Morgunblaðið - 06.12.1981, Síða 1

Morgunblaðið - 06.12.1981, Síða 1
Sunnudagur 6. desember 5or0mií>I$tíiiiíí> Bls. 49-96 Mál Ijossins Það var föstudaginn 2. nóvember árið 1906 klukkan sjö aö kvöldi, að danskur Ijósmyndari, Peter Petersen, myrkvaði salinn í Breiðfjörðshúsi viö Aðalstræti og kveikti á sýningarvélinni. í salnum fyrir neðan sýningarklefann gat hann greint hvirfilinn á yfir tvö hundruð uppáklæddum íslendingum sem komnir voru til að sjá fjörutíu og fimm mínútna langa dagskrá með „lifandi myndum" af landslagi, merkisviðburðum og spaugi. Reykjavíkur Bio- graftheater var tekið til starfa í Fjalakettinum. Bíóið var orðið hluti af íslenskri menningu. For- stjóri fyrirtækisins, Daninn Alfred Lind, hafði verið gerður út af Warburg nokkrum, stórkaup- manni í Kaupmannahöfn. Sá hafði keypt tæki til sýninga og töku kvikmynda og faliö Lind að koma upp kvikmyndahúsi í Reykjavík. Rekstur- inn gekk vel og Reykjavíkur Biograftheater auglýsti nýtt prógram í hverri viku, hljóðfæra- slátt og raflýsingu. Sýníngarnar voru hvert kvöld klukkan sjö og níu. Fólk var nægjusamt í þá daga. Það var ekki fyrr en mörgum áratugum síðar að fariö var aö auglýsa sýningar klukkan „þrju, fimm, sjö, níu og ellefu-fimmtán". Þegar Nýja Btó tók til starfa var farið að kalla bíóið í Breiðfjörðshúsi „Gamla Bíó" og þegar það flutti í eigið húsnæði á þriðja áratugnum stóö það nafn á nýbyggingunni. Á fyrstu áratugum aldar- innar áttu sér staö miklar breytingar á högum manna hér í álfu. Nýjar hugmyndir ruddu sér til rúms á öllum sviðum og fé streymdi frá nýlendunum og gerði kleift að hrinda þeim í framkvæmd. Til þessara ára má rekja margt og kannski flest af því sem einkennir vestrænt nútímasamfélag. Hlutir sem nú eru hversdagslegir voru þá í fyrsta sinn að líta dagsins Ijós i ófullkominni mynd á verkstæöum og tilraunastofum. Bílar, flug- vélar, útvarp svo nokkuð sé nefnt. Og kvikmyndir. Danir uröu ásamt ítölum forystu- menn á sviði kvikmyndagerðar á öðrum tug aldarinnar og því er það ekki undarlegt að áhugi á kvikmyndum vaknaði snemma meðal i-.—m,----mm- Qg þejr icynntust Hanna Ralph og Gunnar Tolnæs í hlutverkum sínum í kvik- myndinni „Det Sovende Hus“, sem Guðmundur Kamban gerði fyrir Nordiska Films Kompagni í Danmörku árið 1926. sömuleiðis snemma „máli ljóssins“,eins og Jóhann Sigurjónsson kallaði hina nýju listgrein. Alfred Lind og Bíó-Petersen tóku hér kvikmyndir samhliða því aö þeir sýndu í Fjalakettinum. Erlendir menn tóku hér heimildamyndir fyrir fyrri heims- styrjöld og árið 1919 kemur mikið lið frá Nordisk Film Kompagni og tekur hér upp mikinn hluta kvikmyndarinnar „Borgslægtens Historie" eftir skáldsögu Gunnars Gunnarssonar. Tveimur árum áður höföu Svíar kvikmyndað Fjalla-Eyvind Jóhanns Sigurjóns- sonar, sem vakið hafði mikla athygli á fjölum konunglega leíkhússins í Kaupmannahöfn og í Stokkhólmi. j upphafi þriðja áratugar- ins hófust svo afskipti þriðja íslenska rithöf- undarins af kvikmyndagerð og árið 1924 stofn- aði hann ásamt fleirum eigiö kvikmyndafélag og hélt til eylandsins í norðri til að gera kvikmynd eftir eigin leikriti sem sýnt hafði veriö í „Kon- unglega". Sá var Guðmundur Kamban. Það telst til meiriháttar afreka nú á dögum aö gera kvikmynd, enda leggur fólk mikið á sig við slíka vinnu og miklir fjármunir eru jafnan í húfi. Þá leggja leikarar og aðrir starfsmenn sig gjarnan í mikla hættu þegar áhrifamikil atriði eru fest á filmu viö erfiðar aðstæður. Það er því athyglis- vert að hugleíða andartak hvernig það hefur veriö aö vinna að meiri háttar kvikmyndagerð á dögum hestvagna, óbrúaöra stórfljóta og ým- issa annarra óþæginda sem nú heyra sögunni til. Kvikmyndir þær sem hér er fjallað um voru teknar með handsnúnum myndavél- um á 35 millimetra svarthvítar filmur, sem stundum voru litaðar eftir á. Eitt var það sem kvikmyndagerðarmenn þessa tíma voru þó lausir við. Þeir þurftu ekkert að hugsa um tal eöa önnur hljóö. Rétt eins og fólk ætlaðist ekki til að konungurinn kastaði á þaö kveöju þar sem hann hékk í gyllta rammanum á stofuveggnum, átti það ekki von á því að hreyfimyndafólkið á hvíta tjaldinu í Breiðfjörðshúsi færi að hafa í frammi hávaöa og yfirgnæfa kannski með því slaghörpuspílið. SIB.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.