð þar í 5.603. sæti
af um átta þúsund hlaupurum á fjór
um klukkustundum og fjörutíu mín-
útum. Ifann var ánægðastur með að
komast hlaupið í gegn, en maraþon-
vegalengdin er röskir 42 kílómetrar.
En Johannsson bætti um betur í
New York-maraþonhlaupinu fyrir
skömmu og hljóp þá á rétt rúmum
4:10 klst.
Johannsson rekur gistihús
skammt fyrir utan New York, og
hefur verið búsettur um langa
hríð í Bandaríkjunum. Hefur hon-
um farnast vel, og fyrir skömmu
hafði hann ástæðu til að gleðjast,
en það var er Alþjóðaólympíu-
nefndin ákvaða að senda honum
Ólympíuverðlaun, sem hann vann
til í Helsinki 1952. Dómnefnd
svipti Johannsson verðlaununum
áður en til verðlaunaafhendingar
kom, þar sem hann þótti að dómi
nefndarinnar ekki hafa lagt sig
fram í úrslitakeppninni.
Haustmeistarar KR í 1. flokki
1. fl. KR, haustmeistarar 1981, sigruðu Víking 2—1 í úrslitum á Melavelli fyrir skömmu. Aftari röð f.v.: Guðjón
Guðmundsson, form. KND KR, Guðmundur Pétursson, þjálfari, Magnús Ingimundarson, Gísli Jón Magnússon,
Jakob Pétursson, Halldór Pálsson, Atli Þór Héðinsson, Magnús Olafsson, Helgi Þorbjörnsson, Snorri Gissurarson,
Bjarni Bjarnason þjálfari, Sveinn Jónsson, form. KR.
Fremri röð f.v.: Arni Guðmundsson, Arni Steinsson. Gísli Gíslason, Vilhelm Fredriksen, Sigurður Indriðasrm,
Þorlákur Björnsson, Hálfdán Örlygsson, Birgir Guðjónsson, Andri Sveinsson.
• Halda mætti að stúlkan sem er í forystu í hlaupinu á myndinni hér að
neðan sé 10 ára og sé að taka þátt í keppni fullorðinna. Svo er ekki. Stúlkan
heitir Akemi Masude og er frá Japan. Hún sigraði í þessu hlaupi og sannaði
að margur er knár þó hann sé smár. Akemi ætlar sér að gera stóra hluti á
hlaupabrautinni á OL-leikunum í Los Angeles 1984.
• Þegar hin fræga hjólreiðakeppni „Tour de France“ fer fram þá er vel
fylgst með. Annað hvort liggur fólk yfir sjónvarpinu eða þá að öll starfsemi
er færð út á götur þær sem hjólreiðamennirnir fara um. Kins og sjá má á
meðfylgjandi mynd eru jafnvel hárgreiðslustofurnar færðar út á gangstétt.
Keppnin stendur yfir í 23 daga.
• Ingemar Johannsson fyrrum heimsmeistari í þungavigt í maraþonhlaupi.
• Keppni á hjólaskautum er að fær
ast mjög í vöxt erlendis. Þessi bráð-
fallega ungfrú er að leggja upp í eina
slíka. Og er að setja sig í viðbragðs-
stöðu.
• Hástökkvarinn Dietmar Mögen-
burg er aðeins 19 ára gamall. Engu
að síður hefur hann náð frábærum
árangri í íþrótt sinni og á síðastliðnu
sumri stökk hann 2,35 metra. Hann
setur markið hátt, því að takmark
hans á næsta ári er nýtt heimsmet:
2,45. Mögenburg er frá Austur
Þýskalandi.
/
l