Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982
23
Alfreð og Gunnar sínum
gömlu félögum erfiðir er
KR sigraði KA á Akureyri
Áhorfendur létu sig ekki vanta í íþróttaskemmuna á Akureyri frekar en
fyrri daginn er KR hefur komið í heimsókn, er þeir léku við KA í 1. deildinni
í handbolta á sunnudaginn. Þá hafa akureyrskir handknattleiksunnendur
eflaust verið spenntir að sjá bræðurna Alfreð og Gunnar Gíslasyni aftur leika
norðan heiða en þeir léku báðir með KA áður sem kunnugt er. Þeir bræður
voru raarkahæstir hjá KR og lögðu grunninn að sigri liðsins. KR-ingar
skoruðu 25 mörk í leiknum en KA 21. Staðan í hálfleik var 11:9 KR í vil.
Það var Alfreð sem skoraði
fyrsta mark leiksins en Sigurður
Sigurðsson svaraði fljótlega fyrir
heimamenn. Leikurinn var í jafn-
vægi fyrstu mínúturnar en síðan
seig KA fram úr. Eftir stundar-
fjórðungs leik hafði KA þriggja
marka forskot (7:4) og tveim mín-
útum síðar var staðan 8:6 þeim í
vil. Þá seig heldur á ógæfuhliðina
hjá norðanmönnum og KR skoraði
fimm mörk í röð. Staðan breyttist
því skyndilega í 11:8. Áhorfendur,
sem skiljanlega voru flestir á
bandi KA, höfðu látið vel í sér
heyra framan af en þegar á móti
fór að blása þögnuðu flestir og er
það því miður allt of algengt að
áhorfendur þegi þegar hvatningar
er mest þörf. Hvað um það, Sig-
urður Sigurðsson lagaði stöðuna
fyrir KA þannig að staðan var 11:9
í hálfleik. Fyrri hálfleikurinn var
ekki sérstaklega vel leikinn, þó
nokkuð var um mistök á báða bóga
en ágæt tilþrif sáust þó inn á
milli. Haukur Ottesen skoraði
fyrsta markið í seinni hálfleik
fyrir gestina en KA svarar síðan
með tveim mörkum og munurinn
þá aðeins eitt mark. Gunnar og
Alfreð skora þá fyrir KR.
Tveim KA-mönnum hafði verið
vikið af velli en þrátt fyrir það
tókst Sigurði að bæta marki við,
Alfreð skorar með þrumuskoti eft-
ir uppstökk en Sigurður svarar er
hann skorar af harðfylgi eftir
gegnumbrot. Alfreð skorar enn
einu sinni og þá hafði hann gert
þrjú síðustu mörk KR og gekk
fyrrverandi félögum hans illa að
stoppa hann. KA-menn gripu nú
til þess ráðs að taka Alfreð úr um-
ferð en þá tók Haukur Ottesen til
sinna ráða. Hann skoraði 17. mark
KR er 10 mín. voru liðnar af hálf-
leiknum. Erlingur Kristjánsson
bætti við marki fyrir KA en
Haukur skoraði aftur eftir að hafa
splundrað KA-vörninni. Vörn
heimamanna opnaðist oft illa á
þessu tímabili og nýttu Haukur og
Gunnar Gíslason sér það út í ystu
æsar. KA-menn náðu góðum leik-
kafla er staðan var orðin 22:16 og
skoruðu fjögur mörk í röð og
breyttu stöðunni í 20:22.
KR-ingarnir skoruðu tvö næstu
mörk og sanngjarn sigur þeirra
var í höfn. Liðin skoruðu síðan sitt
markið hvort á síðustu mínútu
leiksins. Endaði leikurinn því með
sigri KR 25:21 e1ns og áður sagði.
Liðin:
Þeir bræður Alfreð og Gunnar
voru bestu menn KR. KA-
mönnum gekk illa að stöðva Al-
freð. „Maður er óánægður ef Al-
freð skorar ekki nokkur mörk í
landsleik á móti stórþjóðum þann-
ig að ekki er óeðlilegt að hann
skori 8 mörk á móti okkur," sagði
Birgir Björnsson þjálfari KA eftir
leikinn. Gunnar var einnig mjög
ógnandi og þá voru þeir sterkir í
vörninni. Annars var liðið nokkuð
jafnt að getu. Haukur Ott. átti
góða spretti, einnig nafni hans
Geirmundsson og Jóhannes Stef-
ánsson. Þá varði Brynjar Kvaran
nokkuð vel.
»-21—25
Sigurður Sigurðsson var lang-
ákveðnastur KA-manna. Hann
barðist vel í sókninni og skoraði
stundum af miklu harðfylgi upp á
eigin spýtur. Friðjóni voru frekar
mislagðar hendur í sóknarleiknum
— hann átti nokkuð mörg skot
framhjá markinu. Hann stjórnaði
spilinu vel en sóknarleikurinn
varð vandræðalegur er hann var
tekinn úr umferð. Vörn liðsins
opnaðist oft illa og voru mark-
verðir liðsins ekki öfundsverðir.
Erlingur Kristjánsson komst
nokkuð vel frá leiknum en aðrir
voru ekki nógu sannfærandi.
Röggsamir dómarar leiksins voru
Gunnlaugur Hjálmarsson og
Björn Kristjánsson. Þeir gerðu
vitleysur eins og aðrir en það bitn-
aði alls ekki frekar á öðru liðinu.
Mörkin skiptust þannig:
KA: Sigurður Sigurðsson 8,
Friðjón Jónsson 4 (lv), Erlingur
Kristjánsson 3, Jóhann Einarsson
2, Jakoh Jónsson 2, Þorleifur An-
aníasson 2.
KR: Alfreð Gíslason 8, Gunnar
Gíslason 5, Haukur Geirmundsson
4, Haukur Ottesen 4, Jóhannes
Stefánsson 3 og Ragnar Her-
mannsson 1 mark.
— sh.
Handknattlelkur
V-_________________/
Hess hefur forystuna
Joe Jordan
gerði það
gott á Ítalíu
Skoski miðherjinn kunni, Joe
Jordan, kom við sögu í viðureign AC
Milano og ('agliari í ítölsku deild-
arkeppninni í knattspyrnu um helg-
ina. Jordan, sem hefur ekki beinlín-
is hrifið ítali með snilld sinni, gerði
það þó gott að þessu sinni, hann átti
allan heiðurinn af sigurmarki ACM,
er hann splundraði vörn Cagliari
seint í leiknum og piltur að nafni
Battisini sendi knöttinn í netið. Ann-
ars urðu úrslit leikja sem hér segir:
Ascoli — Torino 0—0
Bolognia — Genoa 1 — 1
Catanzarro — Cesena 2—0
Como — Avellion 0—1
Fiorentina — Inter 4—2
Juventus — Udinese 1—0
AC Milano — Cagliari 1—0
Napoli — Koma 1—0
Merkilegustu úrslitin eru kannski
í leik Fiorentina og Inter, en það
gerist ekki á hverju ári, að ítölsk 1.
dcildar lið skori 4 mörk í leik. Fior
entina er efst með 19 stig og Juvent-
us er í öðru sæti með 18 stig. Inter
og Roma hafa 16 stig hvort félag.
Knaltspyrna I
SVISSNESKA stúlkan Erika Hess
sigraði í svigkcppni heimsbikarsins,
sem haldin var í Marobor í Júgósla-
víu um helgina. Var það þriðji
heimsbikarsigur Eriku í röð og hefur
hún nú náð ágætri forystu í stiga-
keppninni.
Hess, sem er aðeins 19 ára, féll
næstum á höfuðið í fyrri ferð sinni
og var eftir hana heilli sekúndu á
eftir Perrine Pelen, sem náði þá
forystunni. Hins vegar gekk allt á
afturfótunum hjá Pelen hinni
frönsku í síðari ferðinni og mátti
engu muna að hún hafnaði úti í
kjarri. Samtals fékk Hess tímann
1:37,58, eða tæpri sekúndu betri
tíma heldur en Maria Rosa Quario
frá Italíu, sem skaust upp í annað
sæti. Vesalings Perrine Pelen
hrapaði niður í fjórða sætið.
Sem fyrr segir, hefur Erik Hess
forystuna í stigakeppni heimsbik-
arkeppninnar, hún hefur 173 stig,
en í öðru sæti er Irene Epple frá
Vestur-Þýskalandi með 139 stig,
en þriðja sætið skipar Elain Coop-
er frá Bandaríkjunum með 109
stig. Heimsbikarhafi síðasta
keppnistímabils, Hanni Wenzel
frá Lichtenstein er sem stendur í
fimmta sæti, en hún hefur hreppt
72 stig.
• Friðjón Jónsson KA kominn í gegn og skorar.
Ljósm. sor.
Garðar varð
stigahæstur
• GARÐAR Jóhannsson KR varð
stigahæstur íslenskra leikmanna á
síðasta íslandsmóti í körfuknattleik,
og fékk því viðurkenningu Morgun-
blaðsins fyrir afrek sitt. Garðar
skoraði 312 stig í 20 leikjum. Næstur
Garðari kom Ríkharður Hrafnkels-
son úr Val, en hann varð stigahæstur
í einkunnagjöfinni. Garðar leikur
enn með KR og er einn af stiga-
hæstu leikmönnum liðsins það sem
af er þessu keppnistímabili.
Listinn yfir stigahæstu leik-
menn síðasta íslandsmóts í körfu-
knattleik lítur þannig út:
Garðar Jóhannsson KR 312
Ríkharður Hrafnkelsson Val 308
Kristján Ágústsson Val 294
Gunnar Þorvarðarson UMFN 292
Jón Sigurðsson KR 285
Valdemar Guðlaugsson Árm. 281
Bjarni G. Sveinsson ÍS 271
Torfi Magnússon Val 266
Jón Jörundsson ÍR 257
Kristinn Jörundsson ÍR 237
Gísli Gíslason ÍS 230
Ágúst Líndal KR 223
Árni Guðmundsson ÍS 190
Jónas Jóhannesson UMFN 186
Kristján Rafnsson Árm. 170
i
• Garðar Jóhannsson KR, stiga-
hæsti leikmaður síðasta fslandsmóts
í körfuknattleik.
Arni Þór Arnason
var valinn Skíða-
maður ársins 1981
• Árni Þór Árnason, skíðamaður
ársins 1981.
ÁRNI Þór Árnason varð fyrir valinu
sem skíðamaður ársins. Árni Þór
vann góð afrek á siðasta
keppnistímabili. Hann sigraði í öll-
um þeim skíðamótum sem hann tók
þátt í hér heima. Þá varð hann Bik-
armeistari SKÍ árin 1980 og 1981.
Þá náði hann góðum árangri í Polar
Cup í Finnlandi síðastliðið vor. Nú
hefur hann bestu jiunktastöðu á
punkalista FIS, sem Islendingur hef-
ur náð ef frá er talinn Sigurður
Jónsson frá ísafirði. Árni gat ekki
veitt verðlaunum sínum viðtöku, þar
sem hann stundar nú æfingar og
keppir erlendis, til að búa sig sem
allra best undir keppnistímabilið.