Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 Ekki segjcx. fccx! G»ettu hver þetto. dsí er... TM Reo U.S. Pat. Off.—all rights reserved « 1981 Los Angeles Times SyrxJicate ... aö /aða /iawa /i/rs/ /raw í huyann. Vissir þú það mamma að ána- maðkar eru eins oy lifrarkafa á bragðið? Vertu fljót að ákveða þig.- Ég er kominn með sinadrátt í löppina. HÖGNI HREKKVÍSI A nÉ/cKSro /‘trrr* / ? Þakkir til forsetans Árni Gunnlaugsson, Hafnarfirði, skrifar: „Ekki má gleymast að þakka, þegar fyrirmenn þjóðarinnar með fordæmi sínu eða á annan hátt visa okkur veginn til fegurra mannlífs. Því skulu forseta ís- lands, Vigdísi Finnbogadóttur, fluttar þakkir fyrir tímabær að- vörunarorð, þegar hún í nýársræð- unni vék að fíkniefnaneyslunni og sagði m.a.: „Það er gaman að skemmta sér, en að ganga til þess að skemmta sjálfum sér við að gleyma stund og stað og aðeins til að drepa tímann er með því dap- urlegasta, sem samfélagið hefur fundið upp sér til dægrastytt- ingar." Margir hljóta að geta tekið und- ir þessi orð forsetans, en um leið vakna spurningar eins og þessar: Hví ættum við að vilja svipta okkur með neyslu vímuefna hæfi- leika og heilsu til þess að fá notið allsgáð og ótrufluð þeirra marg- víslegu dásemda, sem lífið býður okkur? Hvi skyldum við óvirða okkur sjálf og flýja raunveruleik- ann með neyslu áfengis og ann- arra vímugjafa? Hvaða haldbær rök eru það gagnvart sjálfum sér að skipta áfenginu í sérbás í af- stöðunni til fíkniefna? Hvaða fíkniefni veldur hér meira alhliða tjóni og böli en einmitt áfengið? - Það er ekki að ástæðulausu, að úr hópi færustu manna á sviði áfengisrannsókna hefir því verið haldið fram, að ef áfengið hefði verið fundið upp á okkar dögum, hefði það verið sett á bannlista með ýmsum öðrum eiturefnum. Er ekki kominn tími til að staldra við, hugsa sitt ráð og hafa þá í huga eftirfarandi, sem haft er eftir Pyþagorasi: „Berðu virðingu fyrir sjálfum þér framar öllu öðru.“ En vímuefni, hvaða nafni sem nefnast, veikja sjálfsvirðing- una, sem er „lykill til frelsis og farsældar", eins og forsetinn komst að orði í nýársræðunni. Endurteknar skulu þakkirnar til forsetans með þeirri von, að á nýju ári megi sem flestum lærast að njóta lífsins án áfengis og ann- arra fíkniefna. Það styrkir sjálfs- virðinguna og hjálpar okkur til þess að geta verið hamingjusöm, - gefur okkur sjálfum og öðrum gleðilegt ár.“ Hvaða blessun færir sá friður sem keyptur er fyrir ánauð og ill kjör mörg hundruð milljóna manna? Húsmóðir skrifar: „Allt er þá þrennt er, segir gam- ait máltæki. Þrisvar sinnum hefur rússneski björninn slegið hinn frjálsa heim hrottalega um jólin. Nasistaskríll og ævintýralýður Fyrst var það Ungverjaland sem kommúnistarnir færðu Stalín og þá hirtu Rússar framleiðsluna og gáfu smánarverð fyrir, svo að 1956 var þjóðin orðin sárfátæk og aftökur og fangelsanir daglegt brauð. Þjóðin gerði uppreisn og hélt í bjartsýni sinni, að hinn frjálsi heimur ætlaði að þurrka út rauða sósíalismann eins og þann brúna í Þýskalandi. En þá komu friðardúfurnar og bönnuðu stríð. Hér í útvarpinu fékk almenningur þann sannleika, að þetta hefði bara verið nasistaskríll og ævin- týralýður, sem Rússar væru búnir JHfHR að frelsa almenning frá. Og allir voru komnir til Síberíu; þar er svo gott að vera um jólaleytið, ekki satt? Þegar útvarpið var búið að senda út þennan sannleika, gat jólasteikin orðið gómsæt. Ekki væri sulturinn ... Fyrir tveimur árum réðust Rússar inn í Afganistan, og enn þurfa þeir að auka herafla sinn þar. Hefði hinn frjálsi heimur skilið sinn vitjunartíma 1956, þá hefðu ekki kennararnir í Kamp- útseu framið þjóðarmorðið. Báta- fólkið frá Víetnam, sem nú er dreift um allt, væri heima hjá sér og yndi við misgóðar stjórnir eins og við. Ekkert land þyrfti að óttast hryðjuverkamenn, og hryðjuverkaskólarnir í Austur- Þýskalandi hefðu aldrei verið stofnaðir. Ekki væri sulturinn og kúgunin í Angóla og Mósambik eða manndrápin í Eþíópíu, og ekki væru 250 þúsund flóttamenn frá Kúbu nú í Bandaríkjunum. Frá vöjjgu til grafar Ég hætti nú að telja, en lengur mætti halda áfram. Þriðji kinn- hesturinn og ekki sá minnsti er svo Pólland. Þar er barið á verka- mönnum sem báðu um mat og mannréttindi, en slíkt er naumt skammtað í alþýðulýðveldunum. Ég vil biðja friðardúfurnar, bæði þær sem eru á mála hjá KGB og svo hinar, sem vinna fyrir Rússa í sjálfboðavinnu, að hugleiða hvaða blessun sá friður færir heiminum, sem keyptur er fyrir ánauð og ill kjör mörg hundruð milljóna manna, sem frá vöggu til grafar geta aldrei um frjálst höfuð strok- ið.“ „Fyrir tveimur árum réðust Rússar inn í Afganistan, og enn þurfa þeir að auka herafla sinn þar.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.