Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 46
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDA.QUR 5. JANÚA5 1982 Fólk og fréttir í máli og myndum Keppnislið judodeildar UMFK. Finnski þjálfarinn er annar frá hægri í fremri röð. Judo-deild UMFK með finnskan þjálfara STRÁKARNIR í UMFK eru öBugir í judo. í Víkurfréttum mátti lesa, að þeir hafa finnskan þjálfara. Sjá pist- ilinn hér að neðan. Judodeild UMFK var stofnuð 1974 og síðan þá hefur það verið eitt stærsta mál hvers vetrar að fá hæfan þjálfara. Nú í vetur þjálfar deildina finnskur þjálfari, en á vinabæjamótinu sem haldið var hér sl. sumar, tókust mjög góð kynni meðlima deildarinnar og hinna finnsku keppenda. Að beiðni forráðamanna judo- deildar UMFK tóku þeir að sér að athuga með þjálfara frá Finn- landi, þar sem erfitt er að fá hæf- an íslenskan þjálfara. Útveguðu þeir þjálfara að nafni Reino Fagerlund, 28 ára, frá Pori Finn- land, og er hann mjög hæfur þjálf- ari, jafnframt sem hann er keppn- ismaður og í landsliði Finna. Hann hefur 5 sinnum orðið finnskur meistari undir 65 kg, varð þriðji í þýska opna judomót- inu ’76, í fyrsta sæti á breska opna ’80 og keppti á síðustu Ólympíu- leikum og hafnaði þar í 7. sæti. Þar eð dýrt er að fá þjálfara erlendis frá, hafa judodeild UMFK og judodeild Grindavíkur sameinast um þjálfarann og þjálf- ar hann tvisvar í viku í Grindavík og þrisvar í viku í Keflavík. ítalinn Giorgio Chinaglia var kjörinn knattspyrnumaður ársins í Banda- ríkjunum og fékk mikinn silfurdisk í viðurkenningu. Hann leikur með New York Cosmos og lék hér á landi með liðinu síðastliðið haust. Ólafur setti íslandsmet Reykjavíkurmeistaramótið í kraft- lyftingum fór fram á milli jóla og nýárs. Eitt íslandsmet var sett á mótinu. Olafur Sigurgeirsson KR lyfti 173 kg í bekkpressu í léttþunga- vigt. (jnnur úrslit I mótinu urðu þessi: Reykjavíkurmcistarar í kraftlyfting- um 1981: Flokkur 56 kg Jón B. Viggósson KR 75, 50, 110 = 235 kg Flokkur 60 kg Bárður B. Olsen KR 95, 57,5, 115 = 267.5 kg Flokkur 67,5 kg Bjarni Þórisson KR 120, 85, 170 = 375 kg Flokkur 75 kg Daníel B. Olsen KR 220, 122,5, 30 = 372.5 kg Flokkur 82,5 kg Helgi Sigurðsson KR 170,125, 215 = 510 kg Flokkur 100 kg Halldór E. Sigurbjörnsson KR 300, 170, 260 = 730 kg Flokkur 110 kg Guðmundur Eyjólfsson KR- 220, 140, 247,5 = 607,5 kg Lið ársins KFTIKTALDIK knattspyrnumenn voru valdir í lið ársins 1981 í Banda- ríkjunum: Jan van Beveren (Holland og Fort Lauderdale Strikers) — Wim Rijs- bergen (Holland og ('osmos) — Frans Mathieu (Haiti og Chicago Stings) — Peter Nogly (Vestur Þýskaland og Edmonton Drillers) — Gorman (Skotland og Tampa Bay Kowdies) — Teofilo Cubillas (Peru og Fort Lauderdale) — Vladislav Bogicevic (Júgóslavía og (’osmos) — Arno Steffenhagen (VesturÞýska- land og Chicago Stings) — Brian Kidd (England og Atlanta Chiefs) — Giorgio Chinaglia (Ítalía/USA og Cosmos) — Gordon Hill (England og Montreal). Sambandsþing UMFI Sambandsþing Ungmennafélags íslands, það 32. í röðinni, var haldið á Kirkjubæjarklaustri fyrir nokkru. Þing þessi eru haldin annað hvert ár og eru þar tekin til umræðu og afgreiðslu ýmis áhuga- og hagsmunamál hinna ýmsu ungmennafélaga. Innan UMFÍ eru nú rúmlega 23 þúsund félagsmenn í tæplega tvö hundruð ungmennafélögum víðs vegar um landið. Fyrir þingið var lögð skýrsla stjórnar samtakanna og einnig fjöldamargar tillögur er fjölluðu um margvísleg málefni. Þingið samþykkti tillögur frá allsherjarnefnd m.a. um stofnun Bókasafns UMFÍ, áskorun til ungmennafélaganna um rekstur sumarbúða, aðvörun vegna álags á mörgum helstu ferðamannastöð- um og perlum íslenskrar náttúru og hvatt til meira eftirlits með erlendum ferðamönnum, um bind- indismá! og um erlend samskipti. Iþróttanefnd hvatti til almennr- ar þátttöku í „Göngudegi fjöl- skyldunnar", fjaílaði um Iþrótta- kennaraskólann og fól stjórn UMFI að kanna möguleika á jöfn- un ferðakostnaðar íþróttafólks. Þá beindi nefndin ýmsum ábending- um til mótshaldara 18. landsmóts UMFI sem haldið verður á Suður- nesjum 1984. Fræðslu- og útbreiðslunefnd gerði tillögur um ýmis atriði til að minnast 75 ára afmælis UMFÍ á næsta ári, um Skinfaxa sem er tímarit ungmennafélagshreyf- ingarinnar, um félagsmálaskóla UMFÍ, útbreiðslustarfið og fleira. Fjárhagsnefnd fjallaði um íþróttasjóð ríkisins, Getraunir, Landshappdrætti ungmennafélag- anna og fleira tengt fjáröflun. Nefndin óskaði eftir athugun á nýtingu skólahúsnæðis í Reykja- vík fyrir íþróttafólk af lands- byggðinni og lagði fram fjár- hagsáætlun UMFI fyrir árið 1982 sem hljoðaði upp á um 1,5 milljón- ir. Sú tillaga sem einna mesta tíma tók var frá fjárhagsnefnd, enda í henni brýnustu hagsmuna- mál ungmennafélaganna um þess- ar mundir. Tillagan sem var sam- þykkt samhljóða var svohljóðandi: „32. sambandsþing vekur athygli á veikri fjárhagsstöðu héraðssam- banda og ungmennafélaga um allt land. Ennfremur því að lögbundn- ir tekjustofnar úr ríkissjóði og sveitarsjóðum eru mjög rýrir. Aðrir styrkir hins opinbera eru afar misháir eftir því hver á í hlut og hve ríkt er eftir þeim gengið. Við þetta ástand verður ekki unað öllu lengur. Þingið felur því stjórn UMFI að hefja nú þegar í samráði við ISI tillögugerð um endurskoð- un íþróttalaga. í því sambandi væntir þingið að eftirfarandi komi fram: 1. Að íþróttasjóði verði gert kleift og skylt að ljúka greiðslum framlaga til framkvæmda eigi síðar en ári eftir að viðkomandi framkvæmd lauk. 2. Kennslustyrkir til íþrótta- og ungmennafélaga verði ákveðið hlutfall af uppgefnum kennslu- kostnaði skv. skýrslum félaga. 3. Lögbundinn verði tekjustofn frá ríki og sveitarfélögum til ungmenna- og íþróttafélaga, héraðssambanda og heildar- samtaka í samræmi við umsvif og störf. 4. Hlutur ríkissjóðs í launum starfsmanna hreyfingarinnar verði 50%. 5. Þegar umsvif hreyfingarinnar eru metin skal taka tillit til stærðar sambandssvæða og fjarlægðar þeirra frá höfuð- borgarsvæðinu, þannig að að- staða allra íslendinga verði jöfnuð til að taka þátt í starfi heildarsamtakanna. Þinginu er ljóst að hér er farið fram á róttækar breytingar, en telur að ekki verði hjá þeim kom- ist ef hreyfingin á að geta rækt það hlutverk sem henni er ætlað skv. íþróttalögum og vilja lands- manna." Að lokinni afgreiðslu á nefnda- álitum var gengið til kosninga. Formaður UMFI var endurkosinn Pálmi Gíslason og aðrir stjórn- armenn voru allir endurkosnir en þeir eru: Bergur Torfason, Dýra- firði, Diðrik Haraldsson, Selfossi, Þóroddur Jóhannsson, Akureyri, Björn Ágústsson, Egilsstöðum, Guðjón Ingimundarson, Sauðár- króki, og Jón G. Guðbjörnsson, Borgarfirði. I varastjórn voru kos- in: Magndís Alexandersdóttir, Stykkishólmi, Finnur Ingólfsson, V-Skaftafellssýslu, Dóra Gunn- arsdóttir, Egilsstöðum, og Haf- steinn Jóhannessort, Kópavogi. Auk þingfulltrúa sátu nokkrir gestir þingið, m.a. Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrv. formaður UMFÍ, og var hann sæmdur gull- merki UMFÍ á þinginu. HBj. • Þessar eru ekki að biðjast fyrir. Ekki skjóta í brjósthæð. • Ekki óaigeng sjón í knattspyrnunni. Verja viðkvæmasta hlutann. Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ, ávarpar 32. sambandsþingið sem haldið var á Kirkjubæjarklaustri. Ljósm. Mbl. HBj. Þingfulltrúar 32. sambandsþings UMFÍ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.