Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.11.1981, Blaðsíða 48
2 8 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1981 Stórleikur hjá Manchester Utd og liðið er nú með 3 stiga forystu MANCHESTER UTD. er nú eitt í efsta saeti 1. deildarinnar í Englandi, eftir glæsilegan stórsigur gegn botnliðinu Sunderland. Á sama tíma tapaði Ips- wich á heimavelli gegn Swansea, sem fyrír vikið deilir 2. sætinu með Ipswich. United hefur þriggja stiga forystu, en hefur leikið tveimur leikjum fleira heldur en þau lið sem næst koma. Sunderland er í mikilli klípu, liðið hafði ekki skorað mark í 8 leikjum í röð er MU kom í heimsókn og þó svo að liðinu hafi tekist að kippa því í lag, þá réð það ekkert við frábæran sóknarleik gestanna, sem skoruðu hvert markið af öðru í síðari hálfleik. United byrjaði vel, Kevin Moran náði forystunni á 22. mínútu, eftir að Steve Coppell hafði tekið hornspyrnu. Coppell átti stórleik að þessu sinni og þrjú marka United komu eftir fyrirgjafir hans. En Sunderland gladdi áhangendur sína óvænt mcð marki skömmu fyrir hálfleik. Skoraði Stan Cummins markið, fyrsta mark hans á þessu keppnistímabili. En í síðari hálfleiknum héldu United engin bönd. Sunderland virtist ívið ákveðnari aðilinn fyrst í síðari hálfleik, en eftir að Bryan Robson hafði skorað annað mark United, var aldrei nein spurning hvar sigurinn myndi hafna. Frank Stapleton bætti tveimur mörkum við með fjögurra mínútna millibili um miðjan hálfleikinn og Garry Birtles bætti síðan ódýru marki við tveimur mínútum fyrir leikslok. En lítum á úrslit leikja áður en lengra er haldið: Aston Villa — Arsenal 0—2 Brighton — Birmingham 1—1 Ipswich — Swansea 2—3 Leeds — Notts County 1—0 Liverpool — Everton 3—1 Manch. City — Middlesbr. 3—2 Nott. Forest — West Ham 0—0 Stoke — Southampton 0—2 Sunderland — Manch. Utd. 1—5 Tottenham — WBA 1—2 Wolves — Coventry 1—0 mjög grimmt fram að markinu og töldu margir að liðið myndi þar með ná yfirhöndinni. En Bob Latchford skoraði þá fyrir Swansea eftir einleik 10 mínútum síðar. Enn jafnaði Ipswich og var Arnold Muhren á ferðinni á 80. mínútu. En tveimur mínútum síð- ar spyrnti Garry Stanley knettin- um í gegnum þvögu leikmanna inni í vítateig Ipswich og rakleiðis í netið. Þar við sat. Swansea vinnur óvænt Swansea kemur enn heldur bet- ur á óvart. Eins og venjulega er lið eins og Swansea eiga í hlut, kepp- ast menn við að spá því að blaðran hljóti að fara að springa. En leikmenn Swansea hafa sýnt mik- ið dálæti á því að afsanna allar slíkar kenningar. Ipswich hefur ekki verið sannfærandi þrátt fyrir stöðu sína í deildinni það sem af er þessu keppnistímabili. Er það meðal annars aðal góðra liða, að þau hala inn stig hvort sem þau leika vel eða illa. En að þessu sinni sneri gæfan bakinu við Ipswich. Swansea náði þrívegis forystunni gegn Ipswich, en aðeins tvívegis tókst heimaliðinu að jafna metin. Alan Curtis skoraði fyrst með skalla á 7. mínútu, en Paul Marin- er jafnaði með fallegu skallamarki á 53. mínútu. Hafði Ipswich sótt 1. DEILD Manrhcster Tdt. 15 8 5 2 23 9 29 Ipswich 13 8 2 3 2 :> 17 28 Swansca 13 8 2 3 25 18 28 Toltenham 13 8 0 5 2« 14 24 Nott. Forest 13 6 5 2 18 13 23 West Ham 13 5 7 1 24 15 22 Liverpool 13 5 5 3 20 14 20 Southamplon 13 6 2 5 24 23 20 Hrighlon 13 4 7 2 IX 13 19 Manchester (’ity 13 5 4 4 18 15 19 Arsenal 13 5 3 5 10 10 18 Kverton 13 5 3 5 18 17 18 Kirmingham 13 3 6 4 21 18 15 Aston \ illa 13 3 6 4 15 14 15 ('ovenlry 13 4 3 6 19 19 15 lx*eds 14 4 3 7 13 24 15 West Kromwich 13 3 5 5 14 15 14 Stoke ('ity 13 4 2 7 18 20 14 NoILs ('ounty 13 4 2 7 17 23 14 Wolverhamplon 13 3 3 7 8 20 12 Middleshrough 14 2 3 9 12 25 9 Sunderland 13 1 4 8 7 23 7 2. DEILD l.uton 13 10 1 2 31 13 31 Watford 13 9 1 3 21 12 28 Queens l*ark 13 7 2 4 20 13 23 Sheffield Wed. 13 7 2 4 13 13 23 Karnslcy 13 7 1 5 19 12 22 Oldham 13 8 4 3 21 18 22 ('ambridge 13 7 0 8 19 18 21 Klarkburn 13 8 3 4 14 13 21 l>cicester 13 5 5 3 IX 13 20 Chelsea 13 8 2 5 17 19 20 ( harlton 13 5 3 5 18 18 18 ( ardiff 13 5 2 8 17 22 17 Norwich 13 5 2 8 14 20 17 Newcastlc 13 5 1 7 15 14 18 ('rystal l’alarc 13 5 1 7 II 11 18 Kolherham 13 4 3 8 19 17 15 Ikrby 13 4 3 6 17 22 15 Shrewsbury 13 4 3 8 13 19 15' (irimsby 13 4 3 8 14 22 15 Wrexham 13 3 2 8 II 18 II Kolton 13 3 1 9 II 22 10 ()ricnt 13 2 3 8 8 18 9 Gauragangur á Anfield Góð knattspyrna vék fyrir hörku og baráttu, er nágrannalið- in Liverpool og Everton áttust við á Anfield Road, heimavelli Liver- pool. Hvorugu liðinu tókst að ná afgerandi tökum á leiknum í fyrri hálfleik, en í þeim síðari gerðist það síðan að Ken Dalglish skoraði tvívegis með nokkurra mínútna millibili. Þriðja markið lét ekki bíða lengi eftir sér, Ian Rush var þar á ferðinni, en það var mikið heppnismark. Bakvörðurinn ungi, Stevens, hugðist spyrna knettin- um frá marki Everton, en tókst ekki betur til en svo, að knöttur- inn fór í Rush og af honum í netið. Everton varð síðan fyrir því áfalli að Eamon O’Keefe var rekinn af leikvelli, en liðið lét það ekki á sig fá, sótti mikið undir lokin og það fór aldrei svo að liðið skoraði ekki, Mick Ferguson potaði inn einu marki. Lið Tottenham óútreiknanlegt Ekki virðist vera nokkur leið að treysta á Tottenham og er liðið sannkallaður höfuðverkur tippar- ans. Þrátt fyrir afburðaárangur á útivöllum, þar sem liðið hefur unnið 5 af 6 leikjum sínum í deildakeppninni, gengur hálf brös- uglega að hala inn stigin á heima- velli. Á pappírnum hefði Totten- ham átt að „rúlla WBA upp“ en það fór á annan veg. WBA vann sigur sem var að sögn frétta- manna BBC mjög sanngjarn. Öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik og hófst gamaniö er Chris Houghton skoraði sjálfsmark á 22. mínútu. Ally Brown átti þá stang- arskot og veslings Houghton gat ekkert að gert, er knötturinn hrökk út í lappirnar á honum og stystu leið í netið. En Tottenham jafnaði aðeins 2 mínútum síðar, Garth Crookes skoraði með skalla. Jafnteflið stóð ekki lengi, Hollend- ingurinn Martin Jol skoraði með þrumuskoti á 35. mínútu og þar við sat. Seinni partinn var mikið öryggi í leik Albion. Aðrir leikir Arsenal vann frekar óvæntan sigur gegn Aston Villa, sem hefur þar með tapað þremur síðustu leikjum sínum á heimavelli. Gra- ham Rix var færður fram í sókn- ina hjá Arsenal og gerbreytti það liði Arsenal til hins betra, en lið- inu hefur gengið ömurlega að skora mörk til þessa. Rix skoraði fyrra mark Arsenal á 26. mínútu, en glæsilegt mark eftir góðan und- irbúning þeirra Pat Jennings og John Holiins. Og Rix hafði ekki sagt sitt síðasta orð, því hann sundraði vörn Villa á 39. mínútu, renndi knettinum síðan til Brian Talbot og hann þakkaði kurteis- lega fyrir sig og skoraði. Brighton hafði algera og geysi- lega yfirburði gegn Birmingham, sem tefldi fram hálfgerðu varaliði vegna meiðsla margra lykil- manna. En leikmenn heimaliðsins fóru afleitlega með aragrúa tæki- færa og því fór sem fór. Tony Ev- ans náði forystunni gegn gangi leiksins, er Steve Gatting var að dóla með knöttinn við eigin víta- teig og lét Evans ræna honum af sér. Það var ekki fyrr en seint í leiknum, að Mike Robinson tók sig loks tii og skoraði, en hann fékk öðrum fremur mörg gullin mark- tækifæri. Trevor Francis lék með Man- chester City að nýju eftir að hafa misst úr langa kafla vegna meiðsla. Og hann var ekki lengi að setja mark sitt á leikinn gegn Boro, skallaði í netið á 20. mínútu eftir fyrirgjöf frá Nick Reid. Að- eins tveimur mínútum síðar færði Jim Platt, markvörður Boro, heimaliðinu annað mark á silfur- fati, missti knöttinn klaufalega frá sér og Kevin Reeves skoraði auðveldlega. En leikmenn Boro lögðu ekki árar í bát, leikmenn City voru síður en svo öryggið uppmálað í vörninni og áður en varði hafði Boro jafnað með mörk- um þeirra Jim Angus og Bobby Thompson. En allt kom fyrir ekki, City fékk víti á 75. mínútu og úr því skoraði Denis Tueart síðasta mark þessa fjöruga leiks. Það óvænta og sjaldgæfa gerð- ist á Molinew, heimavelli Wolv- erhampton, að heimaliðið skoraði mark, en þvíumlíkt hafði lið þetta ekki gert í 7 leikjum í röð. Áttundi leikurinn virtist ætla að renna skeið sitt á enda án þess að Úlf- arnir tækju sig saman en 7 mínút- um fyrir leikslok fékk Mel Eaves þannig færi, að hann gat vart ann- að en skorað. Coventry pakkaði því saman og hélt heim á ný án stiga og hefur liðið ekki unnið á útivelli það sem af er þessu keppn- istímabili. Leeds sigraði Notts County og er heldur farið að syrta í álinn hjá County. Er ljóst, að róðurinn verð- ur liðinu þungur næstu mánuðina. Aiden Butterworth, ungur efni- legur nýliði hjá Leeds átti 20 ára afmæli á laugardaginn og hann hélt upp á það með því að skora sigurmark Leeds á 32. mínútu. Laglegt skallamark eftir undir- búning Peter Barnes og Eddy Grey. County fékk kjörið færi til þess að jafna rétt fyrir leikhlé, fékk þá vítaspyrnu, en þrumuskot Ray O’Brian hafnaði í þverslánni. Southampton vann góðan sigur á útivelli gegn Stoke og vann liðið um leið það afrek að halda hreinu, en vörn Southampton hefur verið ein sú gjafmildasta af þeim öllum saman. Dave Armstrong skoraði fyrra mark Southampton með hörkuskoti af 20 metra færi er 7 mínútur voru liðnar af Ieiknum. Kevin Keegan bætti öðru marki við úr vítaspyrnu í síðari hálfleik. Leikur Forest og West Ham var ekki tilþrifamikill, Forest sótti meira en West Ham fékk samt opnari og betri marktækifæri. Til dæmis átti Trevor Brooking hörkuskot í þverslá í upphafi leiksins og undir lokin varði Peter Shilton snilldarlega skot frá Dav- id Cross. Knatt- spyrnuúrslit 2. deild Barnsley 3 (Banks 2, Parker) — Oldham 1 (Heaton) Bolton 2 (Henry, Thompson) — Watford 0 Cambridge 2 (Mayo 2) — Shrewsbury 0 Cardiff 1 (Bennett) — Norwich 0 Charlton 1 (Waish) — Leicest- er 4 (Melrose, Lvnex, Lineker 2) Chelsea 2 (Lee, Fillery) — Newcastle 1 (Wadle) Crystal Palace 1 (Cannon) — Blackburn 2 (Garner 2) Luton 3 (Moss, Goodyear, Don- aghy) — Derby 2 (Osgood, Clayton) Orient 3 (Margerison, Sussex, Silkman) - Sheffiled W 0 QPR 1 jFlanagan) — Rother- ham 1 (Francis sj.m.) Wrexham 2 (McNeil 2) — Grimsby 0 England 3. deild: Brentford — Bristol City 0—1 Bristol Rov. — Gillingh. 2—0 Burnley — Wimbledon 1—2 Carlisle — Fulham 1—2 Chesterfield — Oxford 2—2 Exeter — Reading 4—3 Plymouth — Portsmouth 0—0 Preston — Chester 0—1 Southend — Lincoln 0—2 Swindon — Millwalt 1—2 Walsall — Newport 3—1 Skotland. Celtic — Aberdeen ’ 2—1 Dundee Utd. — Morton 3—0 Hibernian — Rangers 1—2 Partick — Dundee 1—2 St. Mirren — Airdrie 1—1 Celtic hefur forystu, 19 stig, eða fimm stigum meira en Aberdeen, sem er í öðru sæti með 14 stig. St. Mirren hefur 13 stig og Rangers 12 stig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.