Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981 5 Hér má sjá hluta af kirkjukórum í Reykjavíkurprófastsdæmi og strengjasveit úr Sinfóníuhljómsveit íslands, sem sáu um tónlistarflutning á hátíðarsamkomunni í Þjóðleikhúsinu. formaður borgarstjórnar, Sig- urjón Pétursson og borgar- fulltrúar auk forsvarsmanna úr nágrannabæjarfélögunum. Forseti íslands, frú Vigdís F'innbogadóttir sendi kveðjur sínar svo og biskup Islands herra Pétur Sigurgeirsson, en hann dvelur nú á sjúkrahúsi. Einnig sendi forsætisráð- herra, Gunnar Thoroddsen og frú hans, Vala Thoroddsen, heillaóskir sínar. Inísund ára afmæli kristniboðs á íslandi: Hátt í 1000 manns sóttu hátíðarsamkomuna Hátt í eitt þúsund manns voru viðstaddir hátíðarsamkomu á vegum Reykjavíkurprófasts- dæmis í tilefni 1000 ára afmælis kristinboðs í landinu, scm haldin var í Þjóðleikhúsinu nú á sunnudaginn. Guðsþjónustur í Reykjavík voru einnig vel sóttar þcnnan sama dag, en að þeim loknum byrjaði fólk að streyma inn í Þjóðleikhúsið og var húsið mcira en fullskipað, en setið var í göngum og stigum og alls stað- ar, sem hægt var að koma sér fyrir. Að sögn Ólafs Skúlasonar dómprófasts var samkoman afar hátíðleg og tókst í alla staði vel. A samkomunni söfn- uðust 17.350 krónur til styrkt- ar kristinboðsstarfi. Ýmsir gestir voru viðstaddir hátíðarsamkomuna, þeirra á meðal borgarstjóri Reykjavík- ur, Egill Skúli Ingibergsson, Guðni Þ. Guðmundsson organisti Bústaðakirkju stjórnar hér kórunum af mikilli innlifun, en hann var einn af níu söngstjórum, sem stjórnuðu kórunum á samkomunni. Ræða um leitar- hunda og snjó- flóðaleitir Björgunarhundasveit íslands, í samvinnu við l.andsamöand hjalpar sveita skáta, hoðar til fundar í kvöld í ráðstefnusal Hótels Loftleiða með tveimur norskunt sérfræðingum um hundaþjálfun og leitir í snjóflóðum. Norðmennirnir, Ola Moen og Tor Lökken, sem eru félagar í norsku skriðuleitarsamtökunum, munu flytja tölu á fundinum og - svara fyrirspurnum fundar- manna. Fundurinn er sérstaklega ætlaður félögum í Björgunarhund- asveitinni, Landsambandi hjálp- arsveita skáta og Flugbjörgun- arsveitinni, en er að öðru leyti opinn áhugamönnum, en hann hefst klukkan 20.30. Fundur um vinnu- verndarkönnun í KVÖLI) kl. 8.30 hefst að Hótel Borg atmennur fundur um nýju vinnuvernd- arkönnunina nieðal iðnaðarmanna. Einar Baldvin Baldursson og Wilhelm Norðfjörð hafa umsjón með kynningu á niðurstöðum í máli og myndum. Þeir eru í hópnum sem framkvæmdi könn- unina. Kyrirspurnum verður svarað eft- ir því sem kostur er. Þá sér Vernharður Linnet um jasskynningu á þessum sama fundi: Jassinn og jafnréttisbarátta svartra Bandaríkjamanna. Fundur þessi er liður í Neista-viku sem hófst sl. laugardag og lýkur nk. föstudag. Skuttogari til Patreksfjarðar l’alrcksflrdi S. nóvcmlHT. í l)AG, sunnudag, kom til Patreks- fjarðar skuttogarinn SIGUREY SI 71 499 brúttólestir að stærð. Togarinn er keyptur hingað frá Siglufirði af Hraðfrystihúsi Pat- reksfjarðar hf. Hann er byggður í Krakklandi árið 1973, en var keyptur til Siglufjarðar árið 1977. Fóru þá fram á honum breytingar og endur bætur í Slippstöðinni á Akureyri, sem hæfðu veiðum og staðháttum hér. Fjöldi manns var samankominn á bryggjunni til að fagna hinu nýkeypta skipi og áhöfn þess. Svavar Jóhannsson, bankastjóri og stjórnarformaður HPP, flutti ræðu og bauð skip og áhöfn vel- komna til staðarins. Sveitarstjóri Úlfar Thoroddsen bauð skip og áhöfn velkomna fyrir hönd sveit- arfélagsins. Ennfremur talaði skipstjórinn Hlöðver Haraldsson. Patreksfirðingum er mikill fengur að skipi þessu til jafnari hráefnisaukningar og þar með stöðugri vinnu í landi. Þrátt fyrir góðan bátaflota má heita að eng- inn fiskur hafi borist hér á land frá því í ágústmánuði, nema af færabátum, en þar hafa ógæftir mjög hamlað veiðum. Mjög dauft hefur því verið yfir aflabrögðum hér í haust. Jón Þórðarson og Vestri hafa verið á línuveiðum og siglt með aflann. Vestri hefur landað hér undanfarna daga og afli verið ágætur, allt upp í 14 tonn. Páll. Tæplega 9.000 manns hafa séð Útlagann NÚ hafa á milli 8 og 9 þúsund manns séð íslenzku kvikmyndina Útlagann, sem sýnd er bæði á Akur eyri og í Reykjavík og að sögn Jóns Hermannssonar, framkvæmdastjóra Góð sala í Grimsby ARNÆLL Sigurðsson frá Hafnar firði seldi 112,2 tonn af ísfiski í Grimsby í gærmorgun fyrir 1.015,1 þús. krónur. Meðalverð á kíló var kr. 9,05 og er þetta bezta salan í Knglandi um nokkurt skeið. Þá seldi Reykjavíkurtogarinn Karlsefni 203,7 tonn í Cuxhaven í gærmorgun fyrir 1.377,5 þús. kr. Meðalverð á kíló var kr. 6,76. ísfilm, telja þeir aðsóknina fyllilega viðunandi. Jón sagði að myndin hefði nú verið sýnd i eina viku, 22 sinnum alls og færi aðsóknin mjög vax- andi. Það virtist vera svo að ís- lenzku myndirnar færu alltaf hægt af stað, en næðu sér síðan verulega á strik og svo virtist vera nú. Það gæti stafað af því að fólk héldi að uppselt væri á myndina, en svo hefði ekki verið á fyrstu sýningum. Jón sagði einnig, að vegna þess hve viðamikil og dýr myndin hefði verið, teldist þeim til að 160.000 íslenzka áhorfendur þyrfti til að greiða allan kostnað. Það væri vissulega bjartsýni að búast við svo mörgum áhorfend- um hér hcima og því hefði verið miðað við það við gerð myndarinn- ar að koma henni til sýninga í kvikmyndahúsum erlendis og væri nú unnið að því. PÖNTUNARSÍM144440 Þú hefur allt ad vinrta og engu að tapa í hugum íslenskra kvenna eru „Bullworker“ og „vödvaaukning" allt ad því sammerk orð, og á því furðar engan vegna þess árangurs, sem karlar hafa náð með tækinu. Hormónar kvenlíkamans koma hins vegar í veg fyrir að konan verði að vöðvafjalli. Æfingar með Lady-Bullworker tækinu hafa sannað mörgum konum að það styrkir, stalir og fegrar líkama þeirra sem kvenna og undirstrikar því enn frekar þann kvenlega þokka, sem fyrir er. Auðvett! 11 hóflegar log- og þrýsliæfingar, sem eru út skýrðar í lilmyndabæklingi og á stóru vegg spjaldi. Fljótlegt! Nokkrar mínútur á dag í næfli heima hjá þér. Áhrífaríkt! Góð áhrif æfinganna fara að segja til sín eftir 3—5 daga. Finnist þér tækið ekki henta þér er þér frjálst að skila því innan 3 vikna frá móttöku. Sendu úrklippuna strax í dag sem pöntun gegn Ipóstkröfu með 3ja vikna skilafresti frá móttöku tækisins. ISendifl mér... . stk. Lady Bullworker, verð kr. 492.-. póstkostnaður. Nafn:................................. Heimili:.............................. Póststöð...............Sími:.......... | PÓSTVERZL UNBN HE/MA VAL j BOX39jrtPAVOGL I I I ! I Audvelda æfingar adeins nokkrar mínútur ádag ■f.H—■ • *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.