Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, simi 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 100 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 6 kr. eintakiö. Um ástandió í landinu í vertíóarbyrjun ALLT atvinnulíf í landinu við sjávarsíöuna er nú að lamast vegna verkfalls sjómanna og ástandsins í útvegsmálum landsins, en Morg- unblaðið hafði samband við fjölmarga staði á landinu í gær og leitaði umsagna manna varðandi stöðuna og ástand mála í hinum ýmsu plássum þar sem flestir eiga alla afkomu sína komna undir vinnu við fiskvinnslu. Fum sjávarútvegsráð- herra og fiskverðið r Iræðu, sem Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, flutti á Al- þingi 16. desember um afkomu sjávarútvegsins og ákvörðun þá um fiskverð, sem nú er beðið, en á lögum samkvæmt að taka fyrir 1. janúar, komst hann svo að orði: „Nú hafa samtök þessara aðila sjómanna, útvegsmanna, fiskvinnsluaðila, að minnsta kosti ýmis þeirra, boðað stöðvun útgerðar um áramót, ef nýtt fiskverð verði ekki komið. Það vill nú svo til, að þetta eru einmitt sömu aðilar, sem velja fulltrúa í verðlagsráðið, sem á samkvæmt lögum að ákveða fiskverð. Það er auðvitað ágætt að reka þannig á eftir sjálfum sér, það er gott að slá í hjá sjálfum sér og getur vafalaust verið gagnlegt." Forsætisráðherra taldi, að ríkisvaldið hlyti „að koma hér inn í þessi mál til þess að greiða úr“ og bætti svo við „en það má ekki velta öllum vandanum yfir á ríkisvald og ríkisstjórn." Eins og sjá má af hinum tilvitnuðu orðum var forsætisráðherra í raun að skjóta sér og ríkisstjórninni undan því að vera ákvörðunar- aðili um fiskverðið, jafnframt lét hann eins og vandi útgerðar og fiskvinnslu væri minni en tölur gáfu til kynna. Allt frá því í október hefur verið ljóst, að ákvörðun yrði ekki tekin um fiskverð um þessi áramót nema með verulegum atbeina ríkisvaldsins, bæði þyrftu til að koma breyting á gengi og aðrar aðgerðir, sem einungis eru á valdi ríkisstjórnarinnar. Hinn 16. desember talar forsætis- ráðherra á Alþingi eins og ríkisstjórninni komi fiskverðið næsta lítið við, það sé ágætt, að þeir, sem það ákveði, slái í hjá sjálfum sér. Svo virðist sem það sé helst á gamlársdag, að eitthvert ljós kvikni hjá ríkisstjórninni. 31. desember 1980 gaf hún út efnahags- áætlun og 31. desember 1981 gekk Steingrímur Hermannsson, sjáv- arútvegsráðherra, þvert á orð forsætisráðherra frá 16. desember og tilkynnti hróðugur, að hann hefði lagt fram hugmyndir um ákvörð- un fiskverðs. Mátti helst skilja fréttir ríkisfjölmiðlanna á þann veg, að með hugmyndum sjávarútvegsráðherra, sem hann sagði settar fram í umboði allrar ríkisstjórnarinnar, væri allur fiskverðsvandi leystur. Sú bjartsýni reyndist ekki á rökum reist, tillögur ráðherr- ans komu raunar verðjagsráðinu í opna skjöldu, ekki síst vegna þess hve fjarri raunveruleikanum þær voru. Fum sjávarútvegsráð- herra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar hefur síður en svo flýtt fyrir fiskverðsákvörðun. Nú sýnist Steingrímur Hermannsson trúa því, að fái hann gagntilboð við óraunsæju tilboði sínu og ríkisstjórnar- innar, sé allur vandi leystur! Þau atvinnutæki, sem skapa megnið af íslenskum þjóðarauð, liggja bundin við bryggju. Að minnsta kosti þrettán þúsund manns um land allt eru frá vinnu eða að missa hana í byrjun vertíðar. I margar vikur hefur blasað við, að þetta ástand skapaðist nema ríkisstjórnin hefði eitthvert frumkvæði. Ríkisstjórnin liefur hins vegar látið sér nægja að dást að eigin ágæti. Vegna ábyrgðar- og úrræðaleysis ríkisstjórnarinnar vita þeir, sem fjalla um fiskverðið í yfirnefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins, ekki, hvar þeir eiga að stinga niður fæti til að finna fast land undir ákvörðun sína. Fum sjávarútvegsráðherra, tilboð hans út í bláinn á elleftu stundu, þvert ofan í yfirlýsingar sjálfs forsætisráðherra, er enn ein stað- festingin á því, að ekki er lengur unnt að taka nokkurt mið af orðum og athöfnum einstakra ráðherra. Til þeirrar staðreyndar má fyrst og síðast rekja það öngþveiti, sem nú ríkir, vofa atvinnuleys- isins er tekin að láta á sér bera vegna særinga einstakra ráðherra og ríkisstjórnarinnar í heild. Merk yfirlýsing Friðjóns Þórðarsonar Pólitískir málsvarar ríkisstjórnarinnar, þeir Gunnar Thorodd- sen og Svavar Gestsson, hafa lýst því, að frétt Dagblaðsins og Vísis um þingrof í janúar og kosningar í mars eigi ekki við rök að styðjast. I tilefni af frétt sinni um þetta mál sneri Dagblaðið og Vísir sér til Friðjóns Þórðarsonar, dómsmálaráðherra, sem sagði, að sér væri ekki kunnugt um þingrofsáform. Og Friðjón bætti við merkari yfirlýsingu, þegar hann sagði: „... framboð mitt utan Sjálfstæðis- flokksins kemur ekki til greina ... Það hefur ætíð verið mín ætlun, að þegar lýkur þessu stjórnarsamstarfi, sem ég taldi nauðsynlegt á sínum tíma, gangi sjálfstæðismenn aftur sameinaðir til leiks." Búist við að 8000 manns missi atvinn- una í Reykjavík VEGNA ástandsins í fisk- vinnslufyrirtækjum víða um land í kjölfar vinnustödvunar á fiskiskipaflotanum, munu margir á næstunni eiga rétt á atvinnuleysisbótum frá At- vinnuleysistryggingasjóði. Af því tilefni sneri Mbl. sér til Eyjólfs Jónssonr hjá ' Trygg- ingastofnun til að afla upplýs- inga um það, hverjir eiga rétt á slíkum bótum og hve mikl- um. í svari Eyjólfs kom fram, að hver sá sem er í verka- lýðsfélagi og hefur stundað vinnu að einhverju marki síðustu tólf mánuði, á rétt á atvinnuleysisbótum, verði eiga allir rétt til slíkra bóta óháð tekjum maka. Eyjólfur sagði að ljóst væri að hér yrði um mikla fjármuni að ræða, ef ekki leystist úr bráðlega og til dæmis mætti búast við að 6000—8000 manns myndu missa vinnu sína á starfs- sviði verkalýðsfélaganna í höfuðborginni einni næstu daga vegna stöðvunar flot- ans. Neskaupstaður: Helmingur bæjarbúa atvinnulaus Á Neskaupstað sagði bæj- arstjórinn Logi Kristjánsson í samtali við Mbl. að væri eitt Vörubílastöðin í Keflavík: Allt stopp og dapurlegt hljóð ALLT HEFUR verið stopp hjá okkur í dag, sagði Sigurður Guðjónsson formaður Vörubflastöðvarinnar í Keflavík í samtali við Mbl. Það hef- ur ekki verið nema einn bfll í gangi í dag og hann var að hirða upp eftir óveðrið um daginn. Yfir vetrarmánuðina á Vöru- bílastöðin allt sitt undir fiskinum og þá eru allir bílarnir 30 í fiski en nú er sem sagt allt stopp og verður þannig þar til verkfall sjómanna leysist. Við stöndum heils hugar með sjómönnum í þeirra baráttu og ég tel að það eigi að gera allt til að endar nái saman hjá höfðingjun- um sem semja. Hljóðið í mönnum hér á stöðinni er dapurt en hvað verður skal ég ekki spá um. Frá ísafirði í upphafi vetrarvertíðar, skuttogaraflotinn liggur bundinn og innar í krikanum eru fiskiskipin af ýmsum hann atvinnulaus. Hafi við- komandi unnið sem svarar 1700 klukkustundir á þessu tímabili, hlýtur hann há- marksbætur, sem nema kr. 253,52 á dag auk 10,00 kr. fyrir hvert barn á framfæri hans, yngra en 17 ára. Lág- marksbætur nema fjórðungi af þessari upphæð, en barnauppbót er hin sama, og miðast þær við, að viðkom- andi hafi unni 400 klst. síð- asta árið. Bæturnar fara síð- an stighækkandi, eitt pró- sentustig fyrir hverjar sautján vinnustundir, þar til fullum bótum er náð með 1700 vinnustundum. Sú breyting varð á lögum í sambandi við atvinnuleys- isbætur fyrsta júlí sl. að nú stórt fyrirtæki sem 45 til 50 prósent bæjarbúa sæktu vinnu sína til, þar með taldir sjómenn. I>að fyrirtæki lifir á sjónum, er með útgerð, frystihús, skreiðarvinnslu, síldarverksmiðju og fleira og það væri nú allt stopp og flest fólkið með. Logi sagðist ekki hafa tölu yfir atvinnulausa á Neskaupstað vegna sjó- mannaverkfallsins en sagði að togarar hjá þeim væru oftast á þessum tíma í landi og væri því verkfalls- ins ekki enn farið að gæta svo mjög. Bjóst hann þó við að fólk færi að láta álit sitt í ljós fljótlega. • * V«J> «* '*• ••<* i* -••* »<« « •• Netagerd Ingólfs í Eyjum: Bátarnir geta ekki leyst út netin INGÓLFUR Theódórsson hjá Neta- gerdinni Ingólfl í Vestmannaeyjum tjáði Mbl. í gær, að ennþá gRtti áhrifa stöðvunar flotans lítt hjá neta- gerðum, en að því kæmi. Sagði hann, að stöðvunin hefði vinnutefjandi áhrif og ylli því að bátarnir gætu ekki leyst út þorskanetin fyrr en vinnustöðvun- inni lyki, þar eð peningamálin stæðu föst. „Það er alveg í járnum með að við höfum nóg að gera núna, alls ekki meira en það. Þetta hefur neikvæð áhrif á allan rekstur." •• « MORGUJÍBLADIC, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 29 Húsavík: 200 starfsmönn- um sagt upp TRYGGVI Finnsson, frysti- hússtjóri á Húsavík, sagði í samtali við Mbl. í gær, að þar lægi öll starfsemi nú niðri og að venju hefði frystihúsið sagt upp fastráðningarsamn- ingum um 200 starfsmanna frá og með jólum, en sá hátt- ur hefði verið hafður á und- anfarin ár á þessum árstíma, sem að jafnaði væri rólegur mjög. „Ennþá er nokkur salt- fisk- og skreiðarverkun í gangi, en ef ekki leýsist úr þessu fljótlega, er alvarlegt mál á ferðinni. Annars hef- ur oft ekki verið byrjað á frystingu hér fyrr en þann 10. jan., heldur unnið við viðhald ýmiss konar." Verkamannafélagið Dagsbrún: „Anzi baga- legt víða“ Halldór Björnsson ritari Dagsbrúnar sagði í samtali við Mbl. að mikið væri hringt þessa dagana á skrifstofuna og spurt um hvert fólk ætti að snúa sér í sambandi við atvinnuleysisbætur og annað. Ljósmynd Mbl. Úlfar. í Sandgerðishöfn um helgina, allur flotinn bundinn. Ljósmynd Mbl. Kristján. Vörubílastöðin Þróttur í Reykjavík: Fiskurinn hefur bjargað vetrinum Það er oftast fiskurinn sem bjarg- ar vetrinum hjá okkur, sagói Kjart- an Trausti Sigurdsson, fram- kvæmdastjóri vörubílastöóvarinnar Þróttar, í samtali við Mbl., en útlit er fyrir að það minnki eitthvað vegna sjómannaverkfallsins. Herluf Clausen, formaður vöru- bílastöðvarinnar, sagði að nú væri oftast dauður tími f yrir vörubíl- stjórana en stæði sjómannaverk- fallið lengi ætti það eflaust eftir að hafa áhrif á stöðina. Um 200 manns vinna á vörubílastöðinni. Verkalýðsfélag Vestmannaeyja: „Allt við það að lognast út af‘ - Atvinna 700 manna í hættu Jón Kjartansson, formaður Verka- lýðsfelags Vestmannaeyja sagði í samtali við Mbl. í gær, að enn væri ekki Ijóst hve margir myndu missa vinnuna í Vestmannaeyjum vegna vinnustöðvunarinnar, en 600—700 manns ynnu við fiskvinnsluna. Sagði Jón að 150 kauptryggingarsamn- ingar rynnu út í dag, þriðjudag og það væri einkum kvenfólk sem yrði fyrir barðinu á uppsögnum. „Hér er allt við það að lognast út af, þetta er að vísu sá árstími, sem jafnan er rólegur, en aldrei hefur hann verið alveg dauður eins og núna,“ sagði Jón að lokum. Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði: „Hrikalegt ástand“ Uppsögnum er beitt af fullri hörku og það er hrika- legt að verða fyrir þessu, sagði Hallgrímur Pétursson formaður Verkamannafé- lagsins Hlífar í Hafnarfirði. Sagði hann að það hefði legið í loftinu að hráefni yrði ekki fyrir hendi og að verkefna- skortur yrði og væri það hrikalegt ástand. Eina sára- bótin væru atvinnuleysisbæt- ur. Ekki er útséð hve mörg- um í félaginu verður sagt upp og hefur verið sagt upp, en Hallgrím grunaði að einhverjir karímann- anna fengju að vinna áfram, fastamennirnir, til að sjá um viðhald véla. Sagðist Hallgrímur eiga bágt með að trúa því að ráðamönnum veitist erfitt að leysa þennan vanda. Verkakvennafélagið Framsókn í Reykjavík: Aðgerðirnar bitna fyrst og sfðast á konunum Þórunn Valdimarsdóttir, for- maður Verkakvennafélagsins Frá eiiini af bryggjum Vestmannaeyjahafnar, Naushamarsbryggju, þar sem allt er nú með kyrrum kjörum vegna ástandsins í útvegsmálum landsins. Ljósmynd Mbl. Sigurgeir. Ekki vissi hann hve margir það væru sem sagt hefði verið upp í Dagsbrún en fyrir utan fólk í hrað- frystihúsum, þá væri margt annað tengt þeim sem missti vinnuna. Þannig færu mennirnir sem vinna í Togaraafgreiðslunni af launaskrá þann áttunda janúar ef ekkert breyttist. Pað væri Ijóst að mjög stór hópur verkafólks í Dagsbrún færi á atvinnu- leysisskrá og sagði Halldór það vera ansi bagalegt víða. Hann bætti því þó við að það væri ekki stór hópur i Dagsbrún sem væri fisk- verkunarfólk hlutfallslega miðað við víða úti á landi. Alþýðusamband Vestfjarða: 500 missa atvinnuna - fólk ósátt við að teljast „annars flokks“ borgarar „Það rifjast upp fyrir manni það óöryggi sem fiskverkunar fólk á við að búa,“ sagði Pétur Sigurðsson formaður AV. „Þeg- ar eitthvað bjátar á geta vinnu- veitendur tekið það af launa- skrá. Það eru um 500 eða fleiri sem missa atvinnuna hjá okkur gæti ég hugsað,“ sagði Pétur og bætti því við að andinn hjá fólk- inu einkenndist af því að það væri ekki sátt við að teljast ann- ars flokks borgarar. Því þætti það leitt að hægt væri að henda því úr húsunum þegar fiskinn þryti. „Svo er annað skrítið," sagði Pétur, „og það er hvers vegna menn setjast alltaf niður að- eins á milli jóla og nýárs til viðræðna um hluti sem í marga mánuði hafa verið stór vandamál. Hvers konar jóla- sveinar stjórna landinu, sem engar áhyggjur þurfa að hafa nema milli jóla og nýárs?" sagði Pétur Sigurðsson. Málm- og skipæsmidjur: Erfiðleikar með greiðslur GUÐJÓN Tómasson, framkvæmda- sljóri Sambands málm- og skipa- smiðja, sagdi í samtali við Mbl. í gær, að fyrstu áhrifln af flotastöðvun sem þessari á starfsemi málm og skipa- smíðafyrirtækja væru miklar annir, því nú væri tíminn notaður til að gera við ýmislegt, svo skipin væru tilbúin til þorskveiða þann flmmtánda janúar nk. „Það verður mikið að gera fram að því, en síðan má búast við dauðu tímabili, eftir að allir togararnir fara út þarna á sama tíma. En þess- ar sveiflur í verkefnafjölda geta ver- ið fyrirtækjunum erfiðar." Franisóknar í Keykjavík, sagðist halda að á atvinnuleysisskrá hjá þeim yrðu um 400 til 500 manns. Sagði Þórunn að álit sitt á þessum uppsögnum væri svart. Það væri voðalegt að svona þyrfti að koma fyrii-, en öllu hræðilegra væri það að alltaf þegar eitthvað bjátaði á í fisk- iðnaðinum hérá landi, bitnaði það fyrst og síðast á konunum í hraðfrystihúsunum. Hún sagði að uppsagnarfresturinn á kaup- tryggingasamningnum væri allt of stuttur, aðeins vika. Andinn í fólkinu, sagði Þór- unn, að væri slæmur og sagði hún að konum þætti voðalegt að þurfa að mæta þessum uppsögn- um. Sérstaklega væri það hræði- legt á þessum tíma árs. SJÁ NÆSTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.