Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 48
2 8 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRÍÖJUDAGUR 5. JANÚAR1982 ímmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmk Enska bikarkeppnin: Níu 1. deildar-lið slegin út - þar á meðal Man. UtdM Nott. Forest og Southampton LITLII liðin gengu sannkalladan herserksyanj' í 3. umferd ensku bik- arkeppninnar í knattspyrnu á laug- ardaginn og eigi færri en níu I. deildar-félög kvöddu keppnina í um- ferdinni, mörg þeirra eftir viðureign- ir við félög úr neðri deildunum. Utandeildarliðin stóðu að venju fyrir sínu, best var frammistaðan hjá Barnet, sem náði jafntefli á heima- velii sínum gegn Brighton, einu af betri liðum I. deildarinnar. A Barn- ett nú í vændum gróðavænlegan aukaleik í Brighton. En merki- legustu úrslit umferðarinnar hljóta að teljast ósigrar Manchester lltd., Notthingham Forest og Southamp- ton gegn 2. deildar-liðum. Sérstak- lega var glæsilegur sigur 3. deildar liðsins Wrexham á City Ground í Nottingham. Mark Proctor náði for ystunni fyrir Forest snemma í leikn- um, en þeir hjá Wrexham svöruðu fyrir sig með þremur mörkum í síð- ari hálfleik, Dowman jafnaði, Wint- er náði forystunni og rétt fyrir leiks- lok potaði Dixie gamli McNeil þriðja markinu inn með stafnum sínum, enn þá að skora sá gamli þó tæplega fertugur sé. Úrslit leikja urðu annars sem hér segir: Barnet — Brighton 0-0 Birmingham — Ipswich 2-3 Bolton — Derby 3-1 Coventry — Sheffield Wed. 3-1 Doncaster — Cambridge 2-1 Bournemouth — Oxford 0-2 Enfield — Crystal Palace 2-3 Leicester — Southampton 3-1 Luton — Swindon 2-1 Man. City — Cardiff 3-1 Nott. Forest — Wrexham 1-3 Orient — Charlton 1-0 QPR — Middlesbrough 1-1 Rotherham — Sunderland 1-1 Stoke — Norwich 0-1 Swansea — Liverpool 0-4 Tottenham — Arsenal 1-0 Watford — Man. Utd. 1-0 WBA — Blackburn 3-2 West Ham — Everton 2-1 Wolverhampton — Leeds 1-3 • Ross Jack skoraöi sigur mark Norwich gegn Stoke. r, • Trevor Francis — tvö mörk gegn Cardiff. Af ýmsum ástæðum fóru ekki fleiri leikir fram í 3. umferð. Úr- slit í öðrum leikjum helgarinnar urðu sem hér segir: 2. umferð: Bury — Burnley 1-1 Crewe — Scunthorpe 1-3 Hereford — Fullham 1-0 Kettering — Blackpool 0-3 Peterbrough — Walsall 2-1 Port Vale — Stockport 4-1 Altrincham — York 4-3 Barking — Gillingham 1-3 3. deild: Brentford — Huddersfield 0-1 Bristol City — Wimbledon 1-3 Plymouth — Bristol R. 4-0 Newport — Reading 3-1 4. deild: Mansfield — Wigan 1-2 Sheffield Utd. - Halifax 2-2 Manchester Utd. fékk skell á Vicarage Road í Watford og er þetta í annað skiptið á 4 árum, að Watford slær United út úr bikar- keppninni. Hollendingurinn Jam Lohman skoraði sigurmark Wat- ford á 44. mínútu eftir að þvaga hafði myndast við markteig Un- ited. Watford var miklu betra liðið í fyrri hálfleik og United mátti teljast heppið að fá þá ekki á sig fleiri mörk. Manchester-liðið sótti verulega í sig veðrið í síðari hálf- leik og fékk þó nokkur góð færi sem fóru forgörðum. United er því úr leik í báðum bikarkeppnunum og getur einbeitt sér að Eng- landsmeistaratitlinum. Southampton var tekið í kennslustund af ungu skemmti- legu liði Leicester. Suðurstrand- arliðið hafði ekki tapað 8 síðustu leikjum sínum, en var grátt leikið á laugardaginn. Eftir 20 mínútur var staðan orðin 2-0 fyrir Leicest- er og skoraði Alan Young bæði mörkin. Kevin Keegan minnkaði muninn, en var síðan borinn slasaður af leikvelli. Áður en yfir lauk bætti Gary Lineker þriðja markinu við. Liverpool lék sinn besta leik á keppnistímabilinu, er Swansea var tekið í kennslustund á Wetchfield. 4-0 urðu lokatölurnar, en Liverpool hefði getað skorað 8-10 mörk ef út í það er farið. Virðist Swansea vera farið að gefa verulega eftir í slagnum. Ian Rush skoraði tvívegis í leiknum, hefur þar með skorað 12 mörk í vetur. Aðeins þrjú þeirra þó í deildar- leikjum. Álan Hansen og Mark Lawrenson skoruðu einnig. Pat Jennings, markvörður Ars- enal síðustu fimm árin, en þar áð- ur markvörður hjá Tottenham í 14 ár, kom mikið við sögu, er liðin mættust á White Hart Lane í Lundúnum. Aðeins eitt mark var skorað í fjörugum leik, Garth Crookes var þar á ferðinni eftir sjaldséð mistök hjá Pat Jennings. Markið var skorað í fyrri hálfleik, en í þeim síðari var Jennings síðan borinn illa meiddur af velli eftir samstuð við Crookes. Peter Nich- olas stóð í markinu síðustu 15 mínúturnar og mæddi mikið á honum. En mörkin urðu ekki fleiri og varði Nicholas nokkrum sinn- um mjög vel. Ipswich sigraði Birmingham í eldfjörugum leik á St. Andrews- leikvanginum í Birmingham. Alan Brazil kom Ipswich á bragðið í fyrri hálfleik eftir snjallan undir- búning Eric Gates, en Frank Worthington jafnaði fyrir hlé úr vítaspyrnu. í síðari hálfleik skor- aði Alan Curbishley fyrir heima- liðið og stóð 2-1 allt fram undir lok leiksins, er Ipswich keyrði upp hraðann og skoraði tvívegis undir lokin, John Wark jafnaði og Brazil skoraði síðan sigurmarkið. Leeds átti alls kostar við Wolv- erhampton, sem getur hreinlega ekki neitt þessi misserin. Andy Gray náði þó forystunni fyrir Wolves snemma í leiknum, en Garry Hamson jafnaði eftir að Kevin Hird hafði brennt af víta- spyrnu. Hird bætti það upp með því að skora annað mark Leeds í síðari hálfleik og síðan kom Eddy gamli Grey og innsiglaði sigurinn með þriðja markinu. I annari viðureign þar sem ein- göngu komu við sögu 1. deildar-lið, sigraði West Ham Everton 2-1 á heimavelli sínum. Billy Bonds og Dave Cross skoruðu mörk West Ham, en Peter Eastoe svaraði fyrir Everton. • John Wark skoraði dýrmætt mark fyrir Ipswich. WBA sló Blackburn út eftir harða og fjöruga viðureign. Það var þó ekki fyrr en undir lok leiks- ins, að veruleg spenna hljóp í leik- inn, WBA hafði náð 3-0-forystu, en slakaði síðan svo mikið á, að engu mátti muna að Blackburn hreinlega jafnaði metin. Steve McKenzie, Andy King og Clive Whitehead skoruðu mörk WBA, en Simon Garner skoraði bæði mörk Blackburn undir lokin. Manchester City átti í meira basli með Cardiff heldur en 3-1-markatalan segir. Trevor Francis skoraði í fyrri hálfleik, en leikmenn Cardiff fóru illa með fleiri tækifæri en eitt til þess að jafna. Bobby McDonald skoraði síðan annað mark City með skalla eftir hornspyrnu Tommy Hutch- inson, en Paul Maddy minnkaði muninn fyrir Cardiff áður en Trevor Francis innsiglaði sigurinn fyrir City með öðru marki sínu og þriðja marki City. Stoke var eitt af mörgum 1. deildar-liðum sem féll úr keppn- inni. Liðið fékk Norwich í heim- sókn. Ross Jack skoraði fyrir Norwich eftir aðeins 6 mínútur og síðan „pakkaði" liðið í vörn og tókst að verja fenginn hlut. Botnliðin tvö í 1. deildinni, Middlesbrough og Sunderland, gátu þokkalega við hlut sinn unað, bæði léku erfiða útileiki gegn prýðilegum 2. deildar-liðum og tókst að tryggja sér aukaleiki. Boro sótti QPR heim á gervigrasið umdeilda og eftir aðeins 9 mínút- ur hafði liðið náð forystu með marki Bobby Thompson. Simon Stainrod jafnaði áður en yfir lauk. Sunderland skrapp hins vegar til Rotherham og skoraði Garry Rowell jöfnunarmark liðsins þeg- ar langt var liðið á leikinn, eftir að Tony Towner hafði náð forystunni fyrir Rotherham. Steve Hunt skoraði tvívegis fyrir Coventry, sem sigraði lið Sheffild Wednesday örugglega. Mark Hateiy skoraði þriðja mark- ið, en Wednesday hafði þó náð for- ystunni með marki McCulloch. Helstu punktar varðandi aðra leiki fylgja hér að lokum: Bolton 3 (Gowling, Foster, Thompson) — Derby 1 (Powell) Bournemouth 0 — Oxford 2 (Cassels, Thomas) Doncaster 2 (Reilly sj.m., War- boys) — Cambridge 1 (Taylor) Enfield 2 (Ironton, Oliver) — Cr. Palace 3 (Price, Hilaire 2) Luton 2 (Moss, Horton) — Swin- don 1 (Emmanuel) Orient 1 (Moore) — Charlton 0 Enska ^ J knatt- spyrnan j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.