Morgunblaðið - 12.11.1981, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1981
Byrjað að grafa í maf, opnað f nóvember:
„Heftir gengið ævintýralega vel“
Séð yfir hluta veitingastaðarins, sem er í kjallara hússins. Dansgólfið er upphskkað og svið fyrir enda þess. /Ktlunin
er að mögulegt verði að sjá það sem fram fer á sviðinu alls staðar úr veitingasalnum. (LjAsm. Emíifa.)
- segir Vignir Benediktsson verktaki
við nýja skemmtistaðinn Broadway
í MJÓDDINNI í Breiðholti er verið að byggja hús. Reyndar mörg. Eitt þeirra
hefur þó nokkra sérstöðu, því það eru ekki nema tspir fimm mánuðir síðan
byrjað var á því og þann 26. þessa mánaðar á að opna þar veitingahúsið
„Broadway“ á neðstu hsð, en í byrjun mars hefst rekstur kvikmyndahúss í
efri hlutanum og mun það eiga að heita „Dallas".
I>að er Vignir Benediktsson múrarameistari sem er verktaki í þessari hús-
byggingu. Þegar blm. og Ijósmyndara bar að garði til að skoða húsið og rsða
við Vigni um daginn var allt á fleygiferð á neðstu hsðinni, sums staðar var
múrað og hrsrð steypa, annars staðar var verið að mála. Unnið var við allt scm
kostur var. Við lá að líðindamaður Mbl. byggist á hverri stundu við að sjá
einhvern með ryksugu eða afþurrkunarklút og jafnvel þjón með glasabakka.
„Það eru átján dagar til stefnu,"
segir Vignir, „þangað til staðurinn
verður opnaður hérna niðri. Þetta
hefur gengið alveg ævintýralega
vel, eftir að grunn- og jarðvinnunni
lauk, en hún var mjög erfið. Þann
9. ágúst vorum við u.þ.b. mánuði á
eftir áætlun, en síðan hefur þetta
rokið áfram. Þetta er næstum því
ótrúlegt. Eðlilegt hefði verið að
þessi vinna sem búin er tæki svona
eitt og hálft ár a.m.k. En við vinn-
um hér alla daga vikunnar myrkr-
anna á milli og allir leggja sig fram
og þess vegna gengur þetta svona
vel.
Mennirnir eru sérlega samhent-
ir, hér eru sextán smiðir og fjöldi
annarra starfsmanna, alls um
fimmtíu manns. Þetta er mikið
dugnaði þeirra að þakka. Þetta er
alls ekki þægilegasta bygging til að
reisa hratt, þetta er allt í stokkum
og stöllum og alls kyns listar og
flúr í steypunni.
Við steypum síðustu, steypu á
morgun og svo klárum við þakið
fyrir þann 20. Allt húsið á að vera
fokhelt 4. desember. Það bjargast.
Annars er þetta ansi stórt hús.
Skemmtistaðurinn mun taka svona
1300 manns og salirnir fjórir í bíó-
inu alls 1001 manns í sæti. Til að
nefna dæmi um vandann við bygg-
inguna get ég sagt að í ýmsum
loftræstistokkum er alls 260 fer-
metra gólfflötur, en þessir stokkar
sjást náttúrulega ekki. Til saman-
Erlend fréttaskýring:
STUTTU eftir fráfall Anwar Sadats Egptalands-
forseta og kjör og embættistöku Hosni Mubar-
aks tóku stjórnmálasérfræðingar að ía að því, að
Mubarak kynni að reynast ísraelum langtum
erfiðari viðfangs og sækja sér í lagi sjálfsstjórn-
armál Palestínumanna af meiri hörku en for-
veri hans. Þessar skoðanir birtust og fljótlega í
ísraelskum blöðum, þótt þær væru settar fram
af mikilli gætni og áherzla lögð á fullyrðingar
Mubaraks um að hann ætlaði sér að framfylgja
stefnu Sadats varðandi ísrael.
Stjórnmálasérfræðingar
telja að Mubarak muni smátt
og smátt víkja af vegi Sadats
Fyrstu merki þess, að Mubarak
ætlaði sér ekki að feta eins
gersamlega í spor Sadats og
hann hafði lýst, komu þegar
hann ákvað að í egypskum
blöðum skyldi ekki hallað á
Arabaþjóðir; þ.e. ritstjórum
var bannað að birta stafkrók
sem mætti túlka sem gagnrýni
og meira að segja var Gaddafi
Líbýuleiðtogi þar með talinn.
Eins og allir vita hafði Sadat
verið sérlega harðorður í hans
garð og ekki vandað honum
kveðjurnar.
Israelum brá nokkuð í brún,
þegar þessar fréttir spurðust.
Utanríkisráðherra Egypta-
lands var þá snarlega sendur í
heimsókn til Israels og fyrri
staðhæfingar Mubaraks voru
endurteknar. Aðrir Arabaleið-
togar voru hins vegar fljótif að
skilja táknin sem Mubarak
sendi og þó að kannski hafi
ekkert áþreifanlegt gerzt er þó
af mörgu sýnt, að atbeini Mu-
baraks féll í góðan jarðveg.
Stjórnmálafréttaritarar eru yf-
irleitt sammála um, að ekki
verði til að bæta andrúmsloft-
ið hversu ósveigjanlegir ís-
raelar hafa verið upp á síð-
kastið, þegar tillögur Sauda
voru aftur teknar á dagskrá og
síðar verður vikið að í þessari
grein. Kunni þetta að kalla
fram svo neikvæð viðbrögð að
Mubarak muni sjá sér þann
kost vænstan að brjótast með
Egypta út úr þeirri einangrun
sem friðarsamningurinn við
ísraela setti þá í og muni hinir
síðarnefndu sitja eftir með
sárt ennið.
í ísraelska blaðinu Jerusalem
Post er því spáð að Mubarak
muni beita þeirri aðferð á
næstu mánuðum, að ná sam-
komulagi sem verði Israelum
viðsættanlegt, svo að ekki
verði hætta á að þeir fresti
liðsflutningi sínum frá Sinai,
sem á að vera lokið í apríl, en
það samkomulag verði svo loð-
ið að ekki verði skellt dyrunum
á þann möguleika að sjálfstætt
Palestínuríki verði sett á stofn
á Vesturbakkanum og Gaza —
einhvern tíma í framtíðinni —
„ og að líkindum fyrr en síðar.
I Jerusalem Post sagði, að Mu-
barak virtist einráðinn í að
vekja ekki máls á neinu því
sem umdeilt kynni að vera fyrr
en Sinai málið er fullkomnað
og að hann hafi sérstaklega
tekið fram að ekki sé tímabært
að Palestínumenn hefji þátt-
töku í samningaviðræðum nú.
Mubarak hefur sagt að það
myndi ekki skila neinum ár-
angri nú, en þeir ættu að koma
til sögunnar síðar. Niðurstaða
ísraelskra stjórnmálafréttarit-
ara og margra vestrænna er
einfaldlega sú, að Mubarak
ætli sér að leika tveimur
skjöldum, hann fullvissi ísra-
ela um velvild og tryggð, en
hann muni leggja kapp á sam-
komulag sem sé svo almennt
orðað að.ísraelar verði síðar að
fallast á að Palestínumenn
vinni með ísraelum að því á
Varnarmálaráðherra ísr-
aels, Ariel Sharon, á tali
við Kamal Hassan Ali,
utanríkisráöherra Eg-
yptalands, þegar sá síð-
arnefndi var í heimsókn í
ísrael á dögunum.
Faðmlag þeirra Begins
og Mubaraks er forsæt-
isráðherra ísraels kom að
fylgja Sadat til grafar. Til-
finningarnar eru þegar
byrjaöar að kólna.
„ótilgreindu síðara stigi" að
finna lausn á málinu.
Ákvörðun Bandaríkjatnanna
um AWACS-vélasöluna vek-
ur reiði í Israel
Naumast þarf að fjölyrða um þá
miklu reiði sem hefur brotizt
út í garð Bandaríkjamanna í
ísrael vegna ákvörðunar
þeirra i sambandi við AWAS-
vélasöluna til Saudi-Arabíu og
það mál tengist vitanlega sam-
skiptum við Egypta og aðrar
Arabaþjóðir. Begin forsætis-
ráðherra hefur af þessu tilefni
tekið til umfjöllunar á ný frið-
aráætlun Sauda og ráðist mjög
harkalega að Reagan forseta
og Bandaríkjastjórn fyrir að
halda því fram að í áætluninni
væru jákvæðir þættir.
Alexander Haig, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna fullviss-
aði Evron sendiherra ísraela í
Washington í síðustu viku um
að Bandaríkjamenn myndu í
engu hvika frá Camp David
samkomulaginu, en ísraelar
segja að það samkomulag
hryndi til grunna ef Banda-
ríkjamenn féllust á svo mikið
sem eitt atriði í áætlun Sauda.
Engu að síður gera þær grun-
semdir vart við sig í Israel að
bandaríska stjórnin ætli sér að
reyna að tengja Camp David
samkomulagið við einstaka
þætti í áætlun Sauda með það
fyrir augum að víkka út friðar-