Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 41 fclk í fréttum í fyrsta sinn í ellefu ár + Snemma í desember hittust þeir aö máli í Berlín, Helmut Schmidt, kanslari Vestur-Þýskalands, og Erich Honecker, leiötogi Kommúnista- flokks Austur-Þýskalands. Áttu þeir saman viöræöur í þrjá daga. Þetta er í fyrsta skipti í ellefu ár, sem leiötogar Þýskalands hittast aö máli i Þýskalandi. í mars 1970 skiptust þeir Willy Brandt og Willi Stoph á heimsóknum og leiddu viöræöur þeirra til þýðu svonefndrar í samskipt- um Bonn og Austur-Berlínar og margvíslegra samninga Lítill árangur varö af fundi þeirra Schmidts og Honeckers — en einmitt meöan á heimsókninni stóð voru sett herlög í Póllandi... Erich Honecker tekur á móti Helmut Schmidt á Schönefeld-flugvellinum nálægt Berlín. Alexeyeva komin til Boston + Liza Alexeyeva, tengdadóttir Sakharovs, brosir hér framan í frétta- menn eftir komuna til Boston, loksins samein- uö eiginmanni sínum, Al- exei Seminov, eftir þriggja ára aöskilnaö. En Seminov er sonur eigin- konu Sakharovs af fyrra hjónabandi... ítalskur eftirstríðs- leiðtogi látinn + Látinn er á Italíu Ferruccio Parri, 91 árs aö aldri. Hann var fyrsti for- sætisráðherra ítalíu eftir seinna stríö, en sat ekki lengi í embætti, fremur en aörir forsætisráöherrar í því landi eftir seinna stríö. Parri myndaöi stjórn sex flokka þann 19. júní 1945 og féll hún fimm mánuöum síöar. Hann var eini for- sætisráöherra ítalíu eftir stríö, sem ekki var kristilegur demókrati, þangaö til Giovanni Spadolini, Lýöveldisflokknum, myndaði nú- verandi stjórn í júní síðastliönum. Ferruccio Parri lauk námi frá Turin-háskólanum, særöist þríveg- is í fyrri heimsstyrjöldinni, og sat í tvígang i fangelsi á valdatíma Mussolinis. Hann barðist meö skæruliöum í seinna stríöi, og var ævinlega haröur vinstri maöur. Kommúnistar tilnefndu hann sem forsetaefni sitt í forsetakosningun- um 1955, en Parri neyddist til aö draga framboö sitt til baka, þar eö hann átti ekki nægan stuöning á þingi. SKÁL! + Ronald Reagan, forseti Banda- rikjanna, skálar viö þrjá forvera sína í forsetaembætti, þá Richard Nixon, Gerald Ford og Jimmy Carter. Myndin var tekin snemma i október, þegar þeir fjórir hittust að máli i Hvíta húsinu, áður en þeir héldu af stað til Kaíró, aö vera viöstaddir jarðarför Anwar Sadats, Egypta- landsforseta, sem var myrtur sl. haust. En myndin þessi var ekki gerö opinber i Washington fyrr en nú í síöustu viku . . . Palme í Japan + Olof Palme, leiötogi Jafnaöarmanna í Sví- þjóö og fyrrum forsætisráöherra þar í landi, var nýlega á ferö í Japan og tóku þá Ijósmynd- arar þessa mynd af Palme þar sem hann heils- aöi upp á utanríkisráöherra Japana, Voshio Sakurauchi. Palme er til hægri á myndinni og brosir framan í Choi nokkurn Kyung Rok, er- indreka stjórnarinnar í Suöur-Kóreu og Sakur- auchi stendur á milli þeirra. Palme var ekki í neinni skemmtireisu á þessum slóðum, heldur í erindagjörðum nefndar einnar sem hann er í forsæti fyrir, og fjallar um afvopnunar- og ör- yggismál. „ísland er mjög myndrænt land“ Rætt við Max Schmid ljósmyndara Max Schmid heitir maður svissn- eskur og er Ijósmyndari. „Hálfat- vinnuljósmyndari," eins og hann segir. Max Schmid ferðast um allan heim, er laus og liðugur, sjálfs sín húsbóndi og tekur myndir. Náttúru- myndir eingöngu. Hann selur mynd- ir sínar stórum Ijósmyndablöðum víða um heim en helst er hann fræg- ur í heimalandi sínu, Svisslandi, og svo í Þýskalandi, en þar stendur nú yfir sýning á náttúruljósmyndum hans frá Islandi og öðrum stöðum í borginni Stuttgart. Önnur sýning er fyrirhuguð innan skamms í borginni Kiel í sama landi. Max Schmid kom hingað til ís- lands í fyrsta sinn árið 1968 og hreifst fljótlega af náttúru lands- ins, fjöllum, fossum og ám að ógleymdum jöklunum. Hann ferð- aðist þá um landið og tók myndir og síðan hefur hann verið hér við- loðandi fram á þennan dag. Kem- ur minnst einu sinni á ári og dvel- ur hér kannski í mánuð eða lengur og ferðast um landið. Hann hefur lagt það á sig að læra íslensku blm. Morgunblaðsins hann að máli. Haraldur J. Hamar var í fylgd með honum en margar mynda Max hafa birst í Iceland Review og Atlantica en Haraldur er ritstjóri þeirra blaða. „Ég held ég myndi ekki vilja vera atvinnuljósmyndari," sagði Max Schmid. „Maður, sem lifir ekki á ljósmyndun eins og ég, hef- ur að ég held meiri tilfinningu fyrir myndefninu og ljósmyndun- inni en atvinnumaðurinn, sem kannski gengur að þessu eins og hverju öðru starfi. Eg hef hvergi lært ljósmyndun, aldrei, og það gekk erfiðlega í fyrstu að selja myndirnar til blaða og tímarita en það er farið að ganga betur núna. Ég hef, auk þess að taka sjálfur myndir, oft verið leiðsögumaður fyrir atvinnuljósmyndara og hef farið með hópa til Perú, Filipps- eyja, Nýja-Sjálands og annað. Island er mjög myndrænt land. Náttúra íslands er alveg sérstök og á hvergi sinn líka í heiminum. Það er a.m.k. leitun að skemmti- Max Sehmid með eintak af almanakinu svissneska en í því eru margar myndanna frá fslandi og m.a. sú sem hérna sést. Ljósimnd Mbl. krisiján. þann tíma sem hann hefur verið hér og talar hana bara vel. Hann hefur víða um heiminn farið í leit að „mótífum", eða fyrirmyndum i náttúrunni, m.a. til Nýja-Sjálands, Norður-Ameríku, Argentínu, Perú, Filippseyja, Nor- egs, íslands og fleiri staða. Myndir hans af íslandi hafa farið víða en flestar hafa þær þó birst í sviss- neska ljósmyndablaðinu „Photo- graphie". Það blað hefur nú í fyrsta sinn gert og gefið út í tak- mörkuðu upplagi almanak með myndum Max Schmids og er tæp- ur helmingur þeirra mynda héðan af íslandi. Almanak þetta er geysistórt um sig, tæplega einn sinnum hálfur metri í ummál. Myndirnar í almanakinu eru einn- ig frá Perú, Argentínu og Nýja- Sjálandi, en flestar frá íslandi. Þær eru m.a. frá Mývatni, af Esju, og frá Torfajökulssvæðinu. Max Schmid er nú staddur hér á landi, kom rétt fyrir jólin, og hitti legri náttúru en ísland hefur upp á að bjóða. Landslagið er sér- kennilegt en það er eins og íslend- ingar sjálfir viti bara ekki af því eins furðulegt og það nú er en það er afskaplega gaman að ljós- mynda landið. Sérstaklega uppi á hálendinu og á Torfajökulssvæð- inu eru afskaplega falleg og skemmtileg „mótíf“. Þar er lands- lagið mjög sérstakt. Stór þáttur í lar.dslaginu er hvernig það er mót- að af náttúrunni af hörðum veðr- um til dæmis. Nei, ég hef ekki orðið var við að erlendir ljósmyndarar flykkist hingað til íslands í náttúru- myndatöku. Landið er fjarlægt og það er sjálft erfitt að mörgu leyti." Max Schmid ætlar að hafa sýn- ingu á myndum sínum hér á landi næsta haust en Iceland Review hefur í hyggju að gefa út ljós- myndabók, Islandsbók með mynd- um Max frá íslandi. Míkið tjón á Filippseyjum Manila, .‘10. desembcr. \l*. At) MINNSTA kosti 185 manns fórust og 146 til viðbótar er enn saknað í kjölfar fellibylsins Lee, sem fór yfir hluta Filippseyja um síðustu helgi. Hjálparstofnanir skýrðu frá því að 24.808 heimili hefðu eyði- lagst og 1.586 manns slasast. Áætlað er að tjón á mannvirkj- um og uppskeru jafngildi 25 milljónum dollara. Alls misstu um 210 þúsund manns heimili sín, en auk þeirra húsa sem eyðilögðust varð mis- munandi mikið tjón á 53.314 húsum. Yfir 200 týndu lífi er fellibylur fór yfir eyjarnar í nóvember.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.