Morgunblaðið - 12.11.1981, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.11.1981, Qupperneq 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI 255. tbl. 68. árg. FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sjálfstjórn Palestínuaraba: Þríhliða viðræður fara fram í Kafró Kaíró, Damaskus, Kivad. II. nóvember. AP. SAMNINGAMENN frá Egyptalandi, ísrael og Bandaríkjunum komu sam- an í Kaíró í dag til að fjalla um mögu- leika á takmarkaðri sjálfstjórn Pal- estínuaraba á svæðum þeim sem ísraelsmenn hafa hertekið. Kamal Hassan Aly utanríkisráðherra Egyptalands sagði í dag, að hann von- aðist eftir nokkrum árangri af fund- inum, en almennt er talið vonlítið að verulega miði í samkomulagsátt. Stjórn Sýrlands tilkynnti í dag, að „harðlínuríkin" í röðum Araba, Líbýa, Suður-Yemen, Alsír og Frelsishreyfing Palestínu, PLO, auk Sýrlands, myndu innan skamms halda sérstakan fund um ástandið í Miðausturlöndum. Er talið að hinar nýju friðartillögur Saudi-Araba verði þar ofarlega á baugi, en harðlínuríkin hyggjast koma í veg fyrir að þær verði rædd- ar á fundi leiðtoga Arabaríkja í Marokkó síðar í þessum mánuði. Upplýsingamálaráðherra Saudi- Arabíu fordæmdi Israelsstjórn í dag fyrir að hafa hafnað friðartil- lögum stjórnar sinnar og sakaði Israelsmenn um að vilja ekki frið í þessum heimshluta. ísraelsmenn hafa lagst eindregið gegn friðar- áætlun Saudi-Araba og talið að með samþykkt hennar mundi grundvellinum kippt undan tilveru Israelsríkis. Utanríkisráðherra ísraels, Yitzhak Shamir, sagði í dag, að Israelsmönnum þætti það mjög miður að Bandaríkjastjórn Pólland: hefði gefið í skyn, að hún gæti fellt sig við hluta tillagna Saudi-Araba. Ríki Efnahagsbandalags Evrópu hafa gefið sama í skyn. Sjá fréttaskýringu á bls. 22 í Mbl. í dag. ‘ Walesa útilokar ekki valdbeitingu Varsjá, 11. nóvember. AP. LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu, samtaka hinna óháðu verkalýðsfélaga í Póllandi, sagði í dag, að ekki væri unnt að útiloka þann möguleika, að reynt yrði að leysa vandamálin í landinu með valdbeitingu. „Valdbeiting er ekki á dagskrá, en það er ckki hægt að útiloka hana,“ sagði Walesa. „Þegar þeir koma munum við taka um skammbyssuhlaupin og snúa þeim við.“ Walesa flutti ræðu þessa í dag meðal námumanna í Sosnowiec, en þeir eru nú í verkfalli. Ummæli hans í dag eru talin stinga nokkuð í stúf við sáttatóninn í því er hann lét frá sér fara í síðustu viku. Full- trúar stjórnarinnar og Samstöðu undirbúa nú samningafundi um hvernig bezt megi leysa efnahags- vanda landsins. Jablonski forseti Póllands tók í dag þátt í hátíðarhöldum þar sem þess var minnzt að pólska ríkið var endurreist á þessum degi árið 1918. Þetta er í fyrsta sinn frá því kommúnistar komust til valda í Póllandi að þeir taka þátt í hinum óopinberu hátíðarhöldum vegna þessa dags, sem var þjóðhátíðar- dagur Pólverja fyrir stríð. Geimskutlan á loft í dag Kanaveralhöfóa, Klórida, 11. nóvember. AP. í KVÖLD var gert ráð fyrir að geim- skutlunni Kólombíu verði skotið á loft í bítið í fyrramálið, fimmtudag, að því er starfsmenn, sem unnu við und- irbúning geimskotsins, sögðu. í dag tókst að komast fyrir leka í eldsneyt- istanki skutlunnar og var þá ekkert að vanbúnaði að skjóta henni á loft í annað sinn. Veðurhorfur voru allgóð- ar í kvöld og geimfararnir Engle og Truly því vongóðir um að komast á loft. Fyrr í þe.xsum mánuði var geim- skotinu aflýst 31 sekúndu áður en geimfarið átti að leggja af stað. Eiginkonur jafnvirði 3100 króna á viku? l/ondon, II. nóvember. AP. EIGINKONUR, sem ekki vinna úti, eru 3100 króna virði áviku, að því er tryggingafélag í Bretlandi hefur reiknað út. Félagið reiknaði út, hvað greiða þyrfti fyrir störf heimavinnandi húsmæðra á almennum markaði, væri utanaðkomandi fólk fengið til að vinna þau. Var miðað við almenn laun kokka, dagmæðra, þjónustu- stúlkna, uppþvottafólks og fleiri og miðað við 12—14 vinnustund- ir á dag alla 7 daga vikunnar. Fyrirtækið hefur síðan bent eiginmönnum á, hversu kostnað- arsamt það yrði fyrir þá, ef kon- an félli frá án þess að vera líf- tryggð og greiða þyrfti fyrir þau störf sem hún vinnur. Launin sem fyrirtækið hefur reiknað út jafngilda launum háttsetts for- ingja í hernum, biskups í brezku biskupakirkjunni eða slökkvi- liðsstjóra, þótt þeir vinni að jafnaði mun færri stundir á viku. Meðalvikulaun verkamanna í iðnaði í Bretlandi eru jafnvirði um 2100 króna, en laun verka- kvenna um 1400 króna. Einn leiðtoga brezkra kvenréttinda- kvenna sagði þó um niðurstöður tryggingafélagsins, að þau laun, sem reiknuð hefðu verið, væru lág, miðað við hvers konar vinnu heimavinnandi húsmæður stunduðu. Kafbátsstrandið í Svíþjóð: Soyétmenn vísa mót- mælum Svía á bug Moskvu, Washingion. 11. nóvember. AP. SOVÉTSTJÓRNIN sakaði Svía í dag um að fara rangt með staðreyndir varðandi strand sovézka kafbátsins undan flotastöðinni í Karlskrona og vísaði algerlega á bug mótmælum Svía vegna þessa atburðar. Sænski sendiherrann í Moskvu, Carl de Geer, var kvaddur í sovézka utanríkisráðuneytið í dag og honum færð sérstök orðsending vegna máls- ins, sem síðan var birt á vegum Tass fréttastofunnar. í yfirlýsingunni segir að kafbátur- inn hafi óvart villzt af leið vegna bilana í siglingatækjum og slæms skyggnis. Fullyrðingum Svía um að báturinn hafi verið að njósnum er harðlega andmælt í yfirlýsingunni. Kröfu Svía um að atburðir sem þess- ir endurtaki sig ekki er svarað með spurningu um hvernig nokkurn tíma verði hægt að tryggja að bilanir geri ekki vart við sig til sjós. I engu er minnzt á þá ásökun Svía, að kafbáturinn hafi haft kjarnorku- vopn innan borðs, en Tass fréttastof- an hafði fyrr í dag reynt að gera lítið úr því atriði, með því að benda á að nokkrir sérfræðingar á Vesturlönd- um hafa talið að ekki hafi fundist algerlega fullnægjandi sannanir fyrir því, að slík vopn hafi verið í bátnum. Ullsten utanríkisráðherra Svía sagði í kvöld í sjónvarpsviðtali, að það væri athyglisvert, að Sovétmenn skyldu ekki víkja einu orði að því, sem alvarlegast væri við mál þetta, þ.e. kjarnorkuvopnunum um borð í bátnum. Ullsten sagði einnig að gjörsamlega fráleitt væri að halda því fram að bilun í tækjum hefði valdið því að báturinn var þar sem hann var, þegar hann strandaði. Ullsten sagði, að sænska stjórnin mundi kynna sér yfirlýsingu Sov- étmanna mjög nákvæmlega áður en ákveðið yrði hvert framhaldið yrði. George Bush varaforseti Banda- ríkjanna flutti í dag ræðu við sjó- setningu fyrsta kjarnorkukafbáts Bandaríkjanna af Trident-gerð. Bush sagðist ekki geta skilið um- mæli Sovézka varnarmálaráðherr- ans um að Sovétríkin væru „í eðli sínu andvíg árásarstefnu" og að hernaðarstefna þeirra væri „óbreyt- anleg varnarstefna”. Bush spurði áheyrendur sína hvernig þessi um- mæli hljómuðu í Afganistan, Ung- verjalandi og Tékkóslóvakíu. Bush sagðist hafa furðað sig á því að Ustinov varnarmálaráðherra léti annað eins frá sér fara á meðan ver- ið væri að draga sovézkan kafbát bú- inn kjarnorkuvopnum út úr land- helgi Svía. Hann sagðist vorkenna skipherra kafbátsins, sem nú væri sennilega á leið á ellilaun í Síberíu. Kyprianou fellst á tillögur Waldheims Nikósíu, 11. nóvember. AP. SPYKOS Kyprianou forseti Kýpur tilkynnti í dag, að hann og stjórn hans gætu að svo komnu máli fellt sig við niðurstöður í skýrslu Waldheims framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna varðandi sambúð grískumælandi manna og tyrkneska minnihlutans á eynni. Stjórnin hefur haft skýrsluna til meðferðar í þrjár vikur og uppi hafa verið raddir meðal grískumadandi manna um að vísa henni á bug. Tyrkneski minnihlutinn hefur þegar fallist á niðurstöður og tillögur Waldheims. Kyprianou sagði á blaðamanna- fundi í dag, að í skýrslunni væri margt jákvætt en einnig sitthvað neikvætt, en að svo komnu máli væri rangt að hafna skýrslunni og með því letja framkvæmdastjóra SÞ t sáttaviðleitni hans á eynni. Wald- heim og aðrir starfsmenn Samein- uðu þjóðanna hafa unnið að því frá því árið 1974 er Tvrkir gerðu innrás á Kýpur, að koma á varanlegum sáttum milli aðila á Kýpur. Eitt stærsta deilumálið sem nú er óleyst varðar heimflutning 200 þúsund grískumælandi flóttamanna frá tyrkneska hlutanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.