Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981
Atriði úr kvikmyndinni llættuspil.
Laugarásbíó
frumsýnir
Hættuspil
HÆTTUSPIL nefnist kvikmynd
sem Laugarásbíó hefur hafið sýn-
ingar á.
Myndin fjallar um veðmangara
nokkurn og gerist í New York árið
1935. Hann verður fyrir fjárkúgun
af hendi hættulegs glæpamanns
en um svipað leyti situr hann uppi
með 6 ára stúlku sem hann er
fenginn til að lána peninga útá en
ekki er sótt til hans aftur. Veð-
mangarinn ákveður að leika á
fjárkúgarann og leiðir það til
úrslitabaráttu þeirra í milli. Leik-
stjóri er Walter Bernstein en
helztu leikarar Walter Matthau,
Julie Andrews og Tony Curtis.
Nýjar myndir
á norrænu kvik-
myndahátíðinni
NÝJAR kvikmyndir hafa verið tekn-
ar til sýningar á norrænu kvik-
myndahátfðinni. Finnska teikni-
myndin „Bræðurnir sjö“ og norska
unglingamyndin „Hættið þessu“
verða sýndar þessa viku. Að auki
verður sýningum haldið áfram á
norsku barnamyndinni „Atta börn
og amma þeirra í skóginum".
í Norræna húsinu verður haldið
áfram að sýna þrjár barnamyndir
á þriðjudögum og fimmtudögum
kl. 5 báða dagana. Myndirnar
heita „Hver á að hugga Knutta",
„Síðan deyr maður" og „Galdra-
karlinn Kuikka-Koponen".
„Við matreiðum“
endurútgefin
ÁRIÐ 1976 kom út ný matreiðslu-
bók hjá ísafold, sem hlaut nafnið
„Við matreiðum". Höfundar voru
húsmæðrakennararnir Anna
Gísladóttir og Bryndís Stein-
þórsdóttir. Bók þessi naut mikilla
vinsælda, enda eina íslenzka
matreiðslubókin á markaðnum.
Nú hefur frumútgáfan verið
endurskoðuð, aukin og endurbætt
og kemur nú út í nýrri útgáfu Isa-
foldar.
(Fréttatilkynning)
í gærdag var verið að leggja hitalögn I 800 fermetra plan fyrir utan nýbyggingu Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra og Sambands íslenskra sveitarfélaga á Háaleitisbrautinni, en áætlað er að steypa í það á morgun.
Nýbyggingin verður að einhverju leyti tekin í notkun fyrir áramót að sögn Sigurðar Magnússonar formanns
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, en hitalagnir eru lagðar í allar gangstéttir og bílastæði við húsið.
Fleygir þú
peningum daglega
óaf vitandi ?
Nýr Danfoss með minnispunkti
Enn er fjöldi fólks hér á landi sem
gerir sér ekki grein fyrir hve mikil
hitaorka fer til spillis í húsnæði
þess, sem kostar það ómæld pen-
ingaútlát.
Verkefni Danfoss ofnhitastillanna
er einmitt aö nýta hitaorkuna og
auka þægindin til hins ýtrasta í
hverju herbergi.
Dragðu það ekki að kynna þér
kosti nýju Danfoss ofnhitastillanna,
það kostar ekkert. En þú getur
sparaö þér fúlguna sem þú fleygir.
= HÉÐINN =
DANFOSS ráðgjafaþjónusta
Seljavegi 2, sími 24260
Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi:
Sturla Böðvarsson
kosinn formaður
Burgarnesi, 8. nóvember.
AÐALFUNDUR Samtaka sveitarfé-
laga í Vesturlandskjördæmi (SSVK)
var haldinn í Munaðarnesi dagana
6. og 7. nóvember sl.
Fyrri dag fundarins voru ávörp
gesta. M.a. flutti Svavar Gestsson
félagsmálaráðherra ávarp. Stjórn og
starfsmenn SSVK fluttu skýrslu sín-
ar: Sigurður Þórólfsson formaður
SSVK flutti skýrslu stjórnar, Guðjón
Ingvi Stefánsson framkvæmdastjóri
SSVK flutti skýrslu, Jón Einarsson
formaður fræðsluráðs flutti skýrslu
fræðsluráðs og Ólafur Sveinsson
hagverkfræðingur, nýráðinn iðn-
ráðunautur samtakanna flutti
skýrslu sína. Þá voru afgreiddir
reikningar og fjárhagsáætlun.
Vegamál á Vesturlandi voru að-
almál fundarins og voru um þau
mál pallborðsumræður með þátt-
töku alþingismanna kjördæmisins
og fulltrúum frá SSVK og Vega-
gerð ríkisins.
Síðari dag fundarins voru á
dagskrá nefndaálit, umræður og
afgreiðsla mála. Ályktað var um
vegamál, byggða- og atvinnumál,
og um framhaldsskóla.
Um byggða- og atvinnumál var
ályktað m.a. að beina því til al-
þingismanna og stjórnvalda, að
vegna atvinnuástandsins á Vest-
urlandi er mjög mikilvægt, að
rekstrargrundvöllur frumvinnslu-
greina atvinnulífsins verði treyst-
ur sem best. Enda eru þær grein-
ar, þ.e. fiskveiðar og landbúnaður,
meginundirstaða atvinnulífsins í
kjördæminu.
Fundurinn fagnar ráðningu
iðnráðgjafa til Vesturlands og
væntir mikils af hans starfi. Þá
undirstrikaði fundurinn mikil-
vægi þess fyrir dreifðar byggðir
landsins, að þjónusta hins opin-
bera sé rekin á jafnréttisgrund-
velli gagnvart öllum landsmönn-
um. Voru í því sambandi nefnd
samgöngumál, sími, þjónusta raf-
magnsveitna o.fl.
Um framhaldsmenntun á Vest-
urlandi ályktaði fundurinn að
ítreka samþykkt frá síöasta aðal-
fundi um framhaldsnám á Vestur-
landi og beinir þeim eindregnu til-
mælum til Alþingis að á yfir-
standandi þingi verði sett lög um
samræmdan framhaldsskóla.
Að lokum voru kosningar: Sig-
urður Þórólfsson úr Saurbæjar-
hreppi, Dalasýslu, formaður sam-
takanna, gekk úr stjórn, hann var
ekki lengur kjörgengur vegna
reglna um þriggja ára hámarks-
setu í stjórn. I hans stað var
Kristinn Jónsson úr Búðardal kos-
inn í stjórnina. Aðrir stjórnar-
menn voru allir endurkosnir.
Stjórn næsta starfsárs verður
þannig skipuð: Sturla Böðvarsson
Stykkishólmshreppi, en hann hef-
ur nú verið kosinn formaður
SSVK, Guðmundur Vésteinsson og
Hörður Pálsson Akraneskaupstað,
Jón Blöndal, Andakílshreppi, Guð-
mundur Ingimundarson, Borgar-
neshreppi, Skúli Alexandersson
Neshreppi utan Ennis og Kristinn
Jónsson Laxárdalshreppi.
HBj.
Halda ráðstefnu um
ferlimál fatlaðra
STARFSHÓPIJR ALFA-nefndar fé-
lagsmálaráðuneytisins efnir til ráð-
stefnu, um ferlimál fatlaðra, á morg-
un og fimmtudag. Hefur byggingar-
fulltrúum um 40 sveitarfélaga verið
boðið til hennar, en þar hafa verið til
prófunar sérstök greiningartæki sem
starfshópurinn hefur látið útbúa.
Greiningartæki þetta er notað
til að kanna hvaða breytingar þarf
að gera á opinberum byggingum
til að auðvelda fötluðum aðgang
og umgang um þær. Auk bygg-
ingafulltrúanna er boðið til ráð-
stefnunnar sveitarstjórnar-
mönnum, fulltrúum ALFA-nefnda
sveitarfélaga, arkitektum, verk-
fræðingum, tæknifræðingum, full-
trúum hagsmunasamtaka fatl-
aðra, þingmönnum, embættis-
mönnum og fulltrúum vinnumark-
aðarins.
Meðal dagskrárefnis fyrri dag-
inn má nefna erindi um fötlun og
hindranir, um sjónskerta og ferli-
mál þeirra, um heyrnarskerta, um
lungna- og hjartafötlun, rætt
verður um vandamál við breyt-
ingar á eldra húsnæði, grein-
ingarlykilinn og reglugerðir. Síð-
ari daginn verður rætt um skipu-
lag og umferð og lagfæringar,
fjármál o.fl.