Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 19 Deilt á Ítalíustjórn eftir fangaflóttann Kóm, 4. janúar. Al’. STJORN Giovanni Spadolini sætti hardri gagnrýni í ítalska þinginu í dag vegna flótta fjögurra hryðjuverkakvenna úr fangelsi. Stjórnmálamönnum og dagblöðum Hnnst ótrúlegt að flóttinn skyldi heppnast þrátt fyrir gífurlegar öryggisráðstafanir, sem hafa verið gerðar vegna leitarinnar að bandaríska hershöfðingjanum James L. Dozier. Konurnar komust undan í gær þegar vitorðsmenn höfðu sprengt gat í vegg umhverfis fangelsið í Rovigo suður af Fen- eyjum, fleygt til þeirra vélbyssu og haldið vörðum í skefjum með skothríð. Einn vegfarandi beið bana og sex aðrir særðust í sprengingunni. Lögreglan kannar þann mögu- leika að flóttinn hafi verið til- raun Rauðu herdeildanna til að dreifa athygli lögreglunnar frá rannsókn ránsins á Dozier í Ver- ona 17. des. Nýjum vegatálmum hefur verið komið upp umhverfis Rovigo og nákvæm leit gerð á nálægum svæðum að konunum sem flúðu og vitorðsmönnum þeirra sem voru minnst fjórir. Þau flúðu í tveimur bílum sem biðu þeirra. A þingi voru dómsmálaráð- herrann og innanríkisráðherr- ann krafðir skýringa á því hvaða ráðstafanir hefðu verið gerðar til að koma í veg fyrir slíkan flótta og beðnir að leggja fram skýrslu um rannsókn Dozier- málsins. Varaleiðtogi Frjáls- lyndaflokksins, Alfredo Biondi, hvatti til harðari ráðstafana gegn hryðjuverkamönnum og nákvæmrar rannsóknar á fang- elsum landsins. V aradómsmálaráðherrann, Gaetano Scamarcio, sagði að 90% fangelsa Italíu væru veik fyrir „álika ákveðnum árásum hryðjuverkamanna". Samkvæmt skýrslu sem stjórnin birti í dag voru rúmlega 1,100 menn úr hryðjuverka- eða undirróðurs- samtökum í ítölskum fangelsum í nóvemberlok. Þar af voru 364 úr Rauðu herdeildunum, 239 úr Prima Linea, 154 úr hryðju- verkasamtökum hægrimanna og 122 vinstriöfgamenn. Fyrrum forseti gripinn á flótta Abidjan, 4. janúar. AP. HERYFIRVÖLD í Ghana hafa handtekið Hilla Limann fyrrum forseta, fimm dögum eftir að þeir steyptu stjórn hans af stóli. Liman og þrír lífverðir hans voru stöðvaðir í bíl við vegatálm- anirlögreglunnar í bænum Kofori- dua, .35 km norður af höfuðborg- inni Accra, að sögn Accra- útvarpsins. Útvarpið gaf í skyn að Liman hefði ætlað að reyna að fara úr landi. Útvarpið sagði einnig að 60 fyrrverandi ráðherrar og embætt- ismenn hefðu gefið sig fram við lögregluna eins og þeim var skip- að, öryggis þeirra vegna. Allar innistæður fyrrverandi embætt- ismanna, fjölskyldna þeirra og fyrirtækja hafa verið frystar. Jerry J. Rawlings fluglautinant steypti stjórn Limans á gamlárs- dag, 27 mánuðum eftir að hann afhenti Liman völdin að loknum kosningum. Rawlings hafði tekið völdin 3V2mánuði áður. Stjórnmálaflokkar hafa verið bannaðir, stjórnarskráin numin úr gildi og þingið leyst upp. Rawl- ings segir að tilgangur byltingar- innar sé að uppræta spillingu, sem hafi hrjáð landið í rúm 10 ár. Tals- maður hersins segir að aðeins 10 hafi fallið þegar byltingin var gerð. Milljónamær- ingur fær hvergi vinnu l’itt.sburgh, 4. janúar. Al*. BANDARÍSKI milljónamæringur inn l’aul Smolak hét því á nýárs- dag aó verða sér út um atvinnu á þessu ári, en hann hefur árangurs- laust leitað sér að atvinnu eftir að honum var sagt upp störfum í bjór verksmiðju í ágúst sl. Smolak er 31 árs að aldri og býr hjá foreldrum sínum. Hann varð milljónamæringur er hann vann í ríkishappdrættinu í Pennsylvaníu í fyrrasumar. „En mér líður illa í iðjuleysinu og það er mér mikilvægt að finna nýtt starf svo ég geti átt tilkall til ellistyrks þegar þar að kemur,“ sagði Smolak, sem er á atvinnu- leysisbótum. Öflugur skjálfti á Atlantshafshrygg V\ ashinjrlon, 4. januar. Al*. SNARPUR jarðskjálfti varð á Atlantshafshryggnum skammt frá ntið- baug á sunnudag og var það sjötti snarpi skjálftinn sem vitað er um á nýja árinu. Hinir fyrri urðu í vesturhluta Kyrrahafsins og við Acapulco í Mexíkó. Skjálftinn á Atlantshafs- hryggnum mældist 6,7 stig á Richter-kvarða, en hans varð vart klukkan 14.10 að íslenzkum tíma. Skjálftar eru tíðir á Atl- antshafshryggnum, en Island er á þessum hrygg. Enn er ekki ljóst hversu margir jarðskjálftar mældust árið 1981, en þó vitað um 356 skjálfta er merkjanlegir voru í Bandaríkjunum. Þar komu þó miklu fleiri fram á mælum, og 71 öflugur jarðskjálfti fannst annars staðar í veröldinni. 25 farast í óveðri í Bandaríkjunum \N ashington, 4. janúar. Al*. AD MINNSTA kosti 25 manns hafa farizt í óveðri sem geisað hefur í Banda- ríkjunum frá því á gamlárskvöld. Mikill snjór féll í norðurríkjum Bandaríkj- anna á sunnudag og hvirfilvindar gerðu mikinn usla í Alabama og Mississippi. Um 20 þúsund manns eyddu hclginni í myrkri og kulda í Maine vegna rafmagnsbilunar, en 12 stiga frost var þykkur snjór á nýársdag. Mikið var um umferðaróhöpp og árekstra í miklu fannfergi á svæði frá Seattle til Baltimore. í borginni Roscoe í Suður-Dak- ota urðu íbúar að bræða snjó til drykkjar er leiðslur frá vatnshólum sumarsins frusu, en þar komst frostið niður í 29 gráður á Celcius. Gripu bæjarbúar til þess að grafa neyðarbrunn í gær. Snjór féll í norðurríkjunum frá Kyrrahafsströndinni allt til vatn- anna miklu og féllu t.d. 30 senti- í ríkinu í gær og þar féll 60 sentimetra metrar af snjó í Grand Marais í Minnesota og 20 sentimetrar víða í Michigan-ríki í gær. Þá var tilkynnt í dag að „hættu- legasta illveður ársins" væri í upp- siglingu yfir Texas og búizt við að það óveður ferðist yfir til vatnanna miklu. Óljóst er hversu margir hafa týnt lífi af völdum veðursins, en vitað er um 25 að minnsta kosti, þar af fórust sjö í fjórum flugslys- um. Sonur Rakowskis vill ekki snúa heim Itonn, 4. janúar. Al'. VKSTrK-þýska ríkisútvarpið sagði frá því sl. laugardag, að Artur Kak- owski, sonur Mieczyslav Kakowski, aðstoðarforsætisráðherra í pólsku stjórninni, væri staddur í Vestur- Þýskalandi og hygðist ekki hverfa aftur til síns hcima heldur sækja um landvistarlcyfi í Ástralíu. Ekki hefur enn fengist full staðfesting á þcssari frétt. Mieczyslav Rakowski, aðstoðar- forsætisráðherra, var staddur í Vestur-Þýskalandi í fyrri viku og átti þá viðræður við embættis- menn og frammámenn í viðskipta- lífinu. Hann er fyrsti fulltrúi pólsku stjórnarinnar, sem erlendis fer eftir að herlögin voru sett í landinu. Ekki er vitað til þess, að hann hafi reynt að hafa samband við son sinn, sem verið hefur í Vestur-Þýskalandi frá því í júní í sumar ásamt konu sinni og dóttur. Samkvæmt upplýsingum frá vestur-þýska innanríkisráðuneyt- inu báðu 52.000 Pólverja um land- vistarleyfi í landinu á síðasta ári og í Austurríki voru þeir 30.000 af tæplega 35.(KX) Austur-Evrópu- búum alls. Námskeiö í almennri framkomu og snyrt- ingu. Leiöbeint veröur við hreyfingar, fataval, mataræði, hárgreiöslu o.fl. Kennt veröur eftir hinu brezka kerfi, Young Londoner og munu færustu sérfræðingar leiöbeina um öll þau atriöi sem fyrir veröa tekin. Kennsla hefst mánu- daginn 11. janúar. Inn- ritun og upplýsingar í síma 38126, frá klukkan 19—22 alla daga, þessa viku. Hanna Frímannsdóttir. .ns«'uT til sniifim oíwirn ira nsii r icvðóíe -rsáil* nnsni feóskl tmaivrfnuiK 6a íenllsri muiinra go besdlliil .isfstJmJÍsKÍ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.