Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.01.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1982 21 Liverpool álitið sigurstranglegast Enskir veðmangarar hafa ákveðid ad Liverpool sé sigurstranglegasta liðið sem eftir stendur í ensku bik- arkeppninni og það jafnvel þrátt fyrir að liðið fékk úthlutaðan útileik í 4. umferð, en þá mætir Liverpool annað hvort Rotherham eða Sund- erland, allt eftir því hvort liðið hefur betur í innbyrðisviðureign þeirra. Annars var dregið til 4. umferðar innar um helgina og varð eftirfar andi upptalning niðurstaðan: Man. City — Coventry Gillingham eða Oldham — WBA Tottenham — Leeds Shrewsbury eða Port Vale — Bury eða Burnley Watford — West Ham Rotherh. eða Sunderl. — Liverpool Cr. Palace — Bolton Chelsea, Hull eða Hartlepool — Wrexham Barnet eða Brighton — Oxford Norwich — Doncaster Newcastle eða Colchester — Millwall eða Grimsby Carlisle, B. Auckland eða Hu- ddersf. — Orient Barnsley eða Blackpool — QPR eða M.Brough Luton — Ipswich Scunth. eða Hereford — Leicester Peterbrough eða Bristol C. — N. County eða Aston Villa Svo sem sjá má, er ekki nógu góð mynd á hlutunum, enda á eftir að leika fjölda aukaleikja áður en séð verður hvaða lið leika í 4. um- ferð og hver ekki. Aðeins tókst að ljúka 20 leikjum af þeim 32 sem leika átti í 3. umferðinni á laug- ardaginn og 3 leikjum lauk auk þess sem jafntefli. Auk þess er enn ekki lokið öllum leikjum 2. umferðarinnar. Níu fyrstudeildarlið féllu úr keppni í 3. umferðinni og ljóst er að minnsta kosti tvö falla úr í 4. umferð, þar sem 1. deildar lið eig- ast við í 2 leikjum hennar, kannski þremur, fari svo að Sunderland sigri Rotherham og mæti Liver- pool. 4. umferðin verður á dagskrá 23. þessa mánaðar. • Sigurdur Sveinsson handknatt leiksmaður með verdlaunagripi þá er hann hlaut í gærdag í hófi hjá Morgunblaðinu. Sjá bls. 23—24 og 25. Anderlecht slegiö út „ÍSLENSKU" liðunum í Belgíu gekk upp og ofan er bikarkeppnin var á dagskrá um helgina. Arnór Guðjohnsen og félagar hans hjá Lokeren voru í essinu sínu og sigr uðu Molenbeek 3—0 á útivelli. Arn- ór var mjög sterkur í leiknum þrátt fyrir að ekki tækist honum að skora. Þeir Gregorz Lato (2) og Rene Werheyen sáu um mörkin. Hið nýja lið Lárusar Guðmundssonar, Wat- erschei, sigraði Anderlecht 3—1 á heimaveili sínum, en þar áttust við bikarmeistararnir og Belgíumeistar- arnir. Lárus lék ekki með Water schei, hins vegar lék Pétur með í um 30 mínútur án þess þó að skora. Þá mun Cercle Brugge, lið Sævars Jónssonar, hafa verið í eldlínunni, en liðið tapaði fyrir Lierse 1—2. Eft- ir því sem Mbl. kemst næst, lék Sævar Jónsson með liðinu og þótti standa sig vel. Þróttur mætir Val í kvöld í kvöld kl. 20.00 leika Þróttur og Valur í íslandsmótinu í 1. deld í handknattleik. Bjúast má við spenn- andi leik þar sem Valsmenn verða að sigra í leiknum ætli þeir sér að eiga einhverja sigurmöguleika í mót- inu. Leikmaöur íslandsmótsins í handknattleik: Sigurður hefur mest skorað 18 mörk í einum leik Fer Arni til Kalmar? Miklar líkur eru nú á því að knattspyrnumaðurinn kunni, Arni Sveinsson á Akranesi, gangi til liðs við Kalmar FF í Svíþjóð og leiki með liðinu næsta keppnistímabil. Arni hefur fengið ágætt tilboð frá liðinu og mun fara utan til Svíþjóðar á næstunni til þess að kanna allar að- stæður hjá félaginu. Þjálfari hjá Kalmar FF er fyrrver andi þjálfari hjá Österliði því sem Teitur Þórðarson lék með og mun það vera fyrir tilstilli Teits sem Arni fékk tilboð frá félaginu. Það verður mikill missir fyrir ÍA fari Árni til Svfþjóðar en hann hefur verið einn af lykilmönnum ÍA undanfarin ár. -3 KnattsDvrna STÓRSKYTTAN úr Þrótti, Sigurður Sveinsson, fékk tvo glæsilega verðlaunagripi sem viðurkenningu frá Morgunblaðinu fyrir frábæra frammi- stöðu á síðasta íslandsmóti í handknattleik. Sigurður varð markakóngur mótsins, skoraði 135 mörk og setti nýtt markamet í deildinni. Gamla metið átti Hörður Sigmarsson, Haukum, 125 mörk. Sigurður skoraði mest 16 mörk í einum leik í 1. deildinni í fyrra. En það er ekki met hjá Sigurði. Hann hefur mest skorað 18 mörk í leik í 2. deild er Þróttur lék gegn Þór A. Sigurður Sveins9on, lét sér ekki steinsson. Hann fékk nákvæmlega Árni Sveinsson nægja að setja glæsilegt marka- met í 1. deildar keppninni í hand- knattleik, þar sem hann skoraði tíu mörkum meira en gamla met- ið. Sigurður varð einnig langhæst- ur í stigakeppni Morgunblaðsins. Sigurður fékk samtals 105 stig í 14 leikjum, eða 7,5 að meðaltali og er það með ólíkindum há einkunn. Víkingurinn Kristján Sigmunds- son var næstur og sá eini auk Sig- urðar sem rauf 100 stiga múrinn. Kristján fékk slétt 100 stig, lék 14 leiki og fékk því meðaleinkunnina 7,14. Aðeins einn annar hand- knattleiksmaður náði meðaleink- unninni sjö, það var félagi Kristj- áns hjá Víkingi, Þorbergur Aðal- „Islendingar ótrúlega grófir“ - segja dönsku blöðin eftir stórskellinn VIÐBRÖGÐ dönsku blaðanna við hinum mikla ósigri Dana í þriðja lands- leik þjóðanna sem fram fór á Akranesi á dögunum hafa verið með ýmsu móti. Eftir fyrri tapleikinn var friðsamlegur tónn á dönsku blöðunum, svona rétt eins og svona gæti hent sig öðru hvoru, en danska blaðið Aktuelt gat þó ekki á sér setið að geta þess að leikurinn hafi farið fram sama dag og dönsku leikmennirnir komu til landsins. Segir blaðið þá hafa verið stífa og þreytta. Blaðið lætur þess þó getið að Danmörk hafi fengið 7 vítaköst í leiknum en fsland ekkert, en slíkt gæti auðvitað hæglega bent til hagstæðrar dómgæslu fyrir Dani. Þegar Danmörk vann síðan leik ifumer tvö fór hljóðið batnandi, enda gott að vinna á útivelli hver svo sem mótherjinn kann að vera. Síðan rennur þriðji leikurinn upp og þá fer fyrst að fara um frændur okkar, enda tapið hið háðulegasta, eða 22—31. í sumum blöðunum dönsku er greint frá leiknum í litl- um eindálkum með smáu letri. Önnur taka þó á málinu af meira hugrekki og greina frá leiknum. í einu þeirra er fyrirsögnin þessi: „Hándball-fiasko" og þarf ekki að snara því á íslensku. Síðan kemur stutt frásögn um hvernig íslenska 7,0 í einkunn, hlaut 98 stig úr 14 leikjum. Vert er þó að geta Ólafs Benediktssonar. Hann fékk 80 stig úr 11 leikjum, eða meðaleinkunn- ina 7,27. En leikmenn verða að hafa leikið minnst 12 leiki til að koma til álita og því hefði árangur Ólafs ekki nægt honum til sigurs ef Sigurður hefði ekki verið þarna langefstur. Efstu menn í eink- unnagjöf Morgunblaðsins voru eftirtaldir (hærri talan er stiga- fjöldi hvers leikmanns, þá leikja- fjöldi og loks meðaleinkunn): Sigurdur Sveinssonl'r. Kristján Sigmundss. Vík. Þorb. Adalsteinsson Vík. Páll Björ^v insson Vík. Steinar BirgLsson Vík. Páll Ólafsson ÞróUi Bjarni Guómundsson Vnl 105 100 98 97 97 9« 89 7,5 7,14 7.0 6,92 6,92 6,85 6,84 liðið hafði það danska nær allan tímann í hendi sér. En danskurinn kennir dómurunum að nokkru leyti um ófarirnar. Umrætt blað segir m.a.: „ísland lék ótrúlega grófan handknattleik og fengu leikmenn að komast upp meö slíkt óátaldir. Okkar menn sluppu hins vegar ekki jafn vel.“ I kjölfarið á þessari yfirlýsingu lýsir blaðið brottrekstri 3ja danskra leik- manna af leikvelli og bendir á að engum íslenskum leikmanni hafi verið vísað af leikvelli. Hándbold-fiasko Islands hidtil storste sejr over Danmark Portúgalskur sigur í fyrsta leiknum „Þelta var mjög harður og geysilega spennandi leikur, en Portúgal tókst að tryggja sér sigurinn á næstsíðustu mínútu leiksins. er liðið breytti stöðunni úr 60—63 í 62—71. Á síðustu mínútunni skoraði ísland síðan 5 stig gegn einu, en munurinn var of mikill og tíminn of naumur til að gera betur," sagði Agnar Friðriksson landsliðsnefndar maður KKÍ í samtali við Mbl.í gærkvöldi, en þá sigraði Portúgal ísland 73—67 í landsleik í körfuknattleik sem fram fór í Njarðvík. Staðan í hálfleik var 47—41 og alveg eins og í lok leiksins, tókst Portúgal að ná umtalsverðri forystu í lok fyrri hálfleiksins með þvi að skora 4 síðustu stigin áður en blásið var til hvíldar. Sem fyrr segir, var leikurinn hnífjafn, en þó hafði portúgalska liðið jafnan pínulitla forystu. Einu sinni var jafnt, 60—60 þegar tæpar þrjár mínútur voru til ieiksloka, en þá missti ísland tvo lykilmcnn út af með stuttu millibili, þá Símon Ólafsson og Jón Sigurðsson, og kom það á versta tíma eins og lokasprettur leiksins ber með sér. íslenska liðið var afar jafnt í leik þessum, en af nýliðum taidi Agnar að Jón Steingrímsson hafi komist best frá sínu, sérstakiega í vörninni, þar sem pilturinn var afar sterkur. Stig íslenska liðsins skoruðu þeir Símon Ólafsson 18, Valur lngimundarson 12, Torfi Magnússon 11, Jón Sigurðsson 10, Rík- harður Hrafnkelsson 8 og Jón Steingrímsson 8 stig. Stigahæstur hjá Portúgal var maður að nafni Lisboe, hann skoraði 35 stig og taldi Agnar að þar væri á ferðinni besti körfu- knattleiksmaður, sem leikið hefur hér á landi. Mikill snillingur, sem var næst stigahæsti leikmaður B-keppninnar í Sviss á síðasta ári, næstur á eftir Pétri Guðmundssyni. 1 mikilvægum leik í Sviss skoraði Lisboe þessi 48 stig og segir það meira en mörg orð. - R8-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.