Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982
7
Lærið vélritun
Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 7. janúar.
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heima-
vinna. Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl.
13 Vélritunarskólinn,
Sudurlandsbraut 20.
Mínar innilegustu þakkir færi ég konu minni,
börnum, tengdabörnum og barnabörnum, svo
og móður minni, systkinum, vinnufélögum og
öllum mér tengdum sem glöddu mig á sex-
tugs afmæli mínu þann 6. október 1981.
Ég óska ykkur öllum gleðilegs nýsárs með
þökk fyrir þau gömlu, guð blessi ykkur öll.
Valdemar G. Krístinsson
jazzBaLLettskóLi búpu
Jazzballett-
skóli Báru
Suðurveri
uppi
Jazz — modern — classical tehnique
cabarett
Kennsla hefst mánudaginn 11. janúar.
Flokkarööun og endurnýjun skírteina fer
fram í Suðurveri, niðri, laugardag 9. jan.
Framhald kl. 2, byrjendur síöan í haust kl. 4.
Nýir nemendur kl. 6.
Upplýsingar og inritun í síma 40947.
ajpa no^sqoöTiDgzzDr
_________’_________ '__
SM.&
Allt aö 50%
afsláttur á
nýjum vörum
Herra, dömu- og unglingaúlpur, flauelisjakkar, anor-
akkar, buxur, gallabuxur, stretch-gallabuxur, kjólar,
peysur, herraskyrtur, barnafatnaöur, dömunáttkjólar,
herranáttföt, samkvæmisklæönaöur.
Búsáhöld, leikföng, gjafavörur og sælgæti.
Alltaf nýjar vörur á stórafslætti.
Verslunin er opin frá kl. 12—18.
Auðbrekku 44—46, Kópavogi.
Póstsími 45300 — Sendum samdægurs.
Efnahags-
vandinn í
nágrannalöndum
Kftir að Svavar Gestsson
hefur |>annig játazt undir
kenningar Milton Fried-
mans um áhrif peninga í
umferð á verdlagsþróun og
farið eins og köttur um-
hverfis heitan graut í um-
fjöllun um vandamál ís-
lenzks þjóðarbúskapar
hrýtur þessi eftirtektar
verða setning úr penna
hans: „Ég ætla þessu næst
að vfkja nokkuð að þeim
efnahagsvanda, sem við er
að glíma í grannlöndum
okkar ..." Hér skipar
hann sér í flokk annarra
talsmanna núverandi ríkis-
stjórnar, sem f áramóta-
ávörpum sínum héldu sig
aðallega utan landsteina,
einkum og sér í lagi við
neyð hinna vanþróuðu
rfkja og efnahagslegar og
pólitískar afleiðingar marx-
ísks hagkerfis í Póllandi og
öðnim ríkjum A-Evrópu.
I*ar fundu þeir samlíkingu,
sem vissulega varpar
nokkrum Ijóma á lífskjör
íslenzkrar þjóðar.
Ilinsvegar var sú sorg-
lega staðreynd vafin þögn,
að lífskjör og afkomuör
yggi hér á landi standa síð-
ur en svo traustum fótum,
því miður, samdráttur f
fjármunamyndun í öllum
greinum, nema opinberum
hyggingum (ráðgerður
samdráttur í orkufram-
kvæmdum 1982 er 43,5%, í
hitaveituframkvæmdum
31,5%, hjá atvinnuvegum
9.1* — »8 íbúðabyggingar
hafa dregizt saman um
13,6% frá 1979), undir
stöðuatvinnuvegir þjóðar
búsins allir reknir með
botnlausum halla, skulda-
söfnun þe'irra og þjóðar
búsins ógnvekjandi (áæth
uð skuldastaða í árslok
1982 39% af þjóðarfram-
leiðslu og greiðslubyrði
18%), erlend lán til A- og
K-hluta rfkissjóðs hafa
13-faldazt síðan 1978,
kaupmáttur taxtakaups
hefur rvrnað um a.m.k.
10% frá 1977 og skatt-
heimta hefur aukizt sem
MILTON FRIEDMAN
svarar 2 milljónum gkróna
á ári á hverja 5 manna fjöl-
skyldu miðað við óbreytt
skattalög frá 1977.
l>eirri velmegun, sem við
búum vissulega við miðað
við erfiðleika fjölmargra
þjóða, hefur hinsvegar ver
ið teflt f verulega hættu
með ráðleysi núverandi
ríkisstjórnar. I>að er því
ekki lítil kokhreysti þegar
formaður Alþýðubanda-
lagsins þykist hafa ráð af-
SVAVAR GESTSSON
gangs til að „víkja að“
efnahagsvanda grannlanda
okkar og leggja þar línur
til úrbóta. Hitt er máske
skiljanlegt, að ráðherrar
kjósi fremur að dvelja f
áramótahugleiðingum sín-
um utan landsteina en inn-
an, eins og allt er f pottinn
búið, enda mun sú blá-
þráðarlita undanrenna,
sem innlendur áramóta-
boðskapur þeirra var í
raun, ekki hafa varpað
skærri birtu fram á hið
nýbyrjaða ár — eða þróun
þjóðmála næstu misseri.
„í öðru lagi
eru kosning-
arnar í vor
kjarabarátta“
Kyrir tvennar kosningar
á árinu 1978 lögðu forystu-
menn Alþýðubandalagsins,
ekki sizt Svavar Gestsson,
áherzlu á slagorðið: „Kosn-
ingar eru kjarabarátta."
I>að hljómaði nærri því
eins oft úr þeirra munni
eins og heitstrengingin
„Samningana í gildi", þ.e.
sóLstöðusamningarnir frá
1977. Síðan þessi slagorð
vóru margtuggin í þjóðina
hefur Alþýðubandalagið
lifað nærri þrjár ríkis-
stjórnir. I>að ætti því að
hafa sett umrædda samn-
inga heldur betur í gildi.
Kða hvað? Ekki hefur það
þó krukkað í verðbætur á
laun, sem mestur gaura-
gangurinn var gerður út af
(ólögk-g verkföll og út-
flutningsbann) 1978? Ójú,
reyndar, og ekki sjaldnar
en 10 sinnum á þessu tíma-
bili, samtals verðbóta-
skerðing um hvorki meira
né minna en 26%! Satt að
segja á Alþýðubandalagið,
sem þó gaf mörg loforðin,
ekkert þeirra ósvikið.
■>að er því meira en lítil
kokhreysti þegar formaður
Alþýðubandalagsins segir í
áramótagrein sinni í l>jóð-
viljanum um væntanlegar
syeitarstjórnarkosningar:
„í fyrsta lagi munu kosn-
ingaúrslitin ráða verulega
um alla framvindu lands-
mála að kosningum lokn-
um. Drslit sveitarstjórnar
kosninganna geta þannig
haft veruleg áhrif á það,
hverjir skipa hér stiórn og
stjórnarandstöðu. I öðru
lagi eru kosningarnar
kjarabarátta, sérstaklega
munu sjónir manna bein-
ast að borgarstjómarkosn-
ingum í Reykjavík." Fýrir
litningin á dómgreind fólks
ríður ekki við einteyming
hjá flokksformanninum.
I fótspor Milton Friedman?
Svavar Gestsson, formaöur Alþýöu-
bandalagsins, segir m.a. í áramótagrein í
Þjóöviljanum: „Jafnframt er Ijóst aö þessi
aukna velta innflutningsverzlunar er til
marks um stóraukiö peningamagn í umferö.
Glöggir menn gizka á aö veröbólga á þessu
ári (1981) sé 3—4% meiri en ella heföi veriö,
aöeins vegna aukinnar peningaveltu, auk
þess sem aukið peningamagn í bráö muni
birtast í aukinni veröbólgu í lengd.“ Hvaö
sem líöur efnisatriðum í staðhæfingu
flokksformannsins veröur ekki fram hjá hinu
gengið, aö hagfræðilegur þankagangur
hans viröist hér nokkuð samstiga kenning-
um hins heimsþekkta hagfræöings og Nób-
elsverðlaunahafa Milton Friedmans, sem
Þjóöviljinn hefur til skamms tíma ekki vand-
að kveðjurnar og jafnvel kallað hungur-
hagfræöinginn.
Hressingarleikfimi
kvenna og karla
Kennsla hefst aftur fimmtudaginn 7. janúar 1982 í leikfimisal Laugar-
nesskóla. Get bætt viö örfáum nemendum. Fjölbreyttar æfingar. Músík.
Slökun.
Upplýsingar í SÍma 33290. Ástbjörg S. Gunnarsdóttir,
iþrottakennari.
Styrkið og fegrið líkamann
Dömur og herrar
4ra vikna námskeiö hefst 6. janúar.
Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eöa meira.
Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eða þjást af
vöðvabólgum. Leikfimi fyrir konur á öllum aldri.
Vigtun, mæling, sturtur, gufuböð, kaffi.
Nýjung höfum hina vinsælu Solarium lampa.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Innritun og upplýsingar alla
virka daga frá kl. 13—22
í síma 83295.