Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982
Ölvaðir ökumenn
komu víða við
Frá slysstað á Sundlaugavegi.
Mynd Mbl. Jón Svavarsson.
Umtalsverð aukning
í sölu hljómplatna
- Mini-Pops söluhæsta platan síðastliðið ár,
Himinn og jörð söluhæst innlendra platna
Verzlunarráð íslands og VSÍ gera með sér samstarfssamning:
Verzlunarráð hættir beinni
aðild að kjarasamningum
VER/LUNARRÁÐ íslands og Vinnu-
veitendasamband íslands hafa gert
með sér samning um samstarf, verk-
skiptingu og tengsl milli samtakanna.
Þessi samningur hefur verið staðfest-
ur í framkvæmdastjórnum beggja
samtakanna. Hann felur m.a. í sér, að
Verzlunarráð íslands hættir beinni að-
inu, ef þeir óska eftir því, að hafa
aðildina með þeim hætti. Ýmsir af
okkar félögum gera sína kjarasamn-
inga í gegnum önnur samtök eins og
t.d. bankarnir og enn aðrir mega
ekki eiga aðild að kjarasamningum
og loks er svo hópurinn sem ekki vill
eiga aðild að kjarasamningum og
starfsfólk þeirra vill ekki eiga aðild
að stéttarfélögum. Það eru því ýms-
ar útgáfur á því hvernig okkar fé-
lagar tengjast kjarasamningum og
vilja það, en samningurinn breytir í
sjálfu sér ekki þeirri stöðu, sagði
Árni Árnason, framkvæmdastjóri
Verzlunarráðsins.
Ný barnalög
taka gildi
- framfærsluskylda lengist í 18 ár
Þó lögreglumenn hefðu verið sam-
mála um að áramótin hefðu verið
venju fremur róleg, þá voru þó venju
fremur fleiri teknir ölvaðir undir
stýri eftir að hafa valdið tjóni. Á
miðvikudag kom til eltingarleiks eft-
ir að drukkinn ökumaður ók á bif-
reið við Ánanaust. Okumaður bif-
reiðarinnar veitti hinum drukkna
eftirfór, en ekki tókst þó betur til,
en bílarnir skullu aftur saman á
Melatorgi. Þá hætti maðurinn eftir
för og gerði lögreglunni viðvart.
Hann gat gefið upp númer bifreiðar
innar, sem ekið var á hann, og var
hinn ölvaði ökumaður tekinn
skömmu síðar á heimili sínu og við-
urkenndi hann brot sitt.
Á nýársdag var ekið á ljósa-
staur á mótum Fjölnisvegar og
Njarðargötu með þeim afleiðing-
um að þrennt var flutt á slysa-
deild, en ökumaðurinn var ölvaður
undir stýri. Ölvaður ökumaður ók
fram af kanti á Hallærisplaninu,
svo bíllinn vísaði út í Austur-
stræti. Þá ók ölvaður ökumaður á
ljósastaur við Suðurfell. Áður
mun hann hafa ekið á steinvegg og
var bifreið mannsins mikið
skemmd eftir ökuferðina.
Á nýársmorgun var ölvaður
vegfarandi fyrir bifreið á Sund-
laugarvegi, skammt fyrir austan
Laugarnesveg. Maðurinn var á
leið yfir götuna, þegar hann varð
TÖLVÉRÐ gróska hefur verið í sölu
hljómplatna á síðasta ári, að sögn
hljómplötuútgefenda, og mun auk-
ningin frá árinu 1980 vera allt að 50%.
Söluhæstu hljómplöturnar að þessu
sinni urðu Mini-I’ops, sem seldist í
12.000 eintökum og íslenzka platan
llíminn og jörð, sem seldizt í 9.000
eintökum.
Að sögn Steinars Berg Isleifsson-
ar í Steinum hf. varð Mini-Pops
söluhæst hjá hans fyrirtæki eins og
áður sagði. Þá seldist Shaking Stev-
ens, Shaky, í 9.000 eintökum, Skalla-
popp í tæpum 9.000 eintökum, REO
Speed Wagon í rúmum 5.000 eintök-
um, Best og Blondie sömuleiðis og
nokkrar aðrar K-Tel plötur í svip-
uðu upplagi. Sagði hann mikla
aukningu hafa orðið í plötusölu
seinnipart ársins og taldi að mestu
skipti að lægra verð hefði selt meira
magn. Taldi hann aukninguna yfir
árið í heild geta numið um 50%.
Óiafur Haraldsson, forstjóri
Fálkans, sagði plötuna Himinn og
jörð hafa selzt í 9.000 eintökum,
Doctor Hook Greatest Hits í 8.300,
Queens Greatest Hits í 6.800,
Sumargleðina í 5.100, Við jólatréð í
fyrir bifreiðinni og hlaut hann
beinbrot á hægra fæti og höfuð-
meiðsl. Um hádegið sama dag var
rauðri Völkswagen-bifreið ekið
utan í bíl á Reynimel. Ökumaður
VW-bifreiðarinnar gerði sér lítið
fyrir og veifaði og hélt á brott.
Hann var skömmu síðar handtek-
inn, og reyndist ölvaður. Þá má
geta þess, að ölvaður ökumaður ók
bifreið sinni á umferðarskilti á
Réttarholtsvegi og náðist hann
skömmu síðar, og á Vesturgötunni
var bifreið ekið utan í leigubíl og
var ökumaðurinn grunaður um
ölvun. Talsverðar skemmdir urðu
á leigubílnum.
Forseti Islands
í opinbera heim-
sókn til Bretlands
17.—19. febrúar nk.
FORSETI íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, fer í opinbera heimsókn
til Rretlands, dagana 17.—19. febrú-
ar nk.
Forsetinn fer héðan með þotu
Flugleiða 16. febrúar til London,
en opinbera heimsóknin hefst dag-
inn eftir. Að lokinni hinni opin-
beru heimsókn mun forsetinn
dvelja í Bretlandi í tvo daga.
4.800, Richard Klayderman, Tónar
um ástina, í 4.600 og Bessa Bjarna-
son, Bessi segir sögur og syngur
fyrir börnin, í 4.100 eintökum. Taldi
hann magnaukninguna verulega, en
erfitt væri að segja til um raunveru-
lega aukningu, hún gæti verið um
25%. Þetta hefði verið hagstæðasta
árið frá því 1978, en enn væri langt í
land með að sölunni þá væri náð.
Að sögn Svavars Gests hjá
SG-hljómplötum seldist plata Kötlu
Maríu, Litli Mexíkaninn í tæpum
8.000 eintökum, Graham Smith í
tæpum 6.000, Ómar Ragnarsson,
Skemmtilegustu lög Gáttaþefs, í
4.000 eintökum og tvöföld plata Al-
freðs Clausens í 2.500 eintökum.
Plötur þeirra Kötlu Maríu og Al-
freðs seldust upp, en eru væntanleg-
ar á markaðinn aftur. Þá seldist
einnig talsvert af eldri plötum af
ýmsu tagi. Svavar sagði mjög erfitt
fyrir útgáfufyrirtæki að gera sér
grein fyrir söluaukningu vegna þess
að miklu máli skiptu gæði þeirra
platna, sem út væru gefnar hverju
sinni, en sagðist þó telja að um ein-
hverja aukningu frá fyrra ári væri
að ræða.
ild að kjarasamningum.
Helztu atriði samningsins eru
þau, að Verzlunarráðið gengur í
Vinnuveitendasambandið, sem
vinnuveitandi, en ekki fyrir hönd fé;
laga sinna. Á sama hátt gerist VSÍ
aðili að Verzlunarráðinu, sem
félagasamtök, en ekki fyrir hönd fé-
laga sinna.
Stefnt er að nánu samstarfi um
sameiginieg hagsmunamál, en
verkaskiptin er í grófum dráttum
sú, áð VÍ annast samskipti við
stjórnvöld í efnahags- og viðskipta-
málum, en VSÍ í efnahags- og kjara-
málum. Að öðru leyti miðast starf
þessara samtaka eftir sem áður við
tilgang hvors um sig.
Árni Árnason, framkvæmdastjóri
Verzlunarráðsins, var inntur nánar
eftir aðild félaga Verzlunarráðsins
að kjarasamningum eftir samning-
inn: — Félagar Verzlunarráðsins
eiga aðild að ýmsum sérgreinafélög-
um og í gegnum þá aðild, tengjast
þeir Vinnuveitendasambandinu. Þá
eru ýmsir félagar Verzlunarráðsins
beinir félagar í Vinnuveitendasam-
handinu, auk þess sem samningur-
inn veitir öðrum félögum Verzlun-
arráðsins heimiid til að gerast bein-
ir félagar í Vinnuveitendasamband-
NÚ (JM áramótin gengu Barnalög í
gildi. Lögin voru samþykkt á Alþingi 1.
apríl á sl. ári og fela í sér ýmsar nýj-
ungar. Tilgangur laganna er öðrum
fremur að auka rétt barna, fjallað er
um skilgetin börn og óskilgetin í ein-
um lagabálki í stað tveggja áður, og
reynt að jafna rétt allra barna hvort
sem foreldrar eru í vígðri sambúð eða
ekki.
Samkvæmt lögunum lengist fram-
færsluskylda nú um eitt ár, úr 17 í
18, og heimild er að auki til framlags
til menntunar eða starfsþjálfunar til
20 ára aldurs. Þá er einnig heimild
til að fara fram á að meðlagsskylt
foreldri taki þátt í kostnaði vegna
sérstakra útgjalda svo sem ef um er
að ræða skírn, fermingu, veikindi
eða annað. Að auki má nefna að for-
eldrar hafa nú sameiginlega forsjá
barns þótt þeir séu í óvígðri sambúð,
í stað móðurinnar áður. Umgengn-
jsréttur fönr við barn sitt hefur
einnig verið lögfestur hvort sem
barnið er skilgetið eða óskilgetið.
í lögunum stendur að Dómsmála-
ráðuneytinu beri skylda til að kynna
almenningi efni laganna og er unnið
að útgáfu upplýsingabæklings á veg-
um ráðuneytisins, sem mun inni-
halda lögin og útskýringar á ýmsum
nýjungum sem þau fela í sér, og
verður hann væntanlega tilbúinn
fljótlega.
Yfirlýsing frá Guðmundi Sæmundssyni:
Tek ákvörðun um
framboð 9. janúar
Reglur um kosningu stjórnar og
trúnaðarmannaráðs eru mjög
ólýðræðislegar í Vlf. Einingu, rétt
eihs og í öðrum stærri félögum
innan ASÍ. Forysta Einingar
hafnaði því í fyrra að þessar regl-
ur yrðu rýmkaðar og færðar í lýð-
ræðisátt. Samkvæmt reglunum
geta framboð ekki orðið öðruvísi
en með listum, og framboðslistinn
verður að innihalda nöfn fólks í
stjórn, varastjórn, trúnaðar-
mannaráð, varatrúnaðarmanna-
ráð og endurskoðendur reikninga.
Samtals eru þetta um 60 manns.
Þess ber einnig að geta að til að
listi verði frambærilegur verða
þessir 60 félagsmenn að koma sem
víðast úr félaginu, af sem flestum
vinnustöðum og úr öllum deildum.
Ekkert mælir hins vegar gegn
því í lögum Einingar að sama fólk-
ið sé á báðum framboðslistum ef
tveir koma fram, og mætti þá líta
á slíkt sem vott um að viðkomandi
félagar óski eftir að vera hlutlaus-
ir í kosningunum eða séu reiðu-
búnir til starfa fyrir félagið án til-
lits til þess hverjir aðrir veljast
þar til starfa.
Einnig þarf framboðslisti að
skila a.m.k. 100 nöfnum meðmæl-
enda. Sú kvöð hvílir hins vegar
ekki á lista þeim sem stjórn og
trúnaðarmannaráð leggja fram.
Mér hafa borist margar munn-
legar og skriflegar áskoranir Ein-
ingarfélaga af ýmsum vinnustöð-
um og úr ýmsum deildum félags-
ins um að vinna að því að settur
verði fram mótlisti í komandi
stjórnar- og trúnaðarmanna-
ráðskosningum félagsins gegn
þeim lista sem stjórnin og trúnað-
armannaráð munu setja fram. Ég
hef ákveðið að verða við þessum
tilmælum. En af því sem að ofan
greinir er ljóst að það er ekkert
áhlaupaverk eða á eins manns
færi að koma slíku mótframboði á
laggirnar. Slíkur listi verður að
hafa að baki sér mjög sterka
hreyfingu almennra félaga. Eink-
um er þetta nauðsynlegt, þegar
um er að ræða lista sem vill ekki
styðjast við neina stjórnmála-
flokka og hefur raunar þá yfir-
lýstu stefnu að berjast gegn valdi
flokkanna yfir verkalýðshreyfing-
unni og sífelldri misnotkun þeirra
á henni.
Slík hreyfing almennra félaga
virðist vera orðin til innan Eining-
ar. Óánægja ríkir með núverandi
forystu félagsins. Það sem fólk
virðist helst gagnrýna eru einræð-
isleg vinnubrögð, flokkshollusta
forystunnar, leiðinlegir fundir,
ofríki gagnvart deildum félagsins,
skortur á upplýsingum og fræðslu
fyrir almenna félaga, tengslaleysi
forystunnar við fólkið á vinnu-
stöðunum og sitthvað fleira. Þá er
það ríkjandi álit að forystan hafi
staðið sig illa í samningamálunum
og verið tilbúin til að éta ofan í sig
kröfugerð félagsins og ýmis stór
orð, strax og forysta ASÍ, stjórn-
málaflokkarnir og ríkisvaldið
óskuðu þess.
Ég er sammála þessari gagnrýni
í öllum meginatriðum. Ég hef set-
ið í stjórn Einingar í eitt ár og
reynt að koma málum fram þar —
án nokkurs teljandi árangurs. Mér
er nú ljóst að sú leið er ekki fær.
Ekki heldur sú leið að reyna að
koma á breytingum á stefnu,
skipulagi og starfsháttum með til-
löguflutningi á félagsfundum,
jafnvel þótt ein og ein tillaga fáist
samþykkt. Þessi leið er lokuð á
meðan óbreytt viðhorf ráða í
æðstu forystu félagsins. Það eru
ekki orðin sem skipta máli, heldur
framkvæmdin. Ég hafði því fyrir
nokkru gert það upp við mig að
sitja ekki áfram í stjórn sem Jón
Heigason hefði forystu fyrir og
undirtökin í. Hins vegar er ég til-
búinn til að reyna þá leið að vinna
að framboði sem þoði ný viðhorf
og heilbrigðari starfshætti. Slíkt
framboð getur aldrei leitt nema
gott af sér fyrir félagið. Sigri slíkt
framboð er það auðvitað mikill
sigur fyrir almenna félaga og
stefnu þeirra. En hvernig sem slík
kosning fer, hlýtur hún að auka
áhuga félagsmanna á starfi fé-
lagsins og verka hvetjandi á þá til
þátttöku í því.
Þeir sem skorað hafa á mig að
vinna að mótframboði eiga nú
leikinn. Uppstillingarnefnd Ein-
ingarstjórnarinnar á að skila til-
lögum sínum 11. jan. nk. til stjórn-
arinnar. Tveim dögum fyrr — eða
laugardaginn 9. janúar — verður
haldinn opinn fundur með sem
flestum áskorendum og öðrum
áhugamönnum um mótframboð. Á
þeim fundi verður tekin ákvörðun
um hvort af framboði verður, hver
stefna listans eigi að vera, hvernig
hann skuli skipaður og hvernig
kosningabaráttunni verði hagað.
Fundurinn verður í Alþýðuhúsinu
og hefst kl. 2 eftir hádegi laugar-
daginn 9. janúar.
27.desember 1981
Guðmundur Sæmundsson