Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 23
Umsvif KGB í Danmörku: MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAftU&a©. NÓVEMBER 1981 Leynisjódurinn borgar kosninga- baráttu kommúnista og styrkir starfsemi ýmissa „friðarhreyfingau Þannig hafa danskir kommúnistar auglýst flokk sinn fyrir byggdarkosn- ingarnar, en auglýsingar af þessu tagi hafa kostad a.m.k. 148 þúsund danskar krónur og þeir peningar koma úr hinum dularfulla sjóði. „9. NÓVEMBER 1919-sjóður inn“ heitir aðili í Danmörku, sem algjörlega hefur staðið straum af auglýsingaherferð Kommúnistaflokks Danmerkur í tveimur Kaupmannahafnar blaðanna, B.T. og Ekstra Blad- et, fyrir byggðakosningarnar sem standa fyrir dyrum í land- inu. Jnrgen Jensen formaður Kommúnistaflokksins hefur staðfest það í viðtali við B.T. að téður sjóður hafi fjármagnað auglýsingar Kommúnista- flokksins það sem af er kosn- ingabaráttunni, um leið og hann kveðst ekki vita hvernig sjóðurinn sé til kominn: „Það er ekki vitað hvaðan það fé sem sjóðurinn hefur yfir að ráða kemur. Sjálfir höfum við heldur ekki farið fram á, framlag úr honum. Það sem ég veit um sjóðinn er harla lítið — ég veit bara að umsjónarmaður hans Chr. Vilhelm Hagens, lögmaður í Kaupmannahöfn. Sjálfur hef ég reynt að fá uppgefið hversu mikið fé „9. nóvemb- er“ hefur til ráðstöfunar, en það hefur ekki fengizt upp- lýst“, segir Jorgen Jensen, formaður Danska kommún- istaflokksins. Jensen segir ennfremur í viðtalinu að sér skiljist að höfuðstóllinn sé arfur, en hvaðan sá arfur komi hafi hann enga hugmynd um. Danska leyniþjónustan hef- ur sterkan grun um að „9. nóvember-sjóðurinn" sé ein helzta tekjulind dönsku frið- arhreyfingarinnar, sem svo er nefnd, og að um hendur sjóðsins fari verulegur hluti þess fjár sem sovézka leyni- þjónustan KGB veiti til und- irróðursstarfsemi og áróðurs gegn Atlantshafsbandalag- inu, að því er fram kemur í B.T. Það eru háar fjárhæðir sem á undanförnum mánuðum hafa farið um hendur Chr. Vilhelm Hagens lögmanns, en hann hefur um árabil verið lögfræðingur Þýzka alþýðu- lýðveldisins í Danmörku. B.T. Villum Hansen formaður dönsku „Samstarfsnefndarinnar um frið og öryggi" — veit ekki hvaðan peningarnir koma, en ætlar að af- þakka ef sannað verður að þeir séu frá KGB. birtir lista yfir þessi framlög: Kosningasjódur kommúnisla- flokks Danmvrkur 14K.(HN).~ Samtökin „Krjáls Danmörk" 40.000.- „Samstarrsnerndin um frid og öryggi" 35.000.- „Konur í þágu fridar" I0.(HH).- „Deí ny no(a(‘‘ 10.000.- „(■ramland úr EBK“ 15.000.- Auk þessara framlaga er að sögn blaðsins vitað um ýmsar aðrar greiðslur til annarra vinstri samtaka og til einstakl- inga, einkum listamanna. Eins og áður segir hefur rann- sóknin á máli rithöfundarins Arne Herlov Petersen og njósna- umsvifum KGB í Danmörku mjög beinzt að starfsemi „9. nóv- ember-sjóðsins", en í viðtölum við blöð hefur lögmaðurinn sem annast sjóðinn neitað að gefa nokkrar upplýsingar um fjár- reiður hans, að öðru leyti en því að hér sé um að ræða danskan arf sem sonur hafi tekið eftir föður. Arlega séu haldnir tveir stjórnarfundir, en hlutverk sjóðsins sé að styrkja einstakl- inga, samtök og fjölmiðla sem stuðli að friði og slökun, berjist fyrir frelsi og stuðli að menn- ingarlegri sköpun í anda öreiga- stéttarinnar. Formaður „Starfsnefndarinn- ar um frið og öryggi" hélt blaða- mannafund sl. föstudag vegna upplýsinga um fjárveitingu úr Dóttir Sisse Gorm Knudsen, eigin- konu Arne Herluv Petersen rithöf- undar, en þau hjónin eru bæði grunuð um að ganga erinda Sovét- stjórnarinnar í dönsku friðarhreyf- ingunni. Telpan heldur á útvarps- tæki, sem hún hafði fengið gefins hjá sovézkum sendiráðsmanni. Tækið var gert upptækt í sambandi við njósnamálið, en eigandanum hefur nú verið afhent það aftur. Arne Herlav Petersen var sleppt úr gæzluvarðhaldi aðfaranótt laugar dagsins, en rannsókn á máli hans er talin nokkuð vel á veg komin. sjóðnum. Formaðurinn, Villum Hansen, hafði það að segja að yrði það sannað að „9. nóvem- ber-sjóðurinn“ fengi peninga frá KGB mundi friðarnefndin að sjálfsögðu afþakka frekari fram- lög úr þeirri átt, en hins vegar væri ekkert fram komið sem benti til þess að þetta væri vafa- söm tekjulind. í sama streng hafa forsvarsmenn annarra samtaka, sem nefnd eru hér að framan, tekið. A-þýzk ungmenni leita á náðir kirkjunnar Bcrlín, 9. nóvombor. Al*. AUSTUR-ÞÝZK ungmenni hafa í ríkari mæli leitað á náðir kirkj- unnar í heimalandi sínu í þeirri von að losna við herþjónustu. Fulltrúar lútersku kirkjunnar í fjórum héruðum Austur- Þýzkalands héldu fyrir skömmu kirkjuþing og kom þar fram, að yfir 700 ungmenni hafa farið þess á leit við kirkjuna að hún veiti kröfum þeirra stuðning. Ungmennin hafa farið þess á leit við austur-þýzk yfirvöld að fá að losna við herþjónustu en bjóðast í staðinn til að starfa að félagsmálum. Kirkjudeildir hafa lagt þess- um kröfum lið, en hingað til hafa yfirvöld í Austur-Þýska- landi ekki hlustað á óskir af þessu tagi. Á kirkjuþingunum voru sam- þykktar ályktanir þar sem harmaður var fréttaflutningur fjölmiða í Austur-Þýzkalandi af atburðunum í Póllandi. Voru skrif austur-þýzku fjölmiðlanna sögð hrokafull og full af fyrir- litningu í garð Pólverja. I annarri ályktun kirkju- þinganna í Austur-Þýzkalandi var tekið undir kröfur lúter^ku kirkjunnar í Bandaríkjunum og Hollandi um nauðsyn takmörk- unar vígbúnaðarkapphlaupsins og afvopnunar. Sagði í ályktun- um austur-þýzku kirkjunnar, að austantjaldslöndin gætu lagt sitt af mörkum í tilraunum til afvopnunar með því að fækka SS-20 eldflaugum í Evrópu og skriðdrekum. Ennfremur var í ályktunum kirkjuþinganna gagnrýnd sú áróðursstarfsemi sem á sér stað í Austur-Þýzkalandi á nauðsyn og mikilvægi hers. Harmað var hversu hlutverk hermanna væri dásamað og fordæmdar voru pær reglur er beinlínis ne.vða menn til herþjónustu áður en þeir fá inngöngu í háskóla í Austur-Þýskalandi. 31 y ARMAPLAST SAJ-A-AFGRE'DSLA \tm/ Armúla 16 simi 38640 Þ. ÞORGRIMSSON & CD CENTURY hita- blásarar Fyrirliggjandi t> ÞOR HF LANDSSMIÐJAN JltlasCopcc Slipivelar Hersluvélar og fjöldi annarra tækja. LANDSSMIÐJAIM k. -flr 20680 m U 1.1.1 SIM, 1SIMIW KU: . 22480 kjíJ Blorjjimlilnhiti KANARIEYJAR J 12 dagar, 21 .des. - 2. jan. Aðeins 6 vinnudagar. , Flugferöir LAFERÐ Sólskinsparadís í skammdeginu. Glæsilegir gististaðir, íslensk jólahátíð og nýjársfagnaður. Airtourlcéfítyíf Mibbwjarmarkabinum 2.hæö. Aöalstnuti 9 sími10661.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.