Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANUAR 1982 „Á von á að fiskilýsi hækki“ - segir Jón Reynir Magnússon nýkjörinn forseti Alþjóðasamtaka fiskmjölsframleidenda „Kg á von á að fiskilvsi hækki verulega í verði á þessu ári, að vísu hefur soyaolía haldið verðinu dálítið niðri, en þegar kemur fram í febrúar-marz, býst ég við að verðið fari að hx‘kka,“ sagði Jón Reynir Magnússon, framkvæmdastjóri Síld- arverksmiðja ríkisins, í samtali við Morgunhlaðið. Jón Reynir var á ársfundi IAFMM, sem eru alþjóða- samtiik fiskimjölsframlciðenda, kjörinn forseti samtakanna og er þetta í fyrsta sinn, scm íslendingur gegnir þar forsetastörfum. Að vísu hefur Jón Reynir setið í stjórninni áður og á sínum tíma sat Þórður l’orhjarnarson einnig í stjórninni. Jón Reynir sagði í samtalinu við Morgunblaðið enn væru miklar birgðir af soyabaunum í Bandar- íkjunum frá því að þeir settu kornsölubannið á Rússland, en gert væri ráð fyrir að þær birgðir Jón Keynir Magnússon minnkuðu á næstunni, en einnig mætti benda á að góð uppskera hefði verið á soyabaunum í Brasi- líu. í fréttabréfi IAFMM segir að gert sé ráð fyrir að heildarlýsis- framleiðslan verði 100—150 þús- und tonnum minni á þessu ári en því síðasta, ekki sé enn vitað hve mikið framleiðslan geti orðið á næsta ári, en þó megi búast við einhverri aukningu. Hins vegar sé nú ljóst að birgðir um áramót verði nú minni en þær hafa verið í fjölda ára. Ennfremur segir í fréttabréf- inu, að mjölbirgðir um áramót muni að líkindum verða um 440 þúsund tonn, en verð á mörkuðun- um hafi ekki verið sem skyldi, bæði vegna hárra vaxta, hækkun dollarans og lélegs efnahags- ástands í A-Evrópuríkjum, sem fram til þessa hafa keypt mikið af fiskimjöli. Seltjarnarnes: Fjárhagsáætlun með 10,6% útsvari og 20% afslætti af fbúðarhúsagjöldum FJÁRHAGSÁÆTLUN Seltjarn arness var lögð fram til fyrri um- ræðu á fundi hæjarstjórnar 16. des- ember. Heildarniður.stöðutölur á rekstr arreikningi eru kr. 26.760.000,00. sem er liðlega 50% hækkun frá endurskoðaðri áætlun síðasta árs. I frétt frá bæjarstjóranum á Sel- tjamarnesi segir að gert sé ráð fyrir 10,5% útsvarsálagningu svo sem endanlega varð á síðasta ári og fast- eignagjöld eru með 20^ afslætti á íbúðarhús, notaður er gjaldstigi 0,4% en 1% á annað húsnæði. Gjaldstigi aðstöðugjalda er óbreyttur frá fyrra ári. Viðmiðunartekjur elli- og örorkuþega vegna niðurfellingar eða lækkunar fasteignagjalda af eigin íbúð hækka ennfremur, sem segi r: a) einstaklingar: brúttótekjur 1981 allt að kr. 69.000,00 100% niðurfelling, kr. 81.000,00 70% niðurfelling og kr. 95.000,00 30% niðurfelling. b) hjón sem bæði eru ellilífeyris- þegar: brúttótekjur 1981 allt að kr. 86.000,00 100%^ niðurfelling, kr. 103.000,00 70%. niðurfelling og kr. 110.000,00 30% niðurfelling. Helstu tekjuliðir eru: útsvör og aðstöðugjöld, kr. 18.000.000,00, fasteignagjöld kr. 3.000.000,00, jöfnunarsjóðsframlag kr. 3.200.000,00, gatnagerðargjöld kr. 500.000,00 og vextir 1.300.000,00. Helstu gjaldaliðir eru: fræðslu- mál kr. 3.998.978,00, almanna- tryggingar og félagsmál kr. 3.004.920,00, gatna- og holræsa- gerð kr. 4.454.600,00, stjórn kaup- staðarins kr. 1.151.500,00, skipu- lagsmál kr. 921.200,00, hreinlæt- ismál kr. 922.000,00, samgöngumál (strætisvagnar) kr. 598.000,00 og brunavarnir kr. 416.000,00. Til eignabreytinga er áætlað að verja um 11,9 m.kr. Helstu framkvæmdaliðir á eignabreytingareikningi fyrir 1982 eru: Ibúðir aldraðra kr. 4.150,000,00, sundlaug kr. 3.238,000,00, bókasafn kr. 2.000,000,00, heilsugæslustöð II á- fangi kr. 500,000,00 og íþróttavöll- ur 500,000,00. Áætlað er að ríkis- framlag til þessara verkefna verði samt. um 1 m.kr. Á árinu 1982 lýkur byggingu 16 íbúða fyrir aldraða og er fyrirhug- að að taka þær í notkun í október 1982. Þá er áformað að opna nýtt bókasafn (450 m2) við Melabraut fyrir áramót ’82—’83. Unnið verður af fullum krafti við sundlaug og stefnt að því að taka laugina í notkun fvrir vorið 1983. Áætlunin var samþykkt sam- hljóða til annarrar umræðu í janúar nk. Til sölu Bergstaðastræti Lítið hús sem er allt ný stand- sett. Laust strax. Lindargata Ca. 70 fm 3ja herb. íbúð í tví- býli. Getur losnað fljótlega. Verslunarhúsnæöi við Miðbae ca. 100 fm. Hús- næðið er í tvennu lagi. Hentar vel fyrir tvær versl. Hveragerði 64 fm einbýlishús með 40 fm bílskúr. Allt endurnýjað utan. Laust strax. Eínar Sigurðsson.hrl. Laugavegi 66, sími 16767. Kvöldsími 77182. Hafnarfjörður Lyngmóar Garðabæ 2ja herb. ca. 60 fm góð íbúð á 3. hæð (efstu hæð) í nýlegu fjölbýlishúsi. Bílskúr. Laus strax. Álfaskeið 3ja—4ra herb. 95 fm íbúð á 4. hæð í fjölbýlishúsi. Bílskúr. Framristekkur (Breiðholt) Gott einbýlishús ca. 185 fm hæð auk kjallara undir hluta hússins og bílgeymsla. Vönd- uð eign. Árni Grétar Finnsson hrl. Strandgötu 25, Hafnarf sími 51 500 Heimasími sölumanns (Ágúst) 41102. Furugerði 2ja til 3ja herb. ibúð á jarðhæð. Verð 650 þús., útborgun 500 þús. Álfhólsvegur 3 herb. 85 fm íbúð á 1. hæö í þríbýli. Bílskúr. Bein sala. Grettisgata 3ja herb. 85 fm ibúö í steinhúsi á 2. hæð í þríbýli. Nýstandsett. Bein sala. Jörfabakki 4ra herb. íbúð 2. hæð, 105 fm. Verð 710 þús. Kópavogsbraut 146 fm glæsileg efri sérhæð. Bílskúr. Fæst í skiptum fyrir ein- býlishús í Kópavogi. Heiðarás Rúmlega 300 fm einbýlishús á 2 hæðum. Húsið rúml. tilbúiö undir tréverk. 60 fm bílskúr inn- byggður. Bein sala. Birkihvammur 230 fm einbýlishús á 1 og 'h hæð með innbyggðum bílskúr. Bein sala. Verslun í Kópavogi 20 ára hverfisbúö með vefnaö- arvöru o.fl. Mjög hentugt fyrir einn starfskraft sem vill reka sjálfstæðan atvinnurekstur. Sanngjarnt verð og greiöslu- kjör. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, skálar við Málfríði Einarsdóttur við hátíðlega athöfn við afhendingu rithöfundaverðlaunanna til hennar á gamlársdag. Ljósm. ÓI.K. Magn. Ræðan sem ekki var flutt 31. desember MALFRIÐUR Kinarsdóttir, rit- höfundur, hefur beðið blaðið fyrir eftirfarandi „ræðu sem ekki var flutt 31. desember", eins og hún orðar það. En hún kvaðst við afhendingu styrks Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins ekki hafa komið upp einu orði, þótt hún hafi ætlað og átt að þakka fyrir sig: „Nú fór ver en skyldi því hollvættir mínir, sem hefðu átt að aðstoða mig núna, brugðust mér, sagnarandi minn, sem oft leiðbeindi mér, kom ekki til staðar, sjálfur Ymur óheyranlegur. Ládeyða í sálarkirnunni, allra orða vant þeirra sem hefðu átt að þyrp- ast að gullin og fín, svífa um loftið hérna inni með sætum rómi svo sem einn seiður galdrakonu svo lokkandi að ekkert ykkar sem hérna sitjið hefði fengið varast þeirra tál. Kærar þakkir fyrir heiður mér auðsýndan." Málfríður Kinarsdóttir FASTEIGIMAMIÐLLJIM SVERRIR KRISTJÁNSSON ŒBSjHŒ FJÖLNISVEGI 16, 2. HÆÐ, 101 REYKJAVÍK Suðurgata Hafnarfirði Til sölu efri hæð og ris ca. 140 fm samtals ásamt stórum bílskúr og geymslum og ca. 100 fm iðnaðar- húsnæöi. Steypt port. Til greina kemur að taka minni eign upp í. Hef góöan kaupanda að 4ra herb. íbúð sem þarf að losna fjótt. Góð útb. Hef góða kaupendur að flestum stærðum fasteigna á Stór-Reykjavíkursvæði. Málflutningsstofa Sigríður Ásgeirsdóttir hdl. Hafsteinn Baldvinsson hrl. 43466 Hjallabrekka — Kópavogi — Einbýli 256 fm á tveimur hæðum ásamt bílskúr. i dag tvær íbúöir, efri hæð 144 fm, 5 svefnherb., stofur. Getur verið laus í janúar. Neðri hæð 113 fm, 4ra herb. íbúð laus í júní. Einkasala. Espigerði 120 fm íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi. 4 svefnherb., stór stofa, austur- og suðursvalir. Laus í júní. Einkasala. EFasteignasalan EIGNABORG sf. Hamraborg 1 200 Kðpavogur Simar 43466 4 43805 Sölum Vilhjálmur Elnarsson. Sigrún Kröyer Lögm Lögmaöur: Ólafur Thoroddsen. Heimasimi sölumanns 41190.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.